Vísir - 26.01.1980, Page 20

Vísir - 26.01.1980, Page 20
Framhaldssag* an — 2. hluti LÓA Lóa, Guðrún og Tómas fara oft á skíði. Fyrir framan stóra 8 hæða hús- ið, þar sem þau búa er góð skíðabrekka. Þar er lika gott að renna sér á þotum. Lóa fékk skíði í jólagjöf frá ömmu og nú er hún svo ánægð, þvi að nú getur hún farið með vinum sínum á skíði. Fyrst var Lóa nú heldtar klaufsk. Hún varalltaf að detta. — Þú átt að halla þér áfram, sagði Tómas og renndi sér fimlega niður brekkuna. Hann fékk skíði þegar hann var fjögurra ára og kunni nú vel á skíðum. En þá hallaði Lóa sér allt of mikið fram og var næstum dottin á nefið. Tómas og Guðrún fóru að hlæja. En með æf ingunni tókst Lóu að læra skíðaíþrótt- ina. Það var svo gaman að þjóta niður brekkuna og f inna vindinn leika um kinnarnar. Það voru líka margir krakkar, sem renndu sér á þotum. Þau fóru ofsa- hratt og stundum fóru þau í kapp eftir vissri braut sem þau höfðu gert í snjóinn. Stundum fóru þau lika í halarófu niður, en þá gat nú farið svo að allir dyttu í eina hrúgu. Þá kom líka fyrir að einhver meiddi sig. Það var eiginlega best að hver renndi sér út af fyrir sig. Lóa, Guðrún og Tómas voru oft á skíðum alveg fram til klukkan sjö á kvöldin, ef veðrið var gott. En klukkan sjö fóru þau alltaf inn að borða kvöldmatinn. Svo fóru þau að læra fyrir skólann;þá horfðu þau oft á sjónvarpið til klukkan hálf tíu. Skemmtilegast fannst þeim, þegar teiknimyndir voru i sjónvarpinu. Og mömmu og pabba fannst líka oft gaman að horfa á myndirnar sem krökkun- um líkaði best að horf a á. Og Lóa vissi, að ömmu og afa þótti líka gaman að sliku sjónvarpsefni. Lóu fannst því að slíkt efni ætti að vera á hverju kvöldi eftir fréttir í sjón- varpinu, fyrst að öllum, sem hún þekkti þótti það svo skemmtilegt. Frh. Þessi mynd var tekin á dögunum í Landsbankanum við Austurstræti. Þar hefur verið tekin upp sú skemmtilega nýung, að útbúa sérstakt leikborð fyrir yngstu börnin. Þargeta börnin leikiðsér að Legó-kubbum á meðan pabbi eða mamma eru að útrétta. Þetta er til fyrirmyndar og mættu aðrir bankar og stærri þjónustustofn- anir taka upp svipað fyrirkomulag. Visismynd: JA hœ kiakkar! Umsjön: Anna Br.ynjúlfsdóttir VÍSIR Laugardagur 26. janúar 1980 Jón'na Þorbjörg GuOmundsdóttir, 7 ára, aft skrifa Hvort er hollara ...? Einu sinni voru lýsis- flaska og kókflaska að rifast. Kókflaskan sagði: ,,Allir krakkar kaupa mig". En þá sagði lýsisflask- an: „En þú skemmir tennurnar í krökkum, og ég er hollari en þú. Þá sagði kókflaskan: „Enginn vill þig og ég er miklu fallegri í laginu". Þá sagði hafragrautar- potturinn: „Það er alveg satt, sem lýsisflaskan segir. Endir. Jónína Þorbjörg Guð- mundsdóttir, 7 ára Ný- býlavegi 56.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.