Morgunblaðið - 15.11.2001, Side 4
4 C FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NFRÉTTIR COMDEX, sem er stærsta tölvusýning sem haldin er í Bandaríkjunum
ár hvert, stendur yfir í Las Vegas. Búist er við að um tvö þúsund fyr-
irtæki muni sýna starfsemi sína og tækni á sýningunni. Talið er að um
125-150 þúsund manns muni heimsækja COMDEX, en það er 25%
minni aðsókn heldur á síðasta ári. Búist er við því að hryðjuverkin í
Bandaríkjunum í september muni draga úr aðsókninni. Þá er jafnframt
mun öflugri öryggisgæsla til staðar nú heldur en í fyrra. Fjölmargar
tækninýjungar eru kynntar á sýningunni, meðal annars þessi frumgerð
af myndsíma.
Reuters
Minni aðsókn á COMDEX
● RÁÐSTEFNUSKRIFSTOFA Íslands ásamt
aðildarfélögum sínum stendur fyrir kynningu í
næstu viku á ráðstefnuhaldi hér á landi und-
ir yfirskriftinni: „Ráðstefnan heim“. Tuula
Lindberg, forseti alþjóðlega ráðstefnu-
sambandsins ICCA (International Congress
and Convention Association), verður meðal
fyrirlesara.
Ráðstefnuskrifstofa Íslands var stofnuð ár-
ið 1992 en meginhlutverk skrifstofunnar er
að markaðssetja Ísland sem ákjósanlegan
áfangastað til ráðstefnuhalds og hvataferða
á alþjóðamarkaði, að sögn Rósbjargar Jóns-
dóttur, verkefnisstjóra. Að baki Ráð-
stefnuskrifstofu Íslands standa m.a. Ferða-
málaráð Íslands, Reykjavíkurborg, Flugleiðir,
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og fleiri sem
hagsmuna eiga að gæta af ráðstefnuhaldi.
Markmið kynningarinnar sem haldin verður
nk. fimmtudag, 22. nóvember, kl. 16-18 í
Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur er að vekja
athygli á möguleikum Íslands sem ákjósan-
legum áfangastað til ráðstefnuhalds. Að
sögn Rósbjargar er markhópurinn fólk í við-
skiptalífinu, forsvarsmenn íslenskra fyr-
irtækja í alþjóðaviðskiptum og fagfélaga inn-
lendra og erlendra. Yfirskriftin er
„Ráðstefnan heim“ og aðspurð segir Rós-
björg að það hafi töluverða þýðingu fyrir Ís-
land að auka eftirspurn eftir því að halda
ráðstefnur hér á landi. „Slíkt hefur til dæmis
í för með sér aukna umfjöllun. Það er mik-
ilvægt fyrir okkur, litlu þjóðina í norðri, að
möguleikarnir séu fyrir hendi,“ segir Rós-
björg.
ll STUTT
Ráðstefnuhald á
Íslandi mikilvægt
● VAL.IS hefur í samvinnu við Hagkaup.is
kynnt nýja þjónustu á Netinu. Hún felst í því
að á val.is er hægt að kaupa vörur með rað-
greiðslusamningum.
Nú er til dæmis boðið upp á heimabíósett
á raðgreiðslum og Evrópuferð í kaupbæti.
Framvegis er hægt að kaupa þær vörur
sem kosta meira en 30.000 krónur á val.is
á raðgreiðslum til allt að 36 mánaða.
Val.is er tilboðsverslun Vildarklúbbs Flug-
leiða og hefur starfað frá því í desember
2000. Félagar, sem reglulega eru kynnt ný
tilboð með tölvupósti, eru um 16.000. Velta
val.is fyrstu 10 mánuði ársins var um 30
milljónir.
Val.is starfar í náinni samvinnu við hag-
kaup.is og hefur selt frá þvottavélum til tón-
leikamiða og frá líkamsræktarkortum til
sjónvarpstækja svo eitthvað sé nefnt og
margt þar á milli. Með öllum keyptum vörum
á val.is fylgja ferðapunktar í kaupbæti.
Raðgreiðslur
á Netinu
● Hugbúnaðarfyrirtækin Innn og Margmiðlun
hafa gert með sér samstarfssamning um
dreifingu á vefstjórnarkerfinu LiSA frá Innn.
LiSA-kerfið hefur verið fjögur ár í þróun og er
í dag notað á rúmlega 50 íslenskum vef-
svæðum. Til eru yfir 30 viðbótareiningar fyrir
LiSA, til dæmis XML Portal, starfsmanna-
kerfi, póstlistakerfi og fleira. „Þessi sam-
starfssamningur er mikil viðurkenning fyrir
störf Innn hf. og hefur einnig mjög góð áhrif
á samkeppnisstöðu hugbúnaðarins á mark-
aðinum hérlendis,“ segir í tilkynningu frá
Innn.
INNN og Marg-
miðlun í samstarf
„VIÐ teljum mikil tækifæri til samstarfs
milli Íslands og Kanada á sviði sjávarútvegs,
bæði á opinberum vettvangi og milli einstakra
fyrirtækja. Því er von okkar sú að opnun
skrifstofu í Reykjavík muni glæða þessi sam-
skipti,“ segir Bill Barry, framkvæmdastjóri
sjávarútvegsfyrirtækisins Barry Group á Ný-
fundnalandi.
Barry Group er fjölskyldufyrirtæki í sjáv-
arútvegi, sem hefur verið starfrækt í fjóra
ættliði. Nú eru þar við stjórnvölinn bræðurnir
Bill og Jim Barry. Starfsmenn eru um 5.000
alls. Velta fyrirtækisins er ekki gefin upp.
„Starfsemi fyrirtækisins er mjög fjölbreytt
og er dreifð um austurstörnd Kanada, á Nova
Scotia, Nýfundanlandi og Labrador,“ segir
Barry. „Fyrirtækið rekur 25 fiskvinnslustöðv-
ar og eina selvinnslustöð, þar sem selskinn
eru unnin. Við eru einn stærsti framleiðand-
inn á unnum humri, mjög stórir í krabba-
vinnslu, við erum með þrjár rækjuverksmiðj-
ur og erum einnig þar meðal þeirra stærstu og
við veiðum og vinnum mest af uppsjávarfiski á
þessum slóðum, loðnu, síld og makríl, en af
þessum tegundum vinnum við allt að 40.000
tonn á ári. Við vinnum einnig mikið af botn-
fiski.
Helztu tegundirnar þar eru karfi og grá-
lúða. Í eðlilegu árferði værum við einnig um-
svifamiklir í þorskveiðum og vinnslu, en nú er
í gildi nær algert veiðibann svo sú vinnsla er í
mýflugumynd.“
Mikil aukning rækjuveiða
og -vinnslu í Kanada
Hvernig hefur þróun rækjuveiða og -vinnslu
verið í Kanada?
„Rækjuveiðar hafa aukizt gríðarlega við
Kanada á síðustu fimm árum. Á þessu tímabili
hafa mörg fyrirtæki á Nýfundnalandi byggt
upp nýjar og tæknivæddar rækjuverksmiðjur.
Mikið af tækninni, búnaðinum og þekkingunni
hefur verið sótt til Íslendinga. Kvótinn á
þessu tímabili hefur farið úr 9.000 tonnum í
nærri 70.000 tonn. Rækjustofnarnir eru mjög
sterkir og útlitið því gott.
Við rekum þrjár rækjuverksmiðjur, eina í
Clarinville á Nýfundnalandi og þar vinnum við
5.000 til 6.000 tonn af rækju á ári, önnur verk-
smiðja er í Canso á Nova Scotia og þar eru
unnin um 3.000 tonn árlega og loks eigum við
hlut í einu rækjuverksmiðjunni í Labrador, en
þar getum við unnið um 5.000 tonn árlega. Við
vinnum rækjuna á sama hátt og Íslendingar,
hún er soðin og skelflett.
Við gerum sömu gæðakröfur til framleiðsl-
unnar og Íslendingar og seljum að miklu leyti
á sömu markaði og þeir.“
Hvernig stóð á því að þið stofnuðum skrif-
stofu í Reykjavík?
„Við höfum átt viðskipti við Íslendinga í 6 til
7 ár og höfum talið sjávarútveginn á Íslandi og
við austurströnd Kanada eiga mikla samleið
og samskipti okkar við íslenzka bankakerfið
hafa vaxið hratt og verið mjög góð. Við töldum
því að það væri gott fyrir okkur að hafa full-
trúa okkar með fast aðsetur á Íslandi, Íslend-
ing sem kæmi fram þar fyrir okkar hönd.
Þrátt fyrir að við seljum töluvert af rækju í
gegnum skrifstofu okkar í Reykjavík, höfum
við haft og eigum gott samstarf við Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna og við vonumst til að
svo verði áfram. Skrifstofu okkar í Reykjavík
er ekki ætlað að verða til þess að draga úr
þessum samskiptum, heldur byggja á þeim og
styrkja þau, enda hefur okkar maður, Halldór
Árnason, unnið fyrir SH í Þýzkalandi. Hann
sá þar um sölu á miklu af rækju frá okkur og
við vildum njóta hinna góðu starfskrafta hans
áfram.
Við viljum einnig nýta skrifstofu okkar í
Reykjavík til að greiða fyrir kaupum okkar á
fiski á frá Íslandi.
Við kaupum mikið af sjófrystum karfa, sem
við vinnum úr í Kanada og við vonumst til að
skrifstofan muni auka þessi kaup,“ segir Bill
Barry.
Eigum margt sameiginlegt
Sjávarútvegsfyrirtækið Barry Group á Nýfundnalandi haslar sér völl á Íslandi
Bill Barry, framkvæmdastjóri Barry
Group á Nýfundnalandi.
! "
# # $%
& ! "
'
()&*+
*%
,
Á MORGUN,
föstudag, verður
haldið námskeið á
vegum auglýsinga-
stofunnar XY-
ZETA. Fyrirlesari
er David Wheldon,
en hann hefur starf-
að beggja vegna
borðsins þegar aug-
lýsingar eru annars
vegar, bæði sem
kaupandi þeirra og
seljandi. Wheldon
hefur stýrt auglýs-
ingastofu og birt-
ingarstofu, en hann
hefur einnig verið
yfirmaður auglýs-
ingamála hjá Coca
Cola.
Wheldon er
stjórnarformaur og einn af stofn-
endum Tempus-samsteypunnar,
sem hefur farið ótroðnar slóðir í
samþættingu birtinga og hug-
mynda.
Wheldon mun fjalla um hvers
vegna auglýsendur og auglýsinga-
stofur eiga að taka miðlana alvar-
lega. Í samtali við Morgunblaðið
sagðist hann myndu leggja áherslu
á að lýsa reynslu sinni með dæmum
og hann myndi líklega tala meira á
persónulegum nót-
um en að halda stíf-
an fyrirlestur og
vonaðist eftir við-
brögðum frá þátt-
takendum.
Sem dæmi um
reynslu sína nefndi
hann tímann þegar
hann stýrði auglýs-
ingamálum hjá
Coke. Þegar hann
kom að fyrirtækinu
hefði það alltaf átt
viðskipti við eina til
tvær auglýsinga-
stofur en hann hefði
breytt öllu og skipt
við 29 stofur og gert
alls konar tilraunir.
„Þetta gekk mjög
vel,“ sagði Wheldon,
„eins og sjá má á þeim mælikvarða
sem fyrirtæki af þessu tagi nota
helst, þ.e. gengi hlutabréfanna.
Hlutabréfin þrefölduðust í verði
þegar ég starfaði hjá fyrirtækinu.
Eitt sem ég hef lært er að sköp-
unarhæfileikar skipta öllu máli. Og
það eru ekki aðeins auglýsinga-
hönnuðir sem geta verið skapandi,
heldur fólk í alls konar störfum. Að-
almálið er að vera skapandi í öllu
sem maður gerir.“
Sköpunin skipt-
ir höfuðmáli
Námskeið um auglýsingar og birtingar
David Wheldon
● FÉLAG viðskipta- og hagfræðinga í sam-
vinnu við IMG stendur fyrir opnum hádeg-
isverðarfundi í dag, fimmtudaginn 15. nóv-
ember, kl. 12–13.30 á Radisson SAS, Hótel
Sögu, Ársal, 2. hæð. Á fundinum verður far-
ið yfir stjórnunarlega aðferðafræði sem
hægt er að nýta til að bregðast við sam-
drætti, þar sem mikilvægt er að nýta þau
tækifæri sem geta falist í samdrættinum, og
hvort skera eigi niður eða ekki og ef svo þá
hvar og hvernig. Í lokin fá fundargestir að
heyra reynslusögu stjórnanda sem lifað hef-
ur tímana tvenna.
Fyrirlesarar eru Eggert Tryggvason frá IMG,
Jensína Böðvarsdóttir frá IMG og Bogi Páls-
son forstjóri P. Samúelssonar hf. Fund-
arstjóri er Árelía Eydís Guðmundsdóttir lekt-
or við Háskólann í Reykjavík
Með hnífinn á lofti!
Stjórnun fyrirtækja
í samdrætti
◆
◆
◆