Morgunblaðið - 10.11.2001, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
opnaði formlega fiskmarkaðinn
Fishgate í Hull í Englandi í gær að
viðstöddum um 300 manns. Sölufyr-
irtækið Isberg Limited í Hull á
helmingshlut í markaðnum á móti
níu öðrum hluthöfum og segir
Magnús Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Isberg, að þetta sé
einn fullkomnasti ef ekki fullkomn-
asti fiskmarkaður í Evrópu.
Isberg Limited var stofnað í
febrúar 1986 og hefur einbeitt sér
að sölu á ferskum fiski á Humber-
side-svæðinu. Fyrir um einu og
hálfu ári tóku forsvarsmenn fyr-
irtækisins ásamt öðrum hluthöfum
Fishgate ákvörðun um að byggja
nýjan fiskmarkað í Hull, fram-
kvæmdir hófust í janúar sem leið og
markaðurinn var tilbúinn á tilsett-
um tíma.
Markaðurinn er við höfnina,
skammt frá gamla markaðnum, og
blasir við öllum sem koma akandi til
Hull. Byggingin er alls um 4.000
fermetrar og er öllu mjög hagan-
lega komið fyrir. Heildarkostnaður
er um fimm milljónir punda og þar
af er kostnaður vegna tækja, m.a.
fullkomins flokkunar- og vigtunar-
búnaðar frá Marel, um ein milljón
punda.
Davíð Oddsson segir að mikið
hafi breyst frá því hann kom fyrst
til Hull fyrir 15 árum og nýi fisk-
markaðurinn sé augljóslega mjög
fullkominn og ljóst sé að útflutningi
frá Íslandi verði vel þjónað með
þessum markaði í Hull.
Fiskurinn er fluttur frá Íslandi í
gámum og miðast áætlun Eimskips
við að fiskurinn sé kominn til Hull á
sunnudögum vegna uppboðs á
mánudögum. Samskip kemur með
fisk á mánudögum og er hann boð-
inn upp á þriðjudögum og miðviku-
dögum. Auk þess kemur fiskur m.a.
frá Færeyjum, Noregi, Írlandi og
austurströnd Englands.
Flestir gestirnir á opnunarhátíð-
inni komu frá Íslandi, Noregi og
Færeyjum, en viðstaddir voru m.a.
Davíð Oddsson forsætisráðherra,
Þorsteinn Pálsson, sendiherra í
London, Sofus Poulsen, sendiherra
Færeyja í London, séra Jón Bald-
vinsson, prestur í London, sem
blessaði bygginguna, John Culver,
sendiherra Bretlands í Reykjavík,
Fred Beadle, borgarstjóri í Hull,
Pat Doyle, fyrrverandi borgarstjóri
í Hull, Allan Highet, viðskipta-
fulltrúi í norska sendiráðinu í Lond-
on, og Alan Johnson, þingmaður.
Morgunblaðið/Neil Holmes
Davíð Oddsson forsætisráðherra opnaði formlega nýjan fiskmarkað, Fishgate, í Hull í Bretlandi í gær. Hér er
hann á tali við Arthur Cook, stjórnarformann fiskmarkaðsins. Mikill fjöldi skipstjóra og útgerðarmanna frá
Íslandi var viðstaddur og fylgjast nokkrir þeirra hér með Davíð.
Nýr „íslenskur“
fiskmarkaður í Hull
Hull. Morgunblaðið.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að E. Pihl
og søn A/S byggi nýtt óperuhús í
Kaupmannahöfn. Forstjóri fyr-
irtækisins, Søren Langvad, sem
jafnframt er stjórnarformaður Ís-
taks, segir að um sé að ræða mjög
spennandi verkefni. Hann reiknar
með að íslenskir verkfræðingar
komi að verkefninu.
Það er danski auðjöfurinn
Mærsk McKinney Møller, aðaleig-
andi og stjórnarformaður A.P.
Møller, sem fjármagnar byggingu
óperuhússins en áætlað er að bygg-
ing þess kosti um 13 milljarða ís-
lenskra kóna og er þá hönnun húss-
ins og tækjabúnaður ekki
meðtalinn. Møller ákvað í byrjun
síðasta árs að leggja 200 milljónir
til uppbyggingar menningar-
miðstöðvar Íslands, Færeyja og
Grænlands en fyrirhugað er að í
húsinu, sem er gamalt vöruhús við
Grænlandsbryggju, verði sendiráð
Íslands m.a. til húsa.
Møller ákvað að ekkert útboð
skyldi fara fram um byggingu óp-
eruhússins og tók um það ákvörð-
un að E. Pihl og søn A/S byggði
húsið. Frá þessu var gengið form-
lega fyrr í vikunni.
Íslenskir verkfræðingar
vinna við verkefnið
„Þetta er mjög spennandi verk-
efni og við erum mjög ánægðir með
að hafa verið valdir til að byggja
húsið. Bygging þess á að ganga
mjög hratt fyrir sig því að samn-
ingurinn gerir ráð fyrir að við eig-
um að hafa lokið framkvæmdum
sumarið 2004. Þetta er mjög flókið
hús í byggingu. Það verður einnig
mikil tækni í húsinu, en gert er ráð
fyrir að um 20% kostnaðarins verði
tækjabúnaður sem eingöngu á að
nýtast leikhúsinu,“ sagði Søren í
samtali við Morgunblaðið.
Óperuhúsinu hefur verið fund-
inn staður við höfnina í Kaup-
mannahöfn. Ekki hafa allir verið á
eitt sáttir um staðsetninguna, en
Mærsk Møller hefur sagt að hann
sé tilbúinn að reisa húsið á þessum
stað og ekki annars staðar. Fram-
kvæmdir við grunn óperuhússins
eru hafnar og sagðist Sören gera
ráð fyrir að byggingarleyfi yrði
gefið út nk. mánudag.
„Við vonumst eftir að fá íslenska
verkfræðinga til þess að vinna við
þetta verkefni. Einn Íslendingur
hefur þegar hafið störf hjá okkur.
Búast má við að eitthvað verði
minna um fjárfestingar á Íslandi á
næsta ári en í ár og því er upplagt
fyrir verkfræðinga að koma hing-
að og æfa sig á spennandi verk-
efni,“ sagði Søren.
Fyrirtæki stjórnarformanns Ístaks valið til
að byggja óperuhús í Kaupmannahöfn
Reiknar með vinnu ís-
lenskra verkfræðinga
MÁL Costgo, sem verið hefur í lög-
reglurannsókn síðustu daga, er nú á
lokastigi og verður síðan sent til lög-
fræðideildar lögreglunnar sem mun
taka ákvörðun um hvort lögð verði
fram ákæra eða málið afgreitt með
öðrum hætti.
Framkvæmdastjóri Costgo var í
yfirheyrslum hjá lögreglu á miðviku-
dag og var sleppt daginn eftir. Lög-
reglan er komin með allar upplýs-
ingar og öll gögn sem hún telur sig
þurfa.
Tiltölulega fáir hafa nýtt sér tilboð
Costgo í auglýsingunni sem birtist í
Fréttablaðinu á mánudaginn. Lög-
reglan segir að lítið hafi borið á því
að fólk hafi lagt fram kæru vegna
málsins.
Rannsókn
á Costgo
á lokastigi
MAÐURINN sem lést á Landspít-
alanum á fimmtudag af völdum
áverka sem hann hlaut í árekstri
tveggja bifreiða á mótum Hafra-
vatnsvegar og Nesjavallavegar 26.
október sl. hét Benedikt Orri Vikt-
orsson til heimilis á Sogavegi 167
Reykjavík. Hann var fæddur 22.
október árið 1967 og var sambýlis-
maður Helgu Ránar Sigurðardóttur
sem lést í sama slysi. Benedikt Orri
lætur eftir sig son frá fyrra sam-
bandi.
Fernt var í bifreiðinni og eru þrír
farþegar látnir. Ökumaður bifreiðar-
innar hefur verið útskrifaður af
sjúkrahúsi.
Lést eftir bíl-
slys á Nesja-
vallavegi
SAMKEPPNISSTOFNUN hefur
sent Bræðrunum Ormsson ítrekun
þar sem fyrirtækið er beðið að hætta
birtingu auglýsinga um Bridgestone
Blizzak loftbóludekk og fullyrðinga
um að þau séu „best í snjó og hálku.“
Telur stofnunin samanburð og til-
vitnun í íslenska könnun ekki stand-
ast, þar hafi dekkin aðeins verið próf-
uð í þurrum ís, ekki í snjó og hálku.
Leggja á málið fyrir auglýsinga-
nefnd og samkeppnisráð til ákvörð-
unar.
Tilefni ítrekunarinnar er auglýs-
ing sem birtist í Fréttablaðinu á
fimmtudag. Þar segir ennfremur að
dekkin séu þau réttu fyrir ABS-
bremsur. Samkeppnisstofnun telur
þá fullyrðingu ekki standast, hún sé
villandi og ósanngjörn gagnvart
keppinautum og neytendum.
1. nóvember sl. sendi Samkeppn-
isstofnun Bræðrunum Ormsson bréf
þar sem fyrirtækið var beðið að
hætta þessum auglýsingum. Skrif-
legt svar barst ekki en í símtali á
mánudag lofaði forráðamaður fyrir-
tækisins að orðalagi auglýsinganna
yrði breytt, samkvæmt upplýsingum
stofnunarinnar.
Í ítrekuninni, sem send var Bræðr-
unum Ormsson í gær, er fyrirtækinu
gefinn frestur til 14. nóvember nk. að
gera hreint fyrir sínum dyrum.
Ítrekun
vegna
dekkjaaug-
lýsingar
♦ ♦ ♦
TVÆR aur- og grjótskriður féllu á
veginn nálægt Flókalundi á Barða-
strönd snemma í gærmorgun með
þeim afleiðingum að fella varð niður
kennslu í Birkimelsskóla og vatn fór
af bænum Hvammi. Vegurinn var al-
veg lokaður í nokkrar klukkustundir
vegna skriðnanna áður en koma
tókst á umferð að hluta. Um miðjan
dag í gær var Vegagerðin að ljúka
við að ryðja veginn.
Önnur skriðan féll innan við bæinn
Arnórsstaði en hin skriðan féll úr
Hvammsfjalli ofan í vatnsból við bæ-
inn Hvamm. Vatnslaust varð því á
bænum og einnig í fjósinu sem í eru
30 kýr. Valgeir Davíðsson bóndi taldi
líklegt að sér tækist að brynna kún-
um úti þar sem hlýtt væri í veðri og
von væri til að hægt væri að grafa
upp úr vatnsbólinu í dag, laugardag.
Valgeir sagðist ekki vita til þess að
skriður hefðu áður fallið úr
Hvammsfjalli. Hann taldi að skriðan
væri um 20 metra breið og á þriðju
mannhæð en skriðan við Arnórsstaði
væri stærri.
Þá bárust fregnir af skriðu á
Hnífsdalsveg, án þess að hann lok-
aðist, og önnur að veginum.
Skriðuföll
í miklu
vatnsveðri