Morgunblaðið - 10.11.2001, Page 68
FÓLK Í FRÉTTUM
68 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AÐ VANDA eru lögin á diskinum í
þeim alþjóðlega heimstónlistarstíl
sem þeir hafa tileinkað sér, þetta er
þjóðleg balkan- og klezmertónlist í
bland við kunn verk klassísku
meistaranna, einsog Rossini og
Brahms. Einnig laumar Hadjidakis
sér inn með einn góðan grískan dans.
Rússíbanar eru þeir Guðni Franzson
sem leikur á klarinett, Einar Krist-
ján Einarsson gítaristi, Jón Skuggi
bassaleikari, Matthías M.D. Hem-
stock leikur á slagverk og Tatu
Kantomaa spilar á harmóníku.
Af þessu gleðilega tilefni munu
Rússíbanarnir efna til útgáfudans-
leiks í Leikhúskjallaranum í kvöld og
hefst hann á miðnætti og stendur
fram eftir öllu.
Alltaf mikið stuð
Einar Kristján gítarleikari hefur
lengi verið í forsvari fyrir Rússiban-
ana, og svo er einnig í þetta skiptið.
– Ég hef frétt að það sé rosastuð á
böllum hjá ykkur, er það satt?
„Það er alveg satt. Við höfum verið
svolítið í pásu síðan við vorum heitir í
Kaffileikhúsinu, og viljum fá þá
stemmningu aftur í Leikhúskjallar-
ann. Við spiluðum m.a á Menning-
arnótt og það var mikið stuð.“
– Er það tónlistin sem gerir það?
„Þessi gömlu sígauna- og gyðinga-
þjóðlög koma bæði hjartanu og fót-
unum í gang. Enda er alls kyns fólk
sem kemur að dansa með okkur og á
öllum aldri.“
Gamlar lummur og nýir vinir
Þegar hlustað á diskinn, kannast
maður óneitanleg við mörg laganna.
En hvaðan? Frá Rússibönunum eða
bara úr Útvarpi Reykjavík?
– Hvernig völduð þið lögin á nýja
diskinn?
„Það var bara voða tilraunakennt,
einsog alltaf. Við prófum nokkur lög
sem við höfum grafið upp hér og þar,
og ef það virkar, eitthvað fer í gang
hjá okkur, þá endar oft á því að það
ratar á diskinn.“
– Hafið þið þá í huga að fólk kann-
ist við lögin?
„Ekkert frekar, það er svona bæði
og á þessum diski. Nokkrar gamlar
lummur rötuðu inn sem fengu að
vera með, en okkur finnst gaman og
eiginlega nauðsynlegt að hafa
óþekkt lög inn á milli. Við höfum líka
eitthvað prófað lögin á böllum til að
sjá hvernig þau falla í kramið. Ann-
ars erum við farnir að hafa gaman af
því að spila á tónleikum. Það hefur
verið mjög gaman og góð viðbrögð
við því.“
Alltaf ungverskur dans
Þótt þeir félagar fari víða um Evr-
ópu til að finna ný og fersk lög á
hvern nýjan disk, eiga þeir sér líka
fasta vini.
– Mér finnst eiginlega þjóðlögin
skemmtilegri en klassísku lögin.
„Það er misjafnt hvað fólki finnst.
Það er yfirleitt erfiðara dansa við
klassísku lögin, mikið af taktskiptum
og svona, en okkur hefur fundist
þetta blandast þokkalega vel.“
– Brahms er þarna með Ung-
verskan dans nr. 6, samdi hann
marga ungverska dansa?
„Já, hann gerði alveg helling af
þeim og þeir eru allir mjög skemmti-
legir. Það er alltaf einn ungverskur
dans á hverjum diski hjá okkur.“
– Hann hefur verið mikill stuð-
Þjóðverji?
„Nei, ég held að það sé ekki hægt
að segja það um Brahms. Þetta er
áreiðanlega það léttasta sem hann
samdi.“
Bara fallegt
Og svo virðist sem sveitarmeðlim-
um séu engin takmörk sett þegar að
hæfileikum kemur.
– Í gyðingalaginu Nava Nagela,
eru ótrúlega fagrar baksöngraddir.
Hverjir eru þetta?
„Þetta er forsöngvarinn sjálfur
Guðni Franzson. Hann beitir sér-
stakri grátkonusöngrödd og það vek-
ur mikla lukku.“
– En þú ert líka skrifaður fyrir
söng.
„Já, ég tók að mér að herma eftir
tenór í laginu La Danza eftir Ross-
ini.“
– En hvaðan kemur titillinn Gull-
regnið?
„Það var Jón Skuggi kom með
nafnið. Við tökum alltaf mark á hon-
um, enda er hann kallaður rödd
skynseminnar í hljómsveitinni. Og
svo þegar umslagið kom frá Erlingi
Páli Ingvasyni þá var líka gullregn
þar á ferðinni, fannst okkur,“ segir
Einar Kristján að lokum.
Þó er aldrei að vita nema Rússíban-
arnir hafi ómeðvitað verið að vitna í
þá gullmola sem þeir eru að leika á
sinn einstæða hátt fyrir fótafima og
hjartnæma Íslendinga. Íslendinga
sem ætla að taka sporið í kvöld og lík-
legast eitthvað fram eftir vetri.
Kemur hjartanu
og fótunum í gang
Gullregnið heitir nýjasti diskur hinna
fjörugu tónlistarmanna sem kenna sig
við Rússíbana. Hildur Loftsdóttir
hleraði Einar Kristján um tilurðina.
Morgunblaðið/Golli
Rússíbanar verða á fleygiferð í kvöld sem jafnan.
hilo@mbl.is
Útgáfuball Rússíbana í Leikhúskjallaranum
ÞAÐ verður sannkölluð sólarsveifla
í gangi á Tapasbarnum í kvöld þeg-
ar Sveiflukvartettinn efnir til jöfra-
veislu með öllu tilheyrandi, svala-
drykkjum og tveggja rétta
sveiflumáltíð.
Sveiflukvartettinn er skipaður
fjórum annáluðum djassboltum,
Baldri Geirssyni tenórsaxófónleik-
ara, Þorsteini Eiríkssyni trommu-
leikara, Gunnari H. Pálssyni bassa-
leikara og Svavari Sölvasyni
píanóleikara sem geta státað af 200
ára samanlagðri spilareynslu.
Húsið opnar kl. 19.30. Sveiflan,
fordrykkur og tveggja rétta máltíð
kostar 2500 kr. og miðapantanir
eru í síma 551 2344.
Sveiflukvartettinn á æfingu.
Síungir
sveiflukóngar
Sveiflukvartettinn stendur fyrir sólarsveiflu í Hlaðvarpanum