Morgunblaðið - 10.11.2001, Síða 8

Morgunblaðið - 10.11.2001, Síða 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Nýtt tímarit um heilsu- og líkamsrækt Móttökurnar hreint út sagt ótrúlegar NÝVERIÐ kom útnýtt tímarit sember heitið „Í formi“ og fjallar eins og nafnið gefur sterklega til kynna, um heilsu- og lík- amsrækt og heilsusamlegt líferni. Mikil heilsuræktar- bylgja hefur farið yfir land- ið síðustu árin og í seinni tíð hefur verið einstök gróska í útgáfu tengdri umræddum lífsstíl. Gott ef þetta er ekki þriðja um- fjöllunin á þessum stað í Morgunblaðinu á stuttum tíma um blað eða bækling um heilsu- og/eða líkams- rækt. Blöð og bæklingar um þennan málaflokk hafa komið og farið í áranna rás, en hvað skyldi vera um þetta nýja blað að segja? Ritstjóri „Í formi“ er Rósa Gunn- laugsdóttir sem þreytir sína frum- raun sem ritstjóri og Morgunblað- ið ræddi við hana í vikunni. Fyrir hverja er blaðið Í formi? „Í formi er tímarit fyrir fólk á öllum aldri sem vill lifa heilsusam- legu og hamingjuríku lífi þar sem það fær að njóta sín til fulls. Í tímaritinu Í formi er fjallað um hin fjölbreytilegustu mál á jákvæðan og skemmtilegan máta. Svo fylgir danska blaðið Bo Bedre með í kaupunum.“ Hver er tilurð blaðsins? „Tilurð blaðsins er einfaldlega sú, að okkur fannst vanta á mark- aðinn tímarit sem fjalar um heil- brigt líferni og allt sem því fylgir á fræðilegan og skemmtilegan hátt, án þess þó að verið sé að lesa yfir hausamótunum á fólki. Útgefandi blaðsins er Elísa Guðrún ehf. sem gefur einnig út Lifandi vísindi.“ Hver verða efnistök, hvað á blaðið að koma oft út og hvað er upplagið stórt? „Í blaðinu er efni úr öllum þeim flokkum sem það hefur upp á að bjóða; heilsa, sálfræði, kynlíf, mat- aræði, leikfimi, snyrtivörur, fjöl- skyldan, ferðalög o.s.frv. Blaðið kemur út mánaðarlega og upplag- ið er 11.000 eintök. Það kostar 790 krónur í áskrift en 899 krónur í lausasölu.“ Hverjar eru væntingar þínar varðandi blaðið? „Væntingar mínar eru þær að fólk hafi bæði gagn og gaman af blaðinu sem og að það verði til þess að opna umræðuna enn frek- ar um leiðina að heilbrigðari lífs- háttum. Og vonandi gefur blaðið lesendum sínum einhver svör við spurningum og vangaveltum sem ekki hefur verið svarað hingað til. Blaðið hefur og farið vel af stað og ég vænti þess og vona að það nái góðri fótfestu meðal lesenda. Ég er raunar mjög bjartsýn á það.“ Segðu okkur eitthvað frá fyrsta tölublaðinu... „Það verða alltaf fastir liðir í blaðinu, efnisliður sem heitir „fremst“ (stuttir fróðleiksmolar um nýjungar af ýmsu tagi), spurningar og svör. Lesendur spyrja og fá svörin frá sér- fræðingum á hverju sviði fyrir sig. Greinar um ferðalög frá spenn- andi stöðum, snyrtivörur og fleira. Í fyrsta tölublaði er m.a. fjallað um margar gerðir æfingaraðferða, kynlíf eftir barnsburð, þunglyndi hjá konum, „orsakameðferðir“, öldrun húðarinnar og fleira og fleira. Í formi er ekki alveg nýtt af nálinni því við erum í samstarfi við eitt vandaðasta og stærsta tímarit á Norðurlöndum á þessu sviði og er meginuppistaða efnis Í formi fengið frá því blaði. Á bak við hvert tölublað standa yfir fimmtíu manns, allir sérfræðingar á sínu sviði, allt frá læknum og sálfræð- ingum yfir í snyrtifræðinga og sér- fræðinga á sviði líkamsræktar. Svona vandað blað gætu Íslend- ingar aldrei gefið með eins stutt- um fyrirvara og við gerðum og út- koman verið eins góð og raun ber vitni.“ Hvernig tengist Bo Bedre þess- ari útgáfustarfsemi? „Vegna hagstæðra samninga við tímaritaútgáfuna á Norður- löndum gátum við boðið íslenskum áksrifendum danska tímaritið Bo Bedre á ótrúlega góðum kjörum. Bo Bedre er eitt vandaðasta tíma- rit sem gefið er út á Norðurlönd- unum. Þetta er um 250 síðna blað, myndskreytt bestu fáanlegu myndum og fjallar um allt sem við- kemur heimilinu, allt frá borðbún- aði til innanhússhönnunar. Þetta er blað sem margir Íslendingar þekkja vel, enda rótgróið og vin- sælt.“ Þú sagðir að móttökur hefðu verið góðar, lýstu því nánar og ertu sjálf ánægð með frumburð- inn? „Móttökurnar hafa verið hreint út sagt ótrúlegar. Áður en fyrsta tölublaðið kom út voru komnir yfir 4.000 áskrifendur sem segir mér einfaldlega að það var greinilega full þörf á svona blaði á markaðinn. Ég held að ég geti ekki verið ánægðari með útkomuna á blaðinu, það ber glöggt vitni um metnaðarfull og vönduð vinnu- brögð, sama hvert litið er. Ég vona að lesendur séu sammála mér og komi til með að njóta Í formi með okkur um ókomna framtíð.“ Rósa Gunnlaugsdóttir  Rósa Gunnlaugsdóttir fæddist árið 1975 og er Reykvíkingur í húð og hár. Eftir grunnskóla lauk hún námi á félagsfræðibraut í Fjölbrautaskólanum í Breið- holti. Stundaði síðan nám við Við- skipta- og tölvuskólann. Um tíma vann hún á leikskóla og hjá bóka- útgáfunni Iðunni. Var þar að- stoðarmaður sölustjóra. Síðan vann hún um tíma við gagna- vinnslu ættfræðibóka og starfs- mannatala fyrir bókaútgáfur uns hún settist í ritstjórastól Í formi. Sambýlismaður Rósu er Birgir Már Þorgeirsson, tónlistarmaður og nemi við Háskóla Íslands. Á bak við hvert tölublað standa 50 manns Ég er ekkert hræddur, ég er bara ekki búinn að pússa græjurnar, góði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.