Morgunblaðið - 10.11.2001, Side 10

Morgunblaðið - 10.11.2001, Side 10
ELLEFU konur hafa setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn undan- farnar tvær vikur og hafa aldrei fleiri konur setið á Alþingi fyrir flokkinn. Níu konur eru nú í hópi þingmanna flokksins og hafa þær aldrei verið fleiri. Soffía Gísladóttir hefur setið á þingi sem varamaður Halldórs Blöndals, 1. þingmanns Norður- lands eystra, og Stefanía Ósk- arsdóttir sem varamaður Geirs H. Haarde í Reykjavíkurkjördæmi. Sigríður Anna Þórðardóttir, for- maður þingflokks Sjálfstæðisflokks- ins, sagði að mjög skemmtilegt hafi verið að koma á fundi þingflokksins síðustu daga, þar sem konur hafi á stundum verið í meirihluta. Alls eru 26 þingmenn í þingflokki Sjálfstæð- isflokksins, þar af níu konur. Sigríð- ur Ingvarsdóttir varð þingmaður í haust eftir að Hjálmar Jónsson lét af þingmennsku fyrir Norðurlands- kjördæmi vestra. Auk þeirra Sigríðar Önnu og Sig- ríðar Ingvarsdóttur, sitja nú þær Sólveig Pétursdóttir, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Katrín Fjeldsted, Ásta Möller, Drífa Hjartardóttir, Arnbjörg Sveinsdóttir og Þorgerð- ur Katrín Gunnarsdóttir á þingi fyr- ir Sjálfstæðisflokkinn. „Þingmenn hafa verið á faralds- fæti og því gerðist það í vikunni að konur voru fjölmennari á fundum þingflokksins. Mér finnst það afar ánægjuleg þróun að konum skuli hafa fjölgað svo mjög í hópi þing- manna Sjálfstæðisflokksins og í ljósi sögunnar er þessi breyting mikil,“ sagði hún. Þegar Sigríður Anna settist fyrst á þing árið 1991, voru fjórar konur í þingflokki Sjálfstæð- isflokksins, auk hennar þær Salóme Þorkelsdóttir, Lára Margrét Ragn- arsdóttir og Sólveig Pétursdóttir. Aldrei fleiri konur í hópi þing- manna Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ stjóra væri í höndum þessa út- varpsráðs.“ Ögmundur Jónasson (Vg) lýsti sig sammála megininntaki tillögu Sverris og benti á að starfsmanna- TILLAGA Sverris Hermannsson- ar, formanns Frjálslynda flokksins, til þingsályktunar um rekstur Rík- isútvarpsins var rædd á Alþingi fyrir skemmstu og urðu þá fjör- ugar umræður um hlutverk stofn- unarinnar og framtíð. Í tillögu Sverris felst að Alþingi kjósi nefnd, skipaða fulltrúum allra þingflokka, til að semja frumvarp um breyttan rekstur RÚV. Nefnd- in semji frumvarpið innan ákveðins stefnuramma, sem m.a. felur í sér að RÚV verði áfram til sem sjálf- stæð og óháð stofnun í þjóðareign, að horfið verði frá hugmyndum um sölu á Rás 2, vegna þarfa lands- hlutaútvarps, að almannahagsmun- ir, ef vá ber að höndum, kalla eftir því að hið víðtæka dreifingarnet sé alltaf tiltækt og að RÚV verði fjár- magnað að fullu á fjárlögum ár hvert, t.d. innan rammaáætlunar eða þjónustusamnings til þriggja eða fimm ára í senn. Útvarpið hætti að flytja viðskiptaauglýsing- ar í samkeppni við aðra fjölmiðla, en flytji áfram tilkynningar frá op- inberum aðilum, félagasamtökum og öðrum sambærilegum aðilum. Flokkapólitísk áhrif og tengsl verið ríkjandi „Ný skipan Ríkisútvarpsins þarf að sjá til þess að það verði raun- verulega sjálfstætt þjóðarútvarp í stað þeirrar stofnunar sem er nú, þar sem flokkapólitísk áhrif og tengsl hafa verið ríkjandi,“ segir í tillögunni. Þar koma einnig fram hugmyndir um viðamikil áform um breytta skipan og hlutverk Út- varpsráðs. „Yfir stofnunina verði sett all- fjölmennt útvarpsráð, eins konar „akademía“, e.t.v. 15 manna sem valdir væru af samtökum og stofn- unum í samfélaginu: úr menningar- og listaheiminum, af fræðslustofn- unum, úr vísinda- og rannsókn- argeiranum, af landsbyggðinni, frá almannasamtökum launþega og e.t.v. fleiri aðilum. Seta í útvarps- ráði væri mikilsverð viðurkenning- ar- og virðingarstaða sem ein- göngu mundi veljast til hið hæfasta fólk með víða sýn yfir samfélagið. Ráðið hefði vel skilgreint verksvið og ákvæði megindrætti í dagskrár- stefnu stofnunarinnar og verka- skiptingu milli Rásar 1, Rásar 2 og sjónvarpsins. Ráðning útvarps- samtök Ríkisútvarpsins hefðu gert slíkt hið sama. Hins vegar sagðist hann hafa efasemdir um að raun- sætt sé að svipta RÚV auglýsinga- tekjum sínum. Þær séu snar þáttur í fjármögnun þess. Á móti sé mjög mikilvægt að fjármögnun stofnun- arinnar sé eins óháð framkvæmda- valdinu og kostur er. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagðist geta tekið í megindráttum undir þau sjónarmið sem kæmu fram í tillög- unni. „Ég er þeirrar skoðunar að öflugt og sjálfstætt þjóðarútvarp verði að vera til staðar og að það sé forsenda þess að hægt sé að halda uppi lýðræðislegri umfjöll- un,“ sagði hann og tók undir með Sverri að í vaxandi mæli standi Ríkisútvarpið í flokkspólitískum skugga. „Við sjáum auðvitað að valda- menn í samfélaginu hafa reynt að beita aðstöðu sinni til þess að ráða þar inn fólk og þeir hafa gert það. Við skulum ekkert vera að skafa utan af því,“ sagði hann. Formaður Samfylkingarinnar gat þess einnig að í máli Sverris hefði gætt nokkurrar svartsýni í garð íslenskrar tungu. Tillagan væri því ekki síst sett fram af um- hyggju hans fyrir tungunni. Sagði Össur að á þessi varnaðarorð þyrfti að hlusta, því þau væru sett fram af manni sem verið hefði menntamálaráðherra með miklum ágætum og talaði tunguna „með betri og merkilegri hætti en ákaf- lega margir aðrir Íslendingar“ nú á dögum. Rétt að breyta Ríkisútvarpinu í hlutafélag í eigu ríkisins Halldór Blöndal (D) benti á að vinstri menn á þingi tækju allir undir tillöguna, þar sem því væri algjörlega hafnað að Ríkisútvarp- inu verði breytt í hlutafélag. Benti Halldór á að það væri mjög flókið og seinvirkt fyrir fyrirtæki að starfa samkvæmt fjárlögum. Hver einasta fjárfesting þurfi að vera ákveðin innan stofnunarinnar ári áður en fjárlög taka gildi. Bætti Halldór því við að íhuga verði mjög rækilega hvort ekki sé rétt að breyta Ríkisútvarpinu í hlutafélag í eigu ríkisins. „Ég tel að það verði að reyna að meta kosti þess og galla. Það liggur fyrir að á síðustu mánuðum hafa þar verið teknar ákvarðanir sem benda til þess að þeir sem búa úti á landi geti ekki treyst á Ríkisútvarpið eins og það er rekið.“ RÚV verði áfram sjálfstæð og óháð stofnun í þjóðareign Ríkisútvarpið verður fjármagnað að fullu á fjárlögum og hættir að flytja viðskipta- auglýsingar, verði frumvarp Sverris Hermannssonar til laga um Ríkisútvarpið samþykkt á Alþingi. Morgunblaðið/Þorkell Sverrir Hermannsson ræðir við Jóhönnu Sigurðardóttur undir um- ræðum á Alþingi. Kristinn H. Gunnarsson fylgist með. ÞEGAR kemur að störfum hinna þjóðkjörnu fulltrúa á löggjafar- samkundunni er engum vafa undir- orpið þessi misserin hvaða mál ber hæst í umræðunni. Hvaða mál fær þingmenn til að gægjast út yfir hina flokkspólitísku línu og ræða hlutina í víðu samhengi. Þetta mál tengist með beinum og óbeinum hætti af- komu þjóðarinnar og velferð í bráð og lengd; nefnilega stjórn fiskveiða. Þessa hefur áþreifanlega orðið vart í störfum Alþingis að und- anförnu og hefur umræðan oft á tíð- um verið snörp og harðvítug. Ekki hvað síst hefur vakið athygli hve skil virðast á stundum óljós milli stjórn- armeirihluta og stjórnarandstöðu í þessari umræðu og einnig hversu kynbundin hún er. Fremur fátítt er að konur taki til umræðu í henni og aðeins Svanfríður Jónasdóttir, Sam- fylkingunni, hefur gert sig gildandi á þessum vettvangi. Svanfríður var m.a. eina konan sem ræddi fisk- veiðistjórnina þá tvo þingdaga sem um ræðir. Það er miður, því afleitt er að annað kynið ráði meiru en hitt í svo mikilvægum málaflokki. Á föstudag og mánudag var hart tekist á um stjórn fiskveiða á Al- þingi og dróst sú umræða fram yfir allar áætlanir. Þannig varð mikið uppistand á föstudagsmorgninum yfir ummælum sjávarútvegs- ráðherra á aðalfundi LÍÚ frá því deginum áður þess efnis að fulltrúar stjórnarandstöðunnar í svonefndri endurskoðunarnefnd um stjórn fisk- veiða hefðu aldrei í störfum sínum stefnt að sáttum. Þessu var mót- mælt hart í upphafi þingfundar og öllum hugsanlegum meðulum beitt í því skyni, svo þingreyndustu menn vissu vart hvaðan á þá stóð veðrið. Þannig var á tímabili engin leið að vita hvort ræðumenn væru að ræða störf þingsins, fundarstjórn forseta eða að bera af sér sakir. Frammíköll settu og mikinn svip á umræðuna og ekki síður að ráðherra fékk að gera grein fyrir máli sínu og fara vel á fjórðu mínútu fram yfir ræðutíma sinn í því skyni. Vakti það ómælda athygli og heldur litla hrifningu, hvar svo sem í flokki menn stóðu. Einn stjórnarliða sagði eftir á við undirritaðan að vonlaust væri að veita undanþágur frá fundar- sköpum; reglur væru reglur. Var því kannski ekki furða þótt Steingrímur J. Sigfússon segði í ræðustól að hér eftir myndu forsetar þingsins eiga í „grenjandi vandræðum“ með að meta hvaða erindi væru nógu brýn til þess að beygja mætti út frá þing- sköpum. Sverrir Hermannsson ræddi um „geðbrigðastjórn forseta“, en áskildi sér um leið rétt til að fara svo rækilega út fyrir sinn ræðutíma þegar þyrfti. Ekki voru átökin minni síðar um daginn þegar Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra mælti fyrir frumvarpi sínu um breytingar á stjórnkerfi krókaaflamarksbáta. Flugu þá margar eldræður, sýnu þó eftirminnilegust löng og magn- þrungin tala Einars Odds Kristjáns- sonar frá Flateyri, sem rakti sautján ára sögu kvótakerfisins og benti á þá slæmu stöðu sem ýmsir fiski- stofnar væru í um þessar mundir. Niðurstaða Einars Odds var að okk- ur hefði „gjörsamlega mistekist“ í stjórn fiskveiða og gaf í skyn að til lítils væri að deila um aðferðafræði, veiðigjald eða fyrningarleið, þegar sjálft tækið – kvótakerfið – væri sýnilega gallað. Á mánudeginum kom annar þing- maður Vestfjarða, framsóknarmað- urinn Kristinn H. Gunnarsson, í pontu og beindi spjótum sínum mjög að sjávarútvegsráðherra. Kristinn átti einmitt sæti í endurskoð- unarnefndinni og vék að ummælum ráðherra um þá sem ekki studdu álit meirihluta hennar. Sagði hann um- mælin „athyglisverð“ og velti því upp hvort ráðherra teldi að afstaða nefndarinnar væri eitthvert viðmið sem aðrir nefndarmenn hefðu átt að laga sig að. Kvaðst hann ekki geta fallist á að sjónarmið þeirra „sem að lokum“ skipuðu meirihluta nefnd- arinnar hafi verið „einhver ballest“ í störfum hennar og þeir sem ekki gátu fallist á þau sjónarmið hafi haft það að markmiði að halda uppi ágreiningi. „Mér er ekki ljóst hvort hann [ráðherrann] meinar þessi ummæli til mín eða ekki,“ sagði Kristinn og sagðist ekki vilja lesa það þannig og bíða heldur þar til ráðherra skýrði þau gagnvart sér. Bætti hann því við að allir þingmenn í nefndinni hefðu unnið af fullum heilindum og kvaðst telja að ekki hjálpi til í málinu að einstökum nefndarmönnum væru gefnar niðrandi einkunnir. Kristinn sagði líka að sam- komulag milli ólíkra sjónarmiða ná- ist ekki með því að hafna öðru sjón- armiðinu og búa til niðurstöðu sem eingöngu grundvallast á hinu. „Sam- komulag næst því aðeins að menn taki mið af báðum sjónarmiðum. Það var rætt í fullri alvöru innan nefndarinnar að ná samkomlagi sem tæki tillit til beggja sjónarmiða. Ég er alveg viss um það að ef sjáv- arútvegsráðherra hefði lagt þeim tilraunum lið þá hefðu menn náð sameiginlegri niðurstöðu í endur- skoðunarnefndinni,“ sagði Kristinn H. Gunnarsson ennfremur í ræðu sem seint verður talin líkleg til þess að marka endalok fjörugrar um- ræðu um sjávarútvegsmál í sölum Alþingis. Þvert á móti er hún til þess fallin að áfram verði tekist um þetta grundvallarmál okkar landsmanna, þótt vísast sé vilji allra að um síðir náist einhver sú lending í málinu sem vísað geti til sátta og skyn- samlegrar niðurstöðu, landi og lýð til heilla.      Harðvítugar deilur um stjórn fiskveiða EFTIR BJÖRN INGA HRAFNSSON ÞINGFRÉTTAMANN bingi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.