Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 20 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                   !" #  $%& # '( )$*$ +, - $  .-(*$ . & #+ /  //0 " %  $%& 1// //22  ' 3 1// //24    #5#& ,#     666,#& ,#7#  spurningum um hvort sjá hefði mátt ofmat Hafrannsóknastofnunarinnar á þorskstofninum fyrir og hvort að koma megi í veg fyrir að slíkt end- urtaki sig. Rosenberg sagði að fyrri athug- anir á stofnstærðarmatinu gæfu til kynna að þær aðferðir sem beitt hefur verið, hafi ofmetið stofninn á undanförnum árum. Hann sagði að ofmat á stofnstærð þorsks á undan- förnum árum mætti hins vegar mun fremur rekja til þeirra gagna sem fyrir lágu og túlkana á þeim, fremur er þeirra aðferða sem beitt var. Til dæmis gæti margt haft áhrif á veið- anleika þorsks en hann sé aðeins metinn út frá þeim gögnum sem fyr- ir liggja. Í svari við fyrirspurn sagði Rose- berg að skekkja í stofnmati Haf- rannsóknastofnunarinnar væri bæði meiri og minni en gerst hafi í öðrum löndum. En þegar horft væri til þeirra áhrifa sem ofmatið hefur hér á landi, svo sem við ákvörðun heild- arafla ársins, væri ofmatið meira en annars staðar. Rosenberg þvertók fyrir að einblína um og of á hinn töl- fræðilega þátt stofnmatsins og láta hinn líffræðilega þátt sitja á hakan- um. Hann sagði almennt viðurkennt að framleiðni fiskistofna ykist þegar veitt væri úr þeim og að taka bæri tillit til þess í stofnstærðarmati. Menn mættu hins vegar ekki ofmeta þessa staðreynd og veiða of mikið. Hann varaði því mjög við aukinni sókn í smáfisk og vitnaði í þeim efn- um til hruns þorskstofnsins á Georges-banka við Norður-Amer- íku. Aðspurður sagðist Rosenberg ekki hafa skoðað sérstaklega áhrif ólíkra umhverfisskilyrða í hafinu kingum Ísland á stofnstærð þorsks en slík athugun væri vissulega á prjónunum. Hann benti hins vegar á að væri mikilvægt að hafa í huga að þó breytingar verði á umhverfisskil- yrðum, þurfi þær ekki endilega að hafa áhrif á dánartölu þorsksins. Hann sagði að umhverfisskilyrði hafi ekki skipt meginmáli við hrun þorskstofnsins við Georges-Banka, þar hafi fyrst og fremst verið um að kenna ofveiði. Dagar grisjunarkenninga liðnir Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar var ánægð- ur með fyrirspurnarþingið við lok þess á laugardaginn. Hann dró nokkra punkta fram í lokin, þar sem hann sagði meðal annars að það væri deginum ljósara að dagar grisjunar- kenningarinar væru liðnir. „Umræðurnar síðastliðna tvo daga hafa verið mikilvægar og gang- legar enda hún í meginatriðum verið málefnaleg,“ sagði Jóhann. „Ég er ekki í vafa um að skoðanaskiptin nú undanfarið, m.a. af frumkvæði Haf- rannsóknastofnunarinnar hafi hefur fært okkur nær hvert öðru á nokkr- um mikilvægum punktum a.m.k. Þegar á heildina er litið, held ég líka að við getum slegið því föstu að ým- islegt hefur skýrst frá því að menn fóru yfir þessi mál í eldheitum um- heildarveiði með hagnýtingu afla- reglunnar. Hjá honum kom fram að verulegt ofmat á þorskstofninum á árunum 1998 og 1999 hafi leitt til of mikillar veiði, miðað við aflaregluna sem tekin var upp árið 1995. Sagði hann að þrátt fyrir það væri þó nokkur árangur af beitingu aflaregl- unnar, þ.e. að leyfð sé veiði á 25% veiðistofns. Þannig hafi fiskveiði- dauði lækkað og veiðistofninn væri ekki að minnka, hann væri jafnstór og árið 1994. Óvissan um stofnmatið væri hins vegar enn meiri en áður var talið. Finna þyrfti leið til að tak- ast á við aflasveiflur, enda væru miklar sveiflur í afla erfiðar og óhag- kvæmar fyrir sjávarútveginn og þjóðarbúið í heild. Taldi Friðrik að minnka þyrfti veiðiálag á stofninum, en það myndi væntanlega leiða til þess að fleiri árgangar bera veiðina uppi, minni sveiflna í stofni og veiði, auk minni kostnaðar við veiðarnar. Ofmatið liggur í gögnum Andrew Rosenberg, fiskifræðing- ur og deildarforseti líffræði- og land- búnaðardeildar háskólans í New Hampshire, hefur að beiðni sjávar- útvegsráðherra nýverið hafið athug- un á nákvæmni stofnstærðar á þorski á Íslandsmiðum og þol afla- reglunar gagnvart skekkjum í mat- inu. Hann sagði á þinginu að mark- mið athugunar sinnar væri að svara Gunnar sagði ljóst að ákveðnir eiginleikar stjórnkerfis fiskveiða hafi bein áhrif á stofnstærðarmat. Þannig þyrfti að taka tillit til eðlis stjórnkerfisins við stofnstærðarmat og fiskveiðiráðgjöf. Sagði Gunnar líklegt að núverandi stjórnkerfi væri ekki nógu öflugt til að stýra veiðum á Íslandsmiðum í átt til hagkvæmni og þess vegna þurfi að bæta við öðr- um stýriþáttum. Til að mynda væri of mikil sókn innbyggð í kvótakerfið, enda væri fiskveiðiflotinn of stór og sóknargetan því verulega umfram þörf. Til dæmi væri hægt að sýna fram á að afkastageta togaraflotans eykst um 4–5% á ári og að taka yrði tillit til slíkra tæknibreytinga. Að- spurður sagði Gunnar erfitt með að meta hver væri hin rétta flotastærð á Íslandsmiðum en hins vegar væri ljóst að ekki þyrfti að stækka flotann til að nýta toppa í stofnstærðinni. Gunnar sagði að önnur stýrikerfi fiskveiða, svo sem úthaldstakmark- anir og svæðalokanir muni auk þess ekki heldur duga einar og sér. Til dæmis væri erfitt að mæla áhrif svæðalokana og til þess að slík væri mögulegt þyrfti að loka mun stærri svæðum en nú er gert. Sagði Gunnar að hagvæmast væri að nota samsett kerfi við stjórn veiðanna og benti á sóknarstýringu í því sambandi. Sam- fara sóknarstýrinu væru hins vegar einnig ýmis vandamál og því væri því engin lausn í því fólgin að kasta kvótakerfinu fyrir róða í stað henn- ar. Aflasveiflur óhagkvæmar Friðrik Már Baldursson, hag- fræðingur og rannsóknaprófessor við viðskipta- og hagfræðideild raun- vísindadeildar Háskóla Íslands, ræddi á þinginu um samspil stofn- stærðarmats og ákvörðunar um SJÁVARÚTVESGRÁÐHERRA, forstjóri Hafrannsóknastofnunar og vísindamðurinn Andrew Rosenberg telja að of mikið veiðiálag sé skýr- ingin á slakri stöðu þorskstofnsins hér og vísa á bug öllum kenningum um svokallaða grisjun á fiskistofnun til að auka afrakstur þeirra. Jafn- framt telur sjávarútvegsráðherra að Hafrannsóknastofnun hafi staðizt vel þá gagnrýni sem á störf hennar kom. Gunnar Stefánsson tölfræðing- ur segir að hagvæmast sé að nota samsett kerfi við stjórn fiskveiðanna og benti á sóknarstýringu í því sam- bandi. Þetta kom fram á fyrirspurnar- þingi sjávarútvegsráðuneytisins 16. og 17. nóvember sl. Tilefni þingsins var að ræða verulegt ofmat Haf- rannsóknastofnunar og þorskstofn- inum en undanfarin tvö ár hafa væntingar um stækkun þorskstofns- ins og auknar veiðiheimildir í kjölfar þess ekki staðist. Á fyrirspurnar- þinginu voru ræddar forsendur og aðferðir vísindamanna á sviði stofn- stærðarmats fiskstofna frá ýmsum sjónarhornum, í þeim tilgangi að fá opna gagnrýni og rökstudda um- ræðu um málefnið. Stjórnkerfi hefur bein áhrif á stofnstærðarmat Gunnar Stefánsson, tölfræðingur og dósent við stærðfræðiskor raun- vísindadeildar Háskóla Íslands, ræddi á þinginu hagnýtingu niður- staðna Hafrannsóknastofnunar við veiðiráðgjöf. Hann sagði að komið hafi í ljós að talsvert meiri breyti- leiki væri í vistkerfinu en reiknað var með og að til staðar væri meiri óvissa en yfirleitt var gert ráð fyrir. Með aukinni óvissu þyrfti að tak- marka aflann frekar en áður var tal- ið. ræðum fyrir rúmum áratug enda langtíma vöktun og rannsóknir und- anfarinna ára skilað mikilvægri þekkingu. Marktækt samband milli hrygningarstofns og nýliðunar Í fyrsta lagi hlýtur það að teljast markvert að í dag eru ekki aðeins sterkar vísbendingar um að sam- band hrygningarstofns og nýliðunar sé fyrir hendi, sem ekki var óeðlilegt að álykta hér áður fyrr þó umdeilt hafi verið, heldur er sambandið nú tölfræðilega marktækt eins og fram kom í erindi Björns Ævarrs Stein- arssonar í gær. Þetta helgast af hinni að okkar mati óæskilegu til- raunastarfsemi sem minnkun hrygningarstofnsins hefur verið. Í öðru lagi erum við uppekin í dag af þeim uppgötvunum sem fram hafa komið um erfðabreytileika þorsk- stofnsins við Ísland eða stofneininga þorsks, sem gerðar hafa verið af Ólöfu Dóru Jónsdóttur, Önnu Dan- íelsdóttur og fleirum. Við hljótum að rannsaka þetta frekar og stefna að því að stýra veiðunum í vaxandi mæli á grundvelli þekkingar um frekari stofnskiptingu þorsks. Þar með myndu aukast líkur á að ekki sé gengið á einstaka stofnhluta því auð- velt er að ímynda sér að ástand þeirra sé nokkuð breytilegt. Við vit- um jafnframt að stofneiningarnar blandast mikið á veiðislóð sem gerir málið flóknara í framkvæmdalegu tilliti. Það er áreiðanlegt að erfða- breytileikinn í stofninum er eitt af lykilatriðum þess hve afraksturs- mikil skepna þorskur á Íslandsmið- um er. Mikið ríður á að ganga ekki á þennan breytileika sem svo vel hefur reynst í gegnum árþúsundin. Og meðan vitneskjan enn er ekki meiri um þennan þátt er eina ráðið að tryggja framtíð fjölbreytileikans að stilla veiðum í hóf, minnka sóknina. Stóru hrygnurnar mikilvægar „Í þriðja lagi eru rannsóknir Guð- rúnar Marteinsdóttur, Björns Gunn- arssonar og fleiri á hrygningareðli þorsks enn nýr þáttur í okkar vitn- eskju frá því fyrir 10 árum eða svo sem miklu um munar. Við höfum rætt um stóru hrygnurnar og mik- ilvægi þeirra, sem m.a. kallar á að sérstaklega þarf að huga að verndun þeirra og í raun veit á mikilvægi þess að nýtingarstefna þorskstofns- ins í framtíðinni taki mið af stofn- samsetningunni á hverjum tíma. Þannig rýmast skoðanir Sveinbjörns Jónssonar í þessum efnum vel innan viðhorfa okkar á Hafrannsókna- stofnuninni. Það er hins vegar deginum ljósara dagar grisjunarkenningarinnar eru liðnir. Þvert á móti sýnist mér lítill ágreiningur vera um það að sóknin hafi verið of þung á undanförnum áratugum sem sé meginástæða okk- ar stöðu í dag. Þeir erlendu sérfræð- ingar sem hér töluðu í dag undir- strikuðu þetta rækilega. Í ljósi þeirrar auknu óvissu í stofnmati sem fram hefur komið, þarf jafnframt að „Tími grisjun- arkenninga er liðinn“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra ræðir við gesti á fyrirspurnarþingi um starfsemi Hafrannsóknastofnunar og stofnstærðarmat hennar á þorski. Með honum á myndinni eru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir alþingismaður og Þórður Ásgeirsson fiskistofustjóri, en í forgrunni eru Matthías Á. Mathiesen, fyrrverandi viðskiptaráðherra og faðir Árna, og Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu. Ánægja með fyrirspurnarþing sjávarútvegsráðuneytisins um hafrannsóknir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.