Morgunblaðið - 10.11.2001, Page 26

Morgunblaðið - 10.11.2001, Page 26
ERLENT 26 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÁSTRALSKIR kjósendur, 12,5 milljónir manna, ganga að kjör- borðinu í dag en skoðanakannanir benda til, að mjótt verði á mun- unum milli stjórnarflokkanna, Frjálslynda flokksins og Þjóðar- flokksins, og stjórnarandstöðunn- ar, Verkamannaflokksins. Hafa málefni flóttamanna verið ofar- lega á baugi í kosningabaráttunni en síðustu daga hefur John How- ard forsætisráðherra verið sakað- ur um blekkingar í þeim efnum. Ný tíðindi af þeim vettvangi í gær urðu þó hugsanlega til að styrkja stöðu hans. Fyrir ekki alllöngu virtist sem Verkamannaflokkurinn myndi vinna öruggan sigur í þingkosn- ingunum en hryðjuverkin í Bandaríkjunum og ekki síst hörð stefna Howards í málefnum flóttamanna sneru síðan vígstöð- unni við honum í vil. Við upphaf kosningabaráttunnar hafði How- ard og ríkisstjórnin 14 prósentu- stiga forskot á Verkamannaflokk- inn en síðan hefur dregið saman með þeim dag frá degi. Sú stefna Howards að vísa burt bátafólki eða flóttafólki nýtur al- menns stuðnings meðal lands- manna og raunar er lítill eða eng- inn munur á stefnu hans og Verkamannaflokksins í þeim efn- um. Síðustu daga hefur Howard hins vegar verið sakaður um að hafa blekkt kjósendur 10. október sl. er hann hélt því fram, að báta- fólk, sem vildi komast til Ástralíu, hefði fleygt börnum í sjóinn til að neyða áhöfn ástralsks herskips til að bjarga þeim og taka allt fólkið um borð. Þessu er nú vísað á bug af skipstjóra herskipsins. Howard, sem segist aðeins hafa flutt þær fréttir, sem honum hafi verið sagðar, hefur síðustu daga átt undir högg að sækja vegna þessa máls en í gær bárust ný tíð- indi af flóttafólki, sem hugsanlega kunna að bæta stöðu hans. Þá var skýrt frá því, að tveir flóttamenn hefðu drukknað eftir að eldur kom upp í báti úti fyrir Ástralíuströnd- um. Sögðu talsmenn flotans, að flóttafólkið sjálft hefði kveikt í bátnum. Áhersla á hefðbundin kosningamál Þótt flóttamannamálið sé ofar- lega á baugi þá er fylgisaukning Verkamannaflokksins að undan- förnu fyrst og fremst rakin til þess, að Kim Beazley, leiðtogi hans, hefur reynt að beina athygli kjósenda að öðrum málum, eins og til dæmis atvinnu-, mennta- og heilbrigðismálum. Þá þótti Beaz- ley líka standa sig miklu betur en Howard í eina sjónvarpseinvígi þeirra um miðjan október. Samkvæmt skoðanakönnunum á fimmtudag þurfti Verkamanna- flokkurinn að bæta við sig 0,8% til að sigra í kosningnunum en fréttaskýrendur veðja þó almennt á, að stjórnarflokkarnir vinni í þriðja sinn. Þótt Beazley hafi orð- ið mikið ágengt með áherslu sinni á hin hefðbundnu kosningamál, þá sé líklegt, að flóttamannamálið muni að lokum vega þyngst hjá mörgum kjósendum. Howard og ríkisstjórnin hafa hamrað á því máli og í gær birtu allir helstu fjölmiðlarnir stórar auglýsingar þar sem sagði: „Við ákveðum hverjir koma til landsins og undir hvaða kringumstæðum.“ Fréttaskýrendur telja líklegt, að vegna harðrar afstöðu stjórnar- innar í þessu máli muni kjósendur Einnar þjóðar, lítils flokks sem berst gegn innflytjendum, snúast á sveif með stjórnarflokkunum í kosningunum í dag. Ástralar ganga að kjörborðinu í tvísýnum kosningum í dag Flóttamanna- málið gæti fært stjórninni sigur                                                                      !! !  " #   $%&'() &(*+ ,* " # $ % # &  ' (    -    '      )*     +(,     -.      *        Canberra. AP, AFP. OLÍUVERÐ hækkaði á heims- markaði í gær eftir að Rússar gáfu til kynna að þeir væru reiðubúnir að fylgja fordæmi Samtaka olíu- útflutningsríkja (OPEC) og draga úr olíuframleiðslu. Olíumálaráðherrar OPEC-ríkj- anna koma saman til fundar í Vín- arborg í næstu viku og fastlega er búist við að þeir ákveði þá að draga enn frekar úr olíufram- leiðslu frá og með 1. desember, í því skyni að hækka olíuverð. „Sam- tökin íhuga að minnka framleiðsl- una um 1,0 til 1,4 milljónir tunna á dag ... en talan gæti jafnvel farið upp í 1,5 milljónir tunna,“ hafði AFP-fréttastofan eftir starfsmanni í höfuðstöðvum OPEC í Vín. Olíufyrirtækin áttu frumkvæðið OPEC-ríkin hafa þegar minnkað framleiðsluna um nær 15% það sem af er árinu og hafa reynt að fá önnur helstu olíuframleiðsluríki – t.d. Rússland, Noreg og Mexíkó – til að taka þátt í aðgerðunum. Hingað til hafa Rússar tregðast við að draga úr olíuframleiðslunni, þótt þeir hafi viðurkennt að lækk- andi olíuverð valdi þeim áhyggjum. Forsætisráðherrann, Mikhaíl Kas- yanov, tilkynnti hins vegar í gær að „sex eða sjö“ rússneskir olíu- framleiðendur hygðust kynna til- lögur sínar fyrir ríkisstjórninni í byrjun næstu viku um að draga úr útflutningi. Kasyanov sagði olíu- fyrirtækin hafa átt frumkvæðið að þessum aðgerðum „vegna þess að þau hafa liðið fyrir lækkandi verð“. Talsmenn OPEC fögnuðu þess- um tíðindum í gær. Samtökin viðurkenna þó að minnkun framleiðslu dugi hugsan- lega ekki ein og sér til að hækka olíuverð nægilega mikið, en það féll í síðustu viku niður fyrir 19 dollara á tunnu í fyrsta sinn síðan í júlí 1999. Þá hafði verðið lækkað um meira en 30% frá hryðjuverka- árásunum á Bandaríkin 11. sept- ember. Rússar ætla að draga úr framleiðslu sinni á olíu London, Moskvu, Vín. AFP. Olíuverð hækkar og fastlega er búist við að OPEC minnki framleiðsluna FLUGFÉLAGIÐ SAS kyrr- setti í gær 43 flugvélar af gerð- inni MD-80 eftir að sprunga fannst í lendingarbúnaði einnar þeirra. Siv Meisingseth, talsmaður SAS, sagði að flugfélagið hefði þurft að aflýsa 150 áætlunar- ferðum í gær en ekki væri vitað hvaða áhrif kyrrsetningin hefði á flug SAS um helgina. „Áætl- unarflugið ætti að komast í eðli- legt horf í byrjun næstu viku,“ sagði hún. Að sögn Meisingseth tekur um það bil átta klukkustundir að skoða hverja flugvél. SAS kyrr- setur 43 flugvélar Ósló. AFP. PALESTÍNSKUR læknir á vegum Rauða hálfmánans ber ungan Palestínumann sem særðist í átökum í bæn- um Ramallah á Vesturbakkanum í gær eftir mótmæli gegn hernámi Ísraela. 39 ára gömul ísraelsk kona beið bana í árás palest- ínskra byssumanna nálægt Jenín á Vesturbakkanum í gær og ísraelskir hermenn skutu 37 ára Palestínumann til bana á Gaza-svæðinu. Alls hafa 965 manns látið lífið í átökunum frá því að uppreisn Palestínumanna hófst fyrir rúmu ári. Reuters Hernámi mótmælt í Ramallah VLADIMÍR Pútín, forseti Rúss- lands, ræddi við George W. Bush Bandaríkjaforseta í síma á fimmtu- daginn um væntanlegan fund þeirra og samvinnuna í Afganistan, að því er sagði í fréttatilkynningu frá skrif- stofu Pútíns. Í yfirlýsingunni var ekki greint nánar frá samræðum for- setanna. Pútín átti einnig fund með hátt- settum fulltrúum hersins í Kreml og var rætt um skipulagða vopnaeyð- ingu, sem talið er að verði ofarlega á baugi á fundi forsetanna í næstu viku, sem fram fer í Washington og á búgarði Bush í Texas. Í fréttatilkynningu frá Kreml sagði að Sergei Ivanov varnarmála- ráðherra, Anatolíj Kvashnin, yfir- maður rússneska herráðsins, og Júrí Balujevskíj herráðsmaður, hefðu fundað með Pútín um stöðugleika í hernaðarmálum og baráttuna gegn hryðjuverkastarfsemi. Í viðtali við bandaríska sjónvarpið ABC gaf Pútín í skyn aukinn sveigj- anleika Rússa varðandi áætlanir Bandaríkjamanna um þróun eld- flaugavarnaáætlunar, og sagði þær ef til vill ekki stangast á við gagneld- flaugasáttmálann, sem Rússar hafa heitið að standa vörð um. Svigrúm til að þróa varnarkerfi Pútín sagði að sáttmálinn, sem gerður var 1972, gæfi möguleika til að þróa varnarkerfi. Viðtalið var sýnt í Bandaríkjunum á miðvikudag- inn, og kaflar úr því voru sýndir í rússnesku sjónvarpi á fimmtudag- inn. Sagði Pútín ennfremur að í sátt- málanum væru ákvæði sem gætu orðið grundvöllur að sameiginlegum aðferðum. Orð Pútíns eru sterkasta vísbend- ingin, sem komið hefur fram, um að rússnesk stjórnvöld kunni að vera reiðubúin til að slaka á þeirri einörðu afstöðu sinni, að prófanir á nýjum eldflaugavarnarkerfum væru brot á gagnflaugasáttmálanum. Sáttmálinn kveður á um bann við eldflaugavörnum, á þeirri forsendu að hvorugt ríkjanna myndi láta til skarar skríða ef það væri ófært um að verja sig fyrir gagnsókn. Þetta var grundvallarforsendan fyrir full- vissunni um gagnkvæma gereyð- ingu, sem var undirstöðuatriðið í stefnu beggja í kalda stríðinu. Bush hefur lýst því yfir að hann vilji að Bandaríkjamenn dragi sig út úr sáttmálanum, því að hann komi í veg fyrir að stjórnvöld geti komið upp vörnum gegn árásum frá ríkjum á borð við Norður-Kóreu og Írak. Pútín hefur aftur á móti haldið því fram, að ef horfið verði frá sáttmál- anum myndi það grafa undan þeim samningum um vopnaeyðingu sem hafi verið forsenda hernaðarlegs stöðugleika. Pútín sveigjanlegri í deilu um gagnflaugar Moskvu. AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.