Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 37
fiú safnar punktum hjá okkur...
me› flví a› nota Fríkorti› á næstu vikum.
En flú getur líka unni› utanlandsfer› fyrir
200.000 krónur e›a vöruúttekt fyrir jólin.
Í hvert sinn sem flú framvísar kortinu á tímabilinu 20.nóv. til 23.des.
fer nafni› flitt í pott. Ef flú framvísar flví tíu sinnum áttu tíu „mi›a“ í
pottinum flegar a›alvinningurinn ver›ur dreginn út á fiorláksmessu.
Aukavinningar ver›a dregnir út vikulega.
fiú safnar au›vita› punktum
Alveg gæti ég flegi› utanlandsfer› fyrir
fjölskylduna me› flví a› safna punktum. Nú
e›a vöruúttekt fyrir 10.000 krónur! Svo má
tvöfalda möguleikana me› flví a› svara
nokkrum spurningum á www.frikort.is
Lífi› á sína gó›u punkta!
Váá!
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 37
Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433.
Hnepptar peysur
Blússur
Mikið úrval af fallegum
hnepptum peysum og blússum
MÉR VAR nokkuð
skemmt þegar ég las
grein Ólafs Hannibals-
sonar í Morgunblaðinu
4. október sl. og aðra
eftir Einar Karl Har-
aldsson í Fréttablaðinu
daginn eftir.
Greinin var æru-
meiðandi og villandi.
Ólafur Hannibalsson
hélt því fram að
Bandaríkin veittu
hryðjuverkamanni
skjól og að George W.
Bush forseti ætti þess
vegna að framselja
mig til Íslands svo
hægt yrði að lögsækja
mig.
Fyrir hvað? Ég veit ekki til þess
að ég hafi verið ákærður eða að Ís-
lendingar hafi óskað eftir því að ég
verði framseldur. Reyndar fór ég til
Íslands í janúar 1988 til að svara
orðrómi um ákæru á hendur mér
fyrir að sökkva helmingi íslenska
hvalveiðiflotans með því að opna
botnhlera hvalveiðiskipa í nóvember
1986, en mér var þá sagt að engar
ákærur yrðu birtar á hendur mér
eða áhöfn minni.
Ástæðan var augljós. Íslendingar
vildu ekki fjölmiðlaumfjöllunina,
sem myndi fylgja réttarhöldum yfir
mér, og að flett yrði ofan af broti Ís-
lendinga á reglum Alþjóðahvalveiði-
ráðsins.
Herra Hannibalsson og Haralds-
son (hljómar eins og persónur í
gamanleik) lýsa því svo yfir að ég
hafi verið útilokaður frá landvist í
Evrópu. Þessi staðhæfing er ekki
trúverðug. Reyndar var ég í Belgíu,
Hollandi og á Ítalíu alveg nýverið.
Ég hef oft farið til Evrópu frá
1986 og skip mín hafa
margsinnis siglt til
Evrópu, undir minni
stjórn, síðast í maí á
liðnu ári.
Ef ég er lögbrjótur
á Íslandi ættu þeir að
tilgreina hvaða lög ég
hef brotið. Mér hefur
aldrei verið skýrt frá
neinu slíku broti. Hafi
verið gefin út heimild
til að handtaka mig,
hvers vegna hef ég þá
ekki fengið hana? Það
er hægurinn hjá að
finna mig hafi lögregl-
an fengið slíka heimild.
Íslendingar hafa aldrei
sent Bandaríkjunum, Kanada eða
Evrópuríki beiðni um að ég verði
framseldur.
En til hægðarauka fyrir þessa tvo
viðvaninga í blaðamennsku, sem
virðast telja að staðreyndir skipti
ekki máli, skal ég með glöðu geði
koma til Íslands biðji Íslendingar
mig um það. Það er engin þörf fyrir
framsal. Verði ég ákærður svara ég
ákærunni. Vilji Íslendingar leiða
mig fyrir rétt þá fagna ég tækifær-
inu til að beina athyglinni að sorg-
legri sögu ólöglegra hvalveiða Ís-
lendinga og ólöglegra og skaðlegra
fiskveiða þeirra.
Í Alaska er til orðtak sem hljóðar
svo: „Orðagjálfur er ódýrt, en viskí
kostar peninga.“
Þetta á vel við um Ólaf Hanni-
balsson og Einar Karl Haraldsson.
Orðagjálfur er ódýrt, strákar; hvar
eru sannanirnar sem renna stoðum
undir innantómu orðin sem þið spú-
ið að hætti ómerkilegrar ræsis-
blaðamennsku?
Í greininni er aðgerðum Sea
Shepherd líkt við gerðir Osama bin
Ladens. Haldið þið að George W.
Bush forseti eða einhver í banda-
ríska utanríkisráðuneytinu myndi
taka slíka ásökun alvarlega? Ég tel
að þeir sem skrifa þetta ættu að
fletta upp á orðinu „hryðjuverka-
maður“ í orðabókinni.
Ef ég er hryðjuverkamaður væri
gott ef þeir útskýrðu fyrir mér
hvers vegna George W. Bush forseti
sæmdi mig verðlaununum „Daily
Point of Light“ fyrir störf mín í
þágu náttúruverndar í júní 1999?
Ég hef einnig fengið stuðningsyfir-
lýsingu fyrir baráttu mína gegn
hvalveiðum frá Bill Clinton, fyrrver-
andi forseta, og fjölda bandarískra
þingmanna.
Ólafur Hannibalsson og Einar
Karl Haraldsson ættu að fara aftur
í blaðamannaskóla til að fá almenni-
lega fræðslu um notkun staðreynda
og sönnunargagna í blaðaskrifum.
Ég trúi því ekki að blöð ykkar líði
svona óvandaða blaðamennsku.
Ef þið hafið eitthvað að segja þá
skulið þið segja það, en reynið að
fara rétt með staðreyndir.
Ódýrt orðagjálfur
Paul
Watson
Hvalveiðar
Ég skal með glöðu
geði koma til Íslands,
segir Paul Watson,
biðji Íslendingar
mig um það.
Höfundur er skipstjóri,
formaður og stofnandi náttúru-
verndarsamtakanna Sea Shepherd.