Morgunblaðið - 25.10.2001, Side 38

Morgunblaðið - 25.10.2001, Side 38
UMRÆÐAN 38 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ B ráðum – eftir um það bil 87.060 mínútur, eftir því sem ég kemst næst – koma blessuð jólin. Því geta börnin (og ég) farið að hlakka til. Ægilegt hvað tíminn líður hratt. Mér finnst eins og ég sé nýbúinn að taka jólaseríuna úr stofuglugganum. Eða var ég ekki örugglega búinn að því? Gott ef jólatréð er ekki enn úti á svölum. Gæti jafnvel notað það aftur. Allir fá þá eitthvað fallegt. Hvað það verður veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá. En eitt er víst að alltaf verður ákaflega gaman þá. Hjá flestum. Ég hef lengi skammast mín fyr- ir að aka um á venjulegum fólksbíl og draumurinn í áraraðir hefur því verið að að fá jeppa í jóla- gjöf, án þess þó að láta óskina op- inberlega í ljós. Það er hins vegar eins og ekkert hugmyndaflug sé að finna í minni fjölskyldu, a.m.k. hefur lúmskt tal mitt um gildi þessa stöðutákns og óhjá- kvæmilegt notagildi á malbikinu ekki hrifið. Þetta er alltaf sama dótið sem maður fær: bækur og brækur, brauðristar og bollastell. Og fyrst jeppaóskin rættist ekki í góðærinu er líklega ekki rétt að gera ráð fyrir þess konar tryllitæki í jólapakkanum að þessu sinni, þegar mér er sagt að allt sé farið til andskotans. Eins gott að gera bara ráð fyrir kerti og spilum. Það kæmi sér líka vel í janúar þegar búið verður að loka fyrir rafmagnið eftir ljósahá- tíðina. Þá getur maður sannfært dæt- urnar um að það sé virkilega kósí að taka í spil við kertaljós. Lengi hefur tíðkast í minni fjöl- skyldu að allir útbúi óskalista fyr- ir jólin, en ég hef aldrei þorað að nefna þetta með jeppann eins og fram kom hér að framan. (Fæ hvort sem er aldrei það sem mig langar í, þótt það þurfi nú ekki að fara lengra. Gæti sært mína nán- ustu að ég skuli upplýsa það.) Nú skal þó reynt til þrautar, og ég hef valið af handahófi ýmislegt sem hugurinn girnist og ætti ekki að þurfa að kosta svo mikið.  Áskrift að Economist.  Nýjasta myndbandið með Björk.  Dytt-búningur. Í ljós kom á haustdögum, sem mér hefur tekist að halda leyndu í árarað- ir, að ég get dyttað að húsinu mínu; málað glugga, lagað sprungur og þar fram eftir göt- unum. Og hafði meira að segja lúmskt gaman af því, sem mér fannst eiginlega öllu verra. En mig vantar dytt-búning; ein- hvers konar slopp eða galla til að klæðast við þessar athafnir.  Lítið notað krítarkort, helst á nafni einhvers annars.  Slatti af kvóta. Kippi mér ekki upp við það þótt trilla marandi í hálfu kafi fylgi með.  Tónlistarkennari. Þeir hljóta að verða orðnir leiðir um jól og fást fyrir lítið. Mig hefur lengi langað að læra á selló.  Búnaður bresks SAS-liða eins og hann var sýndur á teikningu í blaðinu á þriðjudaginn: Hjálmur, sem ekki endurkast- ar ljósi; öndunargríma búin fjarskiptatækni og nætursjá; eldtraustur svartur samfest- ingur; jakki með skotfærum og fjarskiptatæki utan yfir galla; skotheld vesti undir jakkanum. Og helsta vopnið er Heckler & Koch MP5-hríðskotabyssa. Ég fellst á að þessi gjöf gæti orðið tiltölulega kostnaðarsöm en á móti kæmi að ég gæti, svona bú- inn, komist einhvers staðar í áhættusamt hálaunastarf, til dæmis hjá Borgarendurskoðun, og hefði þá efni á að launa gjöfina með fallegri jólagjöf að ári. Undirbúningar hátíðarinnar er sem sagt langt kominn á mínu heimili eins og venjulega á þess- um árstíma. Búið að skrifa jóla- kortin („… vonum að sam- verustundirnar verði fleiri á næsta ári en því sem er að líða …“), búið að skipta út öllum húsgögnum, mála hæðina, langt komið með að klessa jólavegg- fóðrinu á stofuna og byrjað að baka. Talandi um það er rétt að upp- lýsa að lengi hefur verið regla á mínu heimili að baka ekki minna en fjórtán sortir af smákökum fyrir jólin, eina fyrir hvern jóla- svein, að mér meðtöldum. Ég byrjaði í september og er kominn að Skyrgámi. Þar sem ég er fyrir löngu kom- inn í jólaskap undrast ég áhuga- leysi kaupmanna enn sem komið er. Október er að verða búinn og ég minnist þess ekki að hafa séð eða heyrt eina einustu jólaauglýs- ingu ennþá! Hverju sætir þetta? Er allur kraftur úr stéttinni? Hélt jafnvel að þeir hefðu gleymt jól- unum, en létti stórum þegar kon- unni minni var sagt í einhverri tískuversluninni að jólafötin kæmu í næstu viku. Guði sé lof! Það yrði reyndar ágætis sparn- aðarráð að sleppa jólunum svona annað hvert ár en ekki þori ég að leggja það til á þessum vettvangi. Áramótaheitin mega svo ekki gleymast. Um síðustu áramót hét ég því að hætta að reykja, en hef ekki getað staðið við það. Fannst þetta svo ógeðslegt þegar ég reyndi að byrja – til að geta hætt – að ég gafst upp. En ég stóð við það loforð að byrja ekki í líkams- rækt því þeir sem guðirnir elska deyja þungir. Nú er ég hins vegar að hugsa um að byrja. Ekki það að ég óttist að guði þyki ekki vænt um mig, heldur með þjóðarheill í huga. Hvet ég því aðra til að njóta líka matar og drykkjar í óhófi yfir há- tíðarnar og drífa sig svo á líkams- ræktarstöð strax í upphafi nýs árs. Best ef fjölga þarf starfsfólki stöðvanna til að losa landann við mittisbrandinn. Lesandi góður! Gera má ráð fyrir því að jólin séu um þremur mínútum nær nú en þegar þú hófst að lesa þennan pistil. Bíddu ekki boðanna ef undirbúningur hátíðarinnar er ekki hafinn fyrir alvöru; klukkan verður orðin sex á aðfangadagskvöld áður en þú veist af. 60 dagar til jóla Það er regla á mínu heimili að baka ekki minna en fjórtán sortir af smákök- um fyrir jólin, eina fyrir hvern jóla- svein, að mér meðtöldum. Ég byrjaði í september og er kominn að Skyrgámi. VIÐHORF Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is FRAMHANDLEGGSBROTUM, samfallsbrotum í hrygg og mjaðma- brotum fjölgar stöðugt frá sextíu ára aldri og eru flest hjá háöldruðum. Önn- ur hver öldruð kona hlýtur beinbrot á æv- inni. Samföll í baki verða án minnstu að- vörunar en mjaðm- abrot oftast í kjölfarið á byltu. Báðar þessar tegundir af beinbrot- um skerða verulega lífsgæði og geta heft mjög sjálfsbjargar- getu. Brot valda ótta og draga úr sjálfs- trausti vegna þess van- máttar sem fólk upplif- ir. Hætt er við að það leiði til takmörkunar á hreyfingum, sem aftur dregur úr líkamsþrótti. Vítahringur myndast. Hámarksbeinmassi næst á þrí- tugsaldri og ákvarðast af samspili erfða, hreyfingar og næringarinn- töku, meðal annars kalks og D-vít- amíns. Bein tapast alla tíð upp frá því, hraðast og mest hjá konum á breytingarskeiði, jafnt og þétt og með vaxandi þunga fram í háa elli. Samfallsbrot í hrygg geta orðið án áverka, en lang flest mjaðma- og framhandleggsbrot verða í kjölfarið á byltu. Viðhald beinmassa er mik- ilvægt. Aldraðir þurfa að taka allt að 1.200–1.500 mg af kalki á dag og 600 til 800 alþjóðlegar einingar af D-vít- amíni. Auk þess kemur hormóna- meðferð eða sértæk beinstyrkjandi meðferð með lyfjum til álita í ákveðnum tilvikum. En til þess að varna beinbrotum er ekki síður mik- ilvægt að koma í veg fyrir byltur. Á það einkum við framhand- leggs- og mjaðmabrot. Langalgengasta or- sök byltu hjá öldruðum einstaklingi er skert jafnvægi, annaðhvort vegna skerðingar í jafnvægisnemum eða varnarviðbrögðum við jafnvægistruflun. Ýmsir eiginleikar mannslíkamans dvína með hækkandi aldri sem sést vel á því að aldraðir maraþon- hlauparar hlaupa hæg- ar en þeir sem yngri eru. Hins vegar hættir mjög mörgum til að skella skuldinni á ellina, þegar í raun kyrrsetu og hreyfingarleysi er um að kenna. Með kyrrsetu verður gríðarlegt óþarfa tap á bein- og vöðvastyrk og aukið jafnvægisleysi vegna hreyf- ingarleysis. Þeir sem hafa í ofanálag langvinna sjúkdóma verða einkar illa úti. Öldrunarbreytingar líkjast mjög kyrrsetubreytingum í flestum atrið- um. Það er ein veigamikil undan- tekning. Líkamsgetu vegna kyrr- setu má endurheimta á áhrifaríkan hátt með líkamshreyfingu og sér- tækri þjálfun, allt eftir því hvort verið er að sækjast eftir auknu þreki, styrk eða jafnvægi, sem er einnig aðgengilegasta leiðin til að draga úr byltum og þar með brot- um. Auk skertrar líkamsstöðustjórnar eru margir þættir í lífi einstaklings- ins sem setja hann í fallhættu, til dæmis lyf, ýmsir sjúkdómar, vitræn skerðing og slysagildrur í umhverf- inu. Ef hugað er að öllum þessum þáttum má fækka byltum um þriðj- ung. Til að auka enn á öryggi þeirra sem verst eru settir, til dæmis hjá þeim sem eru á elli- og hjúkrunar- heimilum, má nýta sér sérstakar buxur með stuðpúðum eða skeljum yfir mjöðmum. Skilningur á orsök- um beinbrota og því hvernig forðast má þau hefur vaxið hröðum skrefum á síðasta áratug. Brot eru ekki óum- flýjanlegur fylgikvilli ellinnar held- ur eitt af því marga, sem má forðast með því að einstaklingarnir axli ábyrgð á eigin heilsu með því að huga að næringarinntöku og hreyf- ingu og með því að leita til heilbrigð- isstarfsmanna verði þróttleysis eða jafnvægisleysis vart. Beinbrot og byltur – hvað er til ráða? Þórunn Björnsdóttir Bein Með kyrrsetu, segir Þórunn Björnsdóttir, verður gríðarlegt óþarfa tap á bein- og vöðvastyrk. Höfundur er sjúkraþjálfari og situr í stjórn Beinverndar. HANN fór mikinn Steingrímur J. Sigfús- son í setningarræðu sinni á landsfundi Vinstri grænna (VG), hjó á báðar hendur og tuggði allar gömlu klisjurnar sínar: „Það þarf að koma Sjálf- stæðisflokknum frá völdum“ o.s.frv. Og svo kom rúsínan í pylsuendanum og ég vissi ekki hvort ég átti að hlæja eða gráta þegar foringinn fór að tala um flóttann af landsbyggðinni og ár- angur ríkisstjórnar- innar í landsbyggðarmálum. Þarna talaði leiðtogi flokks sem hefur barist með kjafti og klóm gegn nánast öllum stórum tækifær- um í atvinnumálum landsbyggðar- innar á undanförnum árum. Lítum á dæmi: Reyðarál Reyðarál hyggst reisa álver á Reyðarfirði, en fólki hefur fækkað verulega á Austurlandi á undan- förnum árum og atvinnutekjur eru þar í lægri kanti. Þarna munu skap- ast allt að 1.000 ný vel launuð störf á Austurlandi og útflutningsverðmæti upp á 50–60 milljarða á ári. Að sjálf- sögðu eru VG á móti. Þegar Fljótsdalsvirkjun var á dagskrá í fyrra voru VG að sjálf- sögðu á móti. Þegar þeir voru spurðir um úrræði í atvinnumálum Austfirðinga nefndu þeir helst tínslu fjallagrasa og hreindýramosa. Þetta hefur verið haft í flimtingum síðan. VG sáu að við svo búið mátti ekki standa og lögðu nýlega fram á Al- þingi tillögu um að ríkið setti 400 millj. á ári næstu 6 árin í atvinnuuppbyggingu á Austurlandi (skítt með aðra landshluta). Við umræðu á Alþingi lentu þeir í miklum vandræðum með að út- skýra þessa tillögu sína og hvaða störf ætti að skapa fyrir þessa 2,4 milljarða – en allt er jú betra en ál- ver! Norðurál Norðurál hyggur á mikla stækkun verk- smiðju sinnar á Grund- artanga. Þar verða til 3–400 ný störf við verksmiðjuna og þjónustu við hana og útflutnings- verðmæti upp á 25 milljarða á ári. Fyrirtækið er í góðri sátt við um- hverfi sitt og eftirsóttur vinnustað- ur. Til að útvega þá orku sem þarf til hyggst Landsvirkjun sækja vatn í Norðlingaöldu. Að sjálfsöfðu eru VG á móti. VG tala gjarnan af mikilli fyrir- litningu um störf við stóriðju. Ég hef aldrei skilið hvers vegna. Stað- reyndin er sú að þessi störf eru eft- irsótt, launin góð og meðalstarfsald- ur mjög hár. Það er líka staðreynd að þeir sem starfa við stóriðju skapa gífurleg útflutningsverðmæti, þjóð- inni til hagsældar. Fiskeldi – erfðagreining Nokkrir aðilar eru að hefja stór- átak í fiskeldi á landsbyggðinni. Þar munu væntanlega skapast nokkur hundruð ný störf og mikil útflutn- ingsverðmæti. Að sjálfsögðu eru VG á móti. Íslensk erfðagreining hefur skap- að 500 ný störf hér á landi og samið við heilbrigðisstofnanir vítt og breitt um landið um þjónustu. Að sjálfsögðu reyndu VG allt sem þeir gátu til að setja fótinn fyrir þessa starfsemi þegar gagnagrunnurinn kom til afgreiðslu á Alþingi. Hvalveiðar Að undanförnu hefur staðið yfir undirbúningur að því að hefja hval- veiðar að nýju. 80–90% þjóðarinnar eru hlynnt hvalveiðum, öll heildar- samtök sjómanna, útvegsmanna, verkafólks, smábátaeigenda, sveit- arfélaga o.fl. lýstu stuðningi við þingsályktunartillögu mína um hvalveiðar sem samþykkt var á Al- þingi. VG eru að sjálfsögðu á móti og þeir þingmanna flokksins sem sátu á þingi þegar tillagan var af- greidd, Steingrímur og Ögmundur, voru að sjálfsögðu í hópi þeirra ör- fáu þingmanna sem greiddu atkvæði á móti. Fjölbreytni VG Ég gæti fyllt þessa opnu í Mbl. af málum sem VG eru á móti, en læt hér staðar numið. Yfirskrift lands- fundar VG „Fjölbreytni“ var vel við hæfi. Þau eru nefnilega ótrúlega fjölbreytt framfaramálin sem VG eru á móti. Nei, þjóðin þarf enga leiðsögn VG í atvinnumálum. Ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar- flokksins hefur skapað mörg þúsund ný störf á undanförnum árum. Okk- ar bíða gríðarleg tækifæri í atvinnu- málum. Við þurfum að nýta þau tækifæri. Það gerist ekki ef aftur- haldið í VG kemst til valda. Vinstri græn- ir á móti Guðjón Guðmundsson Stjórnmál Það eru ótrúlega fjölbreytt þau framfara- mál, segir Guðjón Guðmundsson, sem VG eru á móti. Höfundur er alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.