Morgunblaðið - 20.11.2001, Page 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isMunaði einu höggi
hjá Birgi Leifi / B1
Halldór Ingólfsson sterkur
gegn Barcelona / B4
12 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
ÞÓ AÐ Reynisdrangar séu alltaf
eins og á sínum stað er hægt að
taka ótrúlega margvíslegar
myndir af þeim. Um síðustu helgi
var mjög fallegt veður og þegar
sólin, sem er núna mjög lágt á
lofti, sest vestan við drangana
myndast oft tignarleg listaverk í
loftinu. Ljósmyndir af Reynis-
dröngum hafa birst í tímaritum
um allan heim og þær vekja ætíð
hrifningu þeirra fjölmörgu sem
hafa unun af hrikalegu og fallegu
landslagi.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Tignarlegt listaverk
Fagradal. Morgunblaðið.
GRÉTAR Þorsteinsson, forseti
ASÍ, segist ekkert hafa heyrt frá
stjórnvöldum um hugsanlegar að-
gerðir sem væru fallnar til að
treysta forsendur kjarasamninga.
Í dag heldur Alþýðusambandið
fund þar sem fjallað verður um
endurskoðun launaliðar kjara-
samninga. Grétar segist eiga von á
að frá fundinum komi skýr skila-
boð.
Í síðastliðnum mánuði áttu for-
ystumenn ríkisstjórnarinnar og
ASÍ samráðsfund, en tilefni fund-
arins var m.a. gagnrýni frá verka-
lýðshreyfingunni um skort á sam-
ráði ríkisstjórnarinnar við hreyf-
inguna. Á fundinum kom fram hjá
forystu ríkisstjórnarinnar að vilji
er hjá henni til að bæta úr þessu.
Grétar sagði að forysta ASÍ
hefði fengið þau skilaboð á fund-
inum að ríkisstjórnin vildi gera sitt
til að treysta forsendur kjarasamn-
inga og að fljótlega yrði haft sam-
band við verkalýðsforystuna um
leiðir til þess. Hann sagðist hins
vegar ekkert hafa heyrt frá stjórn-
völdum síðan og að hann myndi því
ekki geta fært félögum sínum í
verkalýðshreyfingunni nein skila-
boð á fundinum í dag. Hann sagð-
ist gera ráð fyrir að menn drægju
sínar ályktanir af því.
„Þetta er þegar farið að fara illa
í menn. Ég held að það hafi verið
nokkuð góð sátt um það í þessum
aðdraganda að það væri mikilvægt
að láta á það reyna hvort í sam-
ráðinu við stjórnvöld og Samtök
atvinnulífsins fyndu menn leiðir
sem væru viðunandi. Við lögðum af
stað í þessa vegferð í byrjun sum-
ars og það verður að segjast eins
og er að við sjáum enga viðleitni í
þá átt frá stjórnvöldum að bregð-
ast við. Það eina sem hefur gerst
síðan er ákvörðun Seðlabankans
um vaxtalækkun, sem við töldum
reyndar að hefði mátt koma fyrr.
Við teljum að menn þurfi að ganga
rösklegar til verks og að ákvarð-
anir þurfi að koma með stuttu
millibili um áframhaldandi vaxta-
lækkanir.
„Eldarnir brenna núna“
Við sjáum hins vegar ekki ennþá
það sem ríkisstjórnin ætti að hafa
gert varðandi það eldfima ástand
sem hefur skapast. Það er öllum
kunnugt hvaða skoðun við höfum á
tillögum ríkisstjórnarinnar í
skattamálum. Það er ágætt að
velta fyrir sér hvernig menn ætla
að halda á málum eftir einhver ár
en eldarnir brenna núna,“ sagði
Grétar.
Framkvæmdastjórn Starfs-
greinasambandsins kemur saman
til fundar í fyrramálið til þess að
ræða endurskoðun launaliðar
kjarasamninga en eftir hádegi
hefst fundur um sama mál á vett-
vangi ASÍ.
ASÍ heldur í dag fund um endurskoðun launaliðar samninga
Hafa ekkert heyrt
frá stjórnvöldum
FÉLAGI í Hjálparsveit skáta í
Garðabæ lést á laugardag þegar
hann féll 40 metra ofan í sprungu á
Gígjökli sem er
falljökull úr
Eyjafjallajökli.
Jökullinn er
brattur og erf-
iður yfirferðar
þar sem slysið
varð.
Hinn látni
hét Lárus
Hjalti Ás-
mundsson.
Hann var 20 ára að aldri, fæddur
16. janúar 1981, til heimilis í Dal-
húsum 73, Reykjavík. Lárus
Hjalti lætur eftir sig unnustu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Slysavarnafélaginu Landsbjörgu
var Lárus Hjalti á æfingu á jökl-
inum ásamt 15 félögum sínum úr
Hjálparsveit skáta í Garðabæ þeg-
ar hann féll ofan í sprunguna. Fé-
lagar hans kölluðu þegar eftir að-
stoð og hófu um leið björgunar-
aðgerðir. Sigið var eftir honum
ofan í sprunguna en hann var lát-
inn þegar að var komið. Þyrla
Landhelgisgæslunnar var þá á leið
austur en henni var snúið við.
Um 70 björgunarsveitarmenn,
frá Hellu, Hvolsvelli og Reykjavík,
tóku þátt í björgunaraðgerðum.
Þeir sem voru á æfingunni hafa
fengið áfallahjálp, að sögn Val-
geirs Elíassonar, upplýsingafull-
trúa Landsbjargar.
Lést eftir fall
í jökulsprungu
Lárus Hjalti
Ásmundsson
FRANSKBRAUÐ er rúmlega
1.000% dýrara í Reykjavík en í
London, samkvæmt könnun Neyt-
endasamtakanna á matvöruverði í
fimm höfuðborgum Evrópu.
Könnunin náði yfir 63 vörutegund-
ir og var hæsta verðið í Reykjavík í
28 tilvikum, en í 25 tilvikum í Kaup-
mannahöfn. Í Reykjavík var lægsta
verðið í sex tilvikum.
600 gramma franskbrauð kostaði
190 krónur í Reykjavík en 17 krónur
í London. Guðni Chr. Andreasen,
formaður Landssambands bakara-
meistara, segir af og frá að verðið í
London dugi fyrir hráefninu einu
saman hér á landi. „Ég kann enga
skýringu á þessum gríðarlega verð-
mun. Ég hefði haldið að brauð væri á
svipuðu verði hér og annars staðar á
Norðurlöndunum. Ég tel verðlagn-
ingu brauðs hér á landi sanngjarna
og það er ekki fræðilegur möguleiki
að ná nokkurn tíma verðinu í Lond-
on,“ segir Guðni og telur að íslenskir
bakarar séu almennt með mjög litla
álagningu.
„Ég heyri það á kollegum mínum
að þeir ríða ekki feitum hesti frá
þessum viðskiptum í dag. Róðurinn
er erfiður og menn eru hræddir við
að hreyfa við verði. Miklar hækkanir
hafa gengið yfir frá heildsölunum
sem sjá okkur fyrir hráefni og við
fáum tilkynningar um slíkt nær dag-
lega.“
Könnun sýnir mikinn
verðmun á brauði
„Dugar
ekki fyrir
hráefninu“
Franskbrauð/22