Morgunblaðið - 25.10.2001, Qupperneq 32
LISTIR
32 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TVENNT gerir revíu að góðri
skemmtan. Hnyttinn og hæfilega
beittur texti blandaður háði og
kímni og ekki síður mikilvægur er
góður flutningur, söngur og leik-
ur. Leikfélag Selfoss hefur í ann-
að sinn fengið einn sinn traust-
asta félaga til margra ára til að
semja fyrir sig en fyrra verk
nefndist Leikið lausum hala og
var sýnt 1994.
Það er óþarfi að orðlengja það
að Á Suðurlandsvaktinni er
bráðsmellin sýning á köflum og
veldur þar miklu hversu góðum
kröftum Leikfélag Selfoss hefur á
að skipa. Sérstaklega ánægjulegt
er að sjá hversu stór hluti leik-
enda er af yngstu kynslóð, fólk
um og vel innan við tvítugt. Það
sýnir að leikstarfsemi höfðar í dag
til yngra fólks ekki síður en áður.
Ingþór Jóhann Guðmundsson 17
ára stóð sig frábærlega í hlutverki
lögregluþjónsins og samleikur
þeirra Guðmundar Karls Sigur-
dórssonar sem tveggja afgamalla
lögregluþjóna var tvímælalaust
eftirminnilegasti hluti sýningar-
innar. Aðrir stóðu sig einnig með
prýði enda mikilvægast að vera
vel með á nótunum og grípa bolt-
ann á lofti þegar hvert atriðið rek-
ur annað svona sitt úr hverri átt-
inni. Það tókst ágætlega. Söngur
þeirra Guðmundar Karls og Eyj-
ólfs Pálmarssonar sem dönsku
bræðranna tveggja var einnig
bráðskemmtilegur lokapunktur
ágætrar skemmtisýningar.
Hár meðalaldur lögreglu-
manna á Selfossi varð tilefni til að
sýna tvo gamlingja sem höfðu
gaman af að rifja upp Kambs-
ránið og var meinilla við símann
og úr þessu urðu hreint kostuleg
atriði. Heilbrigðiseftirlitið, Mjólk-
urbúið, skólafólkið, Útvarp Suð-
urlands, þingmennirnir, sveitar-
stjórnirnar, ritstjórinn og bænd-
urnir fengu hver sinn skammt og
hann vel útilátinn.
Það var greinilegt að margt af
því sem spéspeglinum var brugð-
ið uppað átti sér góðan hljóm-
grunn meðal áhorfenda og ekki að
marka þó undirritaður væri ekki
vel heima í öllu því sem heima-
menn hafa verið að sýsla á und-
anförnum mánuðum. Tilgangur-
inn með slíkri sýningu hlýtur líka
fyrst og fremst að vera sá að
skemmta heimamönnum og sýna
náungann í spaugilegu ljósi. Er
þar stundum vandrataður meðal-
vegurinn þar sem stutt er á milli
manna og þeir misjafnlega hör-
undsárir. Virtist þó hvergi farið
yfir strikið og gamanið mestan
partinn græskulaust.
Leikstjórinn Jón Stefán hefur
náð að virkja góðan hóp til að
setja saman kröftuga sýningu en
þó hefði mátt leggja meiri alúð við
umgjörð sýningarinnar. Hefði þar
mátt undirstrika betur hið glað-
lega yfirbragð í litum og lýsingu.
En það er smáatriði sem ástæðu-
laust er að setja fyrir sig og má
hvetja Sunnlendinga og nær-
sveitamenn til að bregða sér í
leikhúsið á Selfossi á næstu vik-
um.
Vel vakandi
á vaktinni
LEIKLIST
L e i k f é l a g S e l f o s s
Eftir Sigurgeir Hilmar
Friðþjófssson. Leikstjóri:
Jón Stefán Kristjánsson.
Á SUÐURLANDS-
VAKTINNI
Hávar Sigurjónsson
MYNDLISTARSÝNING SÍE
félaga, (Suomi/Ísland/Eesti),
verður í 30 búðargluggum við
Laugaveg og verður opnunin
kl. 18 í dag í Pennanum-Ey-
mundsson. Þaðan verður farið í
skoðunarferð upp Laugaveginn
kl. 18:30.
SÍE er samstarfsverkefni
milli Íslands, Finnlands og
Eistlands styrkt af Youth for
Europe. Sex myndlistarnemar
frá hverju landi hittast einu
sinni í hverju landi fyrir sig og
setja upp myndlistarsýningu.
Íslenski hópurinn hefur hlotið
styrk frá menntamálaráðu-
neytinu.
Slóðin er http://www.art-sie.-
is.
Myndlist
í búðar-
gluggum
SKUGGASÝNING verður í
Galleríi Skugga, Hverfisgötu
39, í kvöld kl. 20.30, en húsið
verður opnað kl. 20. Sýnd verð-
ur bakatil í galleríinu hin sí-
gilda kvikmynd Charles Chapl-
in, Modern Times (Nútíminn).
Björn Þór Vilhjálmsson bók-
menntafræðingur mun halda
stutt spjall þar sem hann veitir
innsýn í ýmsa þætti kvikmynd-
arinnar. Umræður standa jafn-
framt opnar. Aðgangur er
ókeypis. Myndin er kynnt á vef-
síðu Skugga á www.galleri-
skuggi.is.
Í galleríinu stendur yfir sýn-
ingin Hver með sínu nefi.
Kvikmynda-
kvöld í Skugga
LJÓÐALESTUR á vegum Rit-
listarhóps Kópavogs verður í
Catalínu, Hamraborg, í dag kl.
17. Fjögur skáld munu lesa úr
nýjum verkum sínum: Eyvind-
ur P. Eiríksson, Þórður Helga-
son, Óskar Árni Óskarsson og
Steinþór Jóhannsson.
Aðgangur er ókeypis.
Ljóðalestur
á Catalínu
SÖNGSVEIT Hafnarfjarðar
heldur tónleika í Hafnarborg í
kvöld kl. 20. Söngsveitin end-
urtekur dagskrá tónleikanna
sem haldnir voru í apríl sl.
Stjórnandi er Elín Ósk Ósk-
arsdóttir sem jafnframt syngur
einsöng með kórnum. Auk
hennar syngja Hanna Björk
Guðjónsdóttir, Gréta Jónsdótt-
ir, Þorgeir Andrésson og Kjart-
an Ólafsson.
Miðar eru seldir í Hafnar-
borg.
Söngsveit í
Hafnarborg
ÁRNI Sighvatsson barítonsöngvari
og Jón Sigurðsson píanóleikari flytja
sönglög Sigvalda Kaldalóns í Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi í kvöld
kl. 20.
Tónleikarnir eru tileinkaðir Sig-
valda Kaldalóns en efnisskráin inni-
heldur lög frá upphafi síðustu aldar
allt fram á miðja þá öld.
Árni Sighvatsson og Jón Sigurðs-
son hafa unnið saman um nokkurt
skeið. Á síðasta ári kom út geisla-
diskur þeirra félaga Úr söngvasafni
Kaldalóns.
Morgunblaðið/Þorkell
Árni Sighvatsson syngur við undirleik Jóns Sigurðssonar.
Kaldalóns-
tónleikar
í Gerðu-
bergi
EFNT var til svokallaðrar tónlist-
arstundar í Hjallakirkju Kópavogs á
sunnudaginn var, þar sem prestur fór
undir miðju tónleikahalds með ritn-
ingarlestur, bæn og blessun. Fyrst
söng Margrét Bóasdóttir tvö lög, nr.
4 og 10, úr Biblíuljóðum Antoníns
Dvoráks op. 99 við orgelundirleik
Lenku Máteová, Drottinn er minn
hirðir og Syngið þér Drottni Guði
nýjan söng. Lenka lék þá Introduk-
tion og Passacaglíu Max Regers í d-
moll, og þau Margrét fluttu tvö söng-
lög eftir Hugo Wolf, Führ mich,
Kind, nach Betlehem og Bæn. Eftir
ritningarlestur séra Írisar Kristjáns-
dóttur voru flutt tvö söngverk eftir
Jónas Tómasson yngri. Stundinni
lauk síðan með Kóralfantasíu nr. 1
eftir tékkneska tónskáldið Petr
Eben.
Dvorák kvað hafa samið biblíu-
söngva sína tíu við stök erindi úr
Davíðssálmum í Bandaríkjaferð sinni
1892–95 við píanóundirleik og seinna
útsett nokkra þeirra fyrir hljómsveit.
Hvaðan hérverandi orgelútsetning
var komin var ekki tilgreint.
Tékkneski sinfónistinn kaþólski er
ekki kunnastur fyrir
framlag sitt til ljóða-
söngs, en fáir gátu
samt farið varhluta af
trúarhita hans í þess-
um einföldu en inni-
legu lögum, sem flutt
voru í viðeigandi anda.
Hið ópusnúmerslausa
en allþekkta verk
Regers, Introduktion
& Passacaglía í d-moll,
skartar stuttum en
stríðum krómatískum
inngangi og langri röð
tilbrigða ofan á átta
takta þrábassastefi í
þrískiptum takti að
hætti barokkmeistara.
Lenka lék verkið af öryggi og festu;
passacaglíuna framan af á mjög lág-
værum röddum, en áður en lauk af
auknum krafti.
Lögin tvö eftir Hugo Wolf í org-
elútsetningu Regers voru á nótum
íhugullar kyrrðar; falleg og vel flutt,
en ekki tiltakanlega áhrifamikil. Að
því er bezt varð heyrt af kynningu
söngkonunnar samdi Jónas Tómas-
son verk sitt Þorstinn – vonin – þráin
fyrir orgel og sópranrödd að tilstuðl-
an Margrétar Bóasdóttur. Textinn
var fenginn úr 43. og 46. Davíðssálmi,
og tónlistin einkenndist m.a. af þrá-
stefjanotkun, samstígri raddfærslu
og ofurlítið austrænu lagferli. Tón-
ferlið hélzt lengst af einfalt, sönghæft
og lágróma, en endaði á rísandi ákalli.
Seinna verk Jónasar, Kom þú, ó,
Kristur við texta eftir Kristján Val
Ingólfsson, var hægferðugra og hefð-
bundnara í tónmáli.
Margrét söng þessar
litlu örkantötur af sann-
færandi mýkt og inni-
leika við þjálan orgelleik
Lenku.
Loks var fjörmikið
orgelverk eftir Petr
Eben (f. 1929), Kóral-
fantasía nr. 1. Því miður
var aldurs ekki getið hér
frekar en annars staðar,
en eftir útvíkkuðum tón-
ölum stíl þess og hryn-
sprækri klasahljóma-
notkun að dæma gæti
það verið frá 6. eða 7.
áratug. Litskrúðugir
tokkötusprettir verksins
og almennur hátíðarblær bentu til
þess að vera hugsaðir fyrir töluvert
stærra orgel en hinn 27 radda „ópus
22“ eftir Björgvin Tómasson orgel-
smið, en hljóðfærið bar það samt
merkilega vel í frábærri akústík
Hjallakirkju, sem hefur eitthvert
jafnasta og fallegasta ómhnig
(„decay“) allra guðshúsa SV-horns-
ins. Rithættir verksins voru eins fjöl-
skrúðugir og registranir þess, og
mátti fyrir utan framsæknu klasa-
hljómana og þrástefin einnig greina
forneskjuleg vinnubrögð á við cantus
firmus-tækni og kanon, m.a.s. um
litla tvíund. Lenka Máteová virtist
dável heima í sínum manni, enda fór
hún á kostum í þessu krefjandi en
skemmtilega verki og lék eins og sú
er valdið hefur.
Hugleiðslustund
í tónum
TÓNLIST
H j a l l a k i r k j a
Orgel- og söngverk eftir Reger,
Wolf, Eben, Dvorák og Jónas Tóm-
asson. Margrét Bóasdóttir sópran;
Lenka Mátéová, orgel. Sunnudag-
inn 21. október kl. 17.
TÓNLISTARSTUND
Ríkarður Ö. Pálsson
Margrét
Bóasdóttir
LISTASAFN
Borgarness er 30
ára um þessar
mundir. Það var
stofnað árið 1971
þegar Hallsteinn
Sveinsson frá
Eskiholti færði
Borgarneshreppi
hundrað listaverk
að gjöf. Hallsteinn
ákvaðað að gefa
Borgarnesbæ
listaverkasafnið
og fékk í staðinn
ókeypis uppihald
og vinnuaðstöðu á
Dvalarheimili
aldraðra í Borg-
arnesi. Hann jók
við safnið meðan
hann lifði með
listaverkagjöfum
og lætur nærri að
alls hafi hann gef-
ið um 200 verk
auk þess sem hann
veitti safninu veg-
legan fjárstuðn-
ing. Verkin eru
eftir nokkra af
okkar ástsælustu
listamönnum og
státa þau jafn-
framt af sérstöku
handverki Hall-
steins, en hann
smíðaði rammana
utan um þau.
Hann smíðaði mik-
ið af römmum fyr-
ir listamenn og ósjaldan fékk
hann málverk í staðinn. Hann hóf
að safna málverkum, aðallega eft-
ir samtímamálara, sem hann hafði
trú á, og átti orðið mjög gott safn
listaverka eftir marga okkar
þekktustu listamenn þegar hann
gaf Borgarnesbæ safnið.
Í tilefni 30 ára afmælis Lista-
safns Borgarness eru til sýnis í
Safnahúsinu fáeinar perlur úr
listaverkagjöf Hallsteins Sveins-
sonar. Sýningin stendur í óákveð-
inn tíma og er opin virka daga frá
kl. 13–18 og til 20 á þriðjudögum
og fimmtudögum.
Brjóstmynd af Hallsteini Sveinssyni frá Eskiholti
eftir Ragnar Kjartansson á efri súlunni og hand-
verk eftir Hallstein sjálfan á neðri súlunum.
Listasafn Borg-
arness 30 ára
Borgarnesi. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Guðrún Vala