Morgunblaðið - 25.10.2001, Page 14

Morgunblaðið - 25.10.2001, Page 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Ungir íslenskir listamenn í aðalhlutverkum. Sópransöngkonan Arndís Halla er gestur Óperunnar í hlutverki næturdrottningarinnar á sýningunum 26. og 28. október. Arndís Halla stundaði söngnám í Reykjavík og Berlín og er nú starfandi söngkona í Þýskalandi. Um þessar mundir syngur hún m.a. hlutverk næturdrottningarinnar við óperuhúsið í Neustrelitz. Athugið breytilegan sýningartíma. Gefðu þig ævintýrinu á vald! Sími miðasölu: 511 4200 – töfraheimur á sviði Íslensku óperunnar NÆTURDROTTNINGIN BÆJARYFIRVÖLD í Mosfellsbæ vinna nú að því að koma á fót sér- stöku Laxnesssetri í Brúarlandi í til- efni af því að á næsta ári eru liðin 100 ár frá fæðingu Halldórs Lax- ness. Í setrinu yrði sett upp sýning sem helguð yrði ævi og verkum nób- elsskáldsins auk þess sem þar yrði unnið að skráningu og söfnun á gögnum sem tengjast Halldóri. Sérstakri Laxnessnefnd var kom- ið á fót til að undirbúa mögulega við- burði í Mosfellsbæ í tengslum við aldarafmæli Halldórs Laxness og er hugmyndin um Laxnesssetur frá henni komin. Í haust skilaði nefndin af sér greinargerð vegna setursins, en þar er byggt á skýrslu Björns G. Björnssonar hjá List og sögu um málið. Kostnaður vegna húsnæðisins um 47 milljónir króna Í greinargerðinni segir að mark- miðið með setrinu sé að halda á lofti minningu Halldórs, veita fræðslu um verk hans og leggja áherslu á að Mosfellssveit og -bær var hans heimabyggð. Þá yrði styrkum stoð- um rennt undir ferðamennsku í Mosfellsbæ með setrinu auk þess sem tengsl íbúa bæjarins við heima- byggð sína yrðu efld. Í Laxnesssetrinu yrði sett upp sýning á þremur hæðum þar sem komið yrði á framfæri upplýsingum og fræðslu, annars vegar um upp- vöxt og búsetu nóbelsskáldsins í Mosfellsdal og hins vegar um verk þess. Áætlað er að þessi sýning gæti staðið í nokkur ár en þó er gert ráð fyrir rými þar sem setja mætti upp smærri sýningar sem stæðu í styttri tíma. Gert er ráð fyrir að á efstu hæð yrði aðstaða til fundarhalda og aðra viðburði. Í setrinu yrði einnig unnið að skráningu og söfnun á gögnum sem tengjast Halldóri Laxness og verk- um hans. Þannig yrði haldið til haga yfirlitsskrám yfir t.d. útgáfur á verkum hans, blaðagreinar eftir hann og fræðilegar greinar um verk hans. Þá yrði nýjum gögnum, s.s. ljósmyndum, sendibréfum og per- sónulegum munum safnað. Í greinargerð nefndarinnar kem- ur fram að tæknideild Mosfellsbæj- ar hafi gert frumathugun á kostnaði við breytingar á Brúarlandi vegna setursins og er niðurstaðan sú að kostnaðurinn yrði um 47 milljónir króna, miðað við þær breytingar sem lagðar eru til í skýrslu Björns. Önnur áætlun, sem miðar við minni breytingar, gerir ráð fyrir um 30 milljóna króna kostnaði. Þá er ótalinn kostnaður við uppsetningu á sýn- ingunni en Björn áætlar að hann yrði um 17 milljónir króna. Minjagripaverslun og veitingasala Miðað er við að heildarfjöldi gesta gæti orðið í kringum 20 þúsund manns á hverju ári. Markhóp- urinn yrði íbúar Mos- fellsbæjar, innlendir og erlendir ferðamenn, nemendur í grunn- og framhaldsskólum og ýmsir sérhóp- ar. Gert er ráð fyrir að minjagripa- verslun yrði í setrinu þar sem seldir yrðu munir sem tengdust umfjöll- unarefni sýningarinnar auk þess sem veitingasala með einföldum kaffiveitingum yrði á efstu hæð Brú- arlands. Er áætlað að meðaltekjur af hverjum gesti yrðu um 450 krón- ur og er þar með talinn aðgangseyrir, minja- gripir og veitingasala. Þá er gert ráð fyrir að hægt verði að leigja út móttökusal í risi seturs- ins. Búist er við að tekjur Laxnessseturs muni standa undir rekstar- kostnaði þess miðað við að áætlanir um 20 þús- und gesti á ári gangi eft- ir. Í greinargerð nefnd- arinnar er gert ráð fyrir að stofn- kostnaður yrði fjármagnaður að ein- um þriðja hluta af sveitarfélaginu, styrktaraðilar greiddu einn þriðja og ríkissjóður fjármagnaði einn þriðja. Í bréfi frá menntamálaráð- herra til bæjaryfirvalda kemur þó fram að ráðuneytið hafi ekki tök á að gefa fyrirheit um þátttöku ríkissjóðs í uppbyggingu eða rekstri safnsins. Haldið upp á hundrað ára afmæli nóbelsskáldsins á næsta ári Laxnesssetur í Brúarlandi í bígerð Morgunblaðið/Þorkell Í Brúarlandi var áður grunnskóli Mosfellinga og síðar tónlistarskóli. Mosfellsbær Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness. JÓHANN Sigurjónsson, bæj- arstjóri í Mosfellsbæ, segir að áfram verði unnið að því að koma Laxnesssetri á fót þótt vissulega hafi svar ráðherra um að ráðu- neytið geti ekki lofað fjárstuðn- ingi, sett strik í reikninginn. „Hann var í sjálfu sér jákvæður fyrir hugmyndinni en það hefur verið upplýst að ríkið hafi áhuga á því að kaupa Gljúfrastein og ganga þá frá einhverri framtíð í kringum hann. Við höfum þá heyrt að þeir treysti sér ekki til þess að standa í tveimur svona stórum verkefnum samtímis,“ segir Jóhann. Hann segir ljóst að unnið verði áfram að því að gera þetta að veru- leika. „Spurningin er þá hvort hægt sé að samræma hlutverk Gljúfrasteins í framtíðinni við hug- myndir um Laxnesssetrið. En þessi hugmynd er að okkar mati það góð og fær það jákvæðar viðtökur að það er ekki spurning hvort heldur hvenær þetta verður að veru- leika.“ Í gær voru hugmyndirnar kynntar fyrir þingmönnum kjör- dæmisins en Jóhann segir að ekki hafi enn verið leitað til einkaaðila um fjárstuðning til verkefnisins þar sem beðið var eftir svari rík- isins. „Menn þurfa aðeins að fara yfir stöðuna núna í ljósi þessara tíðinda því þarna er einn þriðji af fjárframlögunum sem ekki er tryggður. Þá þarf bærinn að leggja meira fjármagn í verkefnið eða safna meiru hjá einkaaðilum og þann grunn þarf að kanna.“ „Ekki spurn- ing hvort heldur hvenær“ STARFSMENN gatnamálastjóra hafa nýlega lokið við að flytja 35–40 ára gamlan úrgangshaug sem fannst við Víkurveg þegar verið var að grafa fyrir knattspyrnuhúsi sem þar á að rísa. Úrgangurinn er talinn vera frá þeim tíma sem framleiðsla á áburðinum skarna stóð sem hæst en nú er verið að rífa verksmiðjuhúsið þar sem framleiðslan fór fram. Sigurður I. Skarphéðinsson gatnamálastjóri segir áburðinn hafa verið unninn úr því sem til féll af líf- rænum úrgangi. „Þá varð til ólíf- rænn úrgangur sem var ekki hægt að breyta í áburð og á þessum tíma þótti ekkert athugavert við að urða hann á stað sem enginn sá fyrir að yrði nokkurn tíma byggt á. Við telj- um að þetta hafi gerst upp úr 1960. Síðan kom þetta í ljós þegar farið var að grafa fyrir íþróttahúsi sem þarna er að rísa.“ Að sögn Sigurðar var brugðist við með því að aka úrganginum þegar í stað upp á sorphauga þar sem hann er urðaður á jafn tryggilegan hátt og annað sorp sem til fellur í Reykjavík. Hann segir að ekki sé um hættuleg- an úrgang að ræða. „Þetta er venju- legt húsasorp þannig að þetta er ekki hættulegra en það húsasorp sem fellur til í dag. Að auki er þetta búið að liggja í jörðu í 35–40 ár þann- ig að ég get ekki sé að af þessu stafi nein hætta.“ Framleiðslan á skarnanum fór fram í gömlu sorpeyðingarstöðinni við Stórhöfða sem verið er að rífa þessa dagana. „Þarna ætluðu menn að nota lífrænan úrgang og fram- leiða áburð sem var svo seldur og menn notuðu í garðana sína. Ef ég man rétt þá þótti þetta lykta illa og mönnum fannst ekkert geðslegt að meðhöndla þetta þannig að þetta varð heldur skammvinn tilraun. Síð- an stóð þessi verksmiðja ónotuð í áratugi og síðustu minjarnar eru að hverfa þessa dagana.“ Hann segir viðbúið að meira sorp muni koma upp í kring um húsið og þá verði það flutt í örugga urðun þar sem það fær sömu meðhöndlun og sorp sem fellur til í dag. Morgunblaðið/Árni Sæberg Framkvæmdir við niðurrif gömlu sorpeyðingarstöðvarinnar við Stórhöfða stóðu sem hæst í síðustu viku. Áratuga gamall úrgangur við Víkurveg fjarlægður Grafarvogur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.