Vísir - 27.02.1980, Blaðsíða 5

Vísir - 27.02.1980, Blaðsíða 5
VÍSIR Miövikudagur 27. febrúar 1980 Kjörkössum komiö fyrir f Bumi Hills i Kódeslu, en varsla þeirra var falin friöargæsluliöinu. viss um eigin kosningunum Mugabe sigur í Þegar kjörstaöir I Salisbury voru opnaöir i morgun tóku blökkumenn þegar aö streyma til þeirra, og um leiö fyllast menn bjartsýni aö nýju. Skæruliöaleiötoginn, Robert Mugabe, i bjartsýni um óhjá- kvæmilegan kosningasigur sinn hefur leyst úr ágreiningi slnum viö Soames landsstjóra og lýst þvi yfir, aö hanri muni taka gildar niöurstööur kosninganna. Soames lávaröur virtist I rit- varpsræöu sinni I gærkvöldi von- betri en nokkru sinni fyrr I lands- stjórastarfi sinu um aö kosn- ingarnar mundu veröa heiöarleg- ar og frjálsar. — Sagöi hann, aö þrátt fyrir hótanir og ofbeldi I kosningabaráttunni „mundi Ródesia fá þá rlkisstjórn, sem hún kysi sjálf, og léttirinn og viöurkenningin væri hennar”. I Dar es Salaam I Tanzaníu gáfu leiötogar hinna fimm blökku- lýövelda I nágrenni Ródeslu út sameiginlega yfirlýsingu, þar sem kvaö viö nokkuö annan tón en á dögunum, þegar þeir sökuöu Breta um aö reyna aö falsa kosn- ingarnar. Reyna að sætta Líbíu 09 Túnis Arababandalagiö hóf I dag fund i Túnis til þess aö leita sátta I hat- rammri deilu, sem komin er upp milli tveggja aöildarríkja banda- lagsins, Llbíu og Túnis. Illindin hófust fyrir alvöru I síö- asta mánuöi eftir árás skæruliöa á fosfórnámabæinn Gafsa I Tún- is, en árásin kostaöi 41 bæjarbúa llfiö og á annaö hundraö manna særöust. Túnis sakaöi Llblu um aö hafa skipulagt árás skæruliöanna og gert þá út af örkinni, en stjórnin i Tripóli bar af sér allar sakir og tók undir beiöni Túnis um auka- fund I Arababandalaginu til þess aö fjalla um máliö. Libia krefst þess, aö fundurinn fordæmi þaö, sem Gaddafi leiö- togi Libfu kallar „innrás Frakka” 'i Túnis, en eftir árásina I Gafsa sendu Frakkar nokkur herskip á Miöjaröarhafinu I grennd viö Túnis til þess aö sýna vilja frönsku stjórnarinnar til aö grlpa I taumana, ef árásin á Gafsa væri hluti meiriháttar árásar á Túnis. Sambúö Túnis og Llbíu hefur veriö stirö allar götur frá þvl, aö Túnis ónýtti samkomulag, sem náöist 1974um samruna rikjanna. Eftir árásiria á Gafsa vlsaöi Túnis sendiherra Liblu úr landi. Gaddafi offursti hefur haidiö uppi haröri andstööu viö Frakka, og hefur raunar á síöustu mánuö- um einnig lent upp á kant viö Þjóöfrelsishreyfingu Palestínu- araba (PLO). Hjartað að gefa slg Eftir þvi sem opinberar heimildir I Belgrad segja hefur hjarta Títós forseta stööugt hrak- aö, og hefur honum þyngst sóttin. Naumast nokkur maöur eygir lifsvon fyrir Titó I þvi helstrlöi, sem hann heyr viö margskonar veikindi, er aö honum sækja. — Hver ein þeirra út af fyrir sig gætu riöiö honum aö fullu. Fyrir tilstilli nýrnavélar og sterkra meöala hefur læknum tekist aö halda llfsneistanum viö I Tltó, meöan hjartaö hefur dugaö, en eftir aö þaö fór aö bila hefur hallaö undan fæti. — Þar aö auki hefur Tító lungnabólgu. Vflrheyra fórnardýr pyndinga í íran Fimm manna nefnd á vegum Sameinuöu þjóöanna, sem stödd er I Teheran til þess aö rannsaka misgjöröir keisarastjórnarinnar, segir, aö þaö hafi hrært nefndar- menn aö sjá bækluö fórnardýr pyndinga og skotbardaga. I gær heyröu fulltrúarnir vitnis- buröi 140 manna, sem sætt höföu llkamsmeiöingum fyrir bylting- una I lran. Komiö hefur til tals, aö nefndarmenn heimsæki banda- rlsku glslana 49 I sendiráöinu, þar sem þeir eru á valdi stúdenta. Reagan sigraði Rush með yfirburðum Carter forseti og Ronald Rea- gan unnu hvor I sínum flokki fyrstu meiriháttar for- kosningarnar vegna vals demó- krata og repúblikana á fram- bjóöendum til forsetakosning- anna stöar á árinu. Þegar lokiö var talningu 89% atkvæöa I gærkvöldi, haföi Cart- er örugga forystu á Ted Kennedy (50%-37%), og enginn möguleiki á þvl, aö Kennedy gæti náö honum. Reagan, sem er elstur fram- boösefnanna, koma á óvart meö yfirburöasigri sinum yfir George Bush, en spáö haföi veriö, aö eftir örugga sigra Bush I Iowa og Puerto Rico, aö mjótt yröi á mununum hjá þeim. — Fékk Reagan 51% og Bush 22%. Spauga með „sigra” Kennedys Vonir Kennedy til þess aö hljóta útnefningu Demókrata- flokksins þykja nú hafa veikst mjög. New Hampshire þar sem forkosningarnar fóru fram I gær, heyrir til Nýja Carter getur vel viö unaö úrslit forkosninganna tii þess. — An þess aö koma sjálfur á kosn- ingaslóöirnar, hefur hann sigraö Kennedy æ ofan 1 æ. Englands-hluta USA og er ná- grannafylki Massachusetts, heimafylkis Kennedy-anna. A þessum slóöum hafa Kennedy- arnir átt sitt öruggasta fylgi. Þar sem Carter hefu nú tvíveg- is sigraö Kennedy á „heima- velli” þykir varla þurfa aö spyrja aö leikslokum, þegar kemur til forkosninga I suöur- rlkjunum, heimkynnum Cart- ers. Kosningastarfsmenn Kenne- dys hafa veriö tregir til þess aö viöurkenna „ósigra” á- trúnaöargoös slns og viljaö lita á, hve munurinn heföi veriö minni bæöi I Iowa og I New Hampshire, heldur en spáö haföi veriö fyrir. Hafa blaöa- menn hent aö þessu gaman og spurt talsmenn þingmannsins, hvort þeir mættu treysta þvl, aö þeim yröi örugglega sagt af þvl, þegar aö þvl kæmi aö Kennedy biöi loks ósigur, ef 37% atkvæöa gegn 50% fylgi Carters væri sig- ur fyrir Kennedy. Kennedy tók sjálfur undir þetta spaug I gærkvöldi og fagn- aöi meö fylgismönnum slnum enn einum „sigrinum” yfir Carter: „Fyrir fjórum árum fékk Carter 28% atkvæöi hér I New Hampshire og státaöi af Ronald Reagan fagnar sigri. — Yfirburöir hans yfir Bush komu á óvart. - meðan Garter sigraðl enn Kennedy I lorseta kosnlngunum I Hew Hampshire góöum sigri. Viö fengum næst- um 40% I dag og hljótum þvl aö fagna enn betri sigri.” Reagan hreinsaði sig Forkosningarnar hjá repú- bllkönum voru nánast einvígi milli Bush og Reagan, en Jerry Brown, rlkisstjóri Kalifornlu, fékk aöeins 10% og hefur nú dregiö sig út úr baráttu for- kosninganna þar I Wisconsin I aprll. Howard Baker fékk 13%. Fyrir talningu atkvæöa hjá repúblikönum vék Reagan þrem helstu kosningastjórum slnum úr þeim trúnaðarstööum. Ástæöuna sagöi hann vera þá, aö þeir heföu skipulagt kosningabaráttu hans til þessa þannig, aö kjósendur fengju helst ekki aö hitta hann. „Ég vil haga kosningabaráttu minni þannig, aö ég nái aö hitta fólkið I þessu landi,” sagöi Reagan.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.