Vísir - 27.02.1980, Side 9
Miðvikudagur 27. febrúar 1980
.7 \ v ■ ■ ■
9
! Kerfiö í öiöstdöu eftir sýknuflóm í Guðmunflarmálínu: !
I Eru svikamál að uDDhæð i
! nær 700 mllliónlr lyrnd ?!
Getur svo fariö að skattsvik
og brot á bökhaldslögum og brot
á gjaldeyrislögum, er nema
nærri 700 milljónum króna,
komi aldrei til kasta dómstóla
vegna fyrninga? Þessi spurning
vaknar óhjákvæmilega i sam-
bandi við svindlið sem átti sér
stað árum saman við skipakaup
frá Noregi.
Það fer ekkert milli máia að
glfurleg svikamylla hefur veriö
i gangi kringum þessi skipa-
kaup þar sem lög og reglur hafa
verið þverbrotnar. Dómur hefur
veriö kveðinn upp i aðeins
tveimur málum af þessu tagi. i
Grjótjötunsmálinu voru kveðnir
upp fangelsisdómar yfir tveim-
ur mönnum. Þegar dómur var
loks kveðinn upp I máli sem
ákært var i vegna kaupanna á
Guðmundi RE var kveðinn upp
sýknudómur á grundvelli þess
að sök væri fyrnd. Hver veröa
þá örlög um 20 annarra mála af
svipuðum toga, þar sem kaup-
endur hafa gefið upp of hátt
kaupverð til yfirvalda og fengið
mismuninn greiddan undir
boröiö?
Visir gerði könnun á þvi hvar
þessi mál væru stödd I kerfinu
9og spurðist fyrir um hvort dóm-
urinn I Guðmundarmálinu
þýddi að ekki yrði ákært I fleiri
málum.
Erfitt viðureignar
Samkvæmt niðurstööum
rannsóknar Garðars Valdi-
marssonar skattrannsóknar-
stjóra, en þeirri rannsókn lauk I
september siðast liðnum, feng-
ust upplýsingar um baksamn-
inga að upphæð 8,3 milljónir
norskra króna. Á mlverandi
gengi svarar þetta til um 680
milljóna islenskra króna. Þetta
baksamningsfé skiptist að
mestu á 18 skip af þeim 29 sem
upplýsingar fengust um.
Þegar skattrannsóknarstjóri
hafði lokið rannsókn á skatta-
þætti þessara mála sendi hann
þau til gjaldeyriseftirlits Seöla-
bankans aftur, en þar byrjaöi
þessi skipakauparannsókn árið
1976.
„Það hefur fallið dómur sem
hefuráhrifá gang þessara mála
hjá okkur og við höfum ekki
unnið að þeim siðustu vikurn-
ar”, sagöi Siguröur Jóhannes-
son forstöðumaður gjaldeyris-
eftirlitsins i samtali við Visi.
Siguröur sagði að Seölabank-
inn hefði sent nokkuð af málun-
um til rikissaksóknara með
beiðni um rannsókn vegna ætl-
aðra brota. „En það eru vand-
kvæöi okkar hvað þessi mál
fyrnast fljótt eöa á tveimur ár-
um ef ekki liggja þungar refs-
ingar við” sagði Sigurður.
— Er fyrirsjáanlegt að
málin eru öll fyrnd?
„Fljótt á litið finnst mér þaö.
Um þaö getum við samt ekkert
fullyrt þvi þarna koma til marg-
ir þættir sem dómsvaldið þarf
að meta til sakar” sagði Sigurö-
ur Jóhannesson ennfremur.
„Æskilegt væri að fá
dóminn”
Þá hafði Vísir tal af Þóröi
Björnssyni rikissaksóknara og
spurði hvort úrslit þeirra mála
sem nú væru hjá honum myndu
ráðast af dóminum i Guðmund-
armálinu.
,,Ég þori ekki að fara með það
þvi þessi dómur hefur ekki kom-
iðtil min ennþá. Það væri mjög
eölilegt og æskilegt að maður
gæti fengið að sjá þennan dóm
sem gekk I Guðmundarmálinu
svo hægt sé að sjá hvernig þeir
gripa á þessu” sagði rikissak-
sóknari.
Hann taldi hugsanlegt að
dómurinn gæti ráðiö úrslitum
um fleiri mál. Þó þyrfti þaö ekki
að vera þvi atvik gætu verið
mismunandi. Þetta færi eftir
forsendum dómsins I Guömund-
armálinu.
Til skýringar má geta þess að
ákært var I Guömundarmálinu
af hálfu saksóknara þann 9. feb-
rúar árið 1978. Þaö var þó ekki
fyrr en i lok janúar á þessu ári
sem sakadómur Reykjavikur
kvað loks upp sýknudóm i mál-
inu. Enginn viröist hafa fengið
að sjá þann dóm ennþá og eins
og fram kemur hér að framan
hefur saksóknari ekki enn feng-
ið hann i hendur. Þaö væri synd
að segja að þetta mál hefði
runnið greitt I kerfinu.
Nokkur mál i biðstöðu
Samkvæmt upplýsingum rik-
issaksóknara var mál varöandi
kaup á Skinney frá Hornafiröi
sent til Rannsóknarlögreglu rik-
isins 2. febrúar 1979 og kom það-
an aftur skömmu fyrir jól. Ekki
væri búið að taka endanlega
ákvörðun um hvort ákært verð-
ur I þvi máli, en Skinney var
keypt á árinu 1975.
Þá kom það fram i samtalinu
við Þórð Björnsson að þann 21.
janúar fékk hann frá Seðla-
bankanum mál er varöar kaup-
in á Snæfelli, sem er I eigu Cit-
gerðarfélags KEA, en það var
keypt árið 1975. Þetta mál hefur
enn ekki verið sent Rannsókn-
arlögreglunni til meðferöar.
„Þá eru hér tvö mál sem
komu fra Seðlabankanum I jan-
úar og snúast um skip sem
keypt voru á árunum 1973 og
1974. Þau mál eru örugglega
fyrnd og við erum aö skrifa
Seðlabankanum og tilkynna að
það sé fyrirfram vonlaust að
fera fram á rannsókn Rann-
sóknarlögreglunnar á þeim”
sagði Þóröur Björnssoni ríkis-
saksóknari.
Þrjú mál hjá RLR
Hjá Erlu Jónsdóttur deildar-
stjóra Rannsóknarlögreglu rik-
isins fékk Visir þær upplýsingar
að þar væru nú þrjú skipa-
kaupamál til rannsóknar úr
Grjótjötunn. Fangelsisdómur var kveöinn upp vegna svikanna er viöhöfö voru viö kaup skipsins.
þessum hópi. Tvö af þessum
málum varða skip er keypt voru
1974 eða jafnvel fyrr.
Skipin semhér um ræðireru
frá Akranesi, Seyðisfiröi og
Keflavik. Vildi Erla engu spá
um hvenær rannsókn þessara
mála lyki.
!■■■■!
Sæmundur
Guövinsson
blaöamaöur
skrifar
Málin misstór
Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem Vísir hefur aflað sér er
það mjög mismunandi hve ein-
stakir kaupendur fengu mikið
greitt til baka undir boröiö af
þvi kaupveröi sem tilgreint var I
skjölum og samningum.
1 Guðmundarmálinu sem áö-
ur er minnst á nam þessi upp-
hæð 200 þúsund norskum krón-
um og I Grjótjötunsmálinu var
um að ræöa 400 þúsund norskar
krónur.
Þótt hér sé um dálaglegar
upphæöir aö ræða hafa þó aörir
reynst stórtækari á þessu sviöi.
Þannig hefur Vísir sannfrétt að I
einu tilfelli hafi kaupendur
fengiö greitt undir borðið hvorki
meira né minna en eina og hálfa
milljón norskra króna. Þetta
svarar til liðlega 120 milljóna Is-
lenskra á þvi gengi sem skráð er
um þessar mundir.
Mikil og margháttuð
svik
Þótt dómurhafi aöeins falliö I
einu af þessum skipakaupamál-
um þarf ekki að fara I neinar
grafgötur með að margháttuö
svik hafa verið höfð uppi I þeim
öðrum málum sem Seðlabank-
inn og skattrannsóknarstjóri
hafa séð ástæðu til að láta ganga
lengra þótt þessir aöilar vilji aö
sjálfsögðu ekki svara fyrir
dómskerfið. Það fer til dæmis
ekkert milli mála, aö Islenskir
skipamiðlarar hafa fengiö gif-
urlegar fúlgur greiddar bak við
tjöldin og kæmi ekki á óvart þótt
hér væru um að ræöa ein hrika-
legustu skattsvik sem komist
hefur upp um hérlendis.
Kaupendur skipanna og for-
svarsmenn þeirra hafa mjög
haldið þvi fram aö umræddir
baksamningar hafi verið gerðir
til aö fá fé til kaupa á ýmsum
fylgi- eöa aukabúnaði til skip-
anna. Ljóst er aö stórum hluta
af baksamningsfénu hefur veriö
varið á þennan hátt. En þaö fer
heldur ekkert milli mála, aö
stórar fúlgur hafa runnið til per-
sónulegra nota einstakra
manna, það er að segja kaup-
enda og/eða forsvarsmanna
þeirra.
I dóminum sem kveðinn var
upp I Grjótjötunsmálinu voru
lögmennirnir Knútur Bruun og
Þorfinnur Egilsson skipamiðl-
ari dæmdir fyrir fjárdrátt og
fjársvik. Var Knútur fundinn
sekur um fjárdrátt að upphæö 50
þúsund norskar krónur og Þor-
finnur um fjársvik að upphæö
300 þúsund norskar krónur.
Þessum dómi var áfrýjað til
Hæstaréttar.
Skattsvik fyrnast einn-
ig
lífltl'Sri/ájjé
CUÐMUNDU8
Varðandi 15 af þessum 29
skipakaupum sem upplýsingar
fengust um frá Noregi gaf rann-
sókn skattrannsóknarstjóra til-
efni til boðunar upptöku á skatt-
stofnum kaupenda og/eða for-
svarsmönnum þeirra. Rikis-
skattstjóraembættið hefur lagt
á viðbótarálagningu vegna
margra þessara mála. Hins
vegar ber þess aö geta aö málin
eru rannsökuö samkvæmt
gömlu skattalögunum þar sem
fyrningarfrestur er fimm ár.
Það getur þvi reynst erfitt að
koma skattsektum við i mörg-
um þessara mála vegna þessara
ákvæöa þar sem rannsókn
skattrannsóknarstjóra rýfur
ekki fymingu. Hins vegar á eftir
að koma I ljós hvort einhverjum
málanna verður visaö til ríkis-
saksóknara vegna skattsvika-
þáttarins sérstaklega.
Fróðlegt verður að fylgjast
með framvindu þessara mála
og óneitanlega er það ömurlegt
ef framhald þessara mála verö-
ur að hafna I bréfakörfu kerfis-
ins.vegna fyrningarfrests,eftir
alla þá vinnu sem lögð hefur
verið I rannsóknina árum sam-
an.
— SG
Guömundur RE. Akærðu Iþvl máli voru sýknaöir og sök talin fyrnd.