Morgunblaðið - 10.11.2001, Side 24
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
24 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
PAUL Krugman hagfræðingur ritaði
í vikunni grein um efnahagsvanda
Argentínu í dagblaðið The New York
Times. Í greininni gagnrýnir hann
harðlega þá gengisstefnu sem rekin
hefur verið í Argentínu og kölluð hef-
ur verið myntráð (e. currency board).
Til að koma í veg fyrir verðbólgu hafi
gengið verið fest þannig að einn pesói
hafi verið jafngildur einum Banda-
ríkjadal og þetta hafi skilið eftir lítið
svigrúm til að beita peningastefnu.
Krugman spyr hvað hafi farið úr-
skeiðis og segir að miðað við umræð-
ur um lánin, sem ekki hafi verið staðið
í skilum með, mætti ætla að vandinn
lægi hjá ríkinu. Staðreyndin sé þó sú
að halli af ríkissjóði hafi verið á milli
eitt og þrjú prósent af landsfram-
leiðslu, sem sé ekki slæmt fyrir hag-
kerfi í samdrætti. Þá séu skuldir rík-
isins aðeins um helmingur lands-
framleiðslunnar, sem sé betra en hjá
mörgum Evrópuríkjum og staða rík-
issjóðs sé betri en hún hafi verið í
Bandaríkjunum fyrir áratug.
Að fjarlægja spennitreyjuna
„Ríkisfjármálin eru ekki hinn raun-
verulegi vandi Argentínu, heldur
efnahagsmálin,“ segir Krugman.
Hann bendir á að landið stríði nú við
fjórða samdráttarárið í röð, en
ósveigjanleiki peningastefnunnar,
sem miðist við að verjast verðbólgu,
komi í veg fyrir aðgerðir sem lönd
fara almennt út í til að berjast við
verðhjöðnun. Þetta séu aðgerðir á
borð við vaxta- eða gengislækkun.
Þess í stað hafi Argentína gengið í
gegnum hvern niðurskurðinn á fætur
öðrum í ríkisfjármálum, og í hvert
sinn hafi fylgt loforð um að nú myndi
niðurskurður launa og starfa endur-
vekja trú á efnahagslífið og ýta undir
efnahagsbata. „En niðurskurði hefur
ekki fylgt efnahagsbati, þvert á móti
hefur samdrátturinn aukist, átök inn-
anlands farið vaxandi og trú manna á
efnahagslífið minnkað enn frekar.
Eðlileg viðbrögð við þessu vanda-
máli eru að fjarlægja spennitreyjuna:
Láta pesóann fljóta og gera það sem
nauðsynlgt er til að bjarga hagkerf-
inu. Þetta gerði Bretland árið 1931 og
aftur árið 1992 með góðum árangri.
Jafnvel Brasilía, sem var neydd til að
hætta með fastgengi árið 1999, komst
að því að flotgengi bætti efnahaginn
verulega,“ segir Krugman.
Hann bætir því við að það sé að vísu
svo að stór hluti skulda einkaaðila í
Argentínu sé tengdur gengi Banda-
ríkjadals, sem þýði að gengisfelling
pesóans kynni að valda fjármálaleg-
um erfiðleikum. En eins og bent hafi
verið á sé til svar við þessu og það sé
að „gefa einfaldlega út tilskipun um
að afnema gengistenginguna“. Þetta
sé róttæk lausn, en hún eigi sér for-
dæmi í því að Roosevelt Bandaríkja-
forseti hafi tekið Bandaríkjadal af
gullfæti árið 1933. Auk þess hafi ýms-
ir starfsmenn fjárfestingabanka mán-
uðum saman lýst sig fylgjandi slíkri
aðgerð í einkasamtölum.
Þjóðin krossfest á dollarakrossinn
„Frá því í vor hafa íhaldssamir hag-
fræðingar í Bandaríkjunum hvatt
Argentínu til að halda í gengisfest-
inguna við dollarann og láta lánin
frekar falla en sleppa tengingunni.
Þetta er einmitt það sem hefur gerst,“
segir Krugman.
Hann bendir jafnframt á að þróuð
ríki felli oft gengi gjaldmiðla sinna, en
Argentínu sé sagt að hún geti það
ekki. Á hinn bóginn falli lán aldrei á
þróuð ríki, en Argentínu sé sagt að
hún verði að láta lánin falla.
Krugman segir erfitt að ímynda sér
að Argentína fórni bæði hagkerfi sínu
og lánshæfismati fyrir kenningar í
peningamálum sem orðið hafi illa úti í
prófunum í raunveruleikanum.
Paul Krugman í The New York Times
Argentína afnemi
gengistenginguna
BRESKA blaðið Guardian birti
í gær frétt þess efnis að Baug-
ur, sem á fimmtungshlut í
breska verslunarfyrirtækinu
Arcadia, myndi leggja fram
formlega yfirlýsingu þess efnis
að félagið geri tilboð í hlutabréf
annarra hluthafa í Arcadia.
Ekki reyndist þó fótur fyrir því.
Guardian sagðist hafa heim-
ildir fyrir því að Baugur mundi
bjóða 300 pens á hlut fyrir lok
dags í gær. Baugur hefur áður
tilkynnt í kynningartilboði að
boðin verði 280-300 pens á hlut.
Talsmönnum Baugs er
óheimilt að tjá sig um yfirtöku-
viðræðurnar en samkvæmt
áreiðanlegum heimildum
Morgunblaðsins er frétt
Guardian röng. Ekkert muni
gerast í málinu næstu daga.
Samkvæmt reglum um yfir-
tökur í Bretlandi þarf fyrirtæki
að lýsa formlega yfir að það
hyggist gera yfirtökutilboð og
leggja fram upplýsingar, s.s.
staðfestingu um fjármögnun.
Breski markaðurinn bíður
spenntur eftir slíkri yfirlýsingu
en efasemdir eru uppi um bol-
magn Baugs til kaupanna.
Frá því að yfirlýsing er gefin
mega að jafnaði líða 28 dagar til
bindandi kauptilboðs. Þegar til-
boðið hefur verið lagt fram
gildir það jafnan í 21 dag.
Stjórn Arcadia hefur 14 daga til
að lýsa áliti sínu á tilboðinu.
Enn eng-
in yfirlýs-
ing frá
Baugi HAGNAÐUR SölumiðstöðvarHraðfrystihúsanna hf. fyrstu
níu mánuði ársins nam 524
milljónum króna miðað við 217
milljónir fyrir sama tímabil í
fyrra. Hagnaður af rekstri er-
lendra dótturfélaga nam 390
milljónum og reyndist meiri en
áætlað var, að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu frá SH.
Búist er við 800 milljóna króna
hagnaði fyrir árið í heild.
Heildartekjur á tímabilinu
námu 41,3 milljörðum miðað við
33,1 milljarð á sama tímabili í
fyrra. Tekjur samstæðunnar
eru að mestu í erlendri mynt.
Hagnaður fyrir fjármagnsliði
nam 1.175 milljónum en 858
milljónum á tímabilinu í fyrra. Í
tilkynningu segir að starfsemin
á Íslandi hafi verið í jafnvægi á
árinu.
Niðurstaða efnahagsreikn-
ings var 25,6 milljarðar sem er
aukning frá áramótum. Heild-
arskuldir að frádregnum veltu-
fjármunum og langtímakröfum
námu 2,4 milljörðum. Eginfjár-
hlutfall var 17,7%.
Um horfur segir í fréttatil-
kynningunni: „Þótt atburðirnir
11. september virðist ekki hafa
haft veruleg áhrif á sölu afurða
hjá SH, hafa þeir valdið aukn-
um óróleika á markaði og þar
með óvissu. En að öllu óbreyttu
gerir áætlun ráð fyrir að hagn-
aður af rekstri síðasta ársfjórð-
unginn verði á bilinu 60–80
milljónir og heildarhagnaður
samstæðunnar þannig nálægt
800 milljónum.“
Hagnaður
SH eykst
verulegaTAP af rekstri Kaupþings hf. fyrir
skatta á fyrstu níu mánuðum ársins
nam 86 milljónum króna. Að teknu
tilliti til skatta er hagnaður félagsins
hins vegar 83 milljónir.
Fram kemur í tilkynningu Kaup-
þings að afkoman teljist ekki viðun-
andi. Erfitt árferði á verðbréfamörk-
uðum hafi sett mark sitt á afkomuna
og arðsemi eigin fjár sé nú rúm 2%.
Lækkandi gengi og minnkandi um-
svif á verðbréfamörkuðum, bæði inn-
anlands og erlendis, hafi leitt til tap-
rekstrar á þriðja ársfjórðungi.
Eiginfjárhlutfall 11,8%
Eigin viðskipti Kaupþings með
hlutabréf mynduðu 726 milljóna
króna tap á uppgjörstímabilinu en
hagnaður varð af eigin viðskiptum
með skuldabréf að fjárhæð 290 millj-
ónir. Hreinar rekstrartekjur námu
u.þ.b. 3,3 milljörðum króna og var
eigið fé tæpir 7 milljarðar í lok tíma-
bilsins. Eiginfjárgrunnur Kaup-
þings, þ.e. eigið fé að viðbættum
víkjandi lánum, er um 10,2 milljarðar
og eiginfjárhlutfall samstæðunnar
samkvæmt CAD-reglum 11,8%.
Niðurstaða efnahagsreiknings 30.
september 2001 er u.þ.b. 96 milljarð-
ar króna en í sex mánaða uppgjöri
hinn 30. júní var niðurstöðutalan um
94 milljarðar. Útlán hafa aukist um 6
milljarða frá lokum júní og eru nú 31
milljarður. Markaðsverðbréf og
eignarhlutir í félögum nema tæpum
48 milljörðum króna. Framvirkir
samningar á móti markaðsverðbréf-
um nema samtals 15,3 milljörðum.
Stefnir í viðunandi afkomu
Í tilkynningu Kaupþings kemur
fram að ytra umhverfi hafi verið
óhagstætt fyrirtækjum eins og því
undanfarna mánuði og að þess gæti
töluvert í afkomu félagsins. Tekju-
myndun hvíli hins vegar á fjölmörg-
um stoðum, s.s. umsýslutekjum, út-
lánastarfsemi, þóknanatekjum
vegna verðbréfaviðskipta og fyrir-
tækjaverkefna sem og gengisbreyt-
ingum vegna viðskipta með verðbréf
fyrir eigin reikning.
Stjórnendur Kaupþings telji ým-
islegt benda til þess að viðunandi af-
koma náist á næstu mánuðum. Með-
al annars megi nefna að þróun á
verðbréfamörkuðum í upphafi fjórða
ársfjórðungs hafi verið fyrirtækinu
jákvæð og einnig sé útlit fyrir að til
falli töluverðar tekjur vegna verk-
efna á sviði fyrirtækjaþjónustu fyrir
lok ársins.
Óviðunandi af-
koma Kaupþings
NÝ stjórn var kjörin á hluthafafundi
Keflavíkurverktaka hf. í gær. Aðal-
stjórn og varastjórn eru skipaðar
mönnum sem sitja þar í krafti Eisch
Holding, sem á um 87% af heildar-
hlutafé félagsins. Eisch Holding er í
eigu Bjarna Pálssonar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, sem blaðið telur áreiðan-
legar, mótmælti minnihluti fráfar-
andi stjórnar Keflavíkurverktaka
því á hluthafafundinum í gær að
hann skyldi haldinn, þar sem hann
hafi ekki verið löglega boðaður. Ekki
hafi verið fjallað um boðun fundarins
í stjórn félagsins.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að mikið hafi verið fjallað um málefni
félagsins á hluthafafundinum en á
dagskrá hans voru tveir liðir, kosn-
ing stjórnar og önnur mál. Fráfar-
andi minnihluti stjórnar mun ætla að
athuga sinn gang um framhaldið.
Í aðalstjórn Keflavíkurverktaka
voru í gær kjörnir þeir Bjarni Páls-
son, Kristinn Bjarnason, Sigurmar
K. Albertsson, Stefán Hilmarsson og
Páll Björnsson. Ingibjörg Pálsdóttir,
systir Bjarna Pálssonar, var kjörin
annar af tveimur í varastjórn félags-
ins. Guðrún S. Jakobsdóttir, fyrrver-
andi formaður stjórnar félagsins, er
ekki lengur í stjórn.
Hluthafafundurinn í gær var lok-
aður og var blaðamanni Morgun-
blaðsins vísað frá. Í reglum Verð-
bréfaþings Íslands um skráningu
verðbréfa á Tilboðsmarkaði þingsins
segir þó í 6. tölulið 6. greinar: „Hlut-
hafafundir skulu vera opnir fjölmiðl-
um.“ Keflavíkurverktakar eru á Til-
boðsmarkaði VÞÍ.
Ný stjórn kjörin í Keflavíkurverktökum hf.
Fundarboðun mótmælt