Vísir - 27.02.1980, Blaðsíða 2
VtSIM
Miðvikudagur 27. febrúar 1980
2
Heldur þú að einræðis-
herra gæti Ieyst vanda-
málin á íslandi?
Þtírður Sigurðsson skrifstofu-
maður:
Nei, ekki ef hann væri íslenskúr.
Þaö væri erfitt að finna hann, en
við eigum von á góðum forseta.
Ólafur Gfslason skrifstofumaður:
Nei, ég efa þaö, ég held aö lýöræði
sé besti kosturinn.
Sveinn Sigmarsson, sjómaður:
Nei, hafa þaö eins og þaö er núna.
Þetta er fin stjórn, Gunnar er
ágætur, þó er ég ekki sjálfstæöis-
maöur.
Æsa Hrólfsdóttir nemi:
Já tvfmælalaust, ég meina þaö.
Vegna þess aö Islendingar eru
svo sjálfselskir aö þaö þarf einn
haröan til aö stjórna þeim.
Guðmundur Isaksson, sveita-
maöur:
Ekki býst ég viö þvi, íslendingar
þylduekki einræöisherra og hann
myndi deyja á miöri leiö.
Fötur og önnur tiltæk ilát voru dregin út á gólf þar sem vatniö lak. Myndin var tekin i skólaeldhúsinu.
Visismynd: BG
Miklll leki í nýju hús-
næði Hólahrekkuskólal
,,Viö urðum að fella niður
matreiðslukennsiuna, þvi það
lak svo mikið i skólaeldhúsinu.
Auk þess lak mjög mikiö i gang-
inum, þannig að ailir pottar og
kyrnur sem hefði þurft aö nota
við matreiöslukennsluna voru
settir undir lekann”, sagöi Arn-
finnur Jónsson, skólastjóri i
Hólabrekkuskóla, en skóla-
húsnæðið lak mjög mikið I ill-
viðrinu á mánudaginn.
„Þaö hefur lekiö töluvert i
vetur og þaö grátlegasta er, aö
húsnæöiö er alveg nýtt, viö tók-
um þaö I notkun i haust.
Þakiö er þannig gert, aö þaö
kemur turn meö gluggum upp
úr þvi og á mótum þaksins og
þessa turns voru settir þak-
gluggar til aö hleypa birtu niður
1 gangana. Þaö viröist ekki hafa
gengiö nógu vel aö ganga frá
samskeytunum, þar sem glugg-
arnir og turninn koma saman .
Þar lekur inn.
Þaö veröur vist ekki hægt að
ganga frá þessu fyrr en i sumar.
Þaö eru austur og suöur hliöar
skólans, sem verst hafa orðið
úti, enda mæöir mest á þeim
hliöum I vatnsveörum, eins og á
mánudaginn.”
— Hafa oröiö miklar
skemmdir?
,,Já, þaö hafa losnað upp gólf-
dúkar veggstrigihefur losnaö af
veggjum og hlaupiö til. Þá hafa
hljóðeinangrandi plötur i loftum
oröiö gular og ljótar.
Arkitektinn fulltrúi verk-
takans sem byggöi húsiö og
tæknimenn frá borginni komu
hingað á mánudaginn og
skoöuöu lekann”, sagöi
Arnfinnur Jónsson. — ATA
„Erfitt að
kenna elnum
eða nelnum
um lekann”
Gunnar Hansson,
arkitektinn, sem
teiknaði skóiann
//Þaö er afskaplega
erf itt að kenna einum eða
neinum um þennan lekar
það hefur aldrei verið
veður til að taka upp þak-
ið á þessum stað til að
kanna það", sagði
Gunnar Hansson, arki-
tekt, en hann teiknaði
Hólabrekkuskóla.
Lekinn er á tveimur hliöum,
austur- og suöurhliöinni, en þaö
hefur ekkert komiö fyrir á
noröur- og vesturhliöinni, en
þarna ætti aö vera eins
frágangur.”
— Er þetta hönnunargalli?
„Það er ekki nokkur leiö aö
dæma um þaö fyrr en búiö er aö
taka upp þakiö. Byggingardeild
Reykjavikurborgar og ég erum
aö undirbúa þetta núna. Þaö
veröur þó ekki fyrr en veöriö
veröur skaplegra.
Þaö hafa oröiö ýmis smá-
slys, eins og brotnar rúöur, og
þetta gerir máliö allt verra, þaö
er til dæmis ekki hægt aö tala
um hvort kittið hefur staöiö sig
eöa veriö gallaö”, sagöi Gunnar
Hansson, arkitekt.
— ATA
„Einn hönn-
unargaill
hefur komið
íljós”
segir Sigurður
Sígurjónsson,
annar eigandi
vertakatélagsins
sem sá um
byggingu skolans
„Það er Ijóst að það
hefur þegar komið fram
einn hönnunargalli i
þessu verki, en það er
glerið sem kemur i
framhaldi af þakinu",
sagði Sigurður Sigurjóns-
son, annar eigandi verk-
takafélagsins Sigurður og
Júlíus hf, en fyrirtækið sá
um byggingar-
framkvæmdir við Hóla-
brekkuskóla.
„Gleriö hefur veriö ákaflega
mikiö vandamál i þessu verki,
þaö er eins og þaö þoli ekki hita-
mismuninn. Þetta er tvöfalt
gler, 8 millimetra þykkt, en þaö
springur alltaf um leiö og veöur
breytist.
Ég vil taka þaö fram, aö strax
I upphafi verksins vöruöum viö
viö þessum gluggum, en þvi var
ekki sinnt.
Ég vil halda þvi fram, aö viö
höfum unnið þetta verk full-
komlega samkvæmt öllum út-
boös- og verklýsingum og
samkvæmt þvi sem tæknimenn
borgarinnar hafa lagt til.
Besta dæmiö til stuðnings þvi,
aö viö höfum rétt fyrir okkur er
viö bentum á þennan hönnunar-
galla, aö nú er veriö aö teikna
nákvæmlega sams konar skóla
upp viö öldusel, og þar er rik
áhersla lögö á þaö aö þessum
glerjum veröi sleppt”, sagöi
Siguröur Sigurjónsson.
— ATA