Morgunblaðið - 20.11.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EIGANDI málverks sem sagt var
eftir Jóhannes S. Kjarval tók það
úr sölu á bandaríska uppboðsvefn-
um ebay.com í gær eftir að hafa
fallist á staðhæfingar íslenskra
sérfræðinga þess efnis að verkið
væri eftir Jóhannes Frímannsson.
Kanadamaðurinn, sem rekur forn-
munaverslun í Winnipeg, segir í
samtali við Morgunblaðið að hann
hafi sett málverkið á uppboð á
vefnum fyrir viku í þeirri trú að
það væri eftir Kjarval enda hefði
sérfræðingur í Gimli staðfest að
svo væri. Hugmyndin hefði verið
að fá að vita hvers virði það væri
og gefa síðan Listasafni Gimli það,
en fá skattaafslátt í staðinn.
Viðkomandi „sérfræðingur“
þvertekur fyrir, í samtali við
Morgunblaðið, að hafa staðfest að
málverkið væri eftir Kjarval.
Hann hafi skoðað það að beiðni
eigandans og sagt að það gæti
hugsanlega verið eftir Kjarval en
hann gæti ekki staðfest það því
hann væri ekki sérfræðingur. Hins
vegar hefði málið byrjað þannig að
eigandi málverksins hefði tilkynnt
eldri konu í Gimli ætlun sína. Hún
hefði sagt annarri konu frá því að
eigandi málverks eftir Jóhannes
vildi gefa Gimli það og sú hefði
sagt að væri það eftir Kjarval væri
það mjög verðmætt. Fyrri konan
hefði sagt eigandanum þetta og í
kjölfarið hefði hann verið beðinn
um að skoða málverkið.
Eigandi málverksins segir að
fyrir viku hafi hann sent Lista-
safni Íslands fyrirspurn varðandi
málverkið. Þorbjörg Br. Gunnars-
dóttir, deildarstjóri safna- og sýn-
ingardeildar Listasafns Reykja-
víkur, staðfestir það og segir að
beðið hafi verið um mynd af mál-
verkinu. Myndir hafi borist og
upplýsingar frá eigandanum um
að hann væri búinn að skrá mál-
verkið hjá ebay.com. Í gær var
eigandanum síðan sent bréf þess
efnis að umrætt verk væri ekki
eftir Kjarval. Eigandinn svaraði
strax og spurði hvort Kjarval hefði
áritað einhverja mynd aðeins Jó-
hannes. Í svarinu kom fram að
ekki væri vitað til þess að Kjarval
hefði áritað myndir með sama
hætti og áritunin væri á umræddu
verki.
Í samtali við Morgunblaðið síð-
degis í gær sagði eigandinn að
málið væri úr sögunni og þetta
hefði aldrei verið neitt mál ef hann
hefði fengið umbeðnar upplýsing-
ar þegar eftir þeim hefði verið
óskað, en samanburður á undirrit-
unum sýndi að verkið væri eftir
Jóhannes Frímannsson.
Viðkomandi fornmunasali segir
að þó að hann hafi selt ýmislegt á
Netinu hafi þetta verið í fyrsta
sinn sem hann hafi sett málverk á
uppboð á Netinu. Tilboðin bárust
13. og 14. nóvember og var hæsta
boð 9.100 bandarískir dollarar, um
970.000 kr., en það var undir ótil-
greindri lágmarksupphæð.
Mikilvægt að fá ráðgjöf
Tryggvi P. Friðriksson í Galleríi
Fold segir að yfirleitt sé það þann-
ig að hver sem er geti sett verk á
uppboð á uppboðsvefjum eins og
ebay.com. Eigandinn sé síðan
ábyrgur fyrir því að réttar upplýs-
ingar komi fram, t.d. að málverk
sé eftir þann sem sagt sé að það
sé eftir. Hann segist lítið vita um
uppboð á málverkum á Netinu en
fimm sinnum áður hafi hann rekið
sig á að verið væri að bjóða upp
eitthvað sem ekki hefði staðist.
Hann segist telja að í umræddu
tilfelli hefði eigandinn lítið getað
gert ef hæsta boði hefði verið tek-
ið og viðkomandi neitað að greiða.
Hins vegar væri aðalatriðið að
kaupa ekki hlut á Netinu sem
kostar mörg hundruð þúsund
krónur án þess að fá ráðgjöf hjá
þar til bærum mönnum.
Málverk eign-
að Kjarval
tekið úr sölu
Undirskriftin á málverkinu sem var á uppboðinu.
Morgunblaðið/Kristinn
Undirritun á málverki eftir Jóhannes Frímannsson.
Eigandinn viðurkennir að það sé
eftir Jóhannes Frímannsson
UPPSKIPUN úr hollenska flutningaskipinu Rade-
plein tafðist um tvær klukkustundir í Njarðvíkur-
höfn í gærmorgun vegna mótmæla Sjómannafélags
Reykjavíkur á meintum samningsrofum og starfs-
háttum Atlantsskipa, leigutaka skipsins. Að sögn
Borgþórs Kjærnested, formanns Alþjóðaflutninga-
verkamannasambandsins, hafa hásetar á skipinu
verri kjör en íslenskir hásetar, eða 435 dollara í
mánaðarkaup. Segir hann að Atlantsskipum verði
stefnt fyrir félagsdóm fyrir rof á samningi við
Bandaríkin um flutninga fyrir varnarliðið. Stefán
Kjærnested, framkvæmdastjóri Atlantsskipa, segir
hins vegar að mótmæli sjómannanna hafi verið
ólögleg.
Skipið kom til hafnar í Reykjavík frá Nýfundna-
landi á sunnudagskvöld og var þá 25–30 gámum af
rækju skipað upp úr því. Félagar í Sjómannafélagi
Reykjavíkur hugðu að uppskipun færi fram í gær-
morgun og ætluðu að standa fyrir mótmælum þá
um morguninn en skipið fór kl. 3 aðfaranótt mánu-
dags til Njarðvíkur þar sem skipað var upp vörum
fyrir varnarliðið. Þangað komu um 30 félagar úr
Sjómannafélagi Reykjavíkur um kl. 8 og lögðu bíl-
um sínum undir kranana í höfninni sem hindraði
löndun úr skipinu.
„Þessir flutningar eru brot á samningi við Banda-
ríkin um flutninga fyrir varnarliðið og Atlantsskip-
um verður stefnt fyrir félagsdóm vegna þeirra,“
sagði Borgþór Kjærnested við Morgunblaðið.
„Samningurinn við Bandaríkin var ekki gerður milli
Hollands og Bandaríkjanna, heldur Íslands og
Bandaríkjanna og það er kveðið á um í samningnum
að íslenskt skipafélag skuli sjá um ákveðinn hluta
þessara flutninga en ekki hollenskt félag. Atlants-
skip er ekki skipafélag heldur fyrirtæki.“ Borgþór
segir ennfremur að mótmælendur hafi gert þá
kröfu að íslensk kjör ríktu í íslenskum föstum áætl-
anasiglingum, en mánaðarlaun hásetanna séu 435
dollarar á mánuði, sem er langt fyrir neðan taxta
Alþjóðaflutningaverkamannasambandsins.
Rekið eftir gildandi lögum
Stefán Kjærnested, framkvæmdastjóri Atlants-
skipa, segir mótmæli sjómannanna ólögleg, enda sé
Atlantsskip skipafélag sem rekið sé eftir gildandi
lögum og reglum. Hann segir að skýrt sé kveðið á
um það í íslenskum lögum að skipafélag sé það fyr-
irtæki sem skilgreinir sig í skiparekstri. „Við erum
vissulega í þeim rekstri,“ segir Stefán.
„Radeplein er á tímaleigu, þ.e. við leigjum skipið
með áhöfn og því eru sjómennirnir ekki í vinnu hjá
okkur, heldur eiganda skipsins. Kröfur mótmæl-
enda um að skipverjar í reglulegum siglingum milli
Íslands og annarra landa skuli hafa laun íslenskra
sjómanna eru í samræmi við baráttu sem Sjó-
mannafélag Reykjavíkur hefur háð, en ekki í sam-
ræmi við íslenskt lagaumhverfi. Við förum eftir lög-
um en ekki óskum einstakra stéttarfélaga eins og
Sjómannafélagsins.“
Töf á uppskipun hollensks skips vegna mótmæla sjómanna
Hyggjast stefna Atlants-
skipum fyrir félagsdóm
Morgunblaðið/Hilmar Bragi
Mótmæli sjómanna í Njarðvíkurhöfn fóru friðsamlega fram og voru ekki stöðvuð af lögreglu.
Mótmæli sjómanna ólög-
leg að mati Atlantsskipa
LÖGREGLAN í Kópavogi handtók í
gær mann sem grunaður er um kyn-
ferðislega misneytingu gegn konu,
þ.e. fyrir að brjóta á kynferðislegan
hátt gegn henni án þess að hún komi
við vörnum vegna þess að hún var
rænulaus. Konan kærði atvikið á
sunnudagskvöld.
Lögreglan verst að öðru leyti
fregna af rannsókn málsins en búist
er við að málavextir skýrist fljótlega.
Handtekinn
vegna gruns um
kynferðisbrot
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
TÆPLEGA fertug kona var dæmd í
hálfs árs fangelsi í gær fyrir að
leggja ítrekað með hnífi til dyravarð-
ar Píanóbarsins í Reykjavík í mars í
fyrra. Haldi konan almennt skilorð í
þrjú ár fellur refsingin niður.
Hnífslög konunnar náðu reyndar
ekki í gegnum þykka úlpu sem dyra-
vörðurinn klæddist og meiddist hann
því ekki. Þess er getið í dómnum að
úlpan hafi ekki skemmst við árásina.
Í niðurstöðum Héraðsdóms
Reykjavíkur segir að þrátt fyrir að
hnífurinn hafi ekki verið beittur eða
með mjög hvössum oddi teljist hann
hættulegt tæki sem sé sérlega
áhættusamt að beita gegn mönnum
en hnífurinn sem hún beitti var með
17,5 sentimetra löngu blaði.
Fyrir dómi sagði dyravörðurinn
að konunni hefði verið vísað út vegna
ölvunar. Fyrir utan staðinn hefði
hún verið með líflátshótanir sem
hann tók lítið mark á. Þegar konan
var alllengi búin að reyna að komast
inn hefði hann fundið fyrir tveimur
„pikkum“ í kviðinn. Hann hefði síðan
fengið þrjú til fjögur högg á kviðinn.
Í vottorði geðlæknis kemur fram að
konan hefur átt við endurtekið þung-
lyndi að stríða og notað þunglynd-
islyf að staðaldri. Konan kvaðst hafa
verið undir miklu andlegu álagi á
þessum tíma enda nánast húsnæð-
islaus með þrjú börn sín. Hún bar að
ókunnur maður hefði áreitt sig í síma
á heimili sínu kvöldið fyrir árásina og
hefði dóttir sín orðið hrædd og sett
hnífinn í tösku hennar. Þegar hún fór
út að skemmta sér kvöldið eftir hefði
hún ekki tekið eftir hnífnum.
Valtýr Sigurðsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
Sex mánaða skilorðs-
bundið fangelsi
Hnífslögin
náðu ekki
í gegnum
úlpuna
SIGURBJÖRN Sveinsson, formað-
ur Læknafélags Íslands, kveðst ekki
geta tjáð sig um hugmynd Félags-
þjónustunnar í Reykjavík að bjóða
út læknisþjónustu á nokkrum hjúkr-
unarheimilum í borginni. Fyrst þurfi
hann að sjá útboðsgögn og því geti
hann ekki tjáð sig um þetta tiltekna
útboð. Afhenda á útboðsgögn í dag.
„Viðhorf mitt almennt til þessara
hluta er að mér virðast útboð geta
átt við um læknisþjónustu eins og
aðra þjónustu,“ segir formaðurinn.
„Verkefnin þurfa þá að vera vel skil-
greind. Það hlýtur hins vegar að
vera erfitt að fara þessa leið, þegar
um mjög persónulega þjónustu er að
ræða, sem krefst samhengis í sam-
bandi tveggja einstaklinga, þ.e.
læknis og sjúklings. Það er líka óvíst
hvaða afstöðu Læknafélagið tekur ef
um undirboð á launaliðum tilboð-
anna verður að ræða.“
Formaður
Læknafélagsins
Skilgreina
þarf verk-
efnið vel