Vísir - 07.02.1980, Page 2
VtSLH
Fimmtudagur 7. febrúar 1980
P.
Sardlnurnar gömlu og „góöu”: Eins og sjá má er dósin frá 1975, en venjulega er slík vara ekki
talin endast lengur en 1-3 ár. Visismynd JA
úsðluhæfar innfluttar
matvðrur á
boðstólum hérlendls
Sama tegund matvöru og heiidrigöisytirvöiú tókuafmark-
aði sl. sumar enn tll sölu í einni störversiun i Reykjavík
Á að leyfa frjálsa notkun
eiturlyf ja?
Hafdis Kristmundsdóttir, nemi:
Mér finnst að ef það er ekkert
hættulegra en áfengi, þá eigi fólki
að vera það i sjálfsvaldi setti.
Olaíur Jakobsson, vinnur viö
járnsmiö: Nei, ég held að það
gæti komið mörgu fólki við.
Annars er ég á móti ýmsum höft-
um, sem stjórnvöldin hafa sett á
þessi eiturlyf.
Gunnar Valgeirsson, nemi:
Nei, ég vil nú ekki láta leyfa al-
gjörtfrjálsræði. Það fer eftir þvi
hve sterk lyfin eru. Það er allt i
lagi með hass og mariúana —
sýrurnar eru hins vegar verri.
Stefán Friöðgeirsson, nemi:
Nei, alveg örugglega ekki. Ég tel
að þessi efni leiði ekki gott af sér.
Iiildur Ardis Siguröardóttir,
nemi: Það á að leyfa fr jálsa not-
kun kannabisefna, þar sem það
er t.d. ekkert hættulegra en
áfengi. Notkun þessara efna ætti
samt að vera háð vissum aldri.
Innfiuttar niöursuöu vörur
sem ekki standast kröfur heil-
brigöisyfirvalda eru seldar I
verslunum hérlendis aö þvi er
Visir hefur sannreynt. Er hér
um aö ræöa niðursoönar sardin-
ur frá Marokkó frá árinu 1975,
en sardinur frá sama framleiö-
anda, framleiddar áriö 1976,
voru dæmdar ósöluhæfar af
Heilbrigöiseftirliti Reykjavikur
sl. sumar.
Upphaf þessa máls er það að
Neytendasamtökin iétu rann-
saka sardlnur sem keyptar
höfðu verið hjá Sláturfélagi
Suðurlands I Glæsibæ i júlimán-
uði sl. Var þar um að ræöa
portúgalskar sardinur frá árinu
1975 og sardinur frá Marokkó,
en þær voru frá 1976. Við rann-
sókn hjá Matvælarannsóknum
rikisins reyndust báðar þessar
tegundir vera ósöluhæfar og fór
þá Heilbrigðiseftirlit Reykja-
vikur þess á leit við verslunina
að vörur þessar væru teknar af
markaði. Var það gert nema
hvað birgðir af Natacha-sardin-
um frá Marokkó voru þrotnar,
að sögn verslunarstjórans.
Nýlega rakst blaöamaður
Visis svo á þessa sömu tegund
af sardinum i S.S. Glæsibæ og
voru þær dósir ári eldri en
hinar sem dæmdar höfðu verið
ósöluhæfar af Heilbrigðiseftir-
liti Reykjavikur. Fékk hann
Neytendasamtökin til að rann-
saka sardinurnar og voru þá
fleiri sýnishorn tekin um leið.
Dósirnar voru slðan rannsak-
aðar hjá Rannsóknarstofnun
fiskiðnaöarins og kom þá i ljós
aö Natacha-sardinudósin var
mikið tærð að innan og voru
komnar gráar skellur á dósina
innanverða. Að auki voru ryð-
blettir á dósinni utanverðri.
Ekkert var tekið fram á umbúð-
um um endingartima vörunnar.
Portúgalskar sardinudósir frá
1977 sem rannsakaðar voru
reyndust einnig tærðar, en mis-
mikið. Sardinurnar voru þó
taldar vera i lagi með tilliti til
lyktar bragðsog útlits, en gerla-
prófun fór ekki fram. Þess má
geta aö samkvæmt sænskum
staðli er endingartimi slikrar
vöru talinn vera eitt ár.
—HR
Sardinudósin aö innanveröu: Þar má greinilega sjá stórarskellur sem eru tiikomnar vegna tæringar.
„Þetta
hlýlur
að vera
siys”
sagðl verslunar-
stjórlnn í Glæslbæ
„Þaö hefur bara gerst slys —
þaö hefur fundist einhver gam-
all kassi meö sardinudósum á
lagernum og hann hefur óvart
verriö settur upp I verslunina,”
sagöi Guöjón Guðjónsson, versl-
unarstjóri I Glæsibæ, þegar Vis-
ir spurðist fyrir um þetla atvik.
Guðjón sagði aö þessum
sardinum yrði kastað, þar sem
þær væru orðnar of gamlar.
Þarna væri um að ræða sardin-
ur i oliu, en venjulegur endingar-
timi þeirra værii kringum þrjú
ár. Natacha-sardinurnar eru
hins vegar frá árinu 1975, en
hinar sardinurnar sem rann-
sakaðar voru, frá árinu 1977.
Guðjón var spurður hver hef ði
flutt þessar vörur inn og sagði
hann aö erfitt væri fyrir- sig að
muna það, þar sem vörur þess-
ar hefðu verið fluttar inn fyrir
2-3 árum, en taldi þó að Ó. John-
son og Kaaber hefði flutt þær
inn. Þegar Visir spurðist fyrir
um þetta hjá fyrirtækinu, könn-
uðust forsvarsmenn þar við aö
hafa flutt inn nokkrar þeirra
tegunda sem rannsakaðar voru,
en ekki umræddar
Natacha-sardlnur. —HR
Guöjón Guöjónsson verslunar-
stjóri i Glæsibæ.
Ekki fariö
að reglum
seglr forstöðumaður
Helibrigðiseftlrllts
Reyklavfkur
,,Viö veröum aö taka þetta til-
felli þegar til meöferöar, þvi
þaö er á hreinu aö þarna er ekki
fariö eftir settum reglum”,
sagöi Þórhallur Halldórsson
forstööumaöur Heilbrigöiseftir-
iits Revkjavikur i Samtali viö
Vísi.
Þaö er heilbr igðisef tirli t
Reykjavikur sem hefur eftirlit
með matvöru i verslunum i
Reykjavikur og lætur stöðva
sölu á matvælum, ef heilbrigöis
kröfur eru ekki uppfylltar. Svo
var einmittgert með niðursoðn-
ar sardinur frá PortUgal og
Marokkó sl. sumar, m.a.
Natacha sardinur frá árinu
1976. Sagði Þórhallur að það
yrði litiö mjög alvarlegum aug-
um ef um ný jan innflutning væri
að ræöa á þessum sardinum, en
eins og áöur er vikið aö fundust
núna sardinur frá 1975 I verslun-
inni.
Heilbrigðiseftirlit rikisins
hefur eftirlit með innflutningi á
niðursoðinni matvöru, og sagði
Hrafn Friöriksson forstöðumaö-
ur nýlega I viötali við Visi aö
vegna mannfæðár og fjárskorts
væri eftirlitið ekki i stakk búiö
til að fylgjast með öllum þeim
vörum, sem hér kæmu á mark-
að. —HR