Vísir - 16.04.1980, Qupperneq 16
VÍSIR
Miðvikudagur 16. aprfl 1980
Umsjón:
Axel
Ammendrup
Reykdælir
sýna Jdpunfl
Ungmennafélag Reykdæla sýn-
ir um þessar mundir hifi vinsæla
leikrit Jónasar Árnasonar, „Þiö
muniö hann Jörund”, sem sam-
kvæmt leikskrá er „ósögulegt
leikhúsverk meö myndum, tali,
söngvum og dönsum frá liöinni
tiö”.
23 leikarar koma fram i sýning-
unni og fara þeir meö 31 hlutverk.
Leikstjóri er Walesbúinn Nigel
Watson.sem er Islendingum aö
góöu kunnur. Hann hefur áöur
sett upp ,„Hamlet” á vegum Há-
skóla Islands, „Kaspar” fyrir
Þjóöleikhúsiö, „Fröken Júlia al-
veg óö” meö eigin leikflokki og
útvarpsleikritiö „Gotcha”, sem
flutt var i janúar.
Mjög góö aösókn hefur veriö að
fyrstu fimm sýningunum og eru
næstu sýningar fyrirhugaðar á
fimmtudagskvöldiö og á laugar-
dagskvölöiö klukkan 21. Sýnt er
aö Logalandi en miöapantanir
eru I gegnum Reykholt. —ATA
Söngtrióiö i uppfærslu Reykdæla á „Þiö muniö hann Jörund”. Þórunn
Reykdal leikur Mary, Þóröur Stefánsson Johnny og Þorvaldur Jónsson
Paddv.
Asgeir Lárusson viö eina mynda sinna á Mokka. Vfsismynd: GVA
flsgeir Lárusson sýnir á Mokka:
Sýníngin unnln upp úr
einu kerllngablaDl!
„Allar myndirnar á
þessari sýningu, utan ein,
eru unnar upp úr einu
þýsku kerlingarblaði",
sagði Ásgeir Lárusson,
sem sýnir þrettán myndir
á Mokkakaffi þessa dag-
ana.
„Ég tók kerlingarblaöiö og
skar siöurnar úr þvi og teiknaöi
svo og málaði inn á þær. Þaö má
segja aö þessi still sé sambland
af grafik og collage”.
Þetta er fjóröa einkasýning
Asgeirs, auk þess sem hann tók
þátt I samsýningu á Kjarvals-
stööum áriö 1978. Siðast sýndi
Asgeir I Galleri Suöurgötu 7 og
seldust þá allar myndirnar á
sýningunni.
Myndirnar á sýningunni á
Mokka eru allar til sölu og er
verðinu mjög stillt I hóf, kosta
flestar 25 þúsund krónur.
„Sýningin hefur sérstök eink-
unnarorö, og eru þau tilvitnun I
Oscar Wilde: Some do it with a
bitter look — some do it with a
flattering word”.
Sýningin mun standa fram
yfir næstu mánaðamót.
—ATA
'u ¥1 Jg > -
HÍ 1
Meöal gesta viö opnunina á laugardaginn voru forsetahjónin, sem sjást hér skoöa stærsta verklð á sýn-
ingunni.
NORRÆN VEFJALIST
AR KJARVALSSTÖÐUM
Sýningin „Norræn vef ja-
list 11" var opnuð að Kjar-
valsstöðum um helgina.
Þetta er í annað sinn sem
slíksýninger settupphér á
landi, fyrri sýningin var
einnig að Kjarvalsstöðum,
í janúar og febrúar 1977.
Sýningin er ávöxtur samstarfs
vefara og textilhönnuöa á Norö-
urlöndunum, en áriö 1974 kom
fyrst saman vinnuhópur veflist-
armanna I Danmörku til þess að
leggja drög aö umfangsmikilli
sýningu sem gæti gefiö hugmynd
um þaö, sem væriaö gerast I vefj-
arlist á Noröurlöndunum. Eftir
mikla undirbúningsvinnu var svo
fyrsta Norræna vefjarlistsýning-
in opnuö I Listasafninu I Alaborg
1976, sem siöan fór um öll Noröur-
löndin.
1 upphafi var ákveöiö aö stefna
aö þvi aö koma upp slikri sýningu
þriöja hvert ár og var önnur sýn-
ingin opnuö I Röhsska listiönað-
arsafninu i Gautaborg i fyrra
sumar. Þá var sá háttur hafður á
aö skipuö var dómnefnd I hverju
landi, sem valdi siöan verkin á
sýninguna. 1 Islensku dómnefnd-
inni eru Hrafnhildur Schram,
Hörður Agústsson og Magnús
Pálsson. 29 Islensk verk bárust og
voru 8 af þeim valin til sýningar.
Sýningin, sem opnuö var I
Röhsska i fyrrasumar, hefur nú
farið um öll Noröurlöndin og lýk-
ur feröinni hér að Kjarvalsstöö-
um. A sýningunni eru 93 listaverk
eftir 87 listamenn. Sýningin fyllir
báöa sali Kjarvalsstaða og alla
ganga. Kennir margra grasa á
sýningunni, þar á meöal mynd-
vefnaöur, textilþrykk, batik,
Isaumur, rýavefnaöur, ofinn
skúlptúr og ýmiss blönduö tækni.
Undirbúning og uppsetningu aö
Kjarvalsstööum önnuöust þær
Asgerður Búadóttir, Asrún Krist-
jánsdóttir, Guörún Gunnarsdótt-
ir, Ragna Róbertsdóttir og Þor-
björg Þóröardótflr.
Eva Knardahl í
Norræna húsinu
Norski pianóleikarinn Eva
Knardahl heidur tónleika I Nor-
ræna húsinu I kvöld klukkan hálf
nlu.
Eva er meöal bestu planóleikara
Noregs, hlaut meöal annars
norsku tónlistargagnrýnenda-
verölaunin áriö 1968. Hún hefur
fariö i tónleikaferöir um Evrópu,
Sovétrlkin og Bandarlkin, og var
fastur einleikari meö Minnea-
polis-sinfóníuhljómsveitinni I
mörg ár.
Eva Knardahl, sem nú er sex-
tug aö aldri, kom fyrst fram opin-
berlega með Filharmonisk Sel-
skap, þá aöeins ellefu ára gömul.
A tónleikunum I Norræna hús-
inu I kvöld leikur Eva norska og
sænska tónlist, meðal annars Hol-
berg-svítuna eftir Grieg, og
pianósónötu opus 7, mesta planó-
verk Griegs.
—ATA
islenskir
snillingar!
„Islenskir snillingar” er fyrir-
sögnin á grein I „Sænska dag-
blaöinu” um tónleika Manuelu
Wiesler og Helgu Ingólfsdóttur
fyrr I þessum mánuöi.
Fer blaöamaðurinn fögrum
oröum um snilli Manuelu og
Helgu — auk þess sem hann er
hrifinn af tónlist þeirra Hjálmars
Helga Ragnarssonar og Jóns Þór-
arinssonar.
1 greininni segir meöal annars:
Þaö er undarlegt, aö Island, en
þar búa næstum engir innflytj-
endur, skuli laöa til sln svo marga
tónlistarmenn frá Austurriki og'
Suöur-Evrópu. Ef til vill eru
möguleikarnir á þvl aö slá í gegn
meiri I litlu þjóöfélagi en fyrir
flautuleikra á borö viö Manuelu
Wiesler ætti allur heimurinn aö
liggja opinn.
Um Helgu segir blaöamaöur-
inn: Helga Ingólfsdóttir er frábær
semballeikari og hún er greini-
lega vön þvl aö leika meö Manu-
elu. Hún er örugg og fljót aö
hugsa. Þvl miöur glamraöi I
hljóöfæri hennar, en þaö haföi
Helga fengiö lánaö á slöustu
stundu.
Aö lokum segir: Þaö er öruggt
aö I framtiöinni merkir maöur viö
þaö hjá sér I almanakinu þegar
von er á islenskri tónlist eöa is-
lenskum tónlistarmönnum.
—ATA