Vísir - 27.02.1980, Page 8

Vísir - 27.02.1980, Page 8
Mibviku^agur 27. febrúar 1980 8 utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson Ritstjórar: Olafur Ragnarsson Höröur Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elías Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Hannes Sigurðsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónina AAichaelsdóttir, Katrln Pálsdóttir, Páll AAagnússon, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. utlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, AAagnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Askrift er kr. 4.500 á mánuði Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. innanlands. Verð i lausasölu 230 kr. eintakið. Auglysingar og skrifstofur: Siðumúla 8. Simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611 7 linur. Prentun Blaðaprent h/f. DAGBLAÐIÐ KASTAR GRlMUNNI Eiður Guðnason alþingismaður skrifar í gær skilmerkilega grein i Morgunblaðið, þar sem hann rekur með dæmum, hvernig Dagblaðið, sem til skrauts kallar sig „frjálst og óháð", hefur al- gjörlega afhjúpað sig að undan- förnu sem málgagn núverandi vinstri stjórnar, sérstaklega þó fylkingar Gunnars Thoroddsens í stjórninni. I grein Eiðs gætir þó illilega þess misskilnings, að Dagblaðið haf i þar til á síðustu vikum verið „frjálstogóháð". En Eiði er vor- kunn, því að Dagblaðið hef ur villt mörgum ágætum manninum sýn i þessu efni á undanförnum ár- um. Sannleikurinn er sá, að Dag- blaðið hef ur f rá fyrsta degi verið háð ákveðnum öflum, sem það hefur þjónað dyggilega með laumulegum hætti en lagt í einelti ákveðna menn, eftir því sem það hefur talið þóknanlegt húsbænd- um sínum og samverkamönnum. Það hef ur blekkt marga, að sam- verkamennirnir hafa verið úr ýmsum áttum, þótt húsbændurn- ir hafi verið úr einum flokki, Sjálfstæðisf lokknum. Þannig hefur Dagblaðiðfrá upphafi ver- ið sérstakt málgagn guðfeðra sinna, þeirra Gunnars Thorodd- sens og Alberts Guðmundssonar, en hamast linnulítið í mörg ár á Geir Hallgrímssyni. Vilmundur Gylfason og félagar hans í Alþýðuflokknum voru um langt skeið nytsamir samverkamenn þeirra Dagblaðsmanna sem I tíma og ótíma báru Benedikt Gröndal hinum verstu brigslum. Forystumenn kommúnista eiga svo góða liðsmenn i þeim Dag- blaðsmönnum, einkum þeir Svavar Gestsson, Olafur Ragnar Grímsson og Ragnar Arnalds, en aftur á móti hefur ekki verið áberandi, að Dagblaðið legði ein- hverja tiltekna flokksbræður þeirra í einelti. Um tíma var Ólafur Jóhannesson borinn öllum illum sökum í Dagblaðinu, en skyndilega sneri það við blaðinu og hóf Olaf til skýjanna, og verð- ur þessi viðhorfsbreyting helst sett í samband við það bandalag, sem stofnaðist með þeim Gunn- ari Thoroddsen og Ólafi Jóhann- essyni. Dagblaðið hefur þannig aldrei verið „frjálst og óháð", en það hefur hins vegar siglt undir fölsku flaggi og villt á sér heim- ildir. Þetta hafa þeir alltaf séð, sem þekkja til vinnubragða þeirra Dagblaðsmanna. Nú er gríman hins vegar fallin þannig að öllum er sýnilegt það, sem undir býr. En víkjum aftur að greina Eiðs Guðnasonar, og er þó aðeins hægt að vitna til örfárra af þeim dæm- um, sem hann rekur úr Dagblað- inu. Hér eru nokkrar glefsur: Eiöur Guönason alþingismaöur f jallar um Dagblaöiö, „frjálst og óháö”, I grein, sem hann skrifar i Morgunblaöiö i gær. Hann segir m.a.: En nú sannast þaö sem fyrr, hve allt er 1 heiminum hverfult. Sú breyt- ing hefur nú oröiö á örfáum vikum, aö frá þvi aö vera „frjálst og óháö dagblaö” er Dagblaöiö oröiö harösnúiö málgagn ný- myndaörar rikisstjórnar, og þó einkum og sér i lagi forsætisráöherra, Gunnars Thoroddsens”. „Föstudagur 22. febrúar. Efni leiðarans er lofsöngur um skoð- anakönnun Dagblaðsins, sem tal- in er sýna mjög mikið fylgi við ríkisstjórn dr. Gunnars Thorodd- sens. Þar segir m.a. „En greini- lega nýtur stjórnin sem stendur eindæma mikils fylgis þjóðarinn- ar". „Þriðjudaginn 12. febrúar. Fyrirsögn leiðarans er: „f húsi föður míns.." Leiðarinn er um Sjálfstæðisflokkinn og þar er harkalega vikið að Geir Hallgrímssyni að ekki sé meira sagt, og talað um hreinsanir í Sjálfstæðisflokknum í kjölfar klofningsins". Þær tilvitnanir í leiðara Dag- blaðsins, sem Eiður Guðnason rekur í grein sinni, segja einar sér þó ekki alla söguna um af- stöðu Dagblaðsins, öllu heldur þessi skrif í samhengi við litaðan fréttaflutning blaðsins af stjórn- armyndun Gunnars Thorodd- sens. Þá víkur Eiður Guðnason sér- staklega að þeirri kaldhæðni ör- laganna, að ritstjóri Dagblaðsins skuli hafa gleypt landbúnaðar- stef nu núverandi ríkisstjórnar og segir m.a.: „Nú spyrja sjálfsagt ýmsir: Hvað hef ur skeð? Sá maður sem hvað ákafast hefur gagnrýnt „vítahring vitleysunnar" í land- búnaðarmálum er nú allt í einu hljóður sem umlukinn grafarinn- ar þögn.... Jónas Kristjánsson ritstjóri Dagblaðsins og af ýms- um talinn óvinur bænda og land- búnaðar hefur gleypt hina nýju landbúnaðarstefnu ríkisstjórnar- innar án þess að svelgjast neitt verulega á. Þetta eru mikil og merkileg tíðindi". Ojæja! FRAKKAR DEILA UM KANNADISEFNIN Miklar deilur hafa sprottiö upp i Frakklandi, vegna dreifi- bréfs, sem nokkrir fylgjendur frjálsrar neyslu kannabisefna, þ.á m. nokkrir kennarar, dreiföu fyrir utan menntaskóla einn þar I landi fyrir um hálfum mánuöi. Hefur þetta „frum- kvæöi” kennaranna vakiö litla hrifningu yfirvalda og er liklegt aö þaö dragi dilk á eftir sér. Eins og fram hefur komiö i fjöl- miölum telja flestir sérfræö- ingar kannabisefni of hættuieg til þess aö til greina komi aö lög- leyfa þau, en þó eru nokkrir, sem mæla þessum efnum bót, m.a. á þeim forsendum aö þau valdi minni skaöa en áfengi. Allir viöurkenna þó þörfina á opinberri umræöu um þetta mál og nauösyninina á ákveönari stefnumörkun yfirvalda. Hætturnar. Meöal þeirra sem telja þessi efni hættuleg er prófessor G. Nahas, en hann er varafor- maöur franskrar upplýsinga- nefndar um eiturlyf, lyfjasér- fræöingar hjá S.b. og stundar auk þess rannsóknir sjálfur. Hann telur kannabisefni hættu- leg almennt, bæöi fyrir llkama og sál, en bendir sérstaklega á fjóra skaövænlega þætti: 1 fyrsta lagi valdi stööug notkun efnisins ýmiss konar skemmdum á öndunarfærum, bólgum og sllmhimnu berkj- anna (lungnakvefi), ertingu I vélinda, minnkuðum viönáms- þrótti gegn sýklum og aöskota- ögnum o.fl. t ööru lagi valdi kannabis truflun á framleiöslu kynfruma, fjöldi vanskapaöra sæöisfruma aukist og framleiöslan minnki almennt. Skv. athugun, sem gerö var á bandariskum og kanadiskum konum, sem reyktu marljúana oft I viku, kom i ljós aö reykingarnar ullu breyting- um á hormónastarfsemi og tiöir uröu óreglulegar. Einnig kom I ljós viö tilraunir á nagdýrum og öpum, aö eggjastokkar þessara dýra rýrnuöu og fósturdauöi jókst nokkuöer þeim haföi veriö gefiö marijúana um skeiö. I þriöja lagi fjallar hann um áhrif kannabisneyslu á persónu- leikann, en verkanir þessa efnis á taugakerfiö og ýmis svæöi heilans eiga aö valda breyting- um á hegöun og tilfinninga- mynstri neytandans. Einnig mun hafa oröiö vart heila- skemmda hjá Rhesus-öpum, sem lánir voru neyta marijúana I um 6 mánaöa skeiö. t fjóröa lagi er hann hræddur um,aö notkun kannabisefna leiöi neytandann seinna meir á vit hættulegri efna, þ.e. LSD, amfetamíns, barbltúr-sýra, oplum-efna o.fl. Þessu til stuön- ings bendir hann á könnum á fíkniefnaneyslu 5000 banda- riskra unglinga en hún leiddi I ljós aö 26% þeirra sem reyktu hass og marljúana leiddust siöarmeir út I sterkari lyf, en aöeins 1% þeirra sem aldrei höföu reykt uröu þessum efnum aö bráö. Aö lokum vitnar Nahas I álit þriggja bandarlskra sérfræö- inga, sem kallaöir voru fyrir bandariska rannsóknarnefnd sem fjallaöi um máliö, en þeir töldu kannabisreykingar sér- staklega hættulegar fyrir van- færar konur, lungnaveika, hjartveika, fólk meö geöklofa- tilhneigingar eöa aörar geö- truflanir, flogaveika og slöast en ekki slst unglinga, en tauga- aöutan kerfi þeirra væri ekki enn full- þroskaö. Efasemdir um hætt- una. Af þessu má sjá aö rökin gegn kannabisefnum eru margvlsleg, en lítum nú á mótrök dr. Olievenstein, yfirlæknis I Parls. Hann telur aö neytendur kannabisefna leiöist ekki endi- lega til sterkari efna þar sem I Bandarikjunum séu aöeins 5% eiturlyfjaneytenda herólnistar og þaö hlutfall haldist stööugt. Um meinta truflun á kynstarf- semi segir hann, aö nóg sé aö lita til Indlands eöa Marokkó, þar sem reykt hefur veriö um aldir, til þess aö sjá aö frjósemi sé þar slst minni en annars staöar I heiminum. Einnig sé vansköpun ekki algengari t.d. I Bandarlkjunum en I öörum löndum. Auk þess telur hann vlst, aö svokallaöar kannabis- sálsykingar geti aöeins orsakast hjá fólki, sem áöur hefur átt viö þessháttar vandamál aö strlöa eöa sýnt tilhneigingu I þá átt. I þessu sambandi vitnar hann I tilraun sem gerö var á 72 sjálf- boöaliöum úr bandarlsku fang elsi, en hún sýndi aö eftir eins mánaöar reykingar komu aöeins 6 „slæm-ferö” — tilfelli, 1 flogaveikikast hjá áöur floga- veikum manni, þunglyndiskast, og eitt geöklofa-tilfelli. Aö slöustu vlkur hann aö félagslegri hliö málsins og segir yfirvöld taka á sig mikla ábyrgö, meö þvl aö flækja ungl- inga I net lögreglu og dóms- valds, fyrir jafn vafasamar sakargiftir og neyslu kannabis- efna. Ekki sé forsvaranlegt aö stofna framtiö þessara unglinga I hættu, meö þvlaö koma þeim á j sakaskrá, þegar alls ekki sé búiö aö sanna skaösemi þessara I efna, og ýmis lyf I sama dúr standi almenningi til boöa. Veldur kannabis krabbameini? Þetta er þaö mikilvægasta sem fram hefur komiö I frönsk- um fjölmiölum um þetta marg- þætta vandamál. En hvaö sem þessum röksemdum liöur er þaö skoöun margra aö biöa skuli enn um sinn, meöan áhrif langvar- andi neyslu eru aö koma betur I ljós. Ýmsum spurningum er ósvaraö, m.a. hvort kannabis- efni geti valdiö krabbameini en ýmsir eru uggandi þar um. Fylgjendur kannabisefna benda á aö ýmis ávanaefni séu nú leyfö, þrátt fyrir augljósar hættur, en þær hættur sé mönn- um leyft aö taka, ef þeir kjósa svo. Hversvegna gilda ekki sömu viöhorf til kannabis-efna? Jafnvel þó kannabisefni reyndust hættuminni en aörir vimugjafar, hrýs mörgum hug- ur viö aö lögleiöa enn eitU „patent’Tyfiö viö erfiöleikum eöa tómleika llöandi stundar. Nær væri aö snúra sér aö „heil- brigöari” og meira uppbyggj- andi iöju. En hvort sem mönnum likar þaö betur eöa verr, eru vlmu- gjafar hluti af menningu okkar, og veröa ráöamenn þvl aö gera þaö upp viö sig hvort hér sé um aö ræöa tiltölulega „saklausa” hliöstæöu áfengis eöa nýjan böl- vald, sem einungis auki á eirðarleysi og firringu þeirrar æsku sem senn tekur viö stjórnartaumunum i heiminum.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.