Morgunblaðið - 10.11.2001, Qupperneq 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 27
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
G
æ
ð
i
á
N
e
tt
o
ve
rð
i.
..
ASKALIND 3, KÓP., SÍMI: 562 1500
BAÐINNRÉTTINGAR
Mikið úrval – Gott verð
GENGIÐ verður formlega frá inn-
göngu Kínverja í Heimsviðskipta-
stofnunina, WTO, á fundi hennar í
Katar í dag. Lítil bjartsýni ríkir um
árangur á fundinum, sem hófst í
gær, en vonast hafði verið til þess að
þar mætti ná samningum um lækkun
tollamúra og aukið frjálsræði í versl-
un og viðskiptum. Viðurkenndi Mike
Moore, framkvæmdastjóri WTO, við
upphaf fundarins að djúpstæður
ágreiningur væri meðal aðildarlanda
um helstu mál.
Moore og Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
hvöttu aðildarríki WTO til þess í gær
að falla ekki í þá gryfju að bregðast
við versnandi efnahagshorfum með
verndartollastefnu og einangrunar-
hyggju. Þvert á móti skipti sköpum
að menn tækju höndum saman til að
koma í veg fyrir heimskreppu.
Gífurleg öryggisgæsla er í höfuð-
borg Katar, Doha, vegna fundarins
en menn óttast mjög hryðjuverk eða
árásir gegn þeim vesturveldanna,
sem þátt taka í hernaðinum í Afgan-
istan.
Ólíklegt er hins vegar að andstæð-
ingum hnattvæðingar takist að
hleypa fundinum upp, eins og í
Seattle fyrir tveimur árum, enda er
landið vart í alfaraleið og raunar hart
tekið þar á pólitískum mótmælum.
Tekist á um landbúnaðarmál
Landbúnaðarmálin eru talin geta
orðið eitt helsta deilumálið en þar
eru ESB-ríkin og Bandaríkin á önd-
verðum meiði. Sagði Franz Fischler,
sem fer með landbúnaðarmál í fram-
kvæmdastjórn ESB, í gær að sam-
bandið myndi ekki samþykkja nein-
ar ályktanir á fundinum sem fælu í
sér fyrirskipanir til ESB um að
hætta niðurgreiðslum vegna útflutn-
ings landbúnaðarvara.
Hann sagði að um 40 ríki af þeim
142 sem eiga fulltrúa á fundinum
deildu þeirri skoðun með ESB að
frjáls viðskipti með landbúnaðarvör-
ur væru ekki það eina sem skipti
máli. Öryggi matvæla, umhverfis-
vernd og trygg framleiðsla landbún-
aðarvara í afskekktari byggðum
væru einnig mikilvægir þættir í um-
ræðum um landbúnaðarmál.
Bandaríkjamenn þrýsta hins veg-
ar mjög á um að niðurgreiðslum á
landbúnaðarvörur verði hætt. „Lík-
lega er ekkert eins mikilvægt fyrir
þróunarlöndin, og líklegt til að
hjálpa þeim að vinna bug á fátækt,
eins og það að Heimsviðskiptastofn-
unin opni alla markaði með landbún-
aðarvörur,“ sagði ónafngreindur
fulltrúi Bandaríkjastjórnar.
Telja að ekki hafi verið staðið
við gerða samninga
Fátækari ríki munu jafnframt
þrýsta á um að fá aðgang að mörk-
uðum fyrir afurðir sínar. Mörg
þeirra telja að ekki hafi verið staðið
við gerða samninga í þessu efni, og
að þau hafi ekki enn fengið að njóta
góðs af því aukna frjálsræði sem þau
skrifuðu upp á með Uruguay-samn-
ingunum 1994.
„Það sem höfuðmáli skiptir á þess-
um fundi er að gerðum samningum
verði hrint í framkvæmd, þróunar-
löndunum til hagsbóta,“ sagði Kip-
yator Biwott, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra Kenýa. „Í stuttu máli sagt
viljum við fá aðgang að mörkuðum
auðugari ríkja. Þetta verður að ger-
ast áður en hafnar verða nýjar við-
ræður um verslun og viðskipti.“
Ennfremur er líklegt að tekist
verði á um rétt fátækari ríkjanna til
að kaupa lyf á útsöluverði. Þar er
m.a. rætt um alnæmislyf og önnur
sem gætu bjargað tugþúsundum
mannslífa.
Vesturveldin hafa verið treg til að
ganga á svig við gildandi alþjóða-
samninga um einkaleyfi á lyfjum en
Gro Harlem Brundtland, yfirmaður
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
(WHO), hvatti til þess í gær að fund-
in yrði lausn á vandanum.
Gengið frá inngöngu Kínverja í Heimsviðskiptastofnunina á fundi í Katar
Djúpstæður
ágreiningur
um helstu mál
Reuters
Filippseyskir mótmælendur hrópa vígorð gegn Bandaríkjunum og
Heimsviðskiptastofnuninni, WTO, við bandaríska sendiráðið í Manila.
Doha, Genf. AFP.