Morgunblaðið - 20.11.2001, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.11.2001, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 31 væri liður i hún m.a. kir náms- sem þeir um vegna málum. ga við er- Auður að markaða í vert að at- ð mál sem að móður- r, þvínæst væri nauð- u sér full- pti á kín- vo að slík menn. öld ján Árna- málnefnd- Málstefna málnefnd að gerð til- mótun þar á að kraft- efðu fram fremst að .e. spurn- ungumáls- aðla, sem ara sé að r langar“. il kominn umfangs- ð íslenskri n lyti að ungumála ætti kenna tungumál dæmi, þ.e. egna þess yfir þann eina sem m þennan ja skýrslu forstöðu- ðvar sem Norrænu m megin- eindist að, ölmiðlum, m og at- að hafa ur síðast- um hvað rstakri at- rfsemi Ís- hafi t.d. afnan töl- 0 erlendu væri við- pu Íslend- ðum sín á egrar ná- ályktun að vanda ís- þar sem ar íslensk sem blasa 21. öldinni þá, að samhengi íslensks ritmáls haldist og saga íslensks máls lengist, eða að erlendir málstaðlar ryðji þeim innlendu úr vegi. Þriðji mögu- leikinn væri að nýr ritmálsstaðall, þ.e. nokkurs konar nýíslenska, yrði látinn þróast með því að breyta að einhverju marki þeirri stefnu sem viðurkennd hefur verið. Sagði Krist- ján fyrsta kostinn þann eina sem hægt væri að mæla með, því að með því yrði lifandi tengslum við íslensk- an bókmenntaarf viðhaldið og stað- all sem byggðist á sögulegum grunni ætti auðveldara með að takast á við. „Verði teknir hér upp erlendir mál- staðlar verður Ísland jaðarsvæði, án miðju. Þ.e. menningarleg og pólitísk miðja flyst úr landi. Gera má ráð fyr- ir að það afbrigði heimsmálsins sem hér myndi þróast ætti í jafnmikilli og raunar meiri vök að verjast gegn umheiminum og sá staðall sem við búum við. Eina raunhæfa lausnin virðist að viðhalda íhaldssemi,“ sagði Kristján að lokum. Breytileiki tungumálsins Karl Blöndal, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, ræddi aðlögunar- hæfileika tungumálsins í erindinu „Safngripur eða lifandi verkfæri?“. Minnti Karl í fyrstu á að tungumálið væri fullkomnasta kerfi sem þekkt- ist til að koma hugsunum á fram- færi. En til þess að tungumál fengju staðið af sér umbreytingar yrðu þau að fá að þróast. „Ein forsendan fyrir því að tungumál haldi velli er að það haldi takti við tímann. Ef tungan breytist í safngrip hættir hún að vera nothæf og eitthvað annað verð- ur að taka við. Því má ekki umgang- ast tunguna eins og safngrip, sem ekki má snerta nema til að þurrka af honum rykið. Það má heldur ekki umgangast tunguna eins og sjúk- ling, sem ekki er hugað líf,“ sagði Karl og ítrekaði það að tungumálið yrði að vera nothæft fólki úr öllum atvinnugreinum. Við mótun og viðhald slíks tungu- máls sagði Karl fjölmiðla gegna miklu ábyrgðarhlutverki. Lagði hann þar áherslu á blæbrigðaríkt mál, ekki síður en rétt mál, því tungumálið væri okkar helsta verk- færi til tjáningar og miðlunar merk- ingar. Tók hann að lokum undir með Kristjáni Árnasyni um að skynsam- leg íhaldssemi skyldi höfð að leiðar- ljósi við mótun íslenskrar málstefnu, þannig að haldið yrði í grundvallar- þætti málsins um leið og því yrði gef- ið svigrúm til heilbrigðrar þróunar. „Þótt íslensku sé að finna á söfnum er hún ekki safngripur enn,“ sagði Karl Blöndal að lokum. Egill Helgason blaðamaður var síðastur á mælendaskrá og er óhætt að segja að hann hafi hitað vel upp fyrir pallborðsumræður fyrirlesara og þinggesta sem við tóku. Varpaði Egill fram þeirri spurningu hvort ís- lenskan væri ekki í raun prísund, sem við Íslendingar sætum fastir í. Vegna smæðar íslensks málsvæðis væri okkur illmögulegt að leita at- vinnutækifæra og búsetu í löndum þar sem mannfjöldi væri meiri og tækifærin fleiri. Sagði hann jafn- framt enskukunnáttu Íslendinga stórlega ofmetna, og spurði hvort farsælla væri að leyfa íslenskunni að lúta í lægra haldi fyrir enskunni, ef þróunin stæði í þá átt. Í pallborðsumræðum var hug- myndin um íslensku sem menning- arlegt fangelsi rædd ennfremur. Komu Kristján Árnason og Auður Hauksdóttir m.a. fram með það sjónarmið að hið litla málsvæði ís- lensku yrði einmitt til þess að Ís- lendingar leituðu þekkingar og bú- setu til annarra þjóða og öðluðust þar af leiðandi víðsýni. Eftir áfram- haldandi líflegar umræður með þátt- töku þinggesta sleit Jóhann Guðni Reynisson fundarstjóri sjötta mál- ræktarþingi. afngrip- i tæki“ Jim Smart fhendir rgarhá- ngi. heida@mbl.is Á FUNDI launanefndarsveitarfélaganna og tón-listarskólakennara sl.föstudag lagði launa- nefndin fram nýjar hugmyndir að lausn. Annars vegar um skamm- tímasamning sem gildi til 31. júlí á næsta ári. Hugmynd nefndarinnar var að nefnd fagaðila og samnings- aðila fjallaði um kerfisbreytingar á tónlistarskólanum og þær breyting- ar gætu verið valkvæðar. Þessari hugmynd höfnuðu tónlistarskóla- kennarar. Sigrún Grendal Jóhann- esdóttir, formaður Félags tónlistar- skólakennara, sagði að tónlistar- skólakennarar væru búnir að gera einn skammtímasamning og reynsl- an af honum væri þannig að þeir teldu ekki ástæðu til að gera annan slíkan samning. Launanefndin varpaði einnig fram þeirri hugmynd að gera samn- ing til nóvembermánaðar 2004. Samningurinn átti að fela í sér 32% byrjunarhækkun að meðaltali en auk grunnsamnings verði ákvæði samin með fagaðilum um valkvæð- ar leiðir um aukna þjónustu sem einstök sveitarfélög gætu keypt af tónlistarskólakennurum. Sigrún sagði að tónlistarskóla- kennarar útilokuðu ekki að skoða þessa leið frekar. Ekkert viðbótar- fjármagn hefði hins vegar verið að finna í þessu tilboði. Úr því yrði að bæta ef þessi hugmynd ætti að geta orðið grundvöllur að samningi. „Staðreyndin er sú að hvorki tón- listarskólarnir né sveitarfélögin hafa lagt sérstaklega mikla vinnu í að ákveða hvernig tónlistarskólinn eigi að líta út í framtíðinni. Mikil vinna var á sínum tíma lögð í að móta framtíðarsýn grunnskólans og kjarasamningurinn sem gerður var um síðustu áramót byggðist að nokkru leyti á þeirri sýn,“ sagði Birgir Björn Sigurjónsson, formað- ur samninganefndar launanefndar sveitarfélaganna. 13 mánaða kjaraviðræður Segja má að kjaraviðræður tón- listarkennara og sveitarfélaganna hafi staðið með hléum í 13 mánuði. Kjarasamningur félagsins rann út um síðustu áramót en þar sem illa gekk fyrir samningsaðila að ná samkomulagi ákváðu þeir að gera skammtímasamning sem rann út 31. júlí. Þegar samningurinn var undirritaður lýsti launanefnd sveit- arfélaganna yfir vilja til að ljúka gerð langtímasamnings í maí. Það gekk hins vegar ekki eftir. Launa- nefndin gerði tónlistarskólakennur- kennslutíma. Ekki hafi heldur verið gert ráð fyrir fleiri starfsdögum og ekki hafi verið gert ráð fyrir að tón- listarkennar skiluðu meiri vinnu ut- an kennslu. Sigrún sagði að þarna væri ekki farið rétt með af hálfu launanefnd- ar. Tilboð launanefndar sem lagt hefði verið á borð tónlistarskóla- kennara gerði ráð fyrir kennslu í 36 vikur eins og í grunnskólum. Til- boðið gerði einnig ráð fyrir veruleg- um breytingum á starfstíma tónlist- arskóla. Hún sagði að tónlistar- skólakennarar hefðu fallist á sambærilega vinnu undir stjórn skólastjóra og í grunnskólum. Þá mætti ekki gleyma því að vikulegur vinnutími í grunnskólum hefði verið styttur í síðustu samningum um 2,91 klst. Ekki mætti heldur gleyma því að árleg vinnuskylda í grunnskólum og tónlistarskólum yrði hin sama eftir samning, eða 1.800 klukkustundir miðað við þeirra eigin tilboð. Birgir Björn sagði að kennslu- skylda í grunnskólum væri 18,67 tímar á viku og kennsluvikurnar væru 37. Samkvæmt kjarasamningi tónlistarskólakennara væri kennsluskylda þeirra 19,5 stundir á viku og kennsluvikurnar væru 36. Þetta segði hins vegar ekki alla sögu vegna þess að önnur ákvæði samningsins og gerði það að verk- um að kennsla í tónlistarskólum stæði ekki nema í 31–33 vikur. Kennslumagnið í tónlistarskólum væri því minna en í grunnskólum og launin hlytu að taka við af því. Í kjarasamningi við grunnskóla- kennara er kennsluskylda kennara í fullu starfi 28 kennslustundir á viku eða 18,67 klukkustundir. Kennarar sem náð hafa 55 og 60 ára aldri geta fengið afslátt frá kennsluskyldu gegn samsvarandi vinnu við önnur störf í skóla þó þannig að á móti hverri kennslu- stund (40 mínútum) sem felld er niður komi vinna í eina klukkustund (60 mín). Á heimasíðu launanefndar segir að kennsluskylda tónlistar- skólakennara sé minni en grunn- skólakennara. Meðalkennsluskylda þeirra sé 18,55 stundir á viku sam- kvæmt sameiginlegu úrtaki. Tónlistarskólakennarar eru ekki sáttir við þennan samanburð og segja að miðað við upplýsingar frá FT og FÍH frá árinu 1997 megi áætla að meðalkennsluskylda allra tónlistarkennara á landinu sé á bilinu 19,3–19,4 tímar á viku. færa „sporslur“ inn í taxta. „Við tókum inn í grunnlaun grunnskólakennara greiðslur fyrir umsjón með bekk, en það á ekki við um tónlistarskólakennara. Við tók- um inn í taxta árganga- og fag- stjórn, en það á ekki heldur við um tónlistarskólakennara. Við tókum inn í taxtann greiðslur fyrir umsjón með tækjum og það á í sjálfu sér ekki heldur við. Við tókum líka inn í taxta grunnskólakennara greiðslur fyrir yfirferð yfir heimanám nem- enda. Það á ekki við um tónlistar- skólann. Þessi munur á skólunum gerir okkur erfitt fyrir að yfirfæra samn- ing grunnskólakennara yfir á tón- listarkennara,“ sagði Birgir Björn. Til viðræðu um hagræðingu Sigrún sagði að tónlistarkennar- ar hefðu í viðræðum við launa- nefndina lýst sig tilbúna til að koma á móts við kröfur sveitarfélaganna um hagræðingu og breytingar á skipulagi skólastarfs. Það hefði hins vegar enn sem komið væri ekki dugað til að koma hreyfingu á við- ræðurnar. Aðalatriðið væri þó að sveitarfélögin hefðu einfaldlega enn sem komið væri ekki verið tilbúin til að reiða fram nægilegt fjármagn. Sigrún sagðist vera mjög óánægð með vinnubrögð launanefndarinn- ar. Nefndin hefði fyrir helgi sett inn á heimasíðu sína upplýsingar um stöðu viðræðnanna þar sem rangt væri farið með staðreyndir. Á heimasíðu launanefndar segir að við samanburð á tilboði launa- nefndar til tónlistarskólakennara og grunnskólakennara verði að hafa í huga að í samningi grunn- skólakennara hafi sveitarfélögin verið að kaupa aukna vinnu. Skóla- tími nemenda hafi verið lengdur úr 170 dögum í 180 daga, starfsdögum kennara utan kennslutíma hafi ver- ið fjölgað úr 10 í 12 og tími utan kennslu undir stjórn skólastjóra hafi verið lengdur úr þremur tímum á viku í 9,14 klukkustundir. Í tilboði launanefndar til tónlistarkennara hafi hins vegar ekki verið gerð nein krafa um lengingu skóla- eða um tilboð í maí en því höfnuðu kennarar og má segja að síðan hafi lítið þokast í viðræðunum. Sigrún Grendal sagði að megin- krafa tónlistarskólakennara væri að laun þeirra yrðu þau sömu og annarra kennara. Lengst af hefðu laun tónlistarskólakennara verið þau sömu og framhaldsskólakenn- ara. Áður en að kennarar gerðu kjarasamninga um síðustu áramót hefðu meðaldagvinnulaun tónlistar- skólakennara verið 5–10% lægri en laun annarra kennara. Ef tónlistar- skólakennarar tækju tilboði launa- nefndar sveitarfélaganna yrði launamunurinn hins vegar 18–28%. Byrjunarlaun tónlistarskóla- kennara samkvæmt gildandi kjara- samningi eru tæplega 105 þúsund krónur á mánuði. Launanefndin hefur boðist til að hækka byrjunar- launin í tæplega 147 þúsund krón- ur. Byrjunarlaun grunnskólakenn- ara eru hins vegar rúmlega 166 þúsund og byrjunarlaun framhalds- skólakennara eru 179 þúsund. Birgir Björn sagði að eitt af því sem gerir lausn kjaradeilunnar erf- iða væri að tónlistarskólarnir og grunnskólarnir væru sumu leyti ólíkar stofnanir og því væri ekki einfalt mál að yfirfæra kjarasamn- ing grunnskólakennara yfir á tón- listarkennara. „Við vorum að gera miklar breyt- ingar á störfum og kjörum grunn- skólakennara í samningnum sem gerður var í byrjun ársins. Tals- verður hluti af hækkun þeirra á taxtalaunum var fjármagnaður með því að við vorum að taka alls kyns yfirvinnugreiðslur inn í grunnlaun- in. Við skertum alls kyns afslætti sem fólk hafði haft á vinnuskyldu. Við vorum að lengja starfstíma skólans. Við vorum að auka vinnu þeirra inn í skólanum. Ég sé ekki fyrir mér að við gerum umtalsvert meiri launabreytingar hjá tónlistar- skólanum öðruvísi en að það væri vegna einhverra slíkra breytinga.“ Birgir Björn var spurður hvort kjarasamningur tónlistarskóla- kennara biði upp á einhverjar slíkar breytingar, þ.e. hvort hægt væri að Verkfall tónlistarkennara hefur staðið í fjórar vikur Lausn kjaradeilunn- ar ekki í augsýn Verkfall tónlistarskólakennara hefur nú staðið í fjórar vikur. Bendir flest til að enn sé talsvert í lausn deilunnar þrátt fyrir að reynt sé að leysa hana á nýjum forsendum. Egill Ólafsson kynnti sér stöðuna. egol@mbl.is UM 1.500 manns mættu á baráttufund tónlistar- skólakennara sem haldinn var í Háskólabíói á sunnudaginn. Sigrún Grendal Jóhannesdóttir, formaður Félags tónlistarskólakennara, sagði að þessi góða þátttaka færði tónlistarskóla- kennurum aukinn kraft og sannfæringu um að þeir væru á réttri leið í baráttu sinni fyrir bætt- um kjörum. Á fundinum var flutt tónlist og gestir ávörp- uðu fundinn. Þau sem fram komu voru Sinfón- íuhljómsveit Íslands, Karlakór Reykjavíkur, Karlakórinn Fóstbræður, Ólafur Kjartan Sig- urðsson, Stórsveit Reykjavíkur og Stuðmenn. Ávörp fluttu Eiríkur Jónsson, formaður Kenn- arasambands Íslands, Sigrún Grendal Jóhann- esdóttir, formaður Félags tónlistarkennara, og Björn Th. Árnason, formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna. Sérstakir heiðursgestir á fundinum voru Guðmundur Jónsson óperu- söngvari, Rögnvaldur Sigurjónsson píanóleik- ari, Ágúst Einarsson prófessor og Þórólfur Þórlindsson prófessor. Fjölmenni á baráttufundi Morgunblaðið/Jón Svavarsson Háskólabíó var fullt á baráttufundi tónlistarskólakennara á sunnudaginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.