Morgunblaðið - 10.11.2001, Blaðsíða 42
UMRÆÐAN
42 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
étting byggðar á höf-
uðborgarsvæðinu
geta flestir nú sam-
mælst um að sé eitt af
mikilvægum atriðum
sem gera munu Reykjavík að
betri borg. Barcelona er t.d.
byggð á svæði svipuðu að stærð
og Reykjavíkursvæðið. Íbúar
Barcelona eru um tvær milljónir
að tölu en á ríflegu Reykjavík-
ursvæði búa 175 þúsund manns.
Alþjóðlegur skipulagsdagur var
á fimmtudaginn og svo brá við að
almenningi var boðið á opið sem-
inar í borgarfræðum sem haldið
var í miðborginni og áhugaverðar
staðreyndir á borð við þá um
Barcelona og Reykjavík komu
fram.
Borg-
arfræðin
voru kynnt
og arki-
tektar og
skipulags-
fræðingar ræddu þróun borga út
frá fræðilegum og listrænum
sjónarmiðum og veittu almenningi
innsýn í fræðin. Á seminarinu töl-
uðu Bjarni Reynarsson hjá
Reykjavíkurborg, Pétur H. Ár-
mannsson, Kjarvalsstöðum, Hall-
dór Gíslason, Listaháskóla Ís-
lands, Trausti Valsson, Háskóla
Íslands, og Sigurborg Kr. Hann-
esdóttir hjá ráðgjafarfyrirtækinu
Alta.
Tilhneigingin virðist nú vera sú
að læra beri af mistökum sem
gerð hafa verið í skipulagsmálum
Reykjavíkur í gegnum tíðina og
taka upp nýja og betri hætti hvað
varðar skipulagsáætlanir. Til
dæmis kemur þar til betri kynn-
ing á skipulagsmálum og aukið
samstarf við almenning.
Á þessu ári var Borgarfræða-
setur stofnað en að því koma Há-
skóli Íslands og Reykjavíkurborg.
Þetta er sjálfstæð rannsókn-
arstofnun í borgarfræðum sem er
þverfaglegt fag. Stofnun á borð
við Borgarfræðasetur er tímabær
sem og öll umræða um málefni
borgarinnar og skipulagsmál.
Eins og bent var á á seminarinu
góða, er nauðsynlegt að skipu-
lagsáætlanir byggi á traustum
fræðilegum grunni, sem rann-
sóknarstofnun af þessu tagi getur
m.a. veitt.
Málflytjendur á seminarinu
voru sammála um að næg verkefni
væru framundan í borgarfræðum
og skipulagsmálum, hafa þyrfti al-
menning meira með í ráðum varð-
andi skipulagsáætlanir og virkja
bæri sem flesta til að taka þátt í
framtíðarstefnumótun. Það væri
nú fyrst að breytast að aðrir en
sérstakir fræðingar innan skipu-
lagsmála kæmu að þeim og það
væri spor í rétta átt. Arkitektar,
verkfræðingar, skipulagsfræð-
ingar o.s.frv. ættu ekki einkarétt á
skipulagsmálum. Skipulagsferlar
þyrftu að verða gegnsæir og opn-
ari og kynna þyrfti áætlanir á
fyrri stigum en nú.
Á þessum vettvangi var áður
fjallað um úthverfatilhneiginguna,
þ.e. tilhneiginguna til að þenja
byggðina út fremur en að þétta
hana, sem leiðir m.a. til fjölgunar
bíla. Bílum fjölgar nú þrisvar
sinnum hraðar en fólki á höf-
uðborgarsvæðinu og er það skipu-
lagsvandi svæðisins í hnotskurn,
eins og Bjarni Reynarsson orðaði
það á seminarinu. Nýjar áherslur
í þróun borga sem komið hafa
fram í nágrannalöndunum á síð-
ustu fimm til tíu árum eru á þann
hátt að dregið er úr útþenslu
borgarsvæða, þéttleiki byggðar
aukinn, miðborgir styrktar og al-
menningssamgöngur efldar, eins
og fyrr er fjallað um og enn var
skerpt á að væru lykilatriði, á al-
menningsseminarinu.
Halldór Gíslason frá Listahá-
skóla Íslands varpaði fram athygl-
isverðum hugmyndum um per-
sónuleika borga og mögulega
sálkönnun á þeim. Borgin lifði
sjálfstæðu lífi, borgararnir ættu
borgina og borgin þá. Hann velti
einnig upp hugmyndinni um eign
á landi; landsvæði í borginni er í
eigu borgarinnar en landsvæði í
dreifbýli er í eigu íbúanna. Í borg
eru íbúarnir ekki tengdir landinu
heldur menningunni. Allt eru
þetta skemmtilegar og umhugs-
unarverðar vangaveltur, eins og
fleira sem fram kom á seminarinu
góða. Svona kynning á hug-
myndum, skoðunum og vangavelt-
um fyrir almenningi er mikilvæg
og tímabær.
Það þarf líka að spyrja unga
fólkið um viðhorf þess og framtíð-
aróskir hvað varðar borg-
arskipulag. Skipulagt er svo langt
fram í tímann að þeir sem nú eru á
unglingsaldri verða einmitt að-
alkynslóðin þegar framtíð-
arskipulag er farið að virka. Þetta
kom m.a. fram í máli Trausta
Valssonar. Einnig var áhugavert
að heyra það sem Sigurborg Kr.
Hannesdóttir hafði fram að færa
varðandi Staðardagskrá 21 og
vinnubrögð í tengslum við hana.
Hún nefndi t.d. mikilvægi þess að
hlusta á börn og unglinga, skoð-
anir þeirra og framtíðardrauma.
Sigurborg lagði annars áherslu
á samráð við íbúa hvað skipulags-
áætlanir varðar. Staðardagskrá
21 er samráðsvettvangur utan
hefðbundins nefndastarfs borgar-
eða bæjarskipulags og hefur í
raun þróast til hliðar við hefð-
bundið skipulagsferli eins og bent
var á á seminarinu. Hún ræddi
m.a. svokallað samráðsskipulag
sem getur m.a. byggst á vinnu-
hópastarfi þar sem velt er upp
vandamálum og lausnum í skipu-
lagsmálum, auk framtíðardrauma
íbúanna. Niðurstöður eru kynntar
í kjölfarið og áhersla lögð á eft-
irfylgni, helst að sveitarfélög noti
viðkomandi niðurstöður til að
byggja upp traust íbúanna.
Samráðsskipulag hefur verið
notað í nokkrum sveitarfélögum
en Kjalarnes er næst á dagskrá.
Sigurborg vonast til að aðferð-
unum sem að ofan er lýst verði í
auknum mæli beitt innan Reykja-
víkurborgar en Borgarskipulag
hefur lýst áhuga og fullum vilja til
að nota aðferðirnar, að því er fram
kom í máli Sigurborgar. Það hlýt-
ur að vera til bóta að íbúar
Reykjavíkur fái að koma að skipu-
lagsmálum og snerta framtíð-
arstefnumótun með einhverjum
hætti. Aukin áhersla á samráðs-
skipulag hlýtur að vera af hinu
góða.
Almenn-
ingur með
Málflytjendur á seminarinu voru sam-
mála um að hafa þyrfti almenning
meira með í ráðum varðandi skipulags-
áætlanir og virkja bæri sem flesta til að
taka þátt í framtíðarstefnumótun.
VIÐHORF
Eftir Steingerði
Ólafsdóttur
steingerdur@mbl.is
VORIÐ 1998 setti
Björn Bjarnason
menntamálaráðherra á
fót nefnd sem skyldi
skila skýrslu til ráðu-
neytisins um þörf
bókasafna, stofnana og
einstaklinga fyrir raf-
ræn gagnasöfn.
Í apríl 1999 skilaði
nefndin skýrslu til
menntamálaráðherra.
Í skýrslunni er m.a. að
finna lista yfir þau
gagnasöfn sem voru
talin mikilvægust ís-
lensku vísindasam-
félagi og almenningi,
tillögu um að skipa verkefnisstjórn
til þriggja ára, sem skyldi vinna að
verkefninu „rafræna bókasafnið“,
og að lögð skyldi áhersla á að kaupa
aðgang að gagnasöfnum á Netinu.
Í apríl 1999 undirritaði Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
fyrsta landssamninginn um aðgang
að alfræðiritinu Britannica Online
System.
Landsaðgangur
Í ársbyrjun 2000 skipaði mennta-
málaráðherra verkefnisstjórn um
aðgang að gagnasöfnum. Hlutverk
hennar er að kanna tilboð um að-
gang að gagnasöfnum og gera til-
lögur til ráðuneytisins um kaup á
aðgangi að þeim, fjármögnun,
skipulag og tilhögun. Aðaláhersla
hefur verið lögð á að semja um
„landsaðgang“ þar sem allir net-
tengdir landsmenn hafa aðgang að
rafrænu gagnasöfnunum án tillits til
hvar þeir eru staddir – í vinnu, í
skóla eða heima. Þetta fellur undir
svokallaða 24/7-þjónustu, þ.e. hún
er virk allan sólarhringinn alla daga
vikunnar. Landsaðgangurinn bygg-
ist á að opnað er fyrir allar IP-tölur
útgefnar af íslenskum netveitum.
Háskólar, bókasöfn og fyrirtæki
munu bera meginkostnaðinn af
þessum samningum.
Rafræn gagnasöfn
Í október 2000 undirrituðu
menntamálaráðherra og landsbóka-
vörður samning við Bell&Howell
Information Learning um landsað-
gang að þremur gagnabönkum, Pro-
Quest 5000 sem í eru 17 gagnasöfn á
mörgum fræðasviðum, 3.500 altext-
uð tímarit auk 3.900 tímarita með
útdráttum, Literature
Online og Proquest
Learning Literature
sem eru gagnasöfn á
sviði engilsaxneskra
bókmennta.
Í janúar 2001 undir-
ritaði landsbókavörður
samning við Institute
for Scientific Inform-
ation um landsaðgang
að Web of Science. Um
er að ræða aðgang að
Science Citation In-
dex, Social Science
Citation Index og Art
& Humanities Citation
Index.
Í apríl 2001 var undirritaður
samningur við Data Downlink Ltd.,
nú Alacra, um landsaðgang að vef-
gátt á sviði viðskipta, fjármála og
fyrirtækjarekstrar.
Í júní 2001 skrifuðu Landspítali –
háskólasjúkrahús og Landsbóka-
safn Íslands undir samning við
OVID, sem er gagnasafnsfyrirtæki
á sviði læknisfræði og heilbrigðis-
vísinda. Samningurinn veitir einnig
landsaðgang að nokkrum gagna-
safnanna í OVID.
Í sama mánuði var undirritaður
samningur við Macmillan Publish-
ers Ltd. um landsaðgang að New
Grove Dictionary of Music and Mus-
icians Online og New Grove Diction-
ary of Art Online. Grove-ritin eru
viðkennd alfræði á sviði tónlistar og
sjónrænna lista.
Rafræn tímarit
Á vormánuðum 2001 náðust
samningar um landsaðgang við sjö
stóra útgefendur rafrænna vísinda-
tímarita um aðgang að 3.212 tíma-
ritum.
Academic Press – 174 tímarit frá
árinu 2001 í gagnasafninu
IDEAL,
Blackwell Publishers – 268 tíma-
rit frá upphafsári rafrænna tíma-
rita í gagnasafninu Ingenta,
Blackwell Science og Munksga-
ard – 303 tímarit frá upphafsári
rafrænna tímarita í gagnasafninu
Synergy,
Elsevier Science – 1.180 tímarit
frá árinu 1995 í gagnasafninu
ScienceDirect,
Karger – 75 tímarit frá árinu 2001
í gagnasafni Karger,
Kluwer Academic Publishers –
733 tímarit, þau elstu frá árinu
1997, í gagnasafninu Kluwer On-
line,
Springer Verlag – 479 tímarit frá
árinu 1995 í gagnasafninu LINK.
Úr gagnasafni yfir í
tímaritsgreinar
Eftir að samningar náðust við út-
gefendur rafrænu tímaritanna voru
opnaðar tengingar beint úr Web of
Science í þau tímaritasöfn sem Ís-
lendingar skv. samningum hafa að-
gang að og Institute for Scientific
Information hefur samið við. Þetta
eru Academic Press, Blackwell
Science, Munksgaard, Elsevier
Science, Karger, Kluwer Academic
Publishers og Springer Verlag. Þá
var einnig opnað á tengingar úr
OVID yfir í raf-tímarit Elsevier
Science, Karger og Springer Ver-
lag.
Hvar.is
Landsbókasafn Íslands – Há-
skólabókasafn hefur með höndum
framkvæmd verkefnisins, þ.e. að
koma upplýsingum um gagnasöfnin
og rafrænu tímaritin á framfæri við
notendur og annast samskipti við
þá, gagnasöfnin og netveiturnar.
Slóð landsaðgangsins er: http://
www.hvar.is/
Rafræn gagnasöfn
opin öllum á Netinu
Þóra Gylfadóttir
Hvar.is
Í apríl 1999 undirritaði
Björn Bjarnason
menntamálaráðherra
fyrsta landssamninginn
um aðgang að alfræði-
ritinu Britannica Online
System, segir Þóra
Gylfadóttir, nú hafa
bæst við 6.700 tímarit, 3
alfræðisöfn og 330.000
bókmenntaverk.
Höfundur er verkefnisstjóri í
Landsbókasafni Íslands –
Háskólabókasafni.
SÍÐUSTU vikur og
mánuði hafa nokkrar
undirstöðustéttir
samfélagsins háð
harða baráttu fyrir
réttlátum og mann-
sæmandi kjörum.
Leikskólakennarar,
tónlistarkennarar og
nú síðast sjúkraliðar,
sem hafa þurft að
grípa til verkfalls-
vopnsins til að ná
mönnum að samn-
ingaborðinu. Það er
vitlaust gefið og laun
þessara og annarra
undirstöðustétta eru
ekkert annað en
smánarblettur á því auðuga þjóð-
félagi sem við byggjum.
Byrjunarlaun sjúkraliða eru
89.000 kr. á mánuði. Trúi því svo
hver sem vill að þetta erfiða og
nauðsynlega starf innan heilbrigð-
isþjónustunnar sé svo illa launað.
Kröfur sjúkraliða eru þær að fá
sömu byrjunarlaun og lögreglu-
menn, 138.000 kr. á mánuði, og
hefur nú enginn haldið því fram að
lögreglumenn séu ofaldir af laun-
um sínum. Þetta er hógvær krafa
og makalaust að stéttin skuli þurfa
að standa í verkfalls-
átökum til að fá hlut
sinn réttan og hið op-
inbera til að ræða
málin.
Launakjör þeirra
stétta sem standa
undir og eru horn-
steinar velferðarsam-
félagsins eru með
þeim hætti að nú
molnar fyrir alvöru
undan stoðunum.
Fjöldaflótti er brost-
inn á og nýliðun er lít-
il sem engin í stéttum
á borð við sjúkraliða.
Þeir sem fyrir eru
greiða kjörum sínum
atkvæði með fótunum og leita í
önnur störf. Algengt er að fólk
leiti í ófaglærð störf sem bjóða
upp á svipuð kjör en mun minna
álag og erfiði.
Sveltar undir drep
Með því að láta þær stéttir sem
sinna erfiðustu og nauðsynlegustu
almannaþjónustunni svelta undir
drep með launakjörum sínum er
verið að grafa alvarlega undan því
öryggi sem við finnum í velferð-
arþjónustunni og mörg okkar eru
svo stolt af. Öryggi og velferð fyrir
alla óháð efnahag.
Kjörum og aðbúnaði undirstöðu-
stétta samfélagsins má líkja við
aðför stjórnarflokkanna að sam-
félagi jafnaðar og réttlætis. Aðför
sem er skömm að enda ekkert
annað en brot á félagslegum rétt-
indum hvers þegns í siðuðu sam-
félagi að bjóða upp á slík launa-
kjör. Þetta ástand er valdhöfum
þessa lands til ævarandi skammar
á sama tíma og þeir gera sitt ýtr-
asta til að baða sig í sól velmeg-
unar og efnalegra framfara. Það er
kominn tími til að stokka spilin og
gefa upp á nýtt. Það er vitlaust
gefið.
Það er vitlaust gefið
Björgvin G.
Sigurðsson
Pólitík
Fjöldaflótti er brostinn
á, segir Björgvin G. Sig-
urðsson, og nýliðun er
lítil sem engin í stéttum
á borð við sjúkraliða.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar.