Morgunblaðið - 10.11.2001, Page 43

Morgunblaðið - 10.11.2001, Page 43
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 43 NÚ ER komið að leiðarlokum í skrípa- leik peningaaflanna á Íslandi. Almenningur hér á landi á skýra kröfu á því að Seðla- banki Íslands upplýsi og birti opinberlega nöfn þeirra aðila, sem hafa sprengt upp gengi íslensku krón- unnar. Haft er fyrir satt, að þetta sé verkalýðshreyfingin með lífeyrissjóðina í fararbroddi. Enginn aðili á Íslandi hefur það fjármagn undir höndum, sem þarf til að kaupa er- lenda gjaldmiðla í því magni, að það sprengi upp gengið, nema líf- eyrissjóðirnir, og þeir aðilar, sem ávaxta þá sjóði (líklega um 570 milljarða). Spurt er: Ef gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum keypt á verðinu kr. 73,00 hver dalur hef- ur fallið um 40%, hvað er þá til ráða til að lagfæra bókfært tap? Svar: Sprengja upp gengið í kr. 105,00 hvern dal og viti menn, bókfærð eign lífeyris- sjóðanna, sem hafa fjárfest fyrir vestan, verður nokkuð góð. Keypt eru erlend hlutabréf í dollurum. Gengi á kaupdag er kr. 73,00X100 hluta- bréf, sem nú hafa fall- ið í 80% og í 60% í dæmunum hér á eftir. Komið er í veg fyrir stórfellt bókfært tap í krónum með því að sprengja upp gengið í kr. 105,00, hvern dal. Dæmi 1: 73,00X100% gera kr. 7.300,00, kaupverð. 73,00X80% gera kr. 5.840,00, tap 20%. 105,00X 80% gera kr. 8.400,00, hagnaður 15%. Dæmi 2: 73,00X100% gera kr. 7.300,00, kaupverð. 73,00X60% gera kr. 4.380,00, tap 40%. 105,00X60% gera kr. 6.300,00, tap 13,7%. Töluglöggir menn sjá hér gjörla hvaða aðilar hafa hagsmuni af því að sprengja upp gengi, en ekki er það alþýða landsins. Þær verð- hækkanir, verðbólga, lífskjara- rýrnun og atvinnuleysi, sem hlotist hafa af þessum sökum, bitna nú hart á almenningi, sérstaklega lág- launafólki. Nú er spurt, hvar eru talsmenn verkalýðsfélaganna eða tala þeir tveimur tungum? Hver sprengdi upp gengi íslensku krónunnar? Hreggviður Jónsson Höfundur er fyrrverandi alþing- ismaður Sjálfstæðisflokksins. Gengismál Nú er spurt, segir Hreggviður Jónsson, hvar eru talsmenn verkalýðsfélaganna eða tala þeir tveimur tungum? Í SVARI við fyrirspurnum sem ég lagði fyrir Ríkisskattstjóra og Þjóðhagsstofnun vegna skatta- breytinga ríkisstjórn- arinnar sem nú eru til umfjöllunar hjá efna- hags- og viðskipta- nefnd Alþingis koma fram athyglisverðar upplýsingar. Landsbyggð- arskattur Embætti Ríkisskatt- stjóra var spurt um hver álagður tekju- skattur og tryggingar- gjald á lögaðila hefði orðið skipt milli skatt- umdæma ef skatta- breytingar ríkisstjórn- arinnar hefðu verið komnar til fram- kvæmda við síðustu álagningu. Þetta er niðurstaðan: Breyting á sköttum og trygg- ingagjaldi eftir umdæmum Skattumdæmi Lækkun skatta Hækkun tr.gjalda Mis- munur Reykjavík 3.365 1.728 - 1.637 Reykjanes 966 493 - 473 Vesturland 121 118 - 3 Vestfirðir 75 64 - 11 Norðurl. vestra 81 78 - 3 Norðurl. eystra 194 201 7 Austurland 57 89 32 Suðurland 205 92 - 113 Vestm.eyjar 23 43 20 Þetta sýnir ljóslega að það eru fyrst og fremst fyrirtæki sem skila verulegum hagnaði á höfuðborg- arsvæðinu sem hafa ávinning af breytingunni. Norðurland eystra, Austurland og Vestmannaeyjar tapa á breytingunni. Lítil og meðalstór fyrirtæki borga brúasann Útreikningar embættis Ríkis- skattstjóra sýna líka að hækkun á tryggingargjaldi verður afar þung- bær fyrir fyrirtæki, sennilega flest lítil og meðalstór, sem eru með mikla launaveltu og greiða þar af leiðandi hátt tryggingargjald. Sömuleiðis á einyrkja og þá sem taka laun samkvæmt verktaka- greiðslum. Hækkun tryggingargjalds á þessa aðila stendur í verulegum mæli und- ir tekjuskattslækkun stórra fyrirtækja sem skila miklum hagnaði. Tekjuskatts- lækkun lögaðila milljarði hærri Upplýsingar frá ríkisskatt- stjóraembættinu sýna líka hvernig núverandi álagning á lögaðila eftir skatttegundum hefði breyst hefðu skattatillögur ríkisstjórnarinnar verið komnar til framkvæmda við síðustu álagningu. Tekjuskattur lögaðila hefði orðið 3,7 milljörðum lægri samkvæmt þeim útreikning- um, en fjármálaráðuneytið hefur haldið því fram að tekjuskattur lögaðila lækkaði um 2,7 milljarða við lækkun á tekjuskatti úr 30% í 18%. 0,4% vaxtalækkun samsvarar 8 milljarða skattalækkun Þjóðhagsstofnun var spurð hvað vextir þyrftu að lækka mikið til að skila sama ávinningi fyrir fyrir- tækin og þjóðarbúið og áætlað er að áformuð skattalækkun geri. ÞHS ber saman bein áhrif af vaxtalækkun á vaxtakostnað fyr- irtækja og heimila við beinan ávinning af fyrirhugaðri skatta- lækkun, en reiknar ekki með óbeinum áhrifum skattalækkunar- innar á umsvif í hagkerfinu. Miðað við skuldir atvinnuvega og skuldir heimila við lánakerfið sem nema samtals 1.611 milljörðum króna, og að undanskilin séu gengis- tryggð lán, þá standa eftir 1.135 milljarðar króna eða um 930 millj- arðar í verðtryggðum lánum og 205 milljarðar í óverðtryggðum lánum. Samkvæmt þessu þyrftu meðalvextir á lán að lækka um u.þ.b. 0,4 prósentustig til að skila fyrirtækjum og heimilum 8 millj- arða króna ávinningi á tveggja ára tímbili í formi lægri vaxta- kostnaðar. Það er sama fjárhæð og áformuð skattalækkun nemur samtals á árunum 2002–2003 sam- kvæmt mati Þjóðhagsstofnunar. Þetta sýnir að skynsamlegra er fyrir þjóðarbúið og fyrirtækin að farin sé leið vaxtalækkunar en skattalækkunar, ekki síst þegar ný skýrsla OECD sýnir að tekju- skattur á fyrirtæki var lægstur hér á landi á árinu 1999 af löndum OECD, en tekjuskattur á ein- staklinga með því hæsta sem þekkist. Það er því ráð að stoppa við áð- ur en anað er út í 8 milljarða skattalækkanir, sem mismuna fyr- irtækjum og landshlutum og skila litlu til launafólks. Svigrúm til skattalækkunar á að nýta til að lækka skatta á litlum og meðal- stórum fyrirtækjum og hjá fólki með lágar tekjur og meðaltekjur. Um það verður tekist á næstu vik- um. Skattar – stoppum við Jóhanna Sigurðardóttir Skattabreytingar Skynsamlegra er fyrir þjóðarbúið og fyrirtækin, segir Jó- hanna Sigurðardóttir, að farin sé leið vaxta- lækkunar en skatta- lækkunar. Höfundur er alþingismaður. R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Skrifstofuaðstaða Til leigu skrifstofuaðstaða í glæsilegu húsnæði við Gullinbrú. Stærð frá 10 fm upp í 400 fm. Öll þjónusta til staðar, þ.á m. símsvörun, fund- araðstaða, faxtæki og ljósritunarvél, þrif, internettenging, kaffiaðstaða o.fl. Uppl. gefur Bragi í s. 863 4572 og 520 2000. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur sjálfstæðisfélags og fulltrúraráðs Seltirninga verður haldinn á Austurströnd 3, þriðju hæð, laugardaginn 24. nóvember nk. kl. 10.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tekin ákvörðun um framboðslista vegna bæjarstjórnakosninga árið 2002. Stjórnin. TILKYNNINGAR Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi flugstöðvar- svæðis á Keflavíkurflugvelli, svæði A Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins hef- ur þann 5. nóvember 2001 samþykkt breytingu á deiliskipulagi flugstöðvarsvæðis á Keflavíkur- flugvelli. Um er að ræða svæði A, vestan Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, þar sem gert er ráð fyrir að hafa ýmsa þjónustustarfsemi í tengslum við flugstarf- semi á Keflavíkurflugvelli. Breytingin er fólgin í aukningu byggðar og breyttu vegakerfi miðað við núgildandi deiliskipulag. Auk skrifstofuhúsa, hótels og bílaleiga, sam- kvæmt núgildandi deiliskipulagi, er lagt til að hafa á svæðinu stjórnsýsluhús og þjónustu- og atvinnuhús. Breytingin var auglýst samkvæmt 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 frá 13. júlí til 27. ágúst 2001. Sex athugasemdir bárust og hafa umsagnir varnarmálaskrifstofu um þær verið sendar viðkomandi. Athugasemdir gáfu ekki tilefni til breytinga og hefur deiliskipulagið verið sent Skipulagsstofn- un ríkisins til yfirferðar. Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins, 8. nóvember 2001. ÝMISLEGT Lagerútsala Hrím, umboðs- og heildverslun, verður með lagersölu í húsnæði sínu, Smiðjuvegi 5. Ýmsar vörur, s.s. haglabyssur, rifflar, skot, veiðifatnaður, aukahlutir, golfsett, handverk- færi, loftpressur, háþrýstidælur, kýtti, festi- frauð, rekskrúfur, múrboltar, múrtappar, rafmagnsverkfæri o.m.fl. Opið virka daga frá kl. 9.00—17.30, laugard. og sunnud. frá kl. 11.00—17.00. Upplýsingar í síma 544 2020. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF  MÍMIR 6001111011 I Fræðslu- fundur Sunnudagur 11. nóvember Hveragerði — Kambabrún/ gamlir vegir Brottför frá BSÍ kl. 13:00. Farar- stjóri Sigurður Jóhannsson. Verð 1.100 félagar, 1.300 aðrir. Aðventuferðir og áramót. Betra að bóka sem fyrst. www.utivist.is . Sunnudagur 11. nóv. Brynju- dalur — Botnsdalur Um 3—5 tíma ganga. Fararstjóri Sigurður Kristjánsson. Brottför frá BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í Mörkinni 6. Minnum á myndakvöld þann 14. nóv. Sýndar verða myndir frá Hornströndum. Sýnandi verður Guðmundur Hallvarðsson. Munið Aðventuferð FÍ 1.—2. des. Nánari upplýsingar á skrifstofu og á www.fi.is .

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.