Vísir - 07.02.1980, Side 13
■Smt Fimmtudagur 7. febrúar 1980
13
Nú eru merkingarnar í samræmi við
merkingar annarrar matvöru í neyt-
endaumbúðum.
Vissir þú að 45+ osturinn er aðeins
26% feitur?
Gömlu merkingar ostanna sýndu fitu-
hlutfall í þurrefnum þeirra.
Mtaöfixmviö
brwtt merkmgum
ostaxmatílað
auöveldabér
að sjá raummnilagt
fituimií'haW
þeúra.
VÍSIR
Fimmtudagur 7. febrúar 1980
en hann er
líka hollur
því að í honum eru öll næringarefni
mjólkurinnar og flest í mun ríkara mæli.
Próteiniö-
gur skammtur af því er nauðsyn-
legur til uppbyggingar og viðhalds
frumum líkamans. Ostur er mun pró-
teinríkari en t. d. kjöt eða fiskur.
Dagleg þörf af próteini er áætluð um
45—65 g en í 100 g af osti eru 27—32 g
af próteini.
Mjólkurostur^r
besti
í venjulegu fæði. En kalkið á mestan
þátt í myndun og viðhaldi tanna og
beina. Af því þurfa börnin mikið og allir
eitthvað.
Auk þess
er í osti
sem gerir ostínn gó
steinefna
ogvitamina
sem auka orku
og létta lund
Já
bað er fleira
en bragðið
[ðoan.
Söngvararnir.sem syngja einsöngshlutverkin f óperunni La Traviata. Stjórnandinn Gilbert Levine er á milli þeirra ólafar Haröardóttur og Garöars Cortes.sem syngja hlutverk Violettu og Alfredo.
Visismynd GVA.
Þaö fór ekki á milli mála að
margt okkar besta söngfólk var
saman komið i Melaskólanum i
gærkvöldi. Fallegar ariur hljóm-
uðu um skólann og þegar kórinn
tók undir mátti heyra það út á
götu.
Æfingar á operunni La Traviata
eru nú i fullum gangi, en hún verð-
ur sýnd i Háskólabíó á þriðjudag
og fimmtudag i konsertuppfærslu.
Flutninginn annast Sinfóniuhljóm-
sveit Islands, Söngsveitin Fil-
harmonia og tiu einsöngvarar.
Alls taka þátt um 180 manns i
óperunni.
Hljómsveitarstjóri er Gilbert
Levine og honum til aðstoðar Sue
Marie Peters.
La Traviata var sett upp i Þjóð-
leikhúsinu 1951, en þetta er i fyrsta
skipti sem Sinfóniuhljómsveit Is-
lands á frumkvæðið aö flutningi
óperu.
Sue Marie Peters starfar viö Metropolitan óperuna i San Fransisco, en
þar hefur hún þaö starf aö þjálfa sérstaklega söngvara sem syngja i
óperum. ísiensku söngvararnir voru mjög ánægöir meö starf hennar
hér.
Tekur við sprota
Karajans.
Gilbert Levine er rúmlega þri-
tugur. Hann er fæddur i New York
og lærði hjá Dennis Russel Davies
við Juillard-skólann. Þá nam hann
einnig við Princetonháskólann,
hjá Nadiu Boulanger I Paris og við
Yaleháskólann i Connecticut hjá
Gustav Meyer.
Levine varð sérlegur aðstoðar-
maður George Solti i London og
Paris árið 1973. Þar unnu þeir
saman að konsertum með
L’Orcherstre de Paris, BBC Syn-
phony Orcherstra við Royaí Opera
House, Covent Garden og með
London Philharmonic Orchestra
við upptökur á La Bohéme.
Hann varö framkvæmdastjóri
og fastur hljómsveitarstjóri Nor-
walk Symphony Orcherstra 1974
og hefur siðan stjórnað ýmsum
hljómsveitum i Evrópu og
Ameriku.
Arið 1975 komst hann i úrslit i
hinni þekktu Karajankeppni I
Berlin og er hann eini Bandarikja-
maðurinn sem hefur tekist þaö.
Héðan fer hann til Berlinar þar
sem hann tekur við sprotanum úr
hendi Herbert von Karajan og
stjórnar Filharmóniuhljómsveit
Berlinar.
Sue Marie Peters starfar við
Metrópolitanóperuna i San
Fransisco. Hún þjálfar sérstak-
lega söngvara sem fara með hlut-
verk i óperum.
Átakanleg ástarsaga.
Giuseppe Verdi samdi La Tra-
viata áriö 1853, en vann hana jafn-
hliða óperunni II Trovatore. Verdi
vann óperur sinar venjulega á
nokkrum mánuðum, en La Travi-
ata samdi hann aðeins á einum
mánuöi.
Öperan fjallar um ástir þeirra
Violettu Valery og Alfredo Ger-
mont. Ungu hjúin fá ekki að eigast
og endurinn verður sá að Violetta
deyr i örmum Alfredo.
1 fyrsta sinn þegar óperan var
sýnd á ttaliu I mars 1853 fékk hún
ömurlegar viðtökur. Astæðan var
sú að hlutverkaskipan féll ekki i
kramið hjá leikhúsgestum. Það er
kannski ekki furða þvi i hlutverki
Violettu var tvibreið frú og elsk-
huginn var álika i laginu. Þau
áttuþvi erfitt með að draga upp
mynd af ungum elskendum, þrátt
fyrir góðar raddir.
Ari siðar var annað uppi á ten-
ingnum hvað varðaði hlutverka-
skipan og óperan var látin gerast
um 1700, en ekki i samtimanum
eins og i fyrstu uppfærslunni.
Þessi sýning sló i gegn og slðan
hefur La Traviata verið uppáhald
óperugesta.
Ólöf og Garðar I aðal-
hlutverkum.
Það eru þau ölöf K. Harðardótt-
ir og Garðar Cortes sem fara með
hlutverk elskendanna Violettu og
Alfredo. Þetta er stærsta hlutverk
Ólafar hingað til.
Giorgio Germont föður Alfredo
syngur Guðmundur Jónsson,
Floru vinkonu Violettu syngur
Anna Júliana Sveinsdóttir og
Kristinn Hallsson syngur hlutverk
læknis hennar.
Þá syngja þau Elisabet Erlings-
dóttir, Már Magnússon, Halldór
Vilhelmsson, Hjálmar Kjartans-
son og Kristinn Sigmundsson, að
ógleymdum kór, sem er skipaður
Söngsveitinni Filharmóniu.
Stjórnandi hennar er Marteinn H.
Friðriksson og undirleikari er
Agnes Löve. —KP.
La Traviata var sett upp I Þjóðleikhúsinu 1951, hér eru Einar Kristjáns-
son og sænska söngkonan Hjördis Schynberg I hlutverkum sinum.
erking áður
20+
30+
45+
u%
17%
26%