Morgunblaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 9
grein fyrir því að margir munu fylgja í fót-
sporin en við höfum náð ákveðnu forskoti og
ætlum að halda því. Við bindum miklar vonir
við það að geta farið að gefa fiski hérna
ákveðna gæðaeinkunn og vonum að við getum
tekið á móti fleiri vörutegundum. Hugmyndin
er að nýta sölukerfið og markaðsþekkinguna
innan Fishgate sem best og vekja athygli á
þessu vörumerki sem við erum að byggja upp.
Þegar Fishgate er nefnt vita menn að þeir eru
nokkuð tryggir um gæði vörunnar og um-
hverfi.“
Ekki breyta kerfinu
Magnús óttast ekki að niðurskurður á þorsk-
kvóta hafi áhrif á rekstur fyrirtækisins. Komi
fiskur úr fiskeldi í meira mæli inn á markaðinn
þurfi alltaf einhvern stað til að ganga frá hon-
um og koma honum til kaupandans. Fishgate
geti vel gegnt því hlutverki. Ef hugmyndir um
að vigta allan fisk á Íslandi áður en hann verði
fluttur til útlanda verða að veruleika geti það
sett strik í reikninginn. „Um 7% íslenska bol-
fiskaflans er heill ferskur fiskur í útflutningi og
sennilega fara 3 til 4% af honum til Bretlands.
Þessi Bretlandsmarkaður hefur verið gríðar-
lega öflugur og sterkur fyrir íslenska sjómenn
og útgerðarmenn sem hafa náð að hámarka
arðsemi á hverju kvótakílói í gegnum tíðina.
Markaðurinn og dreifileiðirnar eru til staðar og
það væri synd ef menn ætluðu sér að hrófla við
þessu kerfi.“
Hann segir að áður en þessi svokallaði gáma-
fiskur sé fluttur út hafi allir kaupendur á Ís-
landi í raun tækifæri til að bjóða í aflann.
„Margir af þessum bátum, sem við fáum fisk
frá í gámum, landa oft og tíðum og selja
stærsta þorskinn í salt vegna þess að kaup-
endur geta keppt í verði vegna þeirrar stærðar.
Það sýnir að vilji menn fá vöruna á Íslandi og
treysti sér til að borga markaðsverð geta þeir
keypt hana. Þessi umræða um að kaupendur
geti ekki boðið í gámafisk er því ekki rétt og ég
sé ekki ástæðu til að breyta kerfinu. Á að landa
þessum fiski til þess eins að taka sýnishorn en
um leið að rýra gæði hans inni á mörkuðunum?
Það rýrir gæðaímynd Íslendinga út á við með
þeim afleiðingum að tekjur þjóðarbúsins
minnka, því gæði vörunnar verða ekki þau
sömu og hún selst þar af leiðandi ekki á besta
verði. Það eru ákveðnar hömlur á þessum við-
skiptum um þessar mundir og ég held að það sé
ekki okkur Íslendingum til framdráttar að út-
búa einhverjar reglur sem stuðla að því að rýra
gæði íslenska fisksins. Búið er að eyða mikilli
orku og peningum í að markaðssetja íslenskan
fisk í Bretlandi í gegnum árin sem skilað hefur
þjóðarbúinu miklum tekjum. Við megum ekki
láta vanhugsaðar ákvarðanir gera það að verk-
um að aðrar þjóðir komist inn á þennan markað
með ferskan fisk og missa þannig þá yfirburði
sem við höfum hér haft í áratugi. Með Fishgate
komum við Hull aftur á kortið í fiskiðnaðinum
og Íslendingar mega vera stoltir af því. Hjartað
er aftur farið að slá í Hull.“
steg@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 C 9
NVIÐSKIPTI ATHAFNALÍF
UMBOÐSAÐILI Á ÍSLANDI
Nýjung!
Samstarfsaðili óskast til sölu- og markaðsstarfs
á nýjum dönskum aukabúnaði fyrir farsíma.
Miklir möguleikar framundan.
Aðeins skriflegar umsóknir á dönsku og ensku
Conceptech
Industrivej 15
DK-2605 Brøndby
Danmörku
E-mail: f.w@concept-ech.dk
Vill ibráðarhlaðborð
jólasveinsins
Hótel Glymur Hvalfjarðarströnd
Eftirréttagallerí að hætti Glyms - Verð fyrir einstakling 3.600 kr.
Borðapantanir í síma 430 3100
Þorláksmessa: Skötuveisla að hætti Strandamanna.
Sjón er sögu ríkari - vertu velkomin
sími 430 3100, símbréf 430 3101, gsm 899 9358
www.hotelglymur.is info@hotelglymur.is
HG
• Síldarsena
• Ristuð risahörpuskel
• Laxatríó
• Ostagratíneraðar gellur
• Lynglegið lamb
• Sleðadregið hreindýr
• Villitryppafile
• Kryddlegnar svartfuglsbringur
• Hólsfjallahangikjöt
• Puruklædd svínasteik
• Fylltar kjúklingarúllur
UM 300 útgerðarmenn, skip-
stjórar og aðrir fulltrúar seljenda
og kaupenda voru viðstaddir opnun
Fishgate sl. föstudag. Flestir gest-
irnir komu frá Færeyjum, Noregi og
Íslandi en hátt í 100 Íslendingar
voru á meðal þeirra. Í hópi voru
m.a. Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, sem opnaði markaðinn form-
lega, Þorsteinn Pálsson, sendi-
herra í London, Jón Baldvinsson,
prestur í London, sem blessaði
bygginguna, Sofus Poulsen, sendi-
herra Færeyja í London, John Culv-
er, sendiherra Bretlands í Reykja-
vík, Fred Beadle, borgarstjóri í
Hull, Pat Doyle, fyrrverandi borg-
arstjóri í Hull, Allan Highet, við-
skiptafulltrúi í norska sendiráðinu í
London, og Alan Johnson, þing-
maður.
Arthur Cook, stjórnarformaður
Fishgate, sagði að þessi mikli fjöldi
gesta frá viðskiptaþjóðunum sýndi
áhuga þeirra á verkefninu. Hann
gat þess m.a. að fiskimenn við Hull
hefðu veitt við Íslandsstrendur fyrir
600 árum og viðskipti þjóðanna
með fisk ættu sér því langa sögu.
Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, tók í sama streng og rifjaði
upp þessa sögu. Hann sagði við
Morgunblaðið að markaðurinn væri
afskaplega fullkominn og allt öðru
vísi en þeir markaðir sem hann
hefði skoðað í Englandi á und-
anförnum 15 árum. Hann sagði að
eins og menn ættu að venjast á Ís-
landi hvað varðaði skilvirkni, véla-
kost, skipulagningu, meðferð hrá-
efnis og fleira virtist allt vera með
fullkomnasta brag í Fishgate og af-
ar líklegt væri að markaðurinn
fengi fljótlega almenna viðurkenn-
ingu í Bretlandi fyrir að vera þar í
fremstu röð, því sennilegt væri að
hann væri það fullkominn í sam-
bandi við hreinlæti, vörslu, merk-
ingar, uppruna og annað slíkt.
„Það er afskaplega gaman að
þessu framtaki,“ sagði Davíð Odds-
son og bætti við að þó útflutningur
á fiski frá Íslandi til Humberside-
svæðisins hefði minnkað frá því
sem áður hefði verið væri ljóst að
útflutningi frá Íslandi til Hull yrði
vel þjónað með þessum markaði.
Hins vegar sagði hann erfitt að
segja til um áhrifin til lengri tíma.
„Varan er í eðli sínu góð og hérna
fær hún meðferð sem hún á skilið á
markaði,“ sagði forsætisráðherra.
Morgunblaðið/Neil Holmes
Arthur Cook, stjórnarformaður Fishgate, og Davíð Oddsson, forsætisráðherra, við
flokkunar- og vigtunarbúnaðinn frá Marel í Fishgate.
Fjölmenni frá Íslandi
við opnunina
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi
Meðgöngufatnaður
fyrir mömmu
og allt fyrir litla krílið.
Þumalína, Pósthússtr. 13, sími 551 2136