Morgunblaðið - 10.11.2001, Page 38

Morgunblaðið - 10.11.2001, Page 38
38 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ERFIÐAR KJARADEILUR KJARAMÁL Í BRENNIDEPLI Kjaramál launþega á hinumalmenna vinnumarkaði eruaugljóslega að komast í brennidepil á ný. Eftir tíu daga kemur miðstjórn Alþýðusambands- ins saman til fundar ásamt for- mönnum landssambanda og þar verða viðhorf í kjaramálum til um- ræðu. Um þá stöðu segir Grétar Þor- steinsson, forseti ASÍ, í samtali við Morgunblaðið í gær: „Það blasir við öllum, að verðbólgan er allt önnur og mun verða allt önnur í febrúar en þegar menn voru að semja í byrjun árs 2000. Það mun því væntanlega ekki skorta á forsendur fyrir upp- sögn ef því er að skipta. Spurningin er hvort það er einhver raunveru- legur vilji stjórnvalda til að taka til hendinni og gera eitthvað, sem hef- ur áhrif núna. Það hefði auðvitað átt að vera búið að því fyrir nokkrum mánuðum. Mér liggur við að segja, að það væri það eina, sem gæti stuðlað að því að menn settust af al- vöru yfir það að komast að sam- komulagi án uppsagnar. Ég ætla þó ekki að vera með neina spádóma um hvað menn gera þegar þar að kem- ur. Það verður bara að koma í ljós.“ Ekki fer á milli mála, að þessi fundur verkalýðsforystunnar getur orðið örlagaríkur. Auðvitað er ljóst, að launþegar hafa orðið fyrir kjara- skerðingu vegna stóraukinnar verðbólgu. En það er ekki þar með sagt, að það sé launþegum til hags- bóta að bregðast við með því að knýja fram enn frekari kauphækk- anir. Eins og vikið var að í forystugrein Morgunblaðsins fyrir skömmu hafa launþegasamtökin tekið mjög ábyrga afstöðu í kjaramálum í rúm- an áratug eða frá því að samkomu- lagið var gert snemma árs 1990, sem leiddi til þess að óðaverðbólg- an, sem geisað hafði í landinu í tvo áratugi, var brotin á bak aftur. Svo langur tími er liðinn, að yngri kyn- slóðir muna ekki þá tíma. Verðbólg- an var ár eftir ár á bilinu 40–60% og frægt er orðið að vorið 1983 mæld- ist hún á ársgrundvelli um 130% Þá voru tengsl milli vísitölu og launa afnumin en þau höfðu verið í gildi með ýmsum hætti allt frá júnísam- komulaginu 1964 eða í tvo áratugi. Sú ákvörðun hafði þó afdrifaríkar afleiðingar fyrir stóran hóp fólks, þegar launin stóðu að mestu í stað en lánaskuldbindingar hækkuðu gífurlega ár frá ári vegna verð- tryggingar. Nýjar kynslóðir hafa kynnzt af- leiðingum þessa í ár, þegar húsnæð- isskuldir hafa hækkað mun meira en áður vegna verðtryggingar. Það er engum í hag, að þessi þró- un óðaverðbólgu fari af stað á nýjan leik. Það yrði erfitt að kveða þann draug niður aftur. Þess vegna skiptir miklu máli, að fulltrúar verkalýðshreyfingar, vinnuveitenda og ríkisstjórnar komizt að skynsamlegri niðurstöðu, sem leiði til þess að friður og festa ríki áfram á vinnumarkaðnum. Yfirstandandi ár hefur verið erf- itt og það er engin ástæða til að ætla annað en næsta ár verði það einnig. Fyrirtæki hafa sagt upp fólki. Stór- framkvæmdum er að ljúka eða þeim er lokið. Ekki er ólíklegt að at- vinnuástand verði mun erfiðara í byrjun næsta árs en það hefur verið um margra ára skeið. Okkur Íslendingum verður að takast að komast í gegnum þá að- lögun að breyttum aðstæðum, sem nú stendur yfir án þess að stórslys verði í efnahagsstjórn okkar. Það hvílir mikil ábyrgð á öllum þeim aðilum, sem hér koma við sögu. Verkalýðsforystan er í erfiðri stöðu. Þær raddir heyrast áreiðan- lega í hennar röðum, að hún verði að fylgja eftir ákvæðum kjarasamn- inga og opna þá á nýjan leik. Það yrði mikið óráð ef það yrði gert. Hins vegar má gera ráð fyrir, að til þess að það verði ekki verði að koma til móts við sjónarmið laun- þega með einhverjum hætti. Sporin frá fyrri tíð hræða. Far- sæld þjóðarinnar á næstu árum byggist mikið á því að vel takist til um ákvarðanir í þessum viðkvæmu málum á næstu vikum og mánuðum. Í ljósi þeirrar viðkvæmu stöðu,sem augljóslega er að koma upp í kjarasamningum launþega á hinum almenna vinnumarkaði er ljóst að þær kjaradeilur, sem nú standa yfir við sjúkraliða, tónlistarkennara og flugumferðarstjóra, eru enn flókn- ari en ella. Að vísu er kjaradeila flugumferð- arstjóra ekki flókin. Það eru ein- faldlega engin rök fyrir kröfugerð þeirra og yfirlýsingum um verkfall. Ríkisstjórn og Alþingi hljóta að grípa til nauðsynlegra ráðstafana í þeim efnum ella er augljóst, að við missum þessa mikilvægu starfsemi úr landi. Hins vegar er kjaradeila tónlist- arkennara og sjúkraliða flókin. Margir munu hafa samúð með kröf- um þessara tveggja starfshópa um bætt kjör a.m.k. að einhverju leyti. Hitt fer ekki á milli mála, að miklar launahækkanir í opinbera geiranum valda því að verkalýðsforystan á mjög óhægt um vik að halda að sér höndum. Hendur ríkis og sveitarfé- laga eru því að töluverðu leyti bundnar í kjaradeilum þessara að- ila. Á þeim deilum þarf að finna sann- gjarna lausn, sem ekki verður til þess að ýta undir þau öfl innan verkalýðshreyfingarinnar, sem vilja taka upp kjarasamninga á almenn- um vinnumarkaði eftir áramótin. GREIN Sigurðar ber titil-inn: Auditing the Auditor, eða endurskoð-andinn endurskoðaður og er þar fjallað um niðurstöður úr úttekt bresku ríkisendurskoðunar- innar, aðdraganda hennar og ástæður þess að Ríkisendurskoðun fór fram á slíka úttekt. Var íslenska ríkisendurskoðunin að brjóta blað með því að fá utanað- komandi aðila til þess að fara yfir störf sín? „Já, það má segja það. Og líklega er það einkum þess vegna að við fengum þessi verðlaun enda vega bæði frumleiki og viðfangsefni þungt í mati dómnefndarinnar. Ég er raunar fyrsti ríkisendur- skoðandinn sem fengið hefur þessi verðlaun. Yfirleitt hafa verðlaunin verið veitt einstaklingum sem hafa birt fræðigreinar á sviði endur- skoðunar. Við höfðum lengi haft það í huga að það væri kannski ástæða til þess að við fengjum einhvern hlutlausan aðila til þess að fara yfir vinnu- brögð okkar og meta hvernig við stæðum okkur. Helsta vandamálið var auðvitað að finna réttan aðila til þess að framkvæma slíka úttekt. Aðila sem hefði þekkingu á því hvað endurskoðun hjá hinu opin- bera felur í sér og nyti líka trausts og trúverðugleika gagnvart Al- þingi, stjórnsýslunni og fólkinu í landinu þannig að menn hefðu trú á niðurstöðunum, hvort heldur þær yrðu góðar eða slæmar. Eins og menn vita störfum við í því umhverfi að vera að taka út op- inberar stofnanir og láta í ljós skoð- un okkar á starfsemi þeirra og starfsháttum. Það var því alls ekki óeðlilegt að menn spyrðu sem svo: Hver skoðar ykkur? Þetta atriði var grunnhugsunin hjá okkur. Við lögðum upp með tvær meginspurn- ingar. Í fyrsta lagi vildum við vita hvernig við stæðum okkur sem op- inberir embættismenn og sem end- urskoðendur hjá hinu opinbera – uppfyllum við þær skyldur og kröf- ur sem því eru samfara? Í öðru lagi hvort við notuðum þau tæki og þær verklagsreglur sem talist gætu réttar og eðlilegar og eins hvort fagleg þekking starfsmanna teldist nægjanleg til þess að uppfylla þær kröfur sem til okkar eru gerðar.“ Voru menn ekki uggandi yfir því að sæta svona úttekt? „Jú, auðvitað vorum við það. En það var full ástæða að fara út í þetta. Menn spyrja gjarnan sem svo: Eruð þið svona góðir að þið getið tekið allt og alla út? Hver skoðar ykkur? Við gerðum okkur alveg grein fyrir því að það gat komið hvað sem er út úr þessari út- tekt bresku ríkisendurskoðunar- innar. En við þetta verða menn í þessu kerfi að búa. Breska ríkis- endurskoðunin hefur á sér mjög gott orð og raunar er það svo, þeg- ar horft er yfir sviðið, að þá eru það Bandaríkjamenn, Bretar og Kan- adamenn sem standa mjög fram- arlega og Frakkar reyndar líka þótt þeirra kerfi sé dálítið frá- brugðið.“ Nú voru niðurstöðurnar almennt góðar en hvaða atriði voru það einkum sem Bretarnir ben „Já, á heildina litið vo mjög sáttir við úttektina. starfsmenn eru ekki nema talsins bentu Bretarnir á þ ættum að flytja fólk á m efnasviða eftir þörfum, þ við værum ekki algerlega b deildaskiptingunni. Þeir einnig með tillögur um setningu upplýsinga í okkar yrði breytt, þær ge gengilegri. Aftur á móti fu ekki mikið að hinni fagle ingu hjá okkur og þeir vor af því návígi sem við höfu aðila sem við erum að skoð sinni. Í stjórnsýsluendu inni vildu þeir að við legðum undirbúning við að greina in áður en við byrjuðum á þ Við höfum reynt að tak þessum athugasemdum. okkar starfsemi var flutt Endurs endur Sigurður: „Við höfðum ástæða til þess að láta h Ríkisendurskoðun hlaut á dögunum al- þjóðlega viðurkenn- ingu fyrir grein sem birtist í fagtímariti al- þjóðasamtaka ríkisend- urskoðana. Sigurður Þórðarson ríkisendur- skoðandi sagði Arnóri Gísla Ólafssyni að end- urskoðun einnar ríkis- endurskoðunar á ann- arri sé nýlunda. Í PENINGAMÁLUM Seðla-banka Íslands segir að í for-sendum verðbólguspár ségert ráð fyrir að húsnæðis- verð lækki um rúmlega 5% að raungildi næstu sex mánuðina. Fasteignasalar segjast ekki vænta mikilla breytinga á á íbúðamark- aðinum og að hátt vaxtastig hafi löngu verið komið fram í lægra verði og minni eftirspurn eftir at- vinnu- og skrifstofuhúsnæði; vaxtalækkunin, þó lítil sé, sé líkleg til þess að glæða þann markað lífi ef eitthvað er. Ekki að undra þótt verðið lækki eitthvað Guðrún Árnadóttir, formaður Félags fasteignasala, segir að þeg- ar og ef verð lækki muni það taka nokkurn tíma. Það gerist ekki í einu vetfangi. Yfirleitt byrji verðið fyrst að lækka í stærri eignum og atvinnuhúsnæði en síðan líði nokk- ur tími, vikur, mánuðir eða jafnvel misseri, þangað til þetta kemur fram í verði á venjulegu íbúðar- húsnæði. Hún segir að það sé kannski enginn hissa á því þótt fasteignaverðið kunni að lækka eitthvað því það hafi verið komið í sögulegt hámark. „Verð fyrir tveggja til þriggja herbergja íbúðir gefur hins vegar síðast eftir, einfaldlega vegna þess að það er ekki mikið framboð af þeim. Í raun vantar beinlínis tveggja herbergja íbúðir og ég á síður von á því að þær muni lækka í verði. Og auðvitað lækkar fyrst það húsnæði sem er í lakara ástandi. Verðgildi eigna sem eru í góðu ástandi heldur miklu lengur.“ Aðspurð segir Guðrún að menn séu þegar farnir að merkja að eft- irspurn eftir stærri eignum sé far- in að minnka. Þá sé mikið framboð af atvinnuhúsnæði og erfitt að fá lánafyrirgreiðslu. „Bankarnir byrjuðu að draga verulega saman í útlánum í lok síðasta árs og þá fór- um við strax að merkja minnkandi eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði. Ég tel að markaðurinn sé núna einfaldlega að leita jafnvægis, framboð á eignum er að aukast og eftirspurn hefur aðeins verið að dragast saman. Það ríkir ekki sama þensluástand á markaðinun nú eins og áður. En ég lít ekki svo á að um offramboð sé að ræða eða að skyndileg verðlækkun sé yfir- vofandi. Ég myndi orða þetta sem svo að það sé hægfara breyting, ég á ekki von á neinum kollsteypum.“ Vaxtalækkun ætti fremur að ýta undir eftirspurnina Jón Guðmundsson hjá Fast- eignamarkaðinum segir að yfirleitt sé öfugt samband á milli þróunar vaxta og verðs á fasteignum. Þeg- ar vextir lækki ýti það allajafna undir eftirspurn eftir húsnæði. „Það er mín skoðun að vaxta- lækkun ætti fremur að ýta undir eftirspurnina og að lækkun sem ella kynni að hafa orðið yrði þá minni fyrir vikið. Mín skoðun er sú að háir vextir hafi hamlað sölu á húsnæði og þá sér í lagi á atvinnu- húsnæði. Afleiðingar af háum vöxtum eru löngu komnar fram í atvinnuhúsnæði, þar hefur eftir- spurn dregist verulega saman og verð lækkað. Ég er á þeirri skoðun að þar sem vextir hafa nú verið lækkaðir geti þetta að e leyti gengið til baka. vaxta nú er lítilfjörleg, við að sjá vexti lækka um þrjú ur prósent ef markaður atvinnuhúsnæði á að geta sig. En það er auðvitað já Seðlabankinn hafi teki skref og vonandi sjáum vi vaxtalækkanir á næstu um,“ segir Jón. Mun meiri stöðugl á íbúðamarkaðinu Hann segir vaxtastigið h minna áhrif á íbúðamarka séu kaupin fjármögnuð me hætti. En auðvitað séu áh Seðlabanki Íslands spáir fimm prósenta læ Fasteignas við miklum , 61 6//26. 0!2.,8- % D   B A 3 E F G H D   B )66(># !' ># AAB AA AA AA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.