Vísir - 18.02.1980, Qupperneq 3
3
VÍSIR
Mánudagur 18. febrúar 1980.
Fyrrverandi
Iranskeisarf og
David Frost ræðast
vlð í sjónvarninu
íkvöid:
ViðiaisDátlur. sem
vakti mikla athygli
Reza Phalevi, fyrrv. irans-
keisari.
keisarans, næöi naumast þúsund.
— „Þeir sem nefna tölur eins og
100 þúsund manns, kunna greini-
lega ekki aö telja, hvaö þá meir,”
sagöi Reza Phalevi.
Þungorður um Khomeini
Hann fór hörðum orðum bæði
um Khomeini æðstaprest og vald-
hafana i iran eftir hina islömsku
byltingu. Efaðist hann um, að
Khomeini hefði greind eða getu til
þess að stýra landi og þjóð, eða
hrinda hugsjónamálum sinum i
framkvæmd. Þegar Frost spurði
hann um, hvort hann hygðist snúa
aftur til Irans og láta dómstóla
skera úr ákærumálunum á
hendur honum, svaraði keisar-
inn: „Hverjir þykjast þeir vera
þess umkomnir að dæma mig?
Fyrr ætti aö draga þá fyrir rétt.
Þeirhafna ályktunum Sameinuðu
þjóðanna, hundsa úrskuröi
Alþjóðadómstólsins i Haag, hiröa
ekki hætishót um almenningsálit-
ið i heiminum og virða ekki al-
þjóðalög. Þeir myrða fólk svo
hundruðum, ef ekki þúsundum
skiptir.”
Þeir Frost og keisarinn komu
viða viö i samræöum sinum, og
véku meðal annars aö orðskvitti
um, að íran hefði látið fé renna i
kosningarsjóði stjórnmálamanna
Viðtalsþátturinn, sem islenska
sjónvarpið hefur 'fengið til
sýningar í kvöld, með þeim
Mohammed Reza Phalevi, fyrr-
um transkeisara og David Frost,
sjónvarpsstjörnunni „fyrrver-
andi”, eins og sagt hefur verið um
hann, vakti mikla athygli.
Ýmsar umsagnir keisarans
lentu á forsiðum heimsblaðanna
daginn eftir að þátturinn var
sýndur i bandarisku sjónvarps-
stöðinni ABC, sem var 17. janúar.
Reza Phalevi keisari þótti
koma vel fyrir og svara spurning-
um David Frosts, sem i þessum
þætti var jafn-aðgangsharður við
„fórnarlamb” sitt og hann er
frægur fyrir úr öðrum þáttum,
bæði einarðlega og sannfærandi.
Frost minnist meðal annars á
þá gagnrýni og þau ámæli sem
keisarastjórn Irans hefur legið
undir, og grimmd og harðýðgi
SAVAK-leynilögreglunnar. Keis-
arinn glúpnaði hvergi, heldur
sagði þessar sögusagnir hrika-
legar ýkjur og illrætinn róg.
Þegar á hann var gengið, taldi
hann, að tala þeirra, sem látist
hefðu i riki hans allan valdatima
David Frost.
hér og þar i heiminum, og þar á
meðal kosningasjóði Bandarikja-
forsetanna, Fords og Nixons.
Sagði keisarinn það hreinan upp-
spuna.
Ábyrgö olíufélaga
Hann upplýsti hinsvegar, að
nokkur bandarisk oliufélög bæru
að hluta ábyrgð á falli keisara-
stjórnarinnar. Hann nafngreindi
ekki þessi oliufélög.
Reza Phalevi litur á sjálfan sig
enn sem keisara Irans, og benti
Frost á það i viðtalinu, að hann
hefði aldrei fallist á afsögn,
heldur einungis brugðið sér i
ferðalag til útlanda.
Frost spurði keisarann, hvort
stuðningsyfirlýsingar Banda-
rikjastjórnar hefðu ekki i reynd
komið honum illa og beinlinis
stuðlað að falli hans. — „Það
hefði verið heppilegra, að stjórnir
Bandarikjanna og Bretlands
hefðu farið sér hægar i yfirlýsing-
unum og látið vera að blanda sér
i innanrikismál Irans,” var svar-
ið.
Þátturinn var aðeins klukku-
sýndur hjá ABC, en þegar Frost
lét taka þáttinn upp, sem var á
heimili keisarans i útlegöinni i
Panama, voru samræöur þeirra
miklu lengri. Þátturinn var
klipptur úr alls ellefu klukku-
stunda upptökum, en Frost dvaldi
i nokkra daga hjá keisaranum
vegna þáttarins. —GP
HAFSKIP HR
Hlutafjárútboð
Nýtt atak til sóknar
Að gefnu tilefni vill stjórn Hafskips hf.
vekja athygli þína á mikilvægi frjálsrar
samkeppni í öllum flutningum til og frá
landi okkar. Skipasiglingar milli íslands
og annarra landa er ein mikilvægasta líf-
æð þjóðarinnar og burðarstólpi frjáls at-
hafnalífs í landinu. Hafskip hf. gegnir hér
mikilvægu hlutverki. Við viljum benda á,
að með frjálsri samkeppni í flutningum
landsmanna er m. a. hægt að stuðla að
lægri tilkostnaði, betri þjónustu og mark-
vissari nýtingu tækniframfara, sem leiðir
til samkeppnishæfara verðlags á útflutn-
ings- og innflutningsvörum. Tilvera
framsækinna afla á þessu sviði er ein
mikilvægasta forsenda lýðræðislegrar
þróunar í atvinnulífinu. Hluthafahópur
Hafskips hf. er stór, en betur má ef duga
skal. Nokkur hundruð einstaklingar og
fyrirtæki hafa sameinast í
Hafskip hf., til þess að stuðla
að jafnvægi og frjálsari sam-
keppni íflutningamálum lands-
manna, og bættust hátt í 200
nýir aðilar í hópinn á s. I. ári.
En okkur er Ijóst, að ef
við ætlum að ná ár-
angri í baráttu við rót-
gróin einokunaröfl og
verjast ofríki á flutn-
ingamarkaðnum þarf
að koma til ný sóknar-
lota. Endurnýjun skipastóls Hafskips hf.
hófst með tilkomu fjölhæfniskipsins Ms.
,,Borre“. En eitt nýtt skip í flota okkar
dugar ekki til að losa um einokunartök.
Við verðum að taka í notkun fleiri ný skip,
bæta tæknilega uppbygginu og vöru-
meðferð í landi, endurbæta skipaaf-
greiðsluna heima og heiman, lækka til-
kostnað flytjenda og tryggja enn betra
áætlana- og siglingakerfi í næstu fram-
tíð. Stjórn Hafskips hf. hefur því ákveðið
að leggja fram á næsta aðalfundi félags-
ins, 21. marz n. k., tillögu um 250 millj.
króna hlutafjáraukningu. Viljir þú leggja
okkur lið, þá er stjórn og starfsfólk Haf-
skips hf. reiðubúið að veita þér allar upp-
lýsingar og taka við hlutafjárloforðum.
Þú heldur ef til vill, að hlutafjárframlag
þitt sé aðeins dropi í hafið, en hafðu það
hugfast, að það kann að vera dropinn,
sem tryggir okkuröllum frjálsarsiglingar
um ókomin ár. Hafskip hf. heitir á allt
stuðningsfólk frjálsra viðskiptahátta að
standa vörð um félagið og efla það til enn
virkari siglingasamkeppni.
Febrúar, 1980
Stjórn Hafskips hf.
m
HAFSKIP HF
Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu Sími 21160