Morgunblaðið - 20.11.2001, Blaðsíða 1
266. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 20. NÓVEMBER 2001
ÍBÚAR í Kabúl sjást á myndinni
troðast inn í kvikmyndahús í
borginni í gær, til að berja aug-
um fyrstu kvikmyndina sem sýnd
var eftir brotthvarf talibana.
Kvikmyndasýningar voru með-
al þess sem talibanar bönnuðu í
nafni trúarinnar á fimm ára
valdatíma sínum í Afganistan.
Ekki var því að undra að áhuginn
væri mikill á sýningu afgönsku
myndarinnar „Urur“, eða „Upp-
risa“, í gær. Bakthar-kvikmynda-
húsið í Kabúl tekur 600 manns í
sæti, en óeirðir brutust út þegar
ljóst var að færri komust að en
vildu og þurfti herlögregla að
stilla til friðar.
Reuters
Kabúlbúar ákafir í bíó
STAÐFEST var í gær að fundist
hefði olía og gas í færeyskri lögsögu.
Eyðun Elttør, ráðherra olíumála í
landstjórninni, ráðlagði fólki samt að
taka tíðindunum með ró þar sem því
færi fjarri að búið væri að ganga úr
skugga um að magnið væri nógu
mikið til að hægt væri að nýta lind-
irnar. Nokkur fyrirtæki hafa leitað í
lögsögu Færeyja en ekki fannst neitt
á hinum svæðunum. Vegna vetrar-
komu verður nú gert hlé á aðgerðum
þar til næsta vor.
Elttør sagði niðurstöðurnar afar
jákvæðar fyrir Færeyinga og magn-
ið „verulegt“ en enn væri of snemmt
að segja til um hvort það gæti borg-
að sig að vinna olíuna. „Þegar þeir
sem hafa fengið leyfi til leitar eru
búnir að komast að endanlegri nið-
urstöðu um árangur borananna –
sem á að gerast ekki síðar en átta
mánuðum eftir að brunninum hefur
verið lokað á ný – er gert ráð fyrir að
samin sé endanleg skýrsla um
árangurinn og hún afhent olíuráðu-
neyti Færeyja,“ sagði Elttør á blaða-
mannafundi í Þórshöfn í gær. Ef
magnið reynist nægilega mikið
munu líða nokkur ár þar til hægt
verður að hefja vinnslu við Færeyj-
ar.
Olían fannst á svæði sem banda-
ríska fyrirtækið Amerada Hess hef-
ur til umráða ásamt danska félaginu
DONG og færeyska fyrirtækinu Atl-
antic Petroleum. Svæðið er skammt
frá mörkum lögsögu Færeyinga og
Breta út af Hjaltlandi. Amerada
Hess hafði fengið heimild til að bora
niður á 3.800 metra dýpi undir hafs-
botni en fékk leyfi til að fara neðar
og það bar árangur.
„Framundan eru spennandi tímar
þegar metnar verða þær jarðfræði-
legu upplýsingar sem fengist hafa
með borunum í sumar,“ sagði Elttør.
Olía finnst
við Færeyjar
Óvíst hvort
magnið reynist
vinnanlegt
Þórshöfn. Morgunblaðið.
VÍÐA um heim var fylgst með
miklu sjónarspili er agnir úr slóða
halastjörnunnar Temple-Tuttle,
svonefndir leónítar, brunnu upp í
gufuhvolfinu. Myndin var tekin á
tíma af himninum yfir Fuji-
fjallinu í Japan í gærmorgun.
Ljósröndin neðst er frá bílum.
Reuters
Loftsteinaregn yfir Fuji
HARÐAR loftárásir voru gerðar í
gær á stöðvar talibanaherja í borginni
Kunduz í norðurhluta Afganistan en
borgin er umsetin fjölmennu liði
Norðurbandalagsins. Fjöldi erlendra
stuðningsmanna talibana er í borg-
inni og hafa þeir að sögn flóttafólks
skotið talibana sem vildu gefast upp.
Einnig voru gerðar loftárásir á
Kandahar í suðurhlutanum en þar er
öflugasta vígi talibana. Mohammad
Omar, helsti leiðtogi talibana, er
sagður vera enn í borginni.
James Dobbins, sendifulltrúi
Bandaríkjastjórnar, kom óvænt í gær
til Kabúl og átti þar fund með Burh-
anuddin Rabbani, forseta ríkisstjórn-
arinnar sem Norðurbandalagið
stendur að og hefur notið viðurkenn-
ingar alþjóðasamfélagsins hjá Sam-
einuðu þjóðunum síðustu árin. Rabb-
ani kom til Kabúl á laugardag í fyrsta
sinn frá árinu 1996 en hann sagðist í
samtölum við Dobbins og fulltrúa SÞ,
Francesc Vendrell, ekki myndu gera
kröfu til þess að verða leiðtogi lands-
ins.
„Fyrrverandi talibanar“
til en engir hófsamir
Ljóst er að Pastúnar, sem eru um
40% Afgana, myndu ekki sætta sig við
að þjóðarbrot Norðurbandalagsins
hefðu yfirburðastöðu í stjórn landsins
og er því lögð áhersla á að mynda nýja
stjórn með samningaviðræðum þar
sem hófsamir Pastúnar eigi fulltrúa.
Norðurbandalagið hefur fallist á að
fundur fulltrúa þjóðarbrotanna um
myndun bráðabirgðastjórnar verði
haldinn á vegum SÞ og er sennilegt
að hann verði í Evrópulandi, ef til vill
Austurríki. Dobbins sagði ekki koma
til greina að neinir liðsmenn talibana
ættu þar fulltrúa. Engir hófsamir tal-
ibanar væru til en „fyrrverandi talib-
anar eru annað mál“.
Leiðtogar úr röðum Pastúna eru
sagðir ræða við talibana um að þeir
gefist upp í Kandahar og Kunduz.
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, vísaði í gær á
bug hugmyndum um að Omar fengi
að fara í friði með mönnum sínum frá
Kandahar.
Talið er að ræningjar hafi myrt
þrjá vestræna fréttamenn og afg-
anskan ljósmyndara í fyrirsát við
þjóðveg skammt austur af Kabúl í
gær. Vestrænu fréttamennirnir þrír
voru frá Spáni, Ítalíu og Ástralíu.
Talsmaður SÞ í Kabúl sagði að vegir
til borgarinnar frá pakistönsku landa-
mærunum væru mjög ótryggir en
ekki er ljóst hvort morðingjarnir voru
úr röðum herliðs talibana.
Harðar loftárásir
á talibana í Kunduz
Rumsfeld andvígur því að Omar
fái að yfirgefa Kandahar í friði
Washington, Kabúl, Islamabad. AP, AFP.
Talið að/23
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, flutti í gær ræðu í
Kentucky og hvatti hann ákaft til þess
að hafnar yrðu strax friðarviðræður í
Miðausturlöndum. Ráðherrann sagði
að Palestínumenn yrðu að binda enda
á ofbeldi en jafnframt yrði að stöðva
útþenslu landnemabyggða gyðinga.
Powell hvatti Ísraela til að viður-
kenna þær þjáningar sem hernám
þeirra á Vesturbakkanum og Gaza-
ströndinni hefði í för með sé fyrir Pal-
estínumenn og sagði að því yrði að
ljúka. Hann fordæmdi einnig aukin
umsvif landnema úr röðum gyðinga á
hernumdu svæðunum. Sagði hann
landnámið „grafa stöðugt“ undan til-
raunum sem gerðar væru til að koma
á varanlegum friði.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ÍsraSels, sagðist í gær fagna hug-
myndum Powells sem hyggst senda
fulltrúa sína til viðræðna við deilu-
aðila. Yossi Beilin, þingmaður Verka-
mannaflokksins í Ísrael og einn af
höfundum Óslóarsamkomulagins
1993, sagði ræðu Powells „sögulega“
vegna þess að hún sýndi að Banda-
ríkjamenn ætluðu á ný að gerast virk-
ir þátttakendur í friðarferlinu eins og
þeir voru er það hófst 1991.
Talsmenn Palestínustjórnar lýstu
einnig ánægju sinni og töldu Powell
hafa sannað að Bandaríkjastjórn teldi
brýnt að viðræður hæfust strax og án
skilmála. Sharon hefur krafist þess að
kyrrð ríki á hernumdu svæðunum í
sjö daga áður en viðræður hefjist.
Talsmenn Evrópusambandsins töldu
Bandaríkin og sambandið vera sam-
stíga í afstöðu sinni til vandans.
Powell
gagnrýnir
landnám
Jerúsalem, Washington. AFP, AP.
♦ ♦ ♦