Morgunblaðið - 15.11.2001, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 15.11.2001, Qupperneq 14
14 C FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ NVIÐSKIPTI ÍSLAND á að taka forystu í þró- un netþjónustu fyrir GPRS-síma- tækni í Evrópu en til að það gerist þarf Landssími Íslands að opna GPRS-net sitt fyrir alla þá sem vilja bjóða slíka þjónustu. Þetta er mat Harðar Bender, forstjóra Schibsted Telecom í Svíþjóð. Hörður segir sænsku símafyrir- tækin á miklum villigötum í upp- byggingu sinna framtíðarfarsím- aneta. Hann nefnir að þrátt fyrir að um átta mánuðir hafi liðið frá því að Europolitan, næststærsta farsíma- fyrirtæki í Svíþjóð, tók fyrsta GPRS-símanetið í Svíþjóð í notkun hafi það verið afar lítið notað. „Nú hafa Telia og Commit einnig sett upp GPRS-net en það kaupir enginn GPRS-síma eða notar GPRS-þjón- ustu,“ segir Hörður. „Þarna var lagt út í gríðarmikla fjárfestingu en enginn kaupir þetta. Menn spyrja sig hvað sé að og svar- ið er mjög einfalt: Það er ekki boðið upp á neina þjónustu fyrir GPRS- síma á þessum netum og án þjónust- unnar er tæknin sjálf einskis virði. Menn kaupa t.d. ekki GSM-síma af því að það er GSM heldur kaupa menn GSM-síma til að tala hver við annan. GPRS-símar eru dýrir og áskriftin líka, það er því engin ástæða til að kaupa slíkan síma ef engin þjónusta er í boði.“ Fjárfestingar skila ekki tekjum Að sögn Harðar hafa sænsku síma- fyrirtækin ekki viljað hleypa inn á net sín þeim fyrirtækjum sem hann- að hafa þjónustu fyrir símana. Þau hafa fyrst og fremst einbeitt sér að þróun netkerfisins en ekki hugleitt þá þjónustu sem þarf að vera í boði þegar netið er tilbúið til notkunar. Stóru símafyrirtækin sitja því uppi með milljarðafjárfestingar og fá engar tekjur á móti. „Fjarskiptamarkaðurinn er að umturnast og menn verða að fara að hugsa öðruvísi en gert hefur verið ef fjárfestingarnar eiga að skila tekjum. Þeir verða að bjóða upp á aðra þjónustu en bara tal. Stóru símafyrirtækin í Svíþjóð hafa ekki áttað sig á þessu sjálf heldur eru þau nú undir þrýstingi frá stjórnmálamönnum og fjármála- fyrirtækjum, sem hafa lánað miklar fjárhæðir til þessarar uppbygging- ar.“ Hörður segir lausnina felast í að opna netin og gefa hinum ýmsu fyr- irtækjum kost á að þróa þar margs- konar þjónustu. Hann leggur áherslu á að slíkt þróunarstarf hefj- ist sem allra fyrst enda þurfi stöðugt að uppfæra og fínstilla þjónustu- möguleikana í þróunarferlinu. „Það er eitt svona kerfi í heim- inum sem virkar mjög vel og það er Docomo í Japan, ntt.com. Þeir reka opið kerfi sem öll fyrirtæki geta sett þjónustu sína inn á. Þeir taka svo 9% umsýsluþóknun fyrir þá þjón- ustu sem er seld. Þarna geta einstök fyrirtæki þróað sína þjónustu og í raun er þarna um að ræða annað Internet. Ástæðan fyrir að Internet- ið hefur virkað er að þar er mikið úr- val af vefsíðum, eitthvað fyrir alla og sumt gengur, annað ekki. Nú þarf að ganga í gegnum sama ferlið með framtíðarfarsímana, bjóða upp á eitt net með margs konar þjónustu. Sænsku fyrirtækin hafa hannað og boðið einn og einn þjónustu- möguleika og það gengur illa. Það er svipað og símafyrirtækin mundu ákveða hvaða vefsíður ættu að vera á Netinu.“ Símafyrirtækin eiga því, að mati Harðar, að hætta afskiptum af því sem fer inn á farsímanetin en beina heldur kröftum sínum að því að við- halda þeim og sjá til þess að þau gegni hlutverki sínu. Tekjur síma- fyrirtækja í slíkum netrekstri segir hann að kæmu annars vegar frá um- ferðinni um netið og hins vegar af sölu viðbótarþjónustu á netinu, sem geti verið ákveðið hlutfall af sölu- fjárhæð líkt og í Japan. Landssíminn taki frumkvæði Hvað varðar íslenska markaðinn segir Hörður að skynsamlegast væri að setja upp eitt þriðju kynslóðar farsímakerfi á Íslandi enda sé eng- inn rekstrargrundvöllur fyrir meira á markaði fyrir 280 þúsund manns. Hann segir þjónustutekjur af slíku kerfi ekki það miklar að það borgi sig að reka tvö eða þrjú kerfi hér- lendis. Hætt væri við því að á svo litlum markaði borgaði fjárfestingin sig aldrei. „Landssíminn, sem er með stærstu stöðuna á markaðnum, á að taka fyrsta skrefið og vera frum- kvöðull í því að bjóða breitt safn net- þjónustumöguleika fyrir farsíma, s.s. tölvupóst, netvafrara, tónlistar- þjónustu og leiki,“ segir Hörður og tekur fram að hann eigi ekki við að Landssíminn kaupi þetta af ein- stökum fyrirtækjum og setji svo á netið. „Þá skiptir máli að vera með opið kerfi, að hleypa öllum þessum fyrirtækjum inn á netið og leyfa þeim að prófa sig áfram á þessum markaði. Það gerir þetta enginn í Evrópu en fjölmörg fyrirtæki eru hins vegar að hanna ýmiss konar þjónustu fyrir framtíðarsímana, s.s. GPRS og 3G. Í dag er engin leið að koma því inn á netin, nema í Japan. Ísland gæti því orðið fyrst í Evrópu til að hleypa þessum fyrirtækjum inn og Lands- síminn stæði uppi eftir nokkra mán- uði með fullt GPRS-net af þjónustu- mögleikum. Það er enginn með það í dag og Ísland gæti því orðið leiðandi í þróun á GPRS-þjónustu.“ Mikilvægt að vera fyrstir Að sögn Harðar er Landssíminn heppilegasta íslenska símafyrirtæk- ið til að standa að þessu. „Landssím- inn er með besta netið, þeir eru með flestu viðskiptavinina og eru nógu fjárhagslega sterkir til að standa að kynningu á þjónustumöguleikum. Það kostar heilmikla markaðssetn- ingu að kenna þjóðinni þetta enda þarf að kenna öllum á þetta.“ Hann segir stórslys ef Landssím- inn og íslenski markaðurinn í heild missir af þessu tækifæri til að verða fyrstir. Ef það gerist ekki megi gera ráð fyrir að erlendu fyrirtækin hafi ekki áhuga á að bjóða þjónustu sína á hérlendu neti og Íslendingar muni sitja uppi með hálftómt GPRS-net. „Það er mjög gott GPRS-net á Ís- landi sem nær meira og minna yfir allt landið og vegna þess hversu landið er lítið er netþjónusta fyrir farsíma eins og sniðin fyrir Ísland. Landssíminn getur ekki leyft sér það að ætla að ákveða hvað verður inni á þessu neti og hvað ekki.“ Áberandi í sænskum fjölmiðlum Hörður Bender er sem fyrr segir forstjóri Schibsted Telecom, sem er hluti Schibsted-fjölmiðlasamsteyp- unnar. Schibsted-samsteypan er stærsta fjölmiðlafyrirtæki á Norð- urlöndum og á m.a. tvö stærstu dag- blöðin í Svíþjóð, Aftonbladet og Svenska Dagbladet, auk Verdens Gang og Aftenposten í Noregi. Schibsted Telecom, sem Hörður stýrir, hefur sérhæft sig í netþjón- ustu fyrir farsíma og er hið stærsta sinnar tegundar í Svíþjóð, með um 60–70% markaðshlutdeild. Það er jafnframt í samstarfi við Orange sem er eitt fjögurra fyrirtækja sem fengu úthlutað leyfum til að reka þriðju kynslóðar farsímakerfi (3G) í Svíþjóð. Hörður er áberandi í sænskum fjölmiðlum enda stofnandi samtaka þeirra fyrirtækja sem veita netþjón- ustu fyrir farsíma og helsti talsmað- ur þeirra. Alls eiga 22 fyrirtæki að- ild að þessum samtökum. Þá er hann fulltrúi slíkra fyrirtækja í nefnd á vegum viðskiptaráðuneytis Svíþjóðar um þróun í farsímamálum og hlutverk stjórnvalda í þeirri þró- un. Landssíminn veiti óheftan aðgang að GPRS-neti sínu GPRS-farsímanet sænskra símafyrirtækja standa ónotuð enda er þar enga þjónustu að fá. Hörður Bender benti Soffíu Haraldsdóttur á hættuna á því að íslensk símafyrirtæki lendi í því sama. soffia@mbl.is .................. L a n d s s í m i n n g e t u r e k k i l e y f t s é r þ a ð a ð æ t l a a ð á k v e ð a h v a ð v e r ð u r i n n i á þ e s s u n e t i o g h v a ð e k k i . .................. Hörður Bender, forstjóri Schibsted Telekom, segir að skynsamlegast væri að setja upp eitt þriðju kynslóðar farsímakerfi á Íslandi. TILKYNNT var um stofnun Gild- ingar fjárfestingafélags ehf. 8. júní í fyrra og kom þá fram að stofnhlutafé yrði um 3,5 milljarðar íslenskra króna, en söfnun hlutafjár væri ekki lokið. Mánuði síðar var tilkynnt um að söfnun hlutafjárins væri lokið og að meira hlutafé hefði safnast en til hefði staðið. Áætlanir höfðu gert ráð fyrir 5 milljarða króna hlutafé en þegar upp var staðið var stofnféð orðið 7 millj- arðar króna. Fimmtíu aðilar gerðust hluthafar í Gildingu í upphafi. Meðal þeirra voru allir bankar landsins, lífeyrissjóðir og mörg meðalstór og stór fyrirtæki. Þessu til viðbótar voru þekktir ís- lenskir athafnamenn meðal hluthafa auk starfsmanna og aðilum sem þeim tengdust. Enginn einstakur hluthafi átti stærri hlut en 9% í félaginu. 2 milljarðar í Ölgerðinni og Securitas Þórður Magnússon, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eimskipafélagsins, hefur frá upphafi verið starfandi stjórnarformaður fé- lagsins, en aðrir starfsmenn í upphafi voru Andri Sveinsson, fyrrverandi forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Búnaðarbankans Verðbréfa, Árni Oddur Þórðarson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Búnaðarbankans Verðbréfa, Bjarni Þórður Bjarnason, sem starfaði áður hjá verðbréfasviði Kaupþings, og Magnús Magnússon, sem áður var hjá fyrirtækjasviði Bún- aðarbankans. Heimir V. Haraldsson, sem starfað hafði hjá KPMG Endur- skoðun, var fljótlega ráðinn fram- kvæmdastjóri félagsins. Gilding er fjármálafyrirtæki en þó hvorki banki né verðbréfafyrirtæki og veitir ekki þjónustu eins og slík fyrirtæki. Stefna félagsins hefur ver- ið að vera virkur þátttakandi á ís- lenskum hlutabréfamarkaði og eiga stóra hluti í félögum meðal annars til að geta tekið þátt í umbreytingu þeirra. Þannig er félagið nú eigandi að Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni ehf. og Securitas hf., en samanlagt var kaupverð þessara fyrirtækja um tveir milljarðar króna. Securitas var keypt í mars á þessu ári en Ölgerðin í október í fyrra. Rekstur þessara fé- laga gengur vel, að sögn forsvars- manna Gildingar, og er stefnan að stækka þau og skrá þau á markað en aðstæður til þess hafa ekki enn skap- ast. Gilding með 4% hlut í Baugi Auk þessara tveggja fyrirtækja á Gilding umtalsverða eignarhluti í Pharmaco, Baugi, Össuri og Marel. Í lok september var hluturinn í Pharmaco 4,5%, í Baugi 4%, í Össuri 3,2% og í Marel 7,5%. Samanlögð eign Gildingar í þessum fjórum félögum er um 2,5 milljarðar króna. Allt eru þetta félög sem hafa meirihluta tekna eða starfsemi erlendis og eru aðstæð- ur þeim því hagstæðar nú, einkum vegna gengisbreytinga. Samkvæmt upplýsingum frá Gildingu gefur sjóð- streymisgreining mun hærra gengi á hlutabréf þessara félaga en núver- andi markaðsverð. Til viðbótar þessu á Gilding 150 milljónir króna að nafnverði, eða tæp- lega 32%, í Samvinnuferðum-Land- sýn, en Gilding kom inn í það félag í desember á síðasta ári í framhaldi af rekstrarerfiðleikum Samvinnuferða- Landsýnar og 40% niðurfærslu hluta- fjár þess. Voru hlutabréfin keypt á genginu einum. Fyrir utan ofangreindar eignir á Gilding 4–5 milljarða króna í ríkis- skuldabréfum. Samkvæmt upplýs- ingum frá félaginu hafa engar veru- legar breytingar orðið á eignasafninu að undanförnu. 25% arðsemismarkmið ekki óraunhæft til lengri tíma litið Félagið setti sér 25% arðsemismark- mið í upphafi, en segja má að verðþró- un á mörkuðum hafi gert fjárfestum ókleift að ná slíkum markmiðum. Þórður Magnússon, stjórnarformað- ur, segist telja að þrátt fyrir taprekst- ur nú sé fyrrgreint arðsemismarkmið ekki óraunhæft til lengri tíma litið. Eins og greint var frá fyrir skömmu hefur eigið fé Gildingar lækkað úr 7 milljörðum króna í 4,2 milljarða króna eða um 2,8 milljarða króna sem er um 40% af eigin fé. Frá stofnun Gildingar til septemberloka 2001 lækkaði Úrvalsvísitalan um rúmlega 30% og krónan veiktist um 27%. Stjórn Gildingar hefur verið óbreytt frá upphafi, en hana skipa Þórður Magnússon, formaður, Þor- steinn Vilhelmsson, fyrrverandi út- gerðarstjóri Samherja hf., Bjarni Brynjólfsson, framkvæmdastjóri líf- eyrissjóðsins Framsýnar, Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri BYKO, og Stefán Bjarnason, annar fram- kvæmdastjóra Stillingar. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur starfsmönnum verið fækkað hjá félaginu úr 11 í 6 vegna markaðs- aðstæðna. Markmiðið með fækkun starfsfólks er að sögn forsvarsmanna félagsins að ná niður rekstrarkostn- aði og auka þol þess við erfiðar mark- aðsaðstæður. Þrír af upphaflegum starfsmönnum félagsins halda áfram störfum, þeir Þórður Magnússon, Árni Oddur Þórðarson og Bjarni Þórður Bjarnason. Erfiðar aðstæður frá upphafi Gilding hóf störf um mitt ár í fyrra og frá þeim tíma hafa markaðir lækkað mikið og hefur Gilding þurft að þola verulega rýrnun eigin fjár. Haraldur Johannessen kynnti sér sögu, starfsemi og afkomu Gildingar. haraldurj@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.