Morgunblaðið - 25.10.2001, Blaðsíða 58
DAGBÓK
58 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 skækjur, 8 naut, 9 brúk-
ar, 10 spil, 11 þrætu, 13
hvalaafurð, 15 gjalds, 18
svarar, 21 guð, 22 eyja,
23 geil í fjallshlíð, 24
glímutök.
LÓÐRÉTT:
2 broddur, 3 mannsnafn,
4 ónar, 5 kæpan, 6 ein
sér, 7 skjóti, 12 skaut, 14
hress, 15 ófús, 16 bleyða,
17 fælin, 18 gengur, 19
karlfugl, 20 létta til.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 lokan, 4 hunds, 7 vitur, 8 ýsuna, 9 tær, 11 sorp,
13 æsta, 14 eflir, 15 hörð, 17 alda, 20 enn, 22 kóðið, 23
orgar, 24 rangi, 25 arrar.
Lóðrétt: 1 lævís, 2 kutar, 3 nært, 4 hlýr, 5 nauts, 6
skapa, 10 ætlun, 12 peð, 13 æra, 15 húkir, 16 rúðan, 18
lagar, 19 aurar, 20 eðli, 21 nota.
K r o s s g á t a
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Detti-
foss kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss og Ocean
Tiger fara í dag
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, kl. 10 boccia,
kl. 13 bað vinnustofa og
myndmennt. Auður F.
Vilhelmsdóttir leikur
klassísk verk á píanó eft-
ir kaffi föstud. 26. okt.
Árskógar 4. Kl. 9–12 op-
in handavinnustofan,
bókband og öskjugerð,
kl. 9.45 helgistund, kl.
10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13 opin smíða-
stofan, kl. 10 púttvöllur
opinn.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 14–15
dans. Vetrarfagnaður
verður fimmtudaginn 8.
nóvember. Hlaðborð,
salurinn opnaður kl.
16.30, dagskráin hefst
með borðhaldi kl. 17.
Kvöldvökukórinn syng-
ur undir stjórn Jónu
Kristínar Bjarnadóttur,
happdrætti, Húnar
(Ragnar Leví) leika fyrir
dansi. Skráning fyrir
miðvikudaginn 7. nóv-
ember s. 568-5052. Allir
velkomnir.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Akranesferð-
in verður föstudaginn
26. október. Þátttökul-
istar í Gjábakka og Gull-
smára.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjudögum og fimmtu-
dögum kl. 13–16.30, spil
og föndur. Jóga á föstu-
dögum kl. 13.30. Kóræf-
ingar hjá Vorboðum, kór
eldri borgara í Mos-
fellsbæ á Hlaðhömrum á
fimmtudaga kl. 17–19.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–13
handavinnustofan opin,
kl. 9.30 danskennsla, kl.
14.30 söngstund.
Félagsstarf aldraðra
Lönguhlíð 3. Kl. 11 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
glerskurður, kl. 10 leik-
fimi, kl. 15.15 dans. Opið
alla sunnudaga frá kl.
14–16 blöðin og kaffi.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Spilað í Holts-
búð 25. október kl. 19.30.
Fimmtudagur: kl. 9
vinnuhópur í leir, kl. 9.45
boccia, kl. 10 keramik,
kl. 12.15 spænska, kl. 13
vinnuhópur gler, kl. 9–14
fótaðgerðarstofan, kl.
13.30. Spilað í Holtsbúð
15. nóv. 29. nóv. Spila-
kvöld í Holtsbúð 25. okt.
kl. 19.30 í umsjón þjóð-
málanefndar Rótary-
Klúbbsins Görðum í
Garðabæ. Rútuferðir
samkvæmt venju.
Föstudagur kl. 9 jap-
anskur pennasaumur.
Upplýsingar www.fag.is.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Pútt í Bæjarútgerðinni
kl. 10. Opið hús kl. 14.
Skemmtidagskrá í boði
eldri skáta í Hafnarfirði.
Á morgun, myndlist kl.
13, bridge kl. 13:30.
Dansleikur kl. 20:30,
Caprí Tríó leikur fyrir
dansi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi – blöðin og
matur í hádegi.
Fimmtudag: Brids kl.
13. Sunnudagur: Fé-
lagsvist kl. 13.30 4ra
daga keppni annan
hvern sunnudag.
Landssamband eldri
borgara og Skálholts-
skóli bjóða til fræðslu-
daga í Skálholti 29.–31
október. Með fyr-
irlestrum og almennum
umræðum. Auk þess
verða kvöldvökur,
gönguferðir, stað-
arskoðun og boðið til
tíðasöngs að hætti fyrri
tíðar í Skálholtskirkju.
Sr. Bernharður Guð-
mundsson rektor hefur
umsjón með fræðsludög-
unum. Upplýsingar og
skráning hjá FEB.
Skoðunarferð um Krísu-
vík 2. nóvember nk. –
nýir hverir og gömul
gígasvæði við Græna-
vatn. Kaffi og meðlæti
hjá Ís-hestum í Hafn-
arfirði. Leiðsögumaður:
Sigurður Kristinsson.
Brottför frá Ásgarði,
Glæsibæ, kl. 13.30.
Skráning á skrifstofu
FEB.
Heilsa og hamingja
laugardaginn 10. nóv-
ember nk. í Ásgarði
Glæsibæ hefst kl. 13.30,
mun Laufey Steingríms-
dóttir næringarfræð-
ingur ræða um hollt
mataræði og mikilvægi
þess til að halda góðri
heilsu. Ásgeir Theódórs
læknir, sérfræðingur í
meltingarsjúkdómum,
mun ræða um krabba-
mein í ristli. Hann ræðir
einnig um væntanlega
hóprannsókn í leit að
krabbameini. Á eftir
hverju erindi gefst tæki-
færi til spurninga og
umræðna.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ.
Upplýsingar á skrifstofu
FEB. kl. 10–16, sími
588-2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug kl.
9.30, helgistund kl.
10.30, frá hádegi vinnu-
stofur opnar, félagsvist í
samstarfi við Hóla-
brekkuskóla, verðlaun,
allir velkomnir. Veit-
ingar í veitingabúð
Gerðubergs.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnnustofan op-
in, kl. 9.30 klippimyndir,
taumálun, kl. 9, kl. 9.05
og 9.50 leikfimi., kl. 13
gler- og postulínsmálun,
kl. 16.20 og kl. 17.15 kín-
versk leikfimi. Dansað
verður í Gjábakka í
kvöld kl. 20–22, Sigvaldi
stjórnar.
Gullsmári, Gullsmára
13. Postulínsmálun kl.
9.15, jóga, kl. 9.05 brids,
kl. 13. handavinnn-
ustofan opin, línudans
kl. 17.
Hraunbær 105. Kl. 9 op-
in vinnustofa, bútasaum-
ur, kortagerð og perlu-
saumur, kl. 9.45 boccia,
kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og bútasaumur,
kl. 10 boccia, kl. 13
handavinna, kl. 14 fé-
lagsvist. Á morgun kl.
13:30 verður spilað
bingó. Allir velkomnir.
Góðir vinningar.
Norðurbrún 1. Kl. 9 tré-
skurður og opin vinnu-
stofa, kl. 10–11 ganga,
kl. 10–15 leirmun-
anámskeið.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 10
boccia, kl. 13–14 leikfimi,
kl. 13–16 kóræfing, kl.
17–20 leirmótun .
Vitatorg. Kl. 9 smíði kl.
9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
boccia, kl. 13 handmennt
og frjálst spil, kl. 14.
leikfimi.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13.
Ga-fundir spilafíkla kl.
18.15 á mánud. í Sel-
tjarnarneskirkju (kjall-
ara), kl. 20.30 á fimmtud.
í fræðsludeild SÁÁ,
Síðumúla 3–5.
Sjálfsbjörg, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Kl. 19 tafl
í Rauða sal.
Sjálfboðamiðstöð Rauða
krossins, Hverfisgötu
105: Í dag kl. 13–16 er
prjónað fyrir hjálp-
arþurfi erlendis. Efni á
staðnum.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa salnum.
Hraunprýðiskonur.
Fundur verður í Hauka-
húsinu, Ásvöllum, föstu-
daginn 26. október kl.
20.30 Þórhallur Guð-
mundsson, miðill verður
með skyggnilýsingu. All-
ir velkomnir.
Kristniboðsfélag
kvenna Háaleitisbraut
58–60. Biblíulestur í
umsjá Benedikts Arn-
kelssonar. Fundurinn
hefst kl. 17. Allar konur
velkomnar.
Eskfirðingar og Reyð-
firðingar í Reykjavík og
nágrenni. Gamlir sveit-
ungar hittast í félags-
heimilinu Drangey,
Stakkahlíð 17, sunnu-
daginn 28. okt. kl. 15.
Í dag er fimmtudagur 25. október,
298. dagur ársins 2001. Orð
dagsins: Sérhver af oss hugsi um
náungann og það sem honum er
gott og til uppbyggingar.
(Rómv. 15, 2.)
Starfsfólk tekur
bílastæðin
PÉTUR hafði samband við
Velvakanda og sagðist vilja
vekja athygli á því að hjá
mörgum fyrirtækjum legði
starfsfólk bílum sínum í
stæði sem ætluð eru við-
skiptavinum. Sagðist hann
oft hafa tekið eftir því að
búið væri að leggja bílum á
morgnana fyrir framan
verslanir og þjónustustaði
áður en búið væri að opna.
Vill hann beina þeim til-
mælum til þessa fólks að
leggja annars staðar og
leyfa viðskiptavinum að
nota stæðin sem næst fyr-
irtækinu eru.
Vantar vísur
úr revíum
ER einhver sem getur bent
mér á hvar hægt sé að finna
vísur úr gömlum revíum,
eins og t.d. Nú er það svart
maður og Bláa stjarnan?
Eins væri gott að finna vís-
ur frá bannárunum. Ef ein-
hver getur gefið mér upp-
lýsingar þá hringið í
Halldór í síma 565 8380
milli kl. 12.30–14 eða eftir
kl. 21 á kvöldin.
Hve mörgum
var bjargað?
ÞEGAR tollgæslan, eða
lögregla, finnur og gerir
eiturlyf upptæk er mikið
fjallað um það í fjölmiðlum.
Þá er oftast tiltekið
hversu mörg kíló þetta hafi
verið og hvað það hefði nú
kostað á götuna komið.
Væri ekki hægt að fjalla
frekar um það hversu mörg
ungmenni hefðu getað
ánetjast eða látið lífið ef
þetta hefði farið á göturnar
eða hversu mörgum var
bjargað við það að þetta var
gert upptækt í stað þess að
auglýsa þyngd og verðmæti
eiturlyfjanna?
Móðir.
Krónan ódýr
ÉG VIL benda Vesturbæ-
ingum á að versla í Krón-
unni því þar er allt miklu
ódýrara en annars staðar,
munar jafnvel um helmingi
á sumum vörum, eins er
mjög rólegt og gott að
versla þarna.
Vigga í Vesturbænum.
Rekin úr athvarfi
GÓÐI Velvakandi.
Mig langar að fá svör við
því hvort hægt sé að reka
fólk úr athvarfi fyrir geð-
fatlaða. Ég á hér við konu
sem var allra manna hug-
ljúfi og gleðigjafi, hjálpleg
og mjög vinsæl. Hún var
rekin og enginn veit af
hverju. Hvers eigum við að
gjalda sem erum í athvarfi
og eigum við alls konar geð-
ræn vandamál að stríða?
Gestur í athvarfi.
Barnaefni í sama form
MIG langar að fá að vita af
hverju barnaefni sé ekki
gerð jafn góð skil og þátt-
um um ferðalög og bíla. Ég
vildi fá það í sama form og
það var í áður, þ.e. á heila
opnu. Vonast ég eftir svari.
Gíslína Gísladóttir.
Tapað/fundið
Matinique-úlpa
NAVY-græn hnésíð úlpa
(síðari að aftan) með hettu
og skærgulu stungnu fóðri
hvarf af Pollinum á Akur-
eyri laugard. 20. október.
Heiðvirður finnandi vin-
samlegast skilið henni á
Pollinn eða hringið í síma
898 8055. Góðum fundar-
launum heitið.
Dýrahald
Grá læða í óskilum
GRÁ læða er í óskilum í
Kópavogi. Upplýsingar í
síma 860 5989.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÞAÐ er algjör skömm að
tónlistarkennarar þurfi að
fara í verkfall, og sóa dýr-
mætum tíma, bara út af
því að ekki er hægt að
borga þeim sæmileg laun
fyrir alla þá vinnu sem
þeir þurfa að leggja á sig.
Þeir eru að kenna krökk-
um á aldrinum 5 til 20
ára,frá morgni til kvölds,
alla daga vikunnar. Sumir
þeirra gefa sér varla tíma
til þess að fá sér einn kaffi-
bolla eða hlaupa á klósett-
ið.
Tónlistarkennarar
skipta mjög miklu máli ef
það á að halda klassískri
tónlist gangandi. Hvar
værum við án tónlistar?
Tónlistarkennarar eru al-
veg jafnmikilvægir og
grunn- og framhaldsskóla-
kennarar, ef ekki mik-
ilvægari, og þess vegna
ættu þeir að fá alveg sömu
laun, þótt þau laun séu nú
ekki há.
Fiðlunemandi.
Tónlistarkennaraverkfall
Víkverji skrifar...
KONA sem Víkverji þekkir fékkfyrir skömmu bréf í pósti frá
fjármálastofnun. Bréfið hafði að
geyma debetkort. Konan varð nokk-
uð undrandi á þessu ekki síst í ljósi
þess að hún hafði aldrei verið í við-
skiptum við stofnunina og aldrei beð-
ið um debetkort. Eins fannst henni
óþægilegt að kort á hennar nafni
skyldi vera sent heim til hennar í
pósti, en konan á heima í fjölbýlis-
húsi og ekki óhugsandi að einhver
óviðkomandi ræki augun í bréfið í
póstkassanum og stæli því. Þess má
geta að konan hefur dvalið langdvöl-
um erlendis. Ekki þurfti að gera
annað en að undirrita kortið til að
nota það.
Raunar hafði konan fyrir tveimur
árum fengið sams konar kort óum-
beðið inn um lúguna hjá sér. Þá
brást hún þannig við að klippa kortið
í sundur og henda því.
Að þessu sinni fór konan með
kortið í lánastofnunina og óskaði eft-
ir skýringum á þessu. Þeim sem þar
varð fyrir svörum þóttu athuga-
semdir konunnar einkennilegar og
sagði að stofnunin hefði einungis
verið að bjóða henni þjónustu, þjón-
ustu sem hún gæti afþakkað ef hún
vildi. Konan benti á að hún hefði
aldrei óskað eftir þessari þjónustu
og það væri búið að snúa málum á
haus ef hún þyrfti að afþakka þjón-
ustuna til að vera laus undan slíkri
áreitni.
x x x
SJÁLFSAGT er saga þessararkonu ekkert einsdæmi. Víkverji
hefur ósjaldan verið ónáðaður heima
með símtölum þar sem verið er að
bjóða upp á kynningar á söfnunarlíf-
tryggingum. Sölumenn þessara
trygginga reyna oft að veiða fólk
með því að óska eftir að fá að leggja
nokkrar spurningar fyrir viðkom-
andi og gefa þannig í skyn, til að
byrja með, að þeir séu að gera eins
konar skoðanakönnun. Þetta er frek-
ar pirrandi.
Víkverji hefur það fyrir reglu að
hafna því að ræða við sölufólk um
þessi mál. Miðað við upplýsingar
sem fram komu nýlega á ársfundi
Fjármálaeftirlitsins er það hyggileg
ráðstöfun en þar kom fram hjá for-
stjóra eftirlitsins að Fjármálaeftir-
litið hefði áhyggjur af verklagi við
sölu líftrygginga. Nokkrir miðlar
hafa lagt inn starfsleyfi sitt í kjölfar
athugasemda og eitt leyfi hefur verið
afturkallað.
x x x
VÍKVERJA fannst raunalegt aðlesa í Morgunblaðinu sögu
konu sem keypti sér líftryggingu
fyrir sig og eiginmann sinn. Hún
stóð í þeirri trú að tryggingin færði
henni eina milljón króna ef hún eða
maki hennar félli frá. Maður hennar
lést fyrir skömmu og þá kom í ljós að
hún átti einungis rétt á innan við
100.000 kr. eða lægri upphæð en hún
hafði greitt í líftrygginguna. Reynd-
in var sú að kona hafði ekki verið að
kaupa sér líftryggingu heldur söfn-
unarlíftryggingu en þær eru þeirrar
gerðar að allur kostnaður af trygg-
ingunni er innheimtur á fyrstu árum.
Réttindaávinningur er því mjög
hægur fyrstu árin, en það þýðir jafn-
framt að óhagstætt er að segja
tryggingunni upp ef einu sinni er
byrjað að borga í hana. Víst er að í
mörgum tilfellum gerir fólk sér ekki
grein fyrir þessu. Verra er þó þegar
það telur sig vera að kaupa líftrygg-
ingu en er í raun að borga í sjóð sem
má frekar kalla lífeyrissjóð en líf-
tryggingu.