Morgunblaðið - 10.11.2001, Qupperneq 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
FISKISTOFA mun óska eftir lög-
reglurannsókn á brottkasti á tveimur
íslenskum fiskiskipum en myndir sem
teknar voru um borð í skipunum voru
sýndar í sjónvarpinu í fyrrakvöld og
birtust í Morgunblaðinu í gær. Á
myndunum kom fram stórfellt brott-
kast á fiski.
Að sögn Þórðar Ásgeirssonar fiski-
stofustjóra hefur Fiskistofa fengið
fjölda ábendinga um hvaða skip er að
ræða, einkum frá mönnum sem
þekktu skipin á myndum sem hafa
birst en einnig hafi borist ábendingar
frá fólki sem hafi séð myndatöku-
menn ganga frá borði. Öllum beri
saman um hvaða tvö skip er að ræða
og því hafi verið farið fram á það við
ríkislögreglustjóra að hann annaðist
rannsókn málsins. Þórður vill ekki
upplýsa að svo stöddu hvaða skip eiga
í hlut.
Skv. lögum um stjórn fiskveiða er
skylt að hirða eða koma með að landi
allan afla. Viðurlög við stórfelldum
eða ítrekuðum ásetningsbrotum gegn
lögum um stjórn fiskveiða varða varð-
haldi eða allt að sex ára fangelsi. Í lög-
unum segir að sekt við fyrsta broti
skuli ekki vera lægri en 400 þúsund
en ekki hærri en 4 milljónir.
Óskað eftir
lögreglu-
rannsókn
á brottkasti
Vilja hámarka/39
BJÖRK Guðmundsdóttir hyggst
ljúka tónleikaferð sinni um heim-
inn með tónleikum í Reykjavík 19.
desember næstkomandi. Sinfón-
íuhljómsveit Íslands leikur með
Björk á tónleikunum.
Björk er nú á ferð um heiminn
að kynna nýútkomna breiðskífu
sína, Vespertine. Í tónleikaferð-
inni hefur hún sungið í leikhúsum
og óperum, en hér á landi mun
hún syngja í Laugardalshöll. Með
henni hefur leikið belgísk sinfón-
íuhljómsveit undir stjórn Simons
Lee, en þegar kom að tónleikum
hér á landi leitaði Björk til Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands. Einnig
verða með í för grænlenskur
stúlknakór, inúítasöngkonan Tag-
aq, hörpuleikarinn Zeena Parkis
og bandarískir tónlistarmenn sem
kalla sig Matmos.
Að sögn eins skipuleggjenda
tónleikanna, Ásmundar Jónssonar
hjá Smekkleyu, þótti ekki gerlegt
að hafa sama háttinn á hérlendis
og ytra því þá kæmust mun færri
til að sjá tónleikana. Hér væru
einfaldlega ekki til svo stórir tón-
leikasalir að hentuðu.
Eins og getið er leikur Sinfón-
íuhljómsveit Íslands með Björk en
Simon Lee mun stjórna hljóm-
sveitinni eins og á öllum tón-
leikum hennar í ferðinni. Fram-
kvæmd tónleikanna er í höndum
Hr. Örlygs ehf. og Smekkleysu, en
Síminn er styrktaraðili.
Miðasala hefst á tónleikana
mánudaginn 19. nóvember næst-
komandi í miðasölu Háskólabíós.
Alls komast um 2.400 manns fyrir
í sæti í Laugardalshöll, en aðeins
verður selt í númeruð sæti og
verður svipað fyrirkomulag og á
Vínartónleikum Sinfóníunnar og
tónleikum kúbversku hljómsveit-
arinnar Buena Vista Social Club
fyrr á árinu.
Hámark miðafjölda á mann
verður bundið við tíu miða.
Tónleikar Bjarkar í Laug-
ardalshöll 19. desember
„STAÐAN er afar viðkvæm á
þessari stundu,“ sagði Siv Frið-
leifsdóttir umhverfisráðherra í
samtali við Morgunblaðið um mið-
nætti í gærkvöld en hún var þá
stödd á lokafundi loftslagsráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna í
Marrakesh í Marokkó. Gera átti
úrslitatilraun á fundinum til að ná
samkomulagi aðildarríkjanna um
framkvæmd Kyoto-bókunarinnar.
Mikil óvissa og vaxandi svartsýni
ríkti á ráðstefnunni í gærdag og
gærkvöld um hvort það tækist
vegna andstöðu fulltrúa Japans,
Rússlands, Nýja-Sjálands, Kanada
og Ástralíu, sem tilheyra svonefnd-
um Regnhlífarhópi.
Ísland studdi sáttatillögu
Fram kom sáttatillaga á ráð-
stefnunni í gær og sagði Siv að
fulltrúar Íslands hefðu lýst því yfir
að þeir gætu stutt hana líkt og
mörg önnur ríki. Að sögn Sivjar
bjuggu menn sig undir að reynt
yrði til þrautar fram eftir nóttu áð-
ur en ráðstefnunni yrði slitið hvort
hægt væri að ná samkomulagi en
að hennar sögn hafði lítið miðað í
samkomulagsátt í gær.
Siv sagði að ef svo illa færi að
samkomulag tækist ekki í nótt
þyrftu ríkin að setjast aftur að
samningaborðinu þótt síðar yrði
því að ekki mætti gefast upp gagn-
vart þessu verkefni. „Loftslags-
vandinn hverfur ekki þótt menn
nái ekki að semja hér í nótt. Menn
munu bara setjast niður aftur síðar
til þess að reyna að ná sama sam-
komulagi,“ sagði hún.
Gert hafði verið ráð fyrir að á
ráðstefnunni yrði samkomulagið
sem náðist í Bonn í júlí sl. form-
lega samþykkt en það er forsenda
þess að iðnríkin geti staðfest
Kyoto-bókunina.
Hið svonefnda „íslenska ákvæði“
er hluti af samkomulaginu og átti
að greiða atkvæði um það við
lokafrágang samkomulagsins á
ráðstefnunni.
Siv sagði afar mikilvægt að
stóru ríkin sem ekki gátu sætt sig
við sáttatillöguna í gær yrðu með í
lokafrágangi þess en til þess að
Kyoto-bókunin öðlist gildi þurfa
iðnríki sem losa 55% gróðurhúsa-
lofttegunda að staðfesta hana.
FYRRI vél Vatnsfellsstöðvar var
tekin í notkun í gær. Seinni vélin
verður ræst í desember ef allt geng-
ur að óskum. Þegar báðar vélarnar
hafa verið teknar í notkun verður
stöðin um 90 MW að afli og mun þá
orkugeta raforkukerfisins aukast
um 430 GW-stundir á ári.
Þorsteinn Hilmarsson upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar segir að
Vatnsfellsvirkjun hafi verið byggð til
að anna álaginu vegna stækkunar ál-
vers Norðuráls úr 60 þúsund tonna
framleiðslu í 90 þúsund tonn fyrr á
þessu ári. Hann segir stöðuna í miðl-
unarlónum á svæðinu góða og allt til
reiðu fyrir veturinn. „Það hefur ver-
ið einmuna tíð, hlýindi í allt haust,
sem hefur mikið að segja. Það er
engu að síður mikilvægt að fá þessa
virkjun í rekstur núna áður en vetur
gengur að fullu í garð.“
Fyrri vél
Vatnsfells-
virkjunar
í notkun
Nýja stöðvarhúsið í Vatnsfelli en virkjunin hóf starfsemi í gær er fyrri vélin var gangsett.
Morgunblaðið/Þorkell
Jóhannes G. Sigurgeirsson,
stjórnarformaður Landsvirkj-
unar, sýnir hvernig mælarnir
risu er vélin var gangsett í gær.
BÚNAÐARBANKI, Íslandsbanki
og Landsbanki hafa allir ákveðið að
lækka vexti í kjölfar vaxtalækkunar
Seðlabankans í fyrradag. Sparisjóð-
irnir munu einnig lækka vexti sína
en ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hversu mikil lækkun þeirra verð-
ur.
Lækkun bankanna á óverðtryggð-
um inn- og útlánum er almennt í takt
við lækkun Seðlabankans, þ.e. 0,8%.
Helstu frávikin frá því eru að inn-
lánsvextir Búnaðarbankans lækka
heldur minna, yfirleitt um 0,6%.
Viðskipta-
bankar fylgja
Seðlabanka
Vextir/22
BRESKUR maður hefur játað á sig
fjársvik hér á landi upp á rúmar 5,3
milljónir króna og var ákærður af
efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra vegna málsins í gær. Hann var
úrskurðaður í áframhaldandi gæslu-
varðhald til 11. janúar eða þar til
dómur gengur í máli hans.
Maðurinn mun hafa komið til
landsins í þrígang í ágúst og sept-
ember og notað m.a. 16 fölsuð
greiðslukort. Dagana 13. og 14. sept-
ember tók hann út fyrir 834 þúsund
krónur á eitt kortið í Kringlunni og
víðar. Meðal þess sem fært var á
kortið var fatnaður fyrir rúmar 200
þúsund krónur og dömuúr fyrir 182
þúsund. Ákæra á hendur manninum
var þingfest í gær.
Játaði á sig
milljóna-
fjársvik
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Umhverfisráðherra sagði á miðnætti að mikil
óvissa ríkti á loftslagsráðstefnu SÞ í Marokkó
Úrslitatilraun gerð
á lokafundi í nótt