Morgunblaðið - 10.11.2001, Blaðsíða 47
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 47
s e m s a m e i n a r f e g u r ð o g þ æ g i n d i
h
o
rn
Mán.– Fös. 10.00 –18.00 • Laugard. 11.00 –16.00 • Sunnud. 13.00 –16.00
OPIÐ:
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
•
N
M
0
4
7
3
1
/s
ia
.is
só
fa
r
hornsófi
Úrval fallegra leðursófasetta
á frábæru verði.
124.500kr.
vínrauður, grænn,
dökkbrúnn, l jósbrúnn
og svartur
Domino
hornsófi
- leður á sl itf lötum
PÉTUR Á. Jónsson,
María Markan, Stefán
Íslandi, Einar Krist-
jánsson, Guðmundur
Jónsson, Kristinn
Hallsson, Þuríður
Pálsdóttir, Guðrún Á.
Símonar, Magnús
Jónsson, Kristján Jó-
hannsson, Sigríður
Ella Magnúsdóttir,
Garðar Cortes, Ólöf
Kolbrún Harðardóttir,
Kristinn Sigmundsson,
Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Gunnar Guðbjörnsson,
Viðar Gunnarsson.
Þessir og margir aðrir
söngvarar hafa verið
meðal fremstu tónlistarmanna Ís-
lendinga fyrr og síðar. Þeir hafa
sungið sig inn í hjörtu þjóðarinnar
og gert garðinn frægan erlendis.
Þeir hafa sungið alls kyns tónlist, en
öll hafa þau fyrst og fremst verið
óperusöngvarar. Óperan hefur verið
þeirra heimavöllur. Verði haldið fast
við núverandi áætlanir um bygg-
ingu tónlistarhúss verður þar ekk-
ert pláss fyrir óperusöngvara. Þar
munu tónlistarmenn af öllum öðrum
gerðum fá að njóta sín, jafnt lúðra-
þeytarar sem lágfiðluleikarar, popp-
arar og rokkarar, þjóðlagasöngvar-
ar og harmóníkuleikarar. Allir nema
óperusöngvarar, – þeir eiga enn að
syngja á frímerkinu í Gamla bíói.
Það þarf ekki mikinn spámann til
að sjá að auðvitað verða óperur
settar á svið í nýja Tónlistarhúsinu.
Íslendingar hafa sett upp óperur í
leikhúsum, bíóhúsum, leikfimihús-
um og sjálf Sinfóníuhljómsveitin
hefur sl. þrjú ár staðið fyrir óp-
erusýningum í hinu mjög svo
óheppilega húsnæði Laugardalshall-
ar. Það dettur þó varla nokkrum
heilvita manni í hug að Sinfónían
muni haldi áfram að sýna óperur í
Laugardalshöll eftir að hún er flutt í
Tónlistarhúsið?
Nei, spurningin er ekki um það
hvort ópera verði í Tónlistarhúsinu
heldur aðeins hvort óperuflutningi
verði þar búin sómasamleg skilyrði.
Við þau skilyrði myndi ballett og
stórar leiksýningar líka vel þrífast.
Rekstrarlegar forsendur
Ég hef áður bent á að það væri
fjárhagslegt glapræði að láta ekki
óperu, ballett o.fl. fá inni í húsinu.
Augljóst er að hið stóra og dýra hús
þyrfti að nýtast sem best til að
standa undir stofnkostnaði og dag-
legum rekstri, annars er eins víst að
bygging hússins gæti orðið Sinfón-
íunni sams konar bjarnargreiði og
Borgarleikhúsið sumpartinn varð
Leikfélaginu.
En hvað óperuna varðar sérstak-
lega, þá er stór áhorfendasalur al-
ger forsenda þess að eitthvert vit
verði í fjárhagslegum rekstri henn-
ar eins og ég mun nú skýra nánar.
Uppsetningarkostnaður einnar óp-
eru er líklega um 30 milljónir (þ.e.
kostnaður fram að frumsýningu).
Launakostnaður o.fl. fyrir hverja
sýningu (kvöldkostnaður) er líklega
um 1½–2 milljónir króna og fá þó
allir listamennirnir heldur lítið fyrir
sinn snúð. Í Gamla bíói þykir gott
að selja 400 miða á kvöldi á 3 þús-
und krónur miðann. Það þýðir inn-
komu upp á 1,2 milljónir, sem er
talsvert minna en
kostnaður við kvöldið.
Þetta þýðir að því bet-
ur sem sýning gengur,
þ.e. þeim mun oftar
sem sýnt er, þeim mun
meiri verður hallinn á
sýningunni sem bætist
við 30 milljóna króna
stofnkostnaðinn.
Sé gert ráð fyrir
sama dæmi, en sal sem
tekur 1.300 manns í
sæti (eins og í fyrir-
huguðu Tónlistarhúsi),
þá gæti miðasala fyrir
hverja sýningu skilað
3–4 milljónum í kass-
ann, þ.e. 2 milljónum
umfram kvöldkostnaðinn. Þetta fé
mætti nota á ýmsan hátt, svo sem til
að greiða niður stofnkostnað upp-
færslunnar, hækka laun listafólks
eða lækka miðaverð. Hér er ótalið
hversu listræn umgjörð óperusýn-
inga yrði miklu fullkomnari en nú
tíðkast.
Ég vil leyfa mér að benda á að
miðað við núverandi umfang starf-
semi Óperunnar þyrfti hún aðeins
að fá inni í Tónlistarhúsinu fjórar
helgar tvisvar á vetri, t.d. í október
og mars.
Svör óskast
Á undanförnum mánuðum hafa
fjölmargir íslenskir óperusöngvarar
tjáð sig um þetta mál, ýmist í blaða-
greinum eða viðtölum. Tala þeir all-
ir einum rómi um brýna nauðsyn
þess að ópera fái inni í Tónlistar-
húsi. Í haust lýsti stjórn Íslensku
óperunnar því yfir að hún styddi
það ekki einungis að óperuflutningi
yrði sköpuð aðstaða í Tónlistarhús-
inu, heldur bauð hún að gefa hús
sitt, Gamla bíó, til að stuðla að
þessu. Loks lýsti menningarmála-
nefnd Reykjavíkur nýlega yfir ein-
róma stuðningi sínum við þetta mál.
Ennþá vantar þó svör og sjón-
armið ýmissa þeirra, sem mestu
ráða um framkvæmd þessa máls.
Þar fer fremstur menntamálaráð-
herra og skammt á eftir borgar-
stjóri og talsmenn þeirra flokka
sem nú mynda borgarstjórn og ætla
að bjóða fram til kosninga næsta
vor. Vil ég hér með leyfa mér að
skora á þessa aðila að gera afstöðu
sína og sjónarmið heyrinkunn á op-
inberum vettvangi. Þá væri ekki
verra að heyra sjónarmið stjórn-
enda Listhátíðar í Reykjavík og Ís-
lenska dansflokksins um það hvort
stórt svið og aðstaða fyrir búning og
leiktjöld gæti ekki gagnast þessum
aðilum.
Þótt hljótt hafi farið hefur mikið
verið unnið að þessu máli á vegum
opinberra aðila á undanförnum ár-
um. Nú er í gangi hugmyndasam-
keppni um skipulag hafnarsvæðis-
ins þar sem Tónlistarhúsið er eitt
aðalviðfangsefnið. Skilafrestur til-
lagna rennur út 5. nóvember. Þar er
ekki gert ráð fyrir því að óperu-
flutningur verði í Tónlistarhúsinu.
Óperuunnendur! Við erum alveg að
missa af lestinni til að stöðva þetta.
Tökum nú höndum saman um að fá
þessu breytt svo Tónlistarhúsið
muni í framtíðinni nýtast öllum tón-
listarmönnum – óperusöngvurum
líka!
Óperan verður
þar líka
Árni Tómas
Ragnarsson
Höfundur er læknir.
Tónlistarhús
Nú er í gangi hug-
myndasamkeppni um
skipulag hafnarsvæð-
isins, segir Árni Tómas
Ragnarsson, þar sem
Tónlistarhúsið er eitt
aðalviðfangsefnið.
KVEN-
SÍÐBUXUR
3 SKÁLMALENGDIR
Bláu húsin við Fákafen.
Sími 553 0100.
Opið virka daga 10-18,
laugardaga 10-16.