Morgunblaðið - 10.11.2001, Side 64

Morgunblaðið - 10.11.2001, Side 64
DAGBÓK 64 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Frár og Ludvig Andersen fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Ottó kemur í dag, Ljósafoss, Ýmir og Rán fara í dag. Fréttir Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. Mannamót Aflagrandi 40. Nýtt námskeið í jóga hefst miðvikud. 14. nóv. skráning í afgreiðslu, s. 562-2571. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13– 16.30, spil og föndur. Jóga á föstudögum kl. 13.30. Kóræfingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mosfellsbæ á Hlaðhömrum á fimmtu- daga kl. 17–19. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586– 8014 kl. 13–16. Félag eldri borgara Kópavogi verður með opið hús í Gjábakka 13, laugardaginn 10. nóv- ember. Kaffiveitingar, harmónikkuleikur o.fl. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Ganga kl. 10 frá Hraun- seli. Mávahlátur í Há- skólabíói kl. 15. Á mánudag hefst tölvu- námskeið í Flensborg- arskóla kl. 17. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi – blöðin og matur í hádegi. Heilsa og hamingja í dag laug- ardag 10. nóvember í Ásgarði, Glæsibæ, og hefst kl. 13.30, þá mun Laufey Steingríms- dóttir, næringarfræð- ingur ræða um hollt mataræði og mikilvægi þess til að halda góðri heilsu. Ásgeir Theódórs læknir, sérfræðingur í meltingarsjúkdómum, forfallaðist, í staðinn verður Tómas Jónsson sérfræðingur í rist- ilsjúkdómum. Á eftir hverju erindi gefst tækifæri til spurninga og umræðna. Sunnu- dagur: Félagsvist kl. 13.30 4ra daga keppni annan hvern sunnudag. Dansleikur kl. 20, Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13. Dans- kennsla Sigvalda fellur niður. Þriðjudagur: Skák kl. 13 haustmót skákdeildar FEB. Al- kort spilað kl. 13.30. Miðvikudagur: Göngu- Hrólfar fara í létta göngu frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10. Silf- urlínan er opin á mánu- dögum og mið- vikudögum frá kl. 10–12 f.h. Skrifstofa félagsins er flutt í Faxafen 12 sama símanúmer og áð- ur. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB kl. 10– 16 sími 588-2111. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Borgarleik- húsið 15. nóv. kl. 20. Miðapantanir sem fyrst í síma 820-8571 eftir há- degi. Rúta frá Kirkju- hvoli kl. 19.15. Stundaskrá í hópastarfi er auglýst á töflu kjall- aranum í Kirkjuhvoli og á www.fag.is 568-5052. Allir vel- komnir. Gerðuberg, myndlist- arsýning Valgarðs Jörgensen opin kl. 13– 16 í dag og á morgun, síðasta sýningarhelgi, veitingar í veitingabúð Gerðubergs. Á þriðju- dag kl. 9–12 er opið hús í Miðbergi á vegum ÍTR í leiktækjasal m.a. inni- pútt, billjarð, snóker, tennis og fleira. Vetr- ardagskráin er komin. Allar upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575-7720. Hæðargarður Farið verður að sjá leikritið „Með vífið í lúkunum“ föstudaginn 16. nóv- ember, miðapantanir fyrir 14. nóv. Hæð- argarði s. 568-3132. Kirkjustarf aldraðra, Digraneskirkju. Opið hús á þriðjudag kl. 11. Leikfimi, matur, helgi- stund og fleira. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Hrafnista í Hafnarfirði. Basar heimilisfólksins verður laugardaginn 10. nóvember kl. 13–17 og mánudaginn 12. nóv- ember kl. 9–16. Á bas- arnum verður til sölu og sýnis handavinna heim- ilisfólksins. Allir vel- komnir. Kvenfélagið Hring- urinn. Jólabasar Hringsins verður í Perl- unni, Sunnudaginn 11. nóv. og hefst kl. 13. Borgfirðingafélagið í Reykjavík verður með kaffisölu og skyndi- happdrætti á Hallveig- arstöðum, Túngötu- megin, sunnudaginn, 11. nóvember. Húsið verð- ur opnað kl. 14. 30 Allir velkomnir. Kvenfélag Grens- ássóknar heldur köku- og munabasar í safn- aðarheimilinu laug- ardaginn 10. nóv. kl. 14. Tekið á móti munun frá kl. 17–19, föstudag og frá kl. 10 laugardag. Vöfflukaffi verður á boðstólum. Fundur kl. 20. mánudaginn 12. nóv. Hróbjargarstaðaættin. Spilafundur sunnudag- inn 1. nóv. kl. 14 í Fylk- ishöllinni, Árbæj- arhverfi. Kristniboðssambandið þiggur með þökkum alls konar notuð frímerki, innlend og útlend, ný og gömul, klippt af með spássíu í kring eða um- slagið í heilu lagi (best þannig). Útlend smá- mynt kemur einnig að notum. Móttaka í húsi KFUM&K, Holtavegi 28, Rvík, og hjá Jóni Oddgeiri Guðmunds- syni, Glerárgötu 1, Ak- ureyri. Bandalag íslenskra skáta. Endurfundir eldri skáta, verða mánu- daginn 12. nóvember í Hraunbyrgi, skátaheim- ili Hraunbúa, Hjalla- braut 51 í Hafnarfirði. Húsið opnað kl. 11:30 matur verður fram bor- inn kl. 12. Allir eldri skátar eru hvattir til að koma og hitta gamla fé- laga. Kvenfélag Breiðholts, fundur verður 13. nóv- ember kl. 20. Gestur fundarins verður með kynningu í ýmsu. Konur eru beðnar að mæta vel. Kvenfélag Fríkirkj- unnar í Reykjavík held- ur basar í safn- aðarheimilinu Laufásvegi 13 í dag kl. 14. Margt góðra muna, happdrætti. Minningarkort Heilavernd. Minning- arkort fást á eft- irtöldum stöðum: í síma 588-9220 (gíró) Holts- apóteki, Vesturbæj- arapóteki, Hafnar- fjarðarapóteki, Keflavíkurapóteki og hjá Gunnhildi Elías- dóttur, Ísafirði. Parkinsonsamtökin. Minningarkort Park- insonsamtakanna á Ís- landi eru afgreidd í síma 552-4440 frá kl. 13–17. Eftir kl. 17 s. 698-4426 Jón, 552-2862 Óskar eða 563-5304 Nína. Minningarkort Sam- taka sykursjúkra fást á skrifstofu samtakanna Tryggvagötu 26, Reykjavík. Opið virka daga frá kl. 9–13, s. 562- 5605, bréfsími 562-5715. Minningarkort Krabba- meinsfélags Hafn- arfjarðar (KH), er hægt að fá í Bókabúð Böðv- ars, Reykjavíkurvegi 64, 220 Hafnarfirði s. 565-1630 og á skrifstofu K.H., Suðurgötu 44, II. hæð, sími 544-5959. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félags- ins eru afgreidd í síma 540 1990 og á skrifstof- unni í Skógarhlíð 8. Hægt er að senda upp- lýsingar í tölvupósti (minning@krabb.is) Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu endurhæf- ingadeildar Landspít- alans, Kópavogi, (fyrr- verandi Kópavogshæli), síma 560-2700 og skrif- stofu Styrktarfélags vangefinna, s. 551-5941 gegn heimsendingu gíróseðils. Í dag er laugardagur 10. nóv- ember, 314. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Gjaldið engum illt fyrir illt. Stundið það sem fagurt er fyrir sjónum allra manna. (Rómv. 12, 18.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 hæla, 8 yrkir, 9 koma undan, 10 málmur, 11 ljósfæri, 13 dýrið, 15 mannsnafns, 18 sjá eftir, 21 of lítið, 22 digra, 23 veldur ölvun, 24 sjávar- dýrs. LÓÐRÉTT: 2 snákar, 3 dimm ský, 4 minnast á, 5 grafa, 6 sak- laus, 7 fornafn, 12 málm- ur, 14 blása, 15 skurður, 16 svínakjöt, 17 slark, 18 drengur, 19 prest, 20 grein. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 gikks, 4 fegin, 7 turni, 8 óglöð, 9 gær, 11 nusa, 13 kurr, 14 nudda, 15 garn, 17 ljót, 20 kró, 22 fífan, 23 löður, 24 asnar, 25 terta. Lóðrétt: 1 gætin, 2 korgs, 3 seig, 4 flór, 5 guldu, 6 næðir, 10 ældir, 12 ann, 13 kal, 15 gifta, 16 rófan, 18 jaðar, 19 torga, 20 knýr, 21 ólöt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Víkverji skrifar... HART er í ári hjá fjölmiðlum ogfréttir berast af niðurskurði, bæði heima og heiman. Forsvars- menn Ríkisútvarpsins hafa lengi borið sig aumlega yfir bágri fjár- hagsstöðu og sóst eftir heimild til að hækka afnotagjöldin, blessunar- lega án árangurs. Útlit er fyrir dökka afkomu á árinu og því eðli- lega farið að huga að leiðum til þess að skera niður kostnað og ekkert nema gott um það að segja. En mikið óskaplega þykir Víkverja þær sparnaðartillögur sem út- varpsstjóri hefur lagt fram brengl- aðar. Ein af þessum brengluðu tillög- um er að útsendingartími Sjón- varpsins verði styttur til muna. Þar sem Víkverji hefur hingað til verið þeirrar skoðunar að útsendingar- tími Sjónvarpsins sé alltof stuttur nú þegar féllust honum hendur er hann heyrði þessa tillögu. Hvernig má það vera að það skipti sköpun fyrir rekstur heils fjölmiðils sem rekur sjónvarpsstöð, tvær útvarps- stöðvar, nokkrar svæðisútvarps- stöðvar og textavarp að stytta út- sendingartíma sjónvarpsstöðvar- innar um nokkra klukkutíma á viku – byrja seinna á daginn og hætta fyrr á kvöldin? Það mætti halda að útsendingartíminn sem slíkur sé svona dýr í rekstri. Misskildi Vík- verji eitthvað dæmið þegar hann hélt að það væri sjálft efnið sem sýnt væri sem kostaði peninga. Ef ekki, væri þá ekki nær að leita leiða til þess að skera niður þar, þ.e. reyna að kaupa eða framleiða ódýrara efni til sýningar, þ.e.a.s. ef endilega þarf að herja á sjónvarps- hlið rekstursins? x x x FLESTIR eru sammála um aðinnlend dagskrárgerð skuli ávallt sett á oddinn og það er Vík- verji einnig. Vandinn er bara að sá rekstrarþáttur er langkostnaðar- samastur og því ekki annað hægt í harðæri en að gefa honum gaum og velta upp hvort ekki sé hægt að hagræða eitthvað. Eitt af því sem t.d. hefur vakið undrun Víkverja er hversu ógurlega íburðarmikil sum innlenda dagskrárgerðin þarf alltaf að vera og er gott dæmi um það skemmtiþátturinn Milli himins og jarðar. Eitthvað segir manni að sá þáttur og reyndar forverar hans hjá Sjónvarpinu hafi kostað skild- inginn og fróðlegt væri að bera heildarkostnaðinn saman við hvað sams konar skemmtiþættir á einkastöðvunum kosta. Innlend dagskrárgerð þarf ekk- ert allt að vera rándýr, það hafa stjórnendur einkareknu stöðvanna sýnt í verki. Málið er bara að hafa nægilegt hugmyndaflug en oft á tíðum virðist lenskan hafa verið sú að peningaaustur og þeim mun meiri íburður hafi verið notaður til að hylja andleysið. Lærdómurinn sem forsvarsmenn Sjónvarpsins geta dregið af þessu er að þeir ættu að íhuga alvarlega að færa innlendu dagskrárgerðina alfarið út úr húsi, bjóða verkefnin út og kaupa efni sem þegar er tilbúið, ekki bara að hluta eins og nú er gert. Einkaðilarnir hafa nefnilega sýnt það að þeir virðast kunna bet- ur með peninginn að fara þegar dagskrárgerð er annars vegar og það hlýtur að koma fjárhagslega betur út fyrir Ríkisútvarpið að kaupa efni af þeim sem uppfylla gerðar kröfur um gæði og hag- stæðasta verð. x x x Í SVO mögru árferði er líka meðendemum fáránlegt að ekki sé enn búið að leggja niður blessað þulustarfið á Sjónvarpinu. Hún er hreint ótrúleg íhaldssemin sem býr að baki því að þær elskur birtist enn á skjánum á hverju kvöldi, þyljandi fyrir mann það sem maður hefur þegar kynnt sér. Hvernig í ósköpunum dettur stjórnendum þar á bæ í hug að láta slíkan mun- að eftir sér? Má vel vera að ofannefndar sparnaðartillögur séu til lítils þeg- ar allt kemur til alls en þær eru samt betri en að stytta þá stuttu sjónvarpsdagskrá sem nú er í boði og þar með minnka þjónustuna enn við nauðuga greiðendur afnota- gjaldanna. Lokksins sárt saknað ÞESSI eyrnalokkur (ekki fyrir göt) tapaðist fyrir 2-3 árum. Auglýst hefur verið eftir honum áður en án árang- urs. Líklegt er að hann hafi tapast á Naustkránni, í miðbænum eða í leigu- bíl. Þetta er erfiðagrip- ur og er sárt saknað. Þeir sem gætu gefið upplýsingar hafi sam- band við Sigríði í síma 697-7585 eftir kl. 17. Silfurarmband týndist SILFURARMBAND týndist laug. 3. nóvem- ber sl. líklega á Hverfis- eða Skugga-barnum, eða á leiðinni á milli. Armbandið er mér mjög kært. Þetta er ca. 1,5 cm breið silfurspöng. Ef einhver hefur fundið það vinsamlega hafið sam- band í síma 896 2391 eða 550 3353. Fundarlaun. Poki týndist POKI frá Accessorise með eyrnalokkum og naglalakki týndist á sal- erni í Smáralind sl. sunnudag. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 586-1097 og 696-1960. Breiður silfurhringur týndist BREIÐUR silfurhring- ur týndist í Árbænum fyrir 2 vikum. Hringur- inn hefur mikið tilfinn- ingagildi fyrir eiganda. Uppl. í síma 586-1097 eða 696-1960. Vínrauð kápa tekin í misgripum VÍNRAUÐ leðurlíkis- kápa, merkt og með belti, var tekin í mis- gripum á Kaffibarnum aðfaranótt sl. sunnu- dags. Skilvís finnandi hafi samband í síma 692- 9210 eða 562-1315. Fundarlaun. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is FLESTIR keppnisspilarar nota yfirfærslusagnir eftir grandopnun. En hversu margir nota yfirfærslur á yfirfærslur? Þetta þarf að skýra: Norður gefur; AV á hættu. Norður ♠ G10 ♥ 1032 ♦ ÁKG5 ♣ÁK86 Vestur Austur ♠ Á86 ♠ 432 ♥ ÁDG64 ♥ 85 ♦ 964 ♦ 1073 ♣D7 ♣G5432 Suður ♠ KD975 ♥ K97 ♦ D82 ♣109 Spilið kom upp í þriðju lotu úrslitaleiks Norðmanna og Bandaríkjamanna á HM í París. Hinn forlagði samn- ingur á spilin er þrjú grönd í norður og þar enduðu Norð- mennirnir Boye Brogeland og Erik Sælensminde: Vestur Norður Austur Suður Martel Sælensm- inde Stansby Brogeland -- 1 grand Pass 2 lauf Pass 2 tíglar Pass 3 spaðar Pass 3 grönd Allir pass Með því að byrja á Stayman og stökkva svo í þrjá spaða sýndi Boye ná- kvæmlega fimmlit í spaða og þrílit í hjarta. Austur spilaði út laufi og Erik var fljótur að tryggja sér tíu slagi. Hjarta út er auðvitað banvænt og á hinu borðinu gat Terje Aa bent á útspilið með því að dobla yfirfærslu Alans Sontags í spaða: Vestur Norður Austur Suður Aa Weichsel Grötheim Sontag -- 1 grand Pass 2 hjörtu * Dobl Pass Pass 3 grönd Pass 4 hjörtu *Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Peter Weichsel passaði doblið og neitaði þar með stuðningi við spaðann. Sontag stökk þá í þrjú grönd, en Weichsel leist illa á þann samning með þrjá hunda í hjarta og ákvað að freista gæfunnar frekar í fjórum spöðum. En hann vildi láta útspilið koma til makkers og beitti gagnyfirfærslu með fjórum hjörtum! Staðan var í sjálfu sér órædd, en Sontag var með á nótunum og sagði fjóra spaða. Eins og sjá má, eru fjórir spaðar óhnekkjandi í suður og Bandaríkjamenn náðu þannig að jafna spilið. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.