Morgunblaðið - 20.11.2001, Side 17

Morgunblaðið - 20.11.2001, Side 17
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 17 Blóðbankinn verður með blóðsöfnun og skráningu nýrra blóðgjafa í húsi Rauða krossins, Hafnargötu 13, Grindavík, í dag, þriðjudag kl. 10-18. Blóðgjöf er lífgjöf. NÝR söluturn sem jafnframt er myndbandaleiga hefur verið opn- aður í Sandgerði. Fyrirtækið ber nafnið Vökull. Hjónin Aðalbjörg Laufey Guð- jónsdóttir og Halldór Viðar Svein- björnsson eiga og reka söluturninn. Þau störfuðu áður við beitningu. Störfum við þá grein hefur fækkað verulega vegna breytinga á línuút- gerð. Þau fara þó ekki langt frá sín- um gamla vinnustað því Vökull er í húsnæði við Sandgerðishöfn sem áður hýsti birgða- og dælustöð Olís. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Aðalbjörg Laufey Guðjónsdóttir við afgreiðsluborðið. Úr beitningu í sjoppurekstur Sandgerði Skipulags- nefnd frestar af- greiðslu Borgarhverfi SKIPULAGS- og byggingarnefnd Reykjanesbæjar frestaði afgreiðslu breytingar á aðalskipulagi og deili- skipulagningu iðnaðarhverfisins Borgarhverfis á síðasta fundi sín- um. Íbúar í aðliggjandi íbúðarhverfi mótmæltu skipulaginu þegar það var auglýst. Á fundi nefndarinnar kom fram að engin athugasemd hafi komið sérstaklega um breytingu á aðal- skipulagi og heldur engin sérstak- lega vegna deiliskipulags. Hins veg- ar hafi komið 183 staðlaðar athugasemdir með yfirskriftinni: Mótmæli við tillögu um iðnaðar- hverfi á opnu svæði ofan Keflavík- ur. Fleiri en einn einstaklingur skrifar undir á sumum skjalanna, en búsettir í sama húsi. Nokkrar athugasemdir til viðbótar bárust þar sem lögð var frekari áhersla á einstök atriði og með almennum mótmælum gegn byggingu hverf- isins. HÚSAGERÐIN ehf. átti lægsta til- boð í lengingu fimleikasalar í Íþróttahúsi Keflavíkur. Leggur for- stöðumaður umhverfis- og tækni- sviðs bæjarins til að tilboði fyrir- tækisins verði tekið. Fimleikasalurinn, sem er hliðar- salur Íþróttahúss Keflavíkur, verð- ur lengdur um 10 metra og er til- gangurinn að bæta aðstöðu fimleikafólks. Komið verður fyrir fimleikagryfju og annarri aðstöðu, þannig að húsið verði löglegur fim- leikasalur, að sögn Viðars Más Að- alsteinssonar, forstöðumanns um- hverfis- og tæknisviðs Reykjanes- bæjar. Tilboð lægstbjóðanda, Húsagerð- arinnar ehf., hljóðar upp á 24,4 milljónir kr. sem er um 1,2 millj- ónum kr. yfir kostnaðaráætlun hönnuða og er munurinn rúm 5%. Fjögur önnur tilboð bárust. Miðað er við að verktaki hefjist handa strax og gengið hefur verið frá verksamningi og að stækkun hússins verði lokið fyrir 15. apríl næstkomandi. Verktakinn á að skila húsinu fullkláruðu að innan og utan. Fimleikasal- ur stækkaður Keflavík ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.