Morgunblaðið - 10.11.2001, Síða 46

Morgunblaðið - 10.11.2001, Síða 46
UMRÆÐAN 46 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MIKIÐ hefur verið gert á undanförnum árum til að tryggja Ís- lendingum skattaum- hverfi sem stenst sam- keppni við þær þjóðir sem hvað best standa sig á því sviði. Reyndar þykir sumum nóg að gert og þau sjónarmið heyrast jafnvel að varla sé ástæða til að velta frekari skattalækkun- um fyrir sér í bráð. Skattalækkanir liðinna ára og enn frekari skattalækkanir um næstu áramót eru mik- ið fagnaðarefni en við eigum að stefna að því að gera enn betur, enda hefur Ísland alla burði til að skipa sér í fremstu röð þeirra ríkja sem með lágum sköttum og frelsi bjóða fyrirtækjum og einstak- lingum framúrskarandi skilyrði til afkomu og lífsgæða. Ísland hefur á stuttum tíma náð verulegum árangri í efnahagslegum umbótum. Við höfum á undanförnum árum lifað lengsta samfellda tímabil kaupmáttaraukningar á lýðveldis- tímanum. Á sama tíma og tekist hef- ur að auka almenna hagsæld og tryggja betri lífskjör hefur verið unnið markvisst að því að auka frelsi á sem flestum sviðum. Á afar athygl- isverðri ráðstefnu sem haldin var í síðustu viku um skattasamkeppni á milli landa kom m.a. fram að Íslend- ingar eru í 15. sæti af 123 þjóðum þegar mælt er efnahagslegt frelsi og hafa á undanförnum árum styrkt stöðu sína verulega. Að auki hafa Ís- lendingar, samkvæmt skýrslu OECD, fimmtu hæstu þjóðartekjur miðað við fólksfjölda og eru í 2. sæti á eftir Írlandi þegar vöxtur þjóðar- tekna er skoðaður. Skattar og verkefni hins opinbera Þeir sem aðhyllast mikil ríkisút- gjöld halda því gjarnan fram að háir skattar séu forsenda góðrar velferð- arþjónustu. Hinir sömu halda því fram að lágir skattar muni skerða þá þjónustu sem almenningur fær og þeir einu sem raunverulegt gagn hafi af lækkun skatta séu einstaklingar og fyrirtæki sem einhverra hluta vegna vilja komast undan því að greiða sitt til samfélagsins. Þetta er að sjálfsögðu alrangt. Lækkun skatta þarf ekki að þýða skerðingu á þeirri þjónustu sem sátt ríkir um að hið opinbera skuli veita. Aðhald í ríkisrekstri, sala ríkisfyr- irtækja og endurskoðun verkefna ríkisins eru allt þættir sem tryggt geta lækk- un ríkisútgjalda og þannig skapað svigrúm til lækkunar skatta. Að auki er það þekkt að háir skattar þurfa ekki að þýða auknar ráðstöf- unartekjur hins opin- bera, þar sem skatt- greiðendur leita gjarnan leiða til að koma sér undan ósann- gjarnri og of mikilli skattheimtu, t.d. með því að flytja rekstur sinn eða búsetu til ann- arra landa þar sem stjórnvöld sjá þann hag sem hlýst af sanngjarnri og lágri skattheimtu. Samkeppni í stað samræmingar Á fyrrnefndri ráðstefnu kom fram mikilvægi þess að ákvarðanir um skattaumhverfi þjóða séu ekki sam- ræmdar af yfirþjóðlegum stofnun- um, heldur skuli þjóðir hafa fullt frelsi til þess að móta sitt eigið skattaumhverfi. Á vettvangi Evr- ópusambandsins og OECD eru há- værar raddir uppi um að hindra slíka samkeppni með því að auka sam- ræmingu skattlagningar á milli landa. Eins og við er að búast eru þessar raddir háværastar í löndum eins og Þýskalandi og Frakklandi þar sem skattar eru háir og ríkis- stjórnir standa frammi fyrir því að fólk og fyrirtæki flytjist til annarra landa þar sem skattar eru lægri. Gegn slíkri samræmingu er nauð- synlegt að standa, enda er sam- keppni í skattlagningu ekki aðeins nauðsynleg til að auka líkurnar á lág- um sköttum, heldur eru rökin gegn samræmingu ekki síður þau að fyr- irtæki og einstaklingar eigi rétt á því að velja sér það skattaumhverfi sem hentar best þeirra aðstæðum. Skattar lækka – lífskjör batna Íslenskt skattaumhverfi hefur tekið miklum breytingum á undan- förnum árum og nú er svo komið að hlutfall ríkisins í staðgreiðslu tekju- skatts hefur aldrei verið lægra. Rík- isstjórnin hefur nýlega boðað enn frekari lækkun á sköttum einstak- linga, til að mynda með helmings lækkun á eignarsköttum. Samhliða þessu hefur ríkisstjórnin gert miklar breytingar á skattlagningu fyrir- tækja. Árið 1991 var tekjuskattur á fyrirtæki 50%. Á áratug hefur tekist að koma þessum skatti niður í 30% og með nýjum lögum sem taka gildi 1. janúar 2002 verður þessi skattur lækkaður í 18%. Þetta breytta skattaumhverfi, auk þeirra efnahagslegu framfara sem orðið hafa hér á landi, hafa skapað forsendur mikilla sóknarfæra á Ís- landi. Í könnun World Economic Forum og Harvard University, sem gerð var sl. vor og náði til 60 landa, kemur t.d. fram að skilyrði til stofn- unar nýrra fyrirtækja eru aðeins betri í einu öðru landi en Íslandi. Í sömu könnun kom fram að Ísland er í 3. sæti þegar kemur að efnahags- legum og lagalegum aðstæðum fyrir ný fyrirtæki og í 5. sæti um fjárhags- leg skilyrði þeirra. Íslendingar eiga hiklaust að halda áfram á þessari sömu braut og treysta þannig stöðu sína meðal þeirra þjóða sem bjóða best lífskjör. Það verður gert með því að standa vörð um þann mikla árangur sem náðst hefur á undanförnum árum en til viðbótar eigum við að halda áfram að lækka skatta og skapa þannig for- sendur fyrir enn frekari tækifæri fyrirtækja og einstaklinga á Íslandi. Lágir skattar – enn betri lífskjör Hanna Birna Kristjánsdóttir Höfundur er aðstoðarfram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokkins. Skattaumhverfi Með lágum sköttum getur Ísland tryggt stöðu sína enn frekar, segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, meðal þeirra þjóða sem bjóða best lífskjör. NÚ eru aðeins örfá- ar vikur þar til evran verður tekin upp sem mynt í 11 löndum Evr- ópu og verður þar að auki fullgild mynt í 4 öðrum ríkjum. Áhrif þessa verða eflaust mjög mikil og margir hafa haldið því fram að evrópska myntsam- starfið (EMU) yrði aldrei raunverulegt fyrr en mynt og seðlar kæmust í hendur al- mennings. Mikið hefur verið rætt og ritað um mögu- leika Íslands á því að taka þátt í þessu samstarfi. Það virðist samt oft gleymast að innganga í ESB er nær örugglega alger forsenda fyrir því að ríki eins og Ísland geti tekið þátt í myntsamstarfinu. Allar hugleiðingar um það að gera þetta með öðrum hætti eru því einungis æfingar í því að sækja vatn yfir lækinn, sbr. langa grein tveggja prófessora hér í blaðinu fyrr í haust. Fræðileg rök Mikið fræðilegt starf hefur verið unnið í kring um spurninguna hvern- ig Íslandi myndi vegna í myntsam- starfi eins og EMU og hafa ýmsar niðurstöður komið fram. Með aðild að EMU myndum við missa þann möguleika að breyta gengi íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum vegna þess að krónan yrði ekki til lengur. Eitt af því sem hefur verið bent á í þessu sambandi er að sveiflur í árferði og hagkerfi hér á landi séu meiri og tíðari en í þeim löndum sem taka þátt í EMU- samstarfinu og að þessi mismunur Íslands og nágrannalandanna gæti orðið mjög erfiður fyrir íslenskt at- vinnulíf og kannski sérstaklega ís- lenskan vinnumarkað. Þar eru rökin þau að skakkaföllin yrði að taka út í samdrætti í atvinnulífinu og atvinnu- stigi í stað þess að breyta gengi krónunnar eins og hefðbundið er hér á landi. Eins og gengur eru menn ekki alveg sammála um þetta allt, t.d. þá fullyrðingu hvort sveiflur séu meiri hér á landi en í öðrum löndum. Búum við sveiflurnar til sjálf? Fyrr á árum voru helstu skýring- ar á hagsveiflum hér á landi breyti- legur fiskafli á milli ára og breytileg verð á útflutningsmörkuðum fyrir fisk. Hvorug þessara stærða sveifl- ast mikið lengur. Sveiflurnar hafa hins vegar haldið áfram og sú spurning er nær- göngul hvort þær séu ekki að einhverju leyti heimatilbúnar og komi fyrst og fremst til vegna lítillar eða rangrar hagstjórnar og almenns agaleysis. Það er t.d. athyglisvert hvernig við vöknum aftur og aftur upp við vondan draum í seinni hluta hagsveiflu og segjum: ó ó við hefðum átt að passa okkur bet- ur. Að hve miklu leyti voru skakka- föll hagkerfisins í sumar heimatilbú- in og að hve miklu leyti voru þau vegna ytri aðstæðna? Var ekki viðbúið að taumlaus þensla með ótrúlegum viðskiptahalla og nær engum opinberum aðgerðum (að vaxtaaðgerðum slepptum) myndu enda með ósköpum? Hvað sem menn kunna að segja þá er um ríflega 20% gengisfall og 8-10% verðbólgustig ósköp fyrir hagkerfi sem gefur sig út fyrir að vera stöðugt. Hefði ekki ver- ið hægt að koma í veg fyrir þessi ósköp með skynsamlegri hagstjórn? Hvernig stendur t.d. á því að Dönum tekst yfirleitt að stöðva væntanlega þenslu í fæðingu með ýmiss konar opinberum aðgerðum. Í Danmörku ríkir pólitísk sátt um að menn vilja ekki ofþenslu. Á Íslandi hafa menn hins vegar alltaf tilhneigingu til þess að ýkja hagsveifluna. Þarf ekki meiri aga í hagkerfið? Margir telja að það yrði okkur mjög slæmt að missa gjaldmiðilinn. Það er hins vegar athyglisvert að það er möguleikinn á því að rýra gildi hans, sem virðast vera höfuð- rökin. En er það ekki einmitt þessi klisja sem er grunnurinn að því aga- leysi sem tröllríður íslensku efna- hagslífi. Fyrr á árum iðkuðu menn það gjarnan að semja um launa- hækkanir sem mældust í tugum og síðan var gengið fellt um sömu stærðir í kjölfarið og menn stóðu áfram í sömu sporunum. Erum við í rauninni komin nokkuð lengra fram á veginn? Það er áleitin spurning hvort það er ekki nauðsynlegt fyrir íslenskt efnahagslíf að missa þennan mögu- leika á að rýra gildi gjaldmiðilsins. Danska krónan er föst við gengi þýska marksins og mun verða fest við Evruna. Það vita allir og það er óháð því hvort Danir taka þátt í EMU eða ekki. Í Danmörku hefur líka tekist að halda lágri verðbólgu og auka kaupmátt stöðugt um u.þ.b. 2% á ári í meira en áratug. Þar ríkir agi í hagstjórn og þar vilja menn búa við aga. Þar hefur verkalýðshreyf- ingin tekið fullan þátt í þessu sam- starfi og í rauninni barist gegn óraunhæfum kauphækkunum. Yrði evran tekin upp hér á landi myndu aðstæður breytast mikið. Hinir ýmsu leikendur í efnahagslíf- inu myndu læra strax að gengisfell- ingar myndu ekki hjálpa neinum neins staðar. Menn yrðu að ganga að þessari staðreynd vísri í öllu sínu starfi, hvort sem það er rekstur fyr- irtækja, kjarasamningar á vinnu- markaði eða annað starf í efnahags- lífinu. Þetta yrði erfitt til þess að byrja með, en auðveldara í kjölfarið. Hver er munurinn annars? Hefur einhver t.d. haldið því fram að hremmingarnar í kring um krónuna á þessu ári, og engan enda virðast ætla að taka, hafi verið auðveldar. Fleiri kostir en gallar Um það er ekki deilt að með aðild að EMU yrði vaxtastig hér svipað og í nágrannalöndunum og það yrði erf- itt að halda uppi hærri verðbólgu en þar til lengdar. Mismunur milli landa á verði á vöru og þjónustu yrði líka mjög sýnilegur. Spurningin um að eyða gjaldeyrisóvissu gagnvart landi eins og Íslandi skiptir líka öllu þegar talað er um að reyna að fá erlenda fjárfesta til þess að setja upp starf- semi hér á landi. Að mínu áliti er þarna um einfalt mál að ræða, bæði efnahagslega og pólitískt. Íslenska hagkerfið er allt of lítið til þess að þar sé hægt að halda uppi sjálf- stæðri, öflugri mynt. Agaleysið í hagkerfinu, bæði í hagstjórn og ann- ars staðar, er líka slíkt að það yrði okkur eflaust til gagns að festa eitt af núverandi hagstjórnartækjum okkar algerlega niður. Þetta yrði svipað og að skipta um skólastjóra í skóla sem hefur verið mjög illa stjórnað, þetta verður erfitt fyrst en eftir að nýja skipulagið tekur við verður árangurinn betri. En í öllu þessu má hins vegar ekki gleyma þeirri staðreynd að þátttaka okkar í þessu samstarfi krefst þess að við göngum í ESB. Eins og allir vita virðist það hins vegar vera allt önnur saga. Helstu gagn- rökin halda alls ekki Ari Skúlason EMU Með aðild að EMU, seg- ir Ari Skúlason, yrði vaxtastig hér svipað og í nágrannalöndunum. Höfundur er framkvæmdastjóri Aflvaka hf. og áhugamaður um Evrópumál. Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is lím og fúguefni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.