Morgunblaðið - 25.10.2001, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 63
betra en nýtt
Nýr og glæsilegur salur
E.P.Ó.
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Síðasta sýningSýnd kl. 8 og 10.15
Sýnd kl. 6.
Stórstjörnurnar Julia Roberts, Billy Crystal, Catherine Zeta-Jones og
John Cusack fara hér á kostum í stórskemmtilegri rómantískri
gamanmynd sem fjallar um fræga fólkið, ástina og önnur
skemmtileg vandamál.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 10. Vit 269Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 10.
ÓHT. RÚV
HJ. MBL
Með sama genginu
Ekki missa af skemmtilegustu
grínmynd ársins.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 6 og 8. Vit 269
Sýnd kl. 10.
Síðustu sýningar
ÓHT. RÚV
HJ. MBL
www.laugarasbio.is
Kvikmyndir.com RadioX
Sýnd kl. 8 og 10.20.
Kvikmyndir.com
HK. DV
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
Stórstjörnurnar Julia Roberts, Billy Crystal, Catherine Zeta-Jones og John
Cusack fara hér á kostum í stórskemmtilegri rómantískri gamanmynd sem
fjallar um fræga fólkið, ástina og önnur skemmtileg vandamál.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.05.
Kvikmyndir.com
MAGNAÐ
BÍÓ
Sýnd. 5.30, 8 og 10.30.
Hrikalega flott ævintýramynd með hinum
sjóðheita og sexý Heath Ledger (Patriot).
Hugrakkar hetjur, fallegar meyjar, brjálaðar
bardagasenur og geggjað grín. Búðu þig
undir pottþétta skemmtun! Cool Movie of the
Summer! Rolling Stone Magazine
Hann Rokkar feitt!
Moulin Rouge
er án efa
besta mynd ársins
hingað til...
E.P.Ó.
Kvikmyndir.com
Empire
Rás2
DV
SV Mbl
Sýnd. 5.30, 8 og 10.30.
MOULIN
ROUGE!
Hausverkur
ATLANTIC BAR, Austurstræti: Absolute
djammsessjón fimmtudagskvöld.
ÁLAFOSS FÖT BEZT: Acoustic sér um fjörið
laugardagskvöld.
ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Hljómsveit Stefáns P.
ásamt Hallbirni
Svavars og Önnu
Vilhjálms föstu-
dags- og laugar-
dagskvöld.
BREIÐIN,
Akranesi: Á móti
sól laugardags-
kvöld.
BROADWAY:
Dansleikur með
Bogomil Font og
Milljónamæring-
unum laugardags-
kvöld. PG Magic
show, galdrar á Ís-
landi sunnudags-
kvöld.
BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi: Jón forseti
heldur uppi fjörinu laugardagskvöld.
BÆJARBARINN ÓLAFSVÍK: Diskó. Frítt
inn föstudagskvöld. Karlakvöld til kl. 23. Hljóm-
sveitin Bít leikur til kl. 3 á laugardagskvöld.
CAFÉ AMSTERDAM: Þröstur af FM 95,7
heldur uppi fjörinu föstudags- og laugardags-
kvöld.
CAFÉ CATALÍNA: Ritlistahópur Kópavogs
með upplestur fimmtudagskvöld kl. 20:00. Fram
koma Eyvindur P. Eiríksson, Óskar Árni Ósk-
arsson, Steinþór Jóhannsson og Þórður Helga-
son. Þotuliðið leikur föstudags- og laugardags-
kvöld.
CAFÉ MENNING, Dalvík: Diskórokktekið og
plötusnúðurinn Skugga-Baldur föstudags- og
laugardagskvöld. Rúnar Þór og hinn vinsæli
markmaður Þórsara, Atli Már, leikur á bassa
laugardagskvöld.
CELTIC CROSS: Þeir Gunnar Ólafsson og
Ingvar Valgeirsson leika og syngja föstudags- og
laugardagskvöld.
CLUB 22: Doddi litli í búrinu föstudagskvöld.
DJ Benni laugardagskvöld. Frítt inn til kl. 1 en
handhafar stúdentaskírteina fá frítt inn alla nótt-
ina.
EGILSBÚÐ, Neskaupstað: Eurovision-veisla.
Á eftir verður dansleikur með Spútnik laugar-
dagskvöld.
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN ÞRYKKJAN, Höfn:
Buttercup leikur laugardagskv. kl. 20:00 til 22:00.
FJÖRUKRÁIN: Útgáfutónleikar Rúnars Júl.
föstudagskvöld. Jón Möller spilar á píanó laug-
ardagskvöld.
GAUKUR Á STÖNG: Hipp-Hoppkvöld Gauks-
ins, Chronic og Budweiser. Einn heitasti neð-
anjarðarrappari samtímans, J-Zone, spinnur
rímur ásamt Bent og 7Berg (úr XXX Rottweiler)
og Mezzias MC. Plötusnúður er DJ Paranoia.
Kvöldið hefst kl 21.00. Aldurstakmark er 18 ár og
750 kr inn.
GEYSIR KAKÓBAR: Piazza dell’arte er far-
and-lista-lest sem hefur ferðast um Belgíu síðan
1999 til að færa listsköpun til ungs fólks fimmtu-
dagskvöld kl. 20:00 til 23:00. Harðkjarnarokk í
samvinnu við dordingull.com. föstudagskvöld kl.
20:00. Fram koma Mínus, Andlát, Snafu, I’Adapt
og Klink.
GULLÖLDIN: Stuðboltarnir Svensen og
Hallfunkel sjá um fjörið föstudags- og laugar-
dagskvöld.
H.M. KAFFI, Selfossi: Hljómsveitin ForSom
spilar föstudags- og laugardagskvöld.
HÓTEL HÖFN: Buttercup leikur laugardags-
kvöld.
HÖLLIN, Vestmannaeyjum: Sóldögg laugar-
dagskvöld.
IÐUFELL LAUGARÁSI, Biskupstungum: Í
svörtum fötum laugardagskvöld.
KAFFI BAUKUR: Rúnar Þór og hinn vinsæli
markmaður Þórsara, Atli Már, leikur á bassa
föstudagskvöld.
KAFFI REYKJAVÍK: Geir Ólafsson og Furst-
arnir fimmtudagskvöld. Hljómsveitin Sixties
föstudags- og laugardagskvöld.
LEIKHÚSKJALLARINN: Hinir landsfrægu
skemmtikraftar Örn Árnason og Karl Ágúst
Úlfsson með skemmtikvöld fimmtudags- og
föstudagskvöld. Hinir síungu Lúdó og Stefán
leika fram á nótt. Aðgangseyrir er 1000 krónur.
Þórhallur Sigurðsson með skemmtun. Eftir sýn-
inguna leika Geirfuglarnir fyrir dansi laugar-
dagskvöld. Aðgangseyrir er 1000 krónur.
MÓTEL VENUS, Borgarnesi: Stuðbandalagið
ásamt Herberti Guðmundssyni laugardagskvöld
kl. 00:00 til 04:00. 18 ára aldurstakmark. 1000
krónur inn.
NELLYS CAFÉ: DJ Páll Óskar í búrinu föstu-
dagskvöld. DJ Le Chef í búrinu laugardags-
kvöld.
ODD-VITINN, Akureyri: Hljómsveit Ruth
Reginalds föstudags- og laugardagskvöld.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópavogi: BSG
föstudags- og laugardagskvöld.
RÁIN, Keflavík: Hljómsveitin Hafrót leikur
fyrir dansi föstudags- og laugardagskvöld.
SJALLINN, Akureyri: Ný dönsk laugardags-
kvöld.
SJÁLFSBJARGARHÚSIÐ AKUREYRI: Jó-
hann Örn Ólafsson danskennari með námskeið í
línudansi laugardags- og sunnudagskvöld.
Skráning á joidans@simnet is.
SPORTKAFFI: Þriðja undanúrslitakvöld í
keppninni um fyndnasta mann Íslands fimmtu-
dagskvöld. Aðgangseyrir er 500 kr., frítt inn fyrir
Talsmenn.
SPOTLIGHT: DJ Cesar sér um að halda uppi
fjörinu föstudags- og laugardagskvöld.
TJARNARBÍÓ: Djassupplifun, ungir djass-
geggjarar leika af fingrum fram fimmtudags-
kvöld kl. 20:00. Fram koma Varð, Tríó Hafdísar,
The one-off Band og Fnúsk. Rokk-Rokk á vegum
Unglistar laugardagskvöld kl. 20:00. Fram koma
Lúna, Kuai, Sofandi, Úlpa, Fidel og Castor.
VIÐ POLLINN, Akureyri: Helgi og hljóðfæra-
leikararnir fimmtudagskvöld kl. 21:30. Hljóm-
sveitin PKK leikur fyrir dansi föstudags- og
laugardagskvöld.
VÍDALÍN: Hljómsveitin Gras fimmtudags-
kvöld. Hljómsveitin BUFF föstudags- og laug-
ardagskvöld.
FráAtilÖ
Anna Vilhjálms
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
KOSSAFAR á ilinni er önnur plata Mar-
grétar Kristínar Sigurðardóttur, en hún
sendi frá sér plötuna Cut My Strings árið
1996. Þar brá hún upp kabarettstemmningu,
tölvupoppi og ballöðum
saman í pakka, sem var á
köflum heldur ofhlaðinn og
flúraður.
Nýja platan er að mörgu
leyti ólík hinni fyrri, er mun
lágstemmdari og strípaðri
af hljóðfærum. Hér ber
mest á afar hreinum hljómborðs- og harm-
óníumnótum, með smávegis tölvubanki og
suðrænu kryddi. Með Margréti er valinn
hópur manna við hljóðfærin, allt er vandað
og vel gert, og lögin aldrei kæfð í óþarfa
skrauti.
Röddin er oft sett mjög framarlega og
rödd Margrétar er nógu sérstök til að standa
undir því og heldur sig yfirleitt réttu megin í
línudansinum milli einlægni og væmni. Hún
er mjög tær og á stundum næstum barnsleg
– manni dettur í hug söngkonur eins og
Stina Nordenstam og Nina Persson og það
svífur líka einhver skandinavísk heiðríkja yf-
ir lögunum. Gott dæmi um það er titillagið
en fáeinar hljómborðsnótur, hæglátur taktur
og björt rödd Margrétar skila vel gleðinni
yfir að vera til á fallegum sumardegi.
Ég er ekki frá því að ein ástæðan fyrir því
hvað þetta lag virkar vel sé sú að hér syngur
Margrét á íslensku. Í textunum er oftast
sungið á ensku um ástina og lífið af merki-
legri bjartsýni sem hæfir andrúmslofti lag-
anna, en enskan setur samt upp dálítinn
vegg – fyrir íslenskan hlustanda færir það
einfaldlega tónlistina nær og hefur meiri
áhrif að heyra sitt eigið mál.
Skemmtilegt er líka „Andrea“ en það
hljómar eins og Margrét sé eitthvað að
bauka við hljómborðið í stofunni og syngja
með sjálfri sér, með kaffi á könnunni og
börnin úti að leika. Ákaflega heimilislegt.
„When You Watch The Moon“ er áheyri-
legt og grípandi en ég var minna hrifin af
leikrænu tilþrifunum í „Anna The Librarian“
með píanóinu og brassbandinu, virkaði hálf-
gamaldags á mig. Ekki hreifst ég heldur af
suðuramerísku beygjunum í „Fingerprints“
og „Barefoot and Asleep“. Fremur átakalitl-
ar laglínur, smekklegur gítar og bossanova-
taktur gera þau bara einum of krúttleg og
stigið er yfir þröskuldinn inn í þæginda-
tónlistina – það er fátt sem brýtur upp hið
hefðbundna og fær mann til að hlusta.
Lokalagið sker sig dálítið úr, þar er á ferð-
inni lag Margrétar úr forkeppni Eurovision,
„Röddin þín“ (hér á ensku). Þetta er þriggja
mínútna eðalpopp með gítarsólói og öllu og
státar af alveg ómótstæðilegu viðlagi. Mar-
grét á létt með að semja grípandi línur sem
hún gæðir persónulegum stíl og þegar best
tekst til býður hún upp á sérstök og upplífg-
andi lög sem færa manni sólarvítamín fyrir
veturinn.
Tónlist
Sólarvítamín
Fabúla
Kossafar á ilinni
SKÍFAN
Kossafar á ilinni, ný plata Margrétar Kristínar Sig-
urðardóttur eða Fabúlu. Lög og textar eftir Margréti
sem syngur og spilar á harmóníum og selesta. Val-
geir Sigurðsson, forritun, gítar, bassi. Matthías M.D.
Hemstock, trommur og slagverk. Kjartan Valde-
marsson, harmóníum, selesta og píanó. Bjarni
Sveinbjörnsson, bassi. Einnig koma við sögu Hilmar
Jensson, Guðni Franzson, Samúel Jón Samúelsson
o.fl. Upptökur, upptökustjórn og hljóðblöndun: Val-
geir Sigurðsson.
Steinunn Haraldsdóttir
Morgunblaðið/Ásdís
Steinunn Haraldsdóttir segir að Margrét Kristín
fari létt með að semja grípandi línur sem hún
gæði persónulegum stíl.