Morgunblaðið - 10.11.2001, Síða 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Höfðabakki 9 - Til leigu
FRÁBÆR STAÐSETNING OG HIMNESKT ÚTSÝNI!
MJÖG HAGSTÆÐ LEIGA
Síðumúla 27, sími 588 4477,
fax 588 4479.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Upplýsingar veitir
Magnús Gunnarsson í
s. 588 4477 eða 899 9271
Skrifstofuhúsnæði sem uppfyllir
allar kröfur til reksturs nútíma
húsnæðis.
Hæðirnar hafa verið í notkun
PriceWaterhouseCoopers, PWC.
4. hæð, 900 fm. Laus.
5. hæð, 900 fm. Laus.
7. hæð, (efsta hæð), 850 fm.
Laus nú þegar.
Mögulegt er að skipta hverri hæð í tvær einingar.
Eignin er í eigu Landafls sem er öflugt fasteignafélag
sem sérhæfir sig í eignarhaldi og útleigu fasteigna.
SAMDRÁTTUR hefur orðið í
einkaneyslu og fjárfestingum eftir
uppgangstímabil á síðustu árum en
samneyslan hefur vaxið nokkuð
jafnt og þétt og ekki dregist saman
til jafns við hina tvo þættina. Þar
þarf til að koma aðhald af hálfu
hins opinbera. Framlag ríkisfjár-
málanna væri mikilvægt til að
verðbólgumarkmiðum Seðlabank-
ans yrði náð.
Þetta kom fram í máli framsögu-
manna á morgunverðarfundi Versl-
unarráðs í gær þar sem staða og
horfur í efnahagsmálum var rætt í
tilefni af útkomu rits Seðlabank-
ans, Peningamála.
Framsögu höfðu Birgir Ísleifur
Gunnarsson seðlabankastjóri, Mar-
geir Pétursson, hjá MP-verðbréf-
um og Andri Teitsson hjá Þróun-
arfélagi Íslands. Lagt var út af
nýútkomnu riti Seðlabankans, Pen-
ingamálum, vaxtalækkuninni í
fyrradag og verðbólguspá Seðla-
bankans.
Telur Seðlabankann
fullbjartsýnan
Andri telur að Seðlabankinn sé
fullbjartsýnn á efnhagsþróunina
næstu misserin, þ.e. á að íslenska
krónan muni halda velli og svo
styrkjast og að kaupmáttur muni
haldast á næsta ári og hækka eftir
það.
Andri lýsti áhyggjum af miklum
viðskiptahalla. „Svona hallarekstur
gengur ekki upp til lengdar hjá
heilli þjóð, ekki frekar en hjá fyr-
irtæki eða heimili,“ sagði Andri.
Áframhaldandi vöxtur samneyslu
ásamt aukinni vaxtabyrði af er-
lendum lánum er meginskýringin á
að viðskiptahallinn minnkar sára-
lítið, að því er fram kom í máli
Andra.
Sökum viðskiptahallans er Andri
ekki bjartsýnn á að gengi haldist
stöðugt, en það er ein af forsendum
fyrir verðbólguspá Seðlabankans
sem kynnt var í fyrradag. Hann
telur horfur á að kjarasamningar
haldi, eins og gert er ráð fyrir,
heldur ekki góðar.
Hugmynd að auknum
sparnaði heimilanna
Andri telur galla hversu mikið af
lánum er með föstum vöxtum.
„Þegar skuldarinn er búinn að taka
lánið verður hann ekki endilega var
við það þótt eftirspurn eftir pen-
ingum aukist. Þetta á til dæmis við
um húsnæðislán og námslán,“ sagði
Andri og kom með tillögu að fyr-
irkomulagi sem aukið gæti sparnað
heimilanna um milljarða á nokkr-
um árum. Hugmynd Andra er sú
að Lánasjóður íslenskra náms-
manna bjóði skuldurum að greiða
lán sín upp með afföllum sem svara
til þrjú, fjögur eða fimm prósent
ávöxtunarkröfu og tuttugu ára
endurgreiðslutíma. „Afföll af
tveggja milljóna króna láni sem ber
0% vexti yrðu 500 þúsund krónur
eða 25% miðað við 3% ávöxtunar-
kröfu. Þessi ávöxtunarkrafa tæki
breytingum í takt við til dæmis
ávöxtunarkröfu húsbréfa þannig að
tilboð um uppgreiðslu yrði meira
freistandi þegar raunvextir í land-
inu væru háir, það er að segja þeg-
ar aðrir hefðu mikil not fyrir þessa
peninga – að eigin mati að minnsta
kosti,“ sagði Andri.
Halda áfram á sömu braut
ef krónan helst stöðug
Margeir Pétursson fagnaði
vaxtalækkun Seðlabankans og lýsti
þeirri skoðun sinni að skynsamlegt
hefði verið af Seðlabankanum að
stíga ekki of fast til jarðar í fyrsta
sinn en mikilvægt væri að halda
áfram á sömu braut, ef krónan
héldist stöðug næstu daga og vikur.
Hann hrósaði Seðlabankanum fyrir
fagleg vinnubrögð og sagði fagleg-
an trúverðugleika bankans mikinn
á alþjóðavettvangi.
Hann sagði að „svokallaður hag-
vöxtur“ mældist nú aðeins vegna
ríkisútgjalda og þau yrði að koma
böndum á, þrátt fyrir að það væri
erfitt verk. Vaxtahækkanir undan-
farinna ára hefðu engin áhrif haft á
opinbera aðila, aðeins á einka-
neyslu og fjárfestingar.
Margeir benti á að sú stærð sem
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn horfir
m.a. til væru erlendar skammtíma-
skuldir þjóðarbúsins. Þessar skuld-
ir hefðu hér vaxið verulega og
gjaldeyrisforði Seðlabankans sem
hlutfall af þeim farið lækkandi á
móti. Þetta hlutfall var 80% árið
1996, 60% árið 1999 en er nú tæpur
þriðjungur, að sögn Margeirs.
„Ég tel að Seðlabankinn eigi
frekar að reyna að tryggja fjár-
hagslegan stöðugleika með lækkun
vaxta heldur en halda vöxtum
háum, þar sem háir vextir virka illa
gegn opinberum útgjöldum. For-
senda þess að þetta sé hægt er að
hið opinbera, þ.e. sveitarfélögin og
ríkissjóður, haldi ekki áfram að
auka útgjöld sín,“ segir Margeir.
Raungengi krónunnar mun hækka
Birgir Ísleifur Gunnarsson,
bankastjóri Seðlabanka Íslands,
gerði á fundinum grein fyrir verð-
bólguspá Seðlabankans og forsend-
um fyrir vaxtalækkuninni sem
greint var frá í Morgunblaðinu í
gær. Birgir Ísleifur lagði áherslu á
að aðhald peningastefnunnar yrði
áfram mikið enda raunvextir bank-
ans um 6,5% eftir breytinguna.
„Seðlabankinn hefur áður lýst
þeirri skoðun sinni að raungengi
krónunnar sé orðið mun lægra en
það jafnvægisgengi sem reikna má
með til lengdar. Raungengi krón-
unnar mun því hækka á næstu
misserum. Hins vegar er óvíst hve-
nær þetta gerist og í hvaða mæli
það verður; fyrir atbeina hærra
nafngengis krónunnar eða meiri
verðbólgu en í viðskiptalöndunum.“
Seðlabankastjóri sagðist vonast til
að það yrði það fyrrnefnda sem
myndi valda hærra raungengi
krónunnar.
„Tímasetning og umfang frekari
lækkunar vaxta ræðst nú sem
endranær af framvindunni og lík-
unum á að verðbólgumarkmið
bankans náist árið 2003. Framlag
ríkisfjármálanna verður mikilvægt
í þeim efnum,“ sagði Birgir Ísleifur
undir lok erindis síns.
Hann ræddi peningamálastefnu
sögulega í umræðum eftir erindin,
en ofþensluna árið 1999 bar m.a. á
góma. „Okkar skoðun var sú að við
yrðum að reyna að ná ofþenslunni
betur út úr hagkerfinu áður en við
færum að lækka vexti og áður en
gengið færi að lækka, vegna þess
að sagan sýnir okkur að ef það ger-
ist undir þeim kringumstæðum að
ofþenslan er í hámarki er mikil
hætta á því að bæði gengi og verð-
bólga fari á skrið og við lendum í
mikilli óðaverðbólgu.“
Birgir Ísleifur svaraði því af
hverju við höfum verið í svo miklu
ofþenslutímabili. „Launin á Íslandi
hafa hækkað langt umfram það
sem þjóðarbúið leyfir á síðustu
tveimur árum. Þar er auðvitað
kominn grundvöllur þeirrar einka-
neyslu sem hefur drifið viðskipta-
hallann og hagvöxtinn áfram á síð-
ustu tveimur árum. Bæði þær
tekjur sem menn fengu í hendur og
væntingar um að þetta myndi
verða svona um alla eilífð og þá
væri allt í lagi að ganga í bankana
og sækja sér hnefa. Það er það sem
menn hafa ótæpilega gert og bank-
arnir ekki staðið nægilega vel í
ístaðinu. Þeir horfa þess vegna
núna fram á mun erfiðari tíma en
þeir þyrftu að ganga í gegnum ef
þeir hefðu haldið meira að sér
höndum.“ Birgir Ísleifur telur þó
ekki að fjármálastöðugleikinn sé í
hættu vegna bankanna, þeir muni
komast út úr erfiðleikunum upp á
eigin spýtur.
Morgunverðarfundur Verslunarráðs um stöðu og horfur í efnahagsmálum um þessar mundir
Framlag ríkisfjár-
málanna mikilvægt
Morgunblaðið/Kristinn
Margeir Pétursson ávarpar fund Verslunarráðs í gær. Sitjandi eru Birgir
Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri og Bogi Pálsson fundarstjóri.
Í FRAMHALDI af vaxtalækkun
Seðlabankans í fyrradag hafa Bún-
aðarbanki Íslands, Íslandsbanki og
Landsbanki Íslands ákveðið að
lækka vexti sína. Sparisjóðirnir
munu einnig lækka vexti sína, en
ekki liggur fyrir hve mikið. Breyt-
ingarnar hjá sparisjóðunum munu
ekki taka gildi frá og með morgun-
deginum eins og hjá bönkunum
þremur, heldur frá og með 21. þessa
mánaðar, en vaxtabreytingadagar í
bankakerfinu eru almennt 1., 11. eða
21. hvers mánaðar.
Búnaðarbankinn hefur sent frá
sér tilkynningu þar sem segir að með
hliðsjón af því að Seðlabankinn hafi
lækkað vexti í endurhverfum við-
skiptum um 0,8% og vexti daglána til
banka um 0,4%, þá hafi Búnaðar-
bankinn ákveðið að lækka vaxtakjör
sín. Kjör óverðtryggðra útlána
lækka um 0,8% en kjör óverð-
tryggðra innlána lækka heldur
minna eða um 0,2%-0,6%, yfirleitt þó
um 0,6%. Jafnframt hefur Búnaðar-
bankinn ákveðið að lækka verð-
tryggða vexti bæði útlána og innlána
um 0,1%.
Íslandsbanki hefur tekið ákvörðun
um að lækka flesta óverðtryggða
innláns- og útlánsvexti sína um 0,8%,
en verðtryggðir vextir verða
óbreyttir. Svipaða sögu er að segja
um vaxtabreytingar hjá Landsbank-
anum, þar lækka innláns- og útláns-
vextir almennt um 0,8%, en verð-
tryggðir vextir haldast óbreyttir.
Vaxtabyrði skuldabréfa lækkar
Fyrir þá sem eru með skuldabréf
hjá einhverjum bankanna þýðir
lækkun vaxta á útlánum yfirleitt að
vaxtagreiðslur af skuldabréfunum
lækka þó að þegar hafi verið stofnað
til skuldarinnar. Þetta stafar af því
að yfirleitt eru vextir skuldabréfa
tvískiptir. Annars vegar er álag sem
er ákveðið þegar skuldabréfið er gef-
ið út og það breytist ekki nú. Hins
vegar eru þeir almennu skuldabréfa-
vextir sem hver banki miðar við og
þeir vextir munu taka breytingum á
morgun. Árleg vaxtabyrði af
1.000.000 króna skuldabréfi lækkar
því yfirleitt um 8.000 krónur í fram-
haldi af þeim vaxtalækkunum sem
nú eiga sér stað.
Vextir viðskipta-
banka lækka
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandins hefur lagt fram til-
lögur um að verð á sjávarafurðum
hækki á næsta ári. Tillögurnar eru
leiðbeinandi fyrir aðildarlöndin og
eru m.a. byggðar á meðalmark-
aðsverði, kvótum, eftirspurn o.fl. í
ESB-löndum sl. þrjú ár. ESB leggur
á hverju ári fram slíkar leiðbein-
andi tillögur, sem ætlað er að
tryggja framleiðendum hagnað
með því að stuðla að stöðugleika á
fiskmörkuðum í sambandinu. Verð
á sjávarafurðum í löndum ESB
hækkaði á árunum 1999–2001, öf-
ugt við næstu þrjú árin þar á und-
an. Verðhækkanirnar má einkum
rekja til aflasamdráttar og auk-
innar spurnar eftir sjávarfangi.
Framkvæmdastjórnin leggur til 1–
2,5% hækkun á flestum hvítfiskteg-
undum og um 1-3% hækkun á upp-
sjávarfiski. Um er að ræða lág-
marksverð á fiskmörkuðum. Nái
verð á fiski ekki þessu lágmarki má
ekki nota hann til manneldis, aðeins
í mjölvinnslu og lýsi.
Leggja til
hækkun á
fiskverði