Morgunblaðið - 20.11.2001, Blaðsíða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 47
H A L O G E N P E R U T Í Ð
SJÁÐU HEIMINN Í NÝJU LJÓSI
Árvirkinn
Austurv. 9/Eyrarvegi 29, Selfossi
Geisl i
Flötum 29, Vestm.eyjum
G.H.LJÓS
Garðatorgi 7, Garðabæ
Ljósgjafinn
Glerárgötu 34, Akureyri
Ljós & Orka
Skeifunni 19, Reykjavík
Glitnir
Brákarbraut 7, Borgarnesi
Lónið
Vesturbraut 4, Höfn
Rafþj. Sigurdórs
Skagabraut 6, Akranesi
Rafbúð R.Ó.
Hafnargötu 52, Keflavík
Straumur
Silfurtorgi 5, Ísafirði
S.G. Raftækjaverslun
Kaupvangi 12, Egilsstöðum
PERUBÚÐIR
Minni hiti Meiri ending Meira ljós
Halostar
10-50 W
Tilboð
145 kr.
Decostar
20-50 W
Tilboð
290 kr.
OSRAM
Gefðu
UM helgina voru 15 öku-
menn grunaðir um ölvun
við akstur en 35 um of
hraðan akstur. Nokkuð
var um ölvun, innbrot og slagsmál
um helgina auk þess sem hafa þurfti
afskipti af börnum sem ekki höfðu
aldur til að vera ein á ferli að næt-
urlagi.
Síðdegis á föstudag fór grunsam-
legur aðili inn í bifreið í miðborginni
og ók af stað. Stuttu síðar var bif-
reiðin stöðvuð og skipt um ökumann
en fyrri ökumaðurinn gekk á brott.
Hann var handtekinn vegna gruns
um ölvunarakstur en bifreiðin flutt á
lögreglustöð þar sem vafi reyndist á
eignarhaldi hennar.
Síðla nætur aðfaranótt sunnudags
var tilkynnt um hugsanlega ölvaðan
ökumann á leið frá Hveragerði.
Reynt var að stöðva akstur bifreið-
arinnar á Suðurlandsvegi en án ár-
angurs og þar mátti litlu muna að
ökumaður æki niður lögreglumann
sem var að reyna að stöðva akstur
bifreiðarinnar. Bifreiðinni var ekið á
mikilli ferð og misstu lögreglumenn
sjónar á honum í töluverðan tíma.
Bifreiðin fannst stuttu síðar á hvolfi
utan vegar á Elliðavatnsvegi. Öku-
maður var handtekinn og færður til
blóðtöku og síðan vistaður í fanga-
geymslu.
Gekk út með vörur
án þess að borga
Síðdegis á laugardag var tilkynnt
um konu sem yfirgaf verslun í aust-
urborginni með vörur fyrir talsverða
upphæð. Hún kvaðst ætla að borga
með greiðslukorti en sagðist hafa
gleymt því hjá manni sínum úti í bíl.
Konan fór með vörurnar og kom ekki
aftur en til eru myndir af henni. Þá
var mótmælaganga undir heitinu
„Gegn ofbeldi og stríði“ og voru um
60 manns í göngunni frá Hallgríms-
kirkju að Lækjartorgi. Fundurinn
stóð til kl. 16 og fór friðsamlega
fram.
Talsvert fleira fólk var í miðborg-
inni aðfaranótt sunnudags en nóttina
áður og ölvun var talsverð. Þurfti
lögregla að hafa nokkur afskipti af
fólki af þeim sökum og í nokkrum til-
fellum að skilja menn að vegna slags-
mála en meiðsli voru minniháttar. Þá
var sérstakt eftirlit með ungmenn-
um er ekki höfðu aldur til útivistar
og stóðu að því, ásamt lögreglu á
vakt, starfsmenn ÍTR, Félagsþjón-
ustu og lögreglumenn frá forvarna-
deild. Allmörg börn voru flutt í at-
hvarf.
Slökkvilið og lögregla fór á veit-
ingastað í miðborginni vegna vatns-
leka. Vatnsúðari á klósetti losnaði og
fór vatn um allt gólf og lak niður á
næstu hæð. Staðnum var lokað og
vatnið tekið af húsinu. Þá var til-
kynnt um innbrot í verslun í aust-
urborginni. Þar mun hafa verið stolið
einhverju af hljómtækjum. Einnig
var farið inn á veitingastað í mið-
borginni og stolið skiptimynt.
Mikill erill var hjá lögreglu á
sunnudagsmorgun við að sinna ölv-
uðu fólki sem var til vandræða. Um
kvöldmatarleytið á sunnudag var ek-
ið á gangandi vegfarenda í Fákafeni.
Kenndi hann sér eymsla í hægri öxl
og síðu og var fluttur á slysadeild
með lögreglu. Aðfaranótt mánudags
var tilkynnt um innbrot í hús við
Laugaveg. Þar var stolið verðmæt-
um hljóðfærum.
Úr dagbók lögreglu 16.–19. nóvember
Of ung börn í miðbænum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Högna
Óskarssyni geðlækni:
„Undanfarna tvo daga hefur birst
í fjölmiðlum yfirlýsing frá Lúðvík
Ólafssyni, settum landlækni í „pró-
fessorsmálinu“ svokallaða. Í yfirlýs-
ingu sinni kveðst Lúðvík ekki hafa
brotið stjórnsýslulög með birtingu
sinni á greinargerð sinni um meint
brot mín á læknalögum. Þetta styður
hann þeirri staðhæfingu að ég hafi
notið andmælaréttar meðan á með-
ferð máls stóð og vitnar til greinar-
gerðar minnar frá 20. nóvember árið
2000 og svo til 13. gr. stjórnsýslu-
laga.
Hér fer Lúðvík rangt með. Í 13.
gr. stjórnsýslulaga segir að aðili
máls skuli eiga þess kosts að tjá sig
um efni máls áður en stjórnvald tek-
ur ákvörðun í því. Í bréfi sínu þ. 1.
október 2000 óskaði Lúðvík Ólafsson
eftir athugasemdum mínum við
greinargerð, sem átti að vera sér-
fræðileg gagnrýni á álitsgerð mína,
sem nú er deilt um. Höfundur þeirr-
ar greinargerðar er Bogi Andersen,
sérfræðingur í lyflækningum og
sameindaerfðafræði innkirtlasjúk-
dóma. Í sama bréfi neitaði Lúðvík að
verða við ósk minni um að kæruatriði
yrðu skilgreind og svaraði því til að
„því verður ekki endanlega svarað
fyrr en að verklokum“. Greinargerð
mín frá 20. nóvember 2000 varð
þannig aðeins almenn umfjöllun. Hef
ég því aldrei fengið tækifæri til að
koma að athugasemdum um hin eig-
inlegu kæruatriði sem Lúðvík Ólafs-
son tók til meðferðar og eru nú fyrst
skilgreind í greinargerð hans frá 5.
nóvember s.l.
Þetta viðurkennir hann í raun í
bréfi til mín frá 8. þ.m., en þar segir
hann:
„Í bréfi mínu til yðar dagsettu
5.11.2001 láðist að geta þess frests
sem yður er veittur til andmæla.“
Af þessu er ljóst að tilraun Lúð-
víks Ólafssonar til að afneita broti
sínu á 13. gr. stjórnsýslulaga er full-
komlega marklaus.
Sérkennileg og röng túlkun Lúð-
víks Ólafssonar á stjórnsýslulögum
er áhyggjuefni. Þetta, og málsmeð-
ferð hans öll, vekja upp áleitnar
spurningar um hvort hann sé fær um
að valda því hlutverki sem honum
hefur verið falið sem settum land-
lækni í þessu kærumáli, þ.e. að skoða
málsatvik af hlutlægni og réttsýni.
Mun ég ekki fjalla frekar um
þennan þátt málsins, heldur snúa
mér að því sem mestu skiptir, en það
eru hin efnislegu rök.“
Svar vegna yfirlýsingar
setts landlæknis
HANNES Hólmsteinn Gissurarson,
prófessor í stjórnmálafræði, flytur
erindi á hádegisfundi Félags stjórn-
málafræðinema í stofu 301 í Árna-
garði þriðjudaginn 20. nóvember kl.
12.05-13. Erindið nefnist: „Hvernig
getur Ísland orðið ríkasta land í
heimi?“
Hannes Hólmsteinn ræðir um
hvernig þjóðir verða ríkar, hvers
vegna Ísland var í þúsund ár eitt fá-
tækasta land í Evrópu, hvers vegna
landið varð ríkt þrátt fyrir fremur
slaka hagstjórn á tuttugustu öld og
hvað Ísland geti gert til þess að
verða ríkasta land í heimi. Hann
ræðir meðal annars nýjar mælingar
á atvinnufrelsi í einstökum löndum,
rannsóknir sagnfræðinganna Gísla
Gunnarssonar, Guðmundar Hálf-
danarsonar og Guðmundar Jónsson-
ar, kvótakerfið í sjávarútvegi, virkj-
anir á hálendinu og möguleika
Íslands á að verða alþjóðleg fjár-
málamiðstöð, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Félag stjórn-
málafræði-
nema fundar
Mannréttindaskrifstofa Íslands
efnir til opinnar málstofu um
heimsráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna um kynþáttafordóma, sem
haldin var dagana 31. ágúst til 8.
september sl. í Durban í Suður-
Afríku. Málstofan verður í Litlu-
Brekku, einum sala Lækjarbrekku
við Bankastræti, miðvikudaginn
21. nóvember kl. 17.
Framsögumenn verða Berglind
Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri í fé-
lagsmálaráðuneytinu, Haukur
Ólafsson, sendifulltrúi hjá utanrík-
isráðuneytinu, og Bjarney Frið-
riksdóttir, framkvæmdastjóri Al-
þjóðahúss. Þau voru öll í sendi-
nefndinni sem ráðstefnuna sat af
hálfu Íslands. Umræður verða að
loknum erindum.
Bjarney Friðriksdóttir sat ráð-
stefnuna í Durban fyrir Mannrétt-
indaskrifstofu Íslands, sem hún
hefur stýrt undanfarin fjögur ár,
en hefur nú tekið við forstöðu hins
nýja Alþjóðahúss í Reykjavík. „Við
framkvæmdastjórn Mannréttinda-
skrifstofunnar hefur tekið Margrét
Heinreksdóttir, þjóðréttarfræðing-
ur með megináherslu á mannrétt-
indi,“ segir í fréttatilkynningu.
Málstofa um
ráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna
Ágúst en ekki Katrín
er formaður
Það var ranglega fullyrt í frétt um
landsfund Samfylkingarinnar, sem
birtist í sunnudagsblaðinu, að Katrín
Júlíusdóttir væri formaður Ungra
jafnaðarmanna. Hið rétta er að Ágúst
Ólafur Ágústsson er núverandi for-
maður Ungra jafnaðarmanna. Katrín
er hins vegar fyrrverandi formaður
félagsins. Auk þess var félagsskapur-
inn ranglega nefndur Samband ungra
jafnaðarmanna í fréttinni, en félagið
heitir Ungir jafnaðarmenn. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
Rangur myndatexti
Rangur myndatexti birtist með
frétt um dag íslenskrar tungu á bls. 6
í Morgunblaðinu laugardaginn 17.
nóvember. Réttur texti er: Ráðherra
heilsar upp á nemendur og kennara
Kleppjárnsreykjaskóla í Borgarfirði.
Í myndatextanum var ranghermt
að myndin væri frá Grundaskóla á
Akranesi. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Kynningarfundur
um Skuggahverfi
Í frétt af skipulagstillögu Skugga-
hverfis sem birtist í blaðinu á laug-
ardag var misræmi milli texta og
millifyrirsagnar um fundartíma
kynningarfundar fyrir íbúa. Hið
rétta er að fundurinn verður haldinn
þriðjudaginn 27. nóvember næst-
komandi í Tjarnarsal Ráðhússins og
hefst hann klukkan 17.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá Félagi
heyrnarlausra:
„Félag heyrnarlausra vill koma
því á framfæri við almenning að fé-
lagið standi aðeins fyrir sölu jóla-
korta og happdrættismiða um þessar
mundir. Félagi heyrnarlausra hafa
borist tilkynningar um að penna og
annað sé verið að selja í nafni félags-
ins og biður félagið almenning að
hafa í huga að hér eru ekki á ferðinni
sölumenn frá félaginu.“
Selur aðeins jóla-
kort og happ-
drættismiða