Vísir - 16.04.1980, Blaðsíða 23
VÍSIR
Miövikudagur 16. april 1980
Umsjón: Hann-
es Sigurösson
Rannsóknarleiöangursmenn skipsins Beagle eiga eftir aö lenda I
nokkrum erfiöleikum viö Eldlendinga I þriöja þætti myndaflokksins
Feröir Darwins, en hann nefnist „Á slóöum villimanna".
Útvarp kl. 16.20:
ÝMISLEGT
UM VORIÐ
f LITLA
BARNA-
TÍMANUM
„Litli barnatiminn fjallar aö
þessu sinni almennt um voriö.
Einnig veröur komiö inn á árstiö-
irnar, hvaö þær heita, en aöal-
áherslan veröur lögö á einkenni
vorsins. Talaö veröur um hvernig
dagarnir lengjast, sólin hækkar á
lofti, veöriö hlýnar, isinn
bráönar, fuglum fjölgar i lofti og
blómin taka viö sér”, sagöi
Sigrún Björg Ingþórsdóttir
stjórnandi Litla barnatimans, en
hann nefnist „Ýmislegt um vor-
iö”.
„Svo mun Ragnheiöur Daviðs-
dóttir lesa söguna Vorskólinn Ur
bókinni „Afi segir frá”. Hafrún
Osk Sigurhansdóttir, sem er sjö
ára syngur lögin 1 fjalladal,
Þegar ekki er alltof kalt, Allir i
leik og Maja átti litiö lamb. — Þá
les ég sjálf þuluna „En hvaö þaö
var skritið”, sagöi Sigrún.
„Ragnheiöur mun siöan lesa
aöra sögu er heitir Vordagar úr
bókinni Dagný og Doddi. — Auk
þess les ég Vorvisur eftir Jónas
Hallgrimsson og lagið Sól, sól
skin á mig er spilaö af plötu með
Sólskinskórnum”. — H.S.
A SLOÐUM VILLIMANNA
- Þrlðjí pátturlnn úr myndafiokknum Ferðir Darwins
„í þriöja þætti segir frá þvi, aö
rannsóknarleiö'angurinn er
staddur viö mælingar viö
Suöur-Ameriku. Skipstjóri skips-
ins Beagle fær þá hugmynd, aö
koma á trúboöi á Eldiandinu, sem
er syöst á S-Amerfku”, sagöi
óskar Ingimarsson þýöandi
myndaflokksins „Feröir Dar-
wins”.
„Ungur trúboöi er þarna
staddur meö skipstjóranum og
svo Eldlendinganir, sem hann
haföi tekiö á þessum slóðum áöur
og fariö meö til Englands og
menntaö. Þeir áttu einnig að vera
meö til trausts og halds I trúboö-
inu. — En ýmislegt fer nú öðruvisi
en ráögert var, þvi þeir lenda i
erfiöleikum'viö innfædda. Darwin
notar náttúrulega tækifæriö til aö
fara i land og skoöa dýralifiö”,
sagöi Óskar.
Efni annars þáttar var aö
Charles Darwin tók þátt í rann-
sóknarleiöangri skipsins Beagle,
sem á aö sigla kringum hnöttinn
og gera sjómælingar. í Brasiliu
kynnist Darwin breytilegri
náttúru, er vekur undrun hans og
aödáun. En á búgaröi írans Lenn-
ons verður hann vitni að hörm-
ungum þrælahaldsins og þaö fær
mjög á hann. Þegar Darwin
kemur um borö aftur, lendir hann
i deilu viö FitzRoy skipstjóra út af
stööu svertingja I þjóöfélaginu og
rekur skipstjórinn hann úr klefa
sinum. —H.S.
útvarp
Miðvikudagur
16. april
11.20 Tönlist eftir Felix Mend-
elssohn.
12.00 Dagskrá. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar.
Tónleikasvrpa. Tónlist úr
\Tnsum áttum, þ.á.m. létt-
klassisk.
14.30 Miödegissagan:
..Heljarslóöahatturinn”
eftir Richard Brautigan
Höröur Kristjánsson þýddi.
Guöbjörg Guömundsdóttir
les (6).
15.00 Popp. Dóra Jönsdóttir
kynnir.
16.20 Litli barnatiminn: Ýmis-
legtum voriö.Stjórnandinn,
Sigrún Björg Ingþorsdóttir,
velur og flytur ásamt
tveimur 7 árum telpum,
Ragnheiöi Daviösdóttur og
Hafrúnu Osk Sigurhans-
dóttur.
16 40 Útvarpssaga harnanna:
..Glaumbæingar a ferö og
flugi” eftir Guöjón Sveins-
son. Sigurður Sigurjónsson
les (101.
17 00 Síöd egis t ó - ! e ik ar.
Sinfóníuhljómsveit tslands
leikur ..Albumblaíi eftir
Þorkel Sigurbjornsson:
Karsten Andersen stj. /'
Biásarakvintett félaga i
Fflharmoniusveií Stokk-
hólmsborgar leika ..rjögur
tempo”. divertimento fyrir
blásarakvintett eítir Lars-
Erik Larsson ' Sinfóníu-
hljómsveit sænska útvarps-
ins leikur Sinfóniu nr. 1 i f-
motlop 7 eftir Hugo Alfvén,
Sig Westerberg stj.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
19.35 Finnska söngkonan Taru
Valjakka syngur lög eftir
Rodrigo, Granados og
Palmgren. Agnes Löve
leikur á pianó. (Aöur útv.
14. marz i fyrra).
20.00 Úr skólalifinu Kristján
E. Guömundsson sér um
þáttinn. Fjallaö um nám i
tannlækningum viö Háskóla
lslands.
20.45 Dómsmál Björn Helga-
son hæstaréttarritari segir
frá máli til heimtu trygg-
ingaböta fyrir flugvél, sem
fórst.
21.05 Kammertónlist Kvintett
fyrir pianó, klarinettu, horn
selló og kontrabassa eftir
Friedrich Kalkbrenner.
Mary Louise Böhm, Arthur
Bloom, Howard Howard,
Fred Sherry og Jeffrey
Levine leika.
21.45 Útvarpssagan :
„Guösgjafaþula” eftir Hall-
dór Laxness Höfundur les
(6).
22.35 Þaö fer aö vora Jónas
Guömundsson rithöfundur
spjallar viö hlustendur.
23.00 Djass Umsjónarmaöur:
Gerard Chinotti. Kynnir:
Jórunn Tómasdóttir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
sjónvarp
Miðvikudagur
16. april
18.00 Börnin á eldfjallinu
Fimmti þáttur. Þýöandi
Guöni Kolbeinsson.
18.25 Einu sinni var.Þrettándi
og siöasti þáttur. Þvðandi
Friörik Páll Jónsson. Sögu-
menn ómar Ragnarsson og
Bryndis Schram.
18.50 Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Vaka. Fjailaö um nor-
ræna textilsýningu aö Kjar-
valsstööum og stööu is-
lenskrar textlllistar.
Umsjónarmaöur Hraínhild-
ur Schram Stjórn upptöku
Kristin Pálsdóttir.
21.05 Ferðir Darwins.
22.05 Flóttinn yfir Kjöl.Annar
þáttur. Haustið 1942 hefja
Þjóöverjar herferð gegn
norskum gyöingum. Rúm-
lega siö hundruö manns eru
send til útrýmingarbúða, en
niu hundruð tókst að komast
til Svlþjóöar. Þýöandi Jón
Gunnarsson. (Nordvision —
Norska og Sænska sjón-
varpiö)
22.55 Dagskrárlok
MARGRÉT ÞðRHILDUR FERTUG 1 DAG
Hér er Margrét dottning ásamt Kristjáni Eldjárn forseta tslands I heimsókn sinni hingaö til lands áriö
1973.
Margrét Þórhildur
Danadrottning stendur
á fertugu i dag, en þau
tiðindi gerðust i Dana-
veldi 16. april árið 1940,
að Ingiriður þáverandi
krónprinsessa en nú-
verandi ekkjudrottning
fæddi dóttur, sem tók
við völdum i Danmörku
32 ára að aldri. ’
Samkvæmt fréttum
frá Kaupmannahöfn
verður mikið um dýrðir
i borginni i dag i tilefni
afmælis drottningar,
veisluhöld mikil og lif-
vörður drottningar i
hátiðarbúningi.
Af óviðráðanlegum
ástæðum fellur Svart-
höfðapistillinn, sem að
venju er á þessum stað i
blaðinu, niður i dag, en
rýmið notum við undir
myndir af hinni vin-
sælu drottningu Dana.
Margrét heimsótti Grænlend-
ingaer þeir fengu heimastjórn á
slöasta ári og gengur hér um
grænlandsgrund I þarlendum
hátiöarbúningi.