Vísir - 26.01.1980, Síða 19
Laugardagur 26. janúar 1980
Spádómar
Jean Dixon
Súrt og sætt
Jane Fonda kallar sig bylt-
ingarmanneskju, en innra meö
sér er hún elsk að fööurlandi
sinu og stolt af þvi og þreytist
ekki á tilraunum sinum til þess
að bæta það. Hún verður áfram
i eldlinunni næstu árin, þar til
hún hefur hlaupið af sér skörp-
ustu hornin.
Hún og maður hennar, Tom
Hayden, munu vegna stjórn-
málaskoðana sinna verða i
hættu stödd á árinu 1980. Þau
munu einnig upplifa það að vera
hrósað upp til skýjanna einn
mánuðinn, en nidd niður hinn
mánuðinn. 1 ágúst verður Jane
úthlutað heiðursverðlaunum, ef
til vill af erlendri konungsfjöl-
skyldu. í september munu hún
og maður hennar sæta rann-
sóknum, pólitiskum og á fjár-
málasviðinu, og ef til vill mun
Jane gefa yfirlýsingar, sem
valda munu fjaðrafoki.
A þessu ári mun Jane missa
ástvin.
Á framabraut sinni mun
Jane njóta áframhaldandi vel-
gengni. Hún mun leika hrifandi
hlutverk, sem mun færa henni
nýja viðurkenningu. Ef til vill
rætist draumur hennar um að
fá að leika á móti fööur sinum,
Henry.
Thatcher í háska
Járnfrúin breska, Margaret
Thatcher, mun hafa ærinn
starfa af innflytjendavanda-
málum heima fyrir og áfram-
haldandi vandræðum á Norður-
Irlandi, en persónulega
mun henni s jálfri stafa hætta af
aðila, sem hún telur núna vera
vin sinn. Þar við bætist, að góð
byrjun á sambúð hennar og
Bandarikjanna mun snúast á
verrri veg á árinu 1980.
Innflytjendur úr þriðja
heiminum munu streyma
áfram inn i fátækrahverfi
Stóra-Bretlands, þar sem heil-
brigðisþjónustan mun brotna
undan álaginu. Það mun koma
til harðra átaka, þar sem
margir lögreglumenn munu
falla. Thatcher veröur neydd til
þess að taka örlagarikar og
stundum óvinsælar ákvarðan-
ir.
Snemma vors veröur mikið
Margaret Thatcher
Þau veröa blaöa-
matur áriö 1980
Jean Dixon er þekktasta spákona Bandaríkjanna augum blaöalesenda hér, og spádómum hennar síð
og mikið kynnt hér á landi frá þvi að spádómar an minna verið haldið á lofti.
hennar birtust hér í blöðum og islenskuð var bók Við hver áramót hefur frú Dixon haft það fyrir
eftir hana, sem hér kom út. sið að beina framsýnum augum sínum fram á veg
þekktra manna og kvenna, sem verða fyrirsagnar-
Hún hefur þótt býsna sannspá, en þó auðvitað efni fjölmiðlanna á næstu tólf mánuðum. Danska
mistæk, eins og gengur og gerist, eða eins og þegar stórblaðið Berlingske Tidende birti á dögunum nýj-
hún spáði því, að Nixon mundi halda velliþrátt fyrir ustu spá hennar fyrir árið 1980 og fara úr þeim spá-
Watergatemálið. Setti hún nokkuð niður við það í dómi nokkrar glefsur hér á eftir.
rask á einkahögum Thatcher
vegna óvæntrar breytni mann-
eskju, sem er henni náin.
Kannski náinn samstarfsmað-
ur. Hún mun þó standa af sér
þessa atlöguog hinn seki lendir
i fangelsi.
Carter forseti mun illa
skilja, hve hikandi Thatcher
verður við að blanda Bretlandi
inn i oliudeilur, sem USA mun
standa i. Sambúð bræðralags-
rikja mun spillast af þvi, en
Thatcher mun best aö einbeita
sér að vandamálunum heima
fyrir.
Dregur sig í hlé.
Hinir pólitisku leiðtogar
munu ekki eiga náðuga daga.
Menahem Begin, forsætisráð-
herra ísraels, neyðist til þess
aö halda áfram landamæraer j-
unumog berjastfyrir þjóðsina
jafnt á hinum pólitiska vett-
vangi sem á vigvellinum.
í upphafi árs mun Begin
hljóta ýmsa viðurkenningu.
Enginn getur þrætt fyrir
árangur hans á efnahagssvið-
inu eða fyrir samninga
hæfni hans og sem fööurlands-
vinur er hann óumdeilanlegur.
En honum mun veitast erfitt að
standa við fyrirheit Camp
David-samninganna. Hin
arabisku riki munu beita áhrif-
um sinum og „heilögu strlði”til
þess að spilla bræðralaginu við
USA.
Asiöari helmingi ársins 1980
mun Begin draga sig i hlé af
heilsufarsástæðum, enda hefur
hann lengi átt við heilsubrest
að striöa.
i V
Menahem Begin
Sadat og USA
Anwar Sadat forseti mun
leggja sig allan fram til að
vinna að hagsmunum sins
Egyptalands og einnig hags-
munum Bandarikjanna i aust-
urlöndum nær. Framlag hans i
þágu eigin föðurlands mun
þykja mikilsvert og velheppn-
að, en honum mun æ ofan i æ
misheppnast meðalgangan fyr-
ir USA.
Eitt mikilvægasta erindið,
sem Carter forseti mun biðja
sinn egypska starfsbróður
fyrir, verður að koma i kring
fundi i Egyptalandi milli
Carters og Khomeinis. Slikur
fundur mun þykja of áhættu-
samur og verður aldrei af hon-
um.
Egyptaland mun missa einn
af sinum bestu sonum.
Manneskja, sem er Sadat
mjög kær, verður myrt.
Stöðugt í hættu.
transkeisari fyrrverandi
mun áfram lifa i stöðugri
hættu. Yfir honum vofir að
verða rænt eða hann myrtur.
Einn óvina hans mun komast
iskyggilega nærri honum i fals-
gervi læknis eða prests. Það
gæti orðið örlagarikt, ef
lifverðir keisarans verða ekki
viðbragðsfljótir.
Óvinir keisarans i Iran og
annarstaðar munu reyna nýja
gislatöku. Þeir munu elta ætt-
ingja keisarans á röndum til
Reza Pahlevi keisari
þess að ná þeim fyrir gisla og
neyða gestgjafa keisarans til
þess að framselja hann. Þetta
mun þó ekki valda honum
mestri hættu, heldur verða
veikindin honum alvarlegri.
Sérstaklega veröa honum
febrúar, mars og júni erfiðir,
ef heilsa hans endist honum
svo lengi.
Ameðan verða mjög ýktar
sögurnar um auðlegð keisar-
ans, og ákveðnir ráðgjafar
hans i efnahagsmálum og
bankamenn munu nota sér
ringulreiðina til þess aö draga
sér eitthvað af fé hans.
Eigið fórnardýr.
Jafnvel æðstiprestur kemst
ekki af til eilifðar með hefndina
eina að leiðarljósi. Þetta ár
mun fela i skauti sér ýmsar
ögranir við völd Khomeinis.
Krossför hans mun leiða af sér
strið og óeiningu i öllum aust-
urlöndum nær, og sumstaðar
leiöa til mannfalls. Sjálfur
verður hann fórnardýr púk-
ans, sem hann hefur hleypt úr
flöskunni.
Einhver náinn ættingi Kho-
meinis, hugsanlega sonur
hans, verður skotmark manna,
sem leita hefnda á föður hans á
sama hátt og Khomeini hefur
leitað hefnda á keisaranum.
Sömu örlög biða æðstaprests-
ins, þegar liðurá árið og sú
ringulreið, sem hann hefur
skapað, ógnar orðið heimili
hans sjálfs.
Eftir þvi sem mánuðirnar
liða mun renna upp fyrir
Khomeini, að lýðnum, sem
hann æsti upp, er stjórnað af
utanaðkomandi öflum. Að
tjaldabaki teflir um völdin hóp-
ur vel þjálfaðra manna, sem
hliðhollir eru öflum utan trans.
Nýtt hjónaband
Hjónaband Cristina Onassis
og Rússans mun ekki endast
lengi. Jafnvel þótt þessi stór-
auðuga griska kona eignist sitt
fyrsta barn, munu þau skilja,
og Christina mun aftur leita i
hið hlýja loftslag við Miðjarð-
arhafið. Þar mun hún mæta
manni, sem verður hennar
fjórði eiginmaður.
Mörgum mun þykja lygilegt,
að Christina geti lent i fjár-
kröggum, eftir allan arf skipa-
kóngsins . En lagaflækjur munu
hindra henni aðgang að fé, þeg-
ar hún þarf á þvi að halda, og
um hrið verður hún upp á vini
sina komin til þess að fleyta
henni i gegnum erfiða kreppu.
ögranir
Fyrstu þrjá mánuði þessa
árs verða kosningahorfur
Kennedys öldunadeildarþing-
manns stöðugt betri. Með þvi
einu að hafast ekkert að mun
hann fara upp fyrir Carter I
vinsældakönnunum, meðan sá
Christina Onassis
siöarnefndi þarf að taka afleið-
ingum nokkurra óvinsælla ráð-
stafana.
1 april mun barómetiö falla
að nýju, þegar Carter tekur að
einbeita sér að þvi að sýna
fram á mistök keppinautar
sins og galla. t júníverða þeir
svipaöir að vinsældum, og um
það leyti mun alvarleg kreppa
koma þeim til þess að snúa
bökum saman gegn keppinaut-
um þeirra I repúblikanaflokkn-
um. Þrátt fyrir bitra deilu
þeirra innbyrðis mun þeim
takast aö koma fram fyrir fólk
sameinaðir og leiða i einingu
demókrataflokkinn til sigurs I
koningunum i nóvember.
Þyngsta prófraun Kennedys
vaður ekki flokksþingið i ágúst,
þegar forsetaefniö verður val-
ið. Það verður i staðinn um
tima i mars, þegar opinbert
umtal um einkahagi hans mun
reitahanntilinikillar reiði. Við-
brögð hans i þvi máli, hvort
sem þau verða skiljanleg eða
ekki, munu hafa afgerandi
áhrifá það, sem eftir veröur af
kosningabaráttu hans.
Grátur konunnar
Eins og ég spáði siðasta ár
tók Joan Kennedy sér stööu við
hlið manns sins núna i haust,
þegar hann lýsti yfir þátttöku
sinni i kosningabará'ttunni.
Hún mun áfram sjást honum
við hlið og koma fram fyrir
hans hönd, þótt óvissan nagi
hana um, hvað siöan tekur við.
Alagið verður henni sérlega
erfitt,og þá ekki sist, þegar að-
gangsharðir blaðamenn vilja
rekja úr henni garnirnar um
einkahagi. Henni væri ráðleg-
ast að veita ekki viðtöl inni á
heimilisinu. Hún hættir annars
á, að snúið veröi út úr ein-
hverju tilsvari hennar og um-
talið af þvi gæti grætt hana en
gert bóndann bálillan.
Nixon
A þessu ári mun Nixon, fyrr-
um Bandarikjaforseti, vera
mikið á feröum til annarra
landa, þar sem hann á boð inni.
Heima fyrir mun hann vinna að
nýrri bók. Það verða ekki bein-
linis æviminningar, heldur per-
sónulegar umsagnir hans um
hápunktana á stjórnmálaferli
hans. Gagnrýnendur munu
fara hörðum höndum um bók-
ina, en það mun þó ekki aftra
honum frá þvi að hefjast handa
um nýtt ritverk, sem bundið
verður pólitiskri. heimspeki
hans sjálfs.
Nýtt sjónvarpsviötal meö
Nixon i vor mun kalla fram nýj-
ar umræður um viöhorf hans
og gjörðir i forsetaembætti.
Hreinskilningslegar yfirlýs-
ingar hans um morðið á þekkt-
um manni fyrir nokkrum ár-
um, verða aðalinntakið i ásök-
unum og gagnrýni.
Richard Nixon