Morgunblaðið - 20.11.2001, Síða 40

Morgunblaðið - 20.11.2001, Síða 40
MINNINGAR 40 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Haukur Torfa-son, útsölustjóri ÁTVR á Akureyri, fæddist á Akureyri 8. júlí 1953. Hann lést á Akureyri 12. nóv. síð- astliðinn. Foreldrar hans eru Ólöf Val- gerður Jónasdóttir, húsfreyja, úr Vogum í Mývatnssveit, f. 21. júlí 1916, og Torfi Vilhjálmsson, hús- vörður, frá Torfunesi í Kinn, f. 20. mars 1918. Torfi lést í bíl- slysi 16. júlí 1966. Haukur var yngstur þriggja bræðra. Elstur er Jónas Valgeir, bifvélavirki, f. 27. maí 1942, kvæntur Sigríði Aðalbjörgu Whitt, f. 16. feb. 1944. Þau eiga þrjú börn. Pétur, verkfræðingur, f. 28. apríl 1946, kvæntur Ólínu Fjólu Hermannsdóttur, f. 14. des. 1945. Þau eiga tvo syni. Hinn 21. ágúst 1976 kvæntist Haukur Kristínu Gunnarsdóttur, f. 21. ágúst 1956 á Akureyri. Krist- ín er dóttir Guðrúnar Sigbjörns- dóttur frv. tryggingafulltrúa, f. 8. okt. 1925, og Gunnars Steindórs- sonar frv. kennara, f. 14. sept. 1923. Kristín á þrjá bræður, Stein- dór, Sigbjörn og Gunnar. Haukur og Kristín eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Katrín Hólm, háskólanemi, f. 7. maí 1976, unnusti Kristján Eldjárn Sighvats- son, stýrimaður, f. 3. sept. 1975. 2) Kristbjörg Anna, nemi, f. 6. nóv. 1979. 3) Gunnar Torfi, nemi, f. 25. jan. 1983. Haukur ólst upp í Eyrarveginum á Ak- ureyri. Hann lærði ketil- og plötusmíði í Slippstöðinni á Ak- ureyri og starfaði þar að iðn sinni þar til hann varð fyrir al- varlegu vinnuslysi og gat ekki stundað erfiðisvinnu upp frá því. Haukur varð framkvæmdastjóri Vinnumiðlunar á Ak- ureyri 1982 þar til hann varð út- sölustjóri ÁTVR á Akureyri 1987 og gegndi því starfi til dauðadags. Ungur gerðist Haukur félagi í KA, en fótbolti átti alla tíð hug hans. Hann sat í aðalstjórn KA og var framarlega í flokki knatt- spyrnudómara og gegndi þar trúnaðarstörfum. Þá sinnti Hauk- ur, sem og Kristín, eiginkona hans, alla tíð ýmsum störfum fyrir KA. Haukur gekk snemma til liðs við Alþýðuflokkinn og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Hann sat í stjórn Alþýðuflokksfélags Akureyrar og einnig í stjórn kjör- dæmisráðs Alþýðuflokksins í Norðurlandi eystra. Haukur hefur um nokkurra ára skeið starfað með Oddfellowreglunni á Akur- eyri. Útför Hauks verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Svili, mágur og vinur er látinn langt um aldur fram. Haukur Torfason ólst upp við ást- ríki í Eyrarveginum á Akureyri, hjá foreldrum og ásamt tveimur eldri bræðrum. Haukur var yngstur þeirra þriggja. Haukur gekk hefð- bundnar brautir þeirra tíma. Hann lauk gagnfræðaprófi og síðar iðn- námi í Slippstöðinni á Akureyri. Að námi loknu starfaði hann að iðn sinni þar til vinnuslys batt enda á þann starfsvettvang. Síðan starfaði Hauk- ur við Vinnumiðlunarskrifstofu Ak- ureyrar og gerðist útibússtjóri ÁTVR á Akureyri 1987 og gegndi því starfi til dauðadags. Haukur tengdist fjölskyldu okkar 1976 þegar hann kvæntist mágkonu okkar og systur. Fyrir þann tíma höfðum við bæði þekkt Hauk frá ungum aldri mjög. Haukur var ör- litlu yngri en við. Auk þess lágu leið- ir okkar saman í íþróttum og stjórn- málum. Haukur var mikill og eindreginn KA-maður. Hann lék knattspyrnu og handknattleik með KA á sínum yngri árum, en tókst síð- ar á ævibrautinn við forystustörf í KA. Hann sat í aðalstjórn KA og lík- ast til fleiri stjórnum. Auk þess hasl- aði Haukur sér völl meðal knatt- spyrnudómara um árabil og gegndi forystustörfum á þeim vettvangi. Hin síðari ár önnuðust þau hjónin kaffiveitingar í leikhléi á kappleikj- um KA auk fjölda fleiri viðvika sem þau unnu fyrir félagið. Haukur var í öflugum innri hóp eldri KA-manna sem spiluðu fótbolta einu sinni til tvisvar í viku og hafa alla tíð lagt fé- laginu mikið lið. Haukur var alinn upp í skjóli öfl- ugra jafnaðarmanna. Foreldrar hans voru félagar í Alþýðuflokknum alla tíð og lögðu drjúga hönd á plóginn í hinni pólitísku baráttu. Því var það eðlilegur framgangsmáti þegar Haukur gekk í Alþýðuflokkinn. Þar sat hann í stjórn Alþýðuflokksfélags Akureyrar og í stjórn kjördæmis- ráðs flokksins í Norðurlandskjör- dæmi eystra. Við áttum iðulega inni- haldsríkar umræður um pólitíkina. Ekki vorum við alltaf algerlega sam- mála um útfærslur einstakra mála en jafnaðarhugsjónin réð ríkjum í hjörtum okkar allra. Hin síðari ár höfðum við ekki flokksvettvang fyrir skoðanir okkar. Það dró þó ekki úr gjöfulum umræðum. Haukur Torfason var mikið val- menni. Við minnumst þess ekki að illu hafi andað til Hauks frá nokkrum manni. Hann var ætíð reiðubúinn til að rétta hjálparhönd og fór ekki í manngreinarálit í þeim efnum enda búinn undir lífið af fjölskyldu sinni á þann hátt. Haukur var vinsæll maður hvort heldur á starfsvettvangi eða í fé- lagslífi. Hann var glaðsinna og kátur dags daglega þrátt fyrir að undir- tónn alvöru byggi með honum hið innra. Þrettán ára gamall varð Haukur fyrir þeirri þungbæru reynslu að lenda í bílslysi ásamt foreldrum sín- um. Hann og móðir hans máttu horfa upp á eiginmann og föður látast í því slysi. Sá atburður hafði gríðarlega mikil áhrif á óharðnaðan ungling. Eitt sinn ræddi hann þau mál lítil- lega við okkur en hann bar ekki til- finningar sínar á torg. Það var raun- ar svo að Haukur átti alla tíð erfitt með að ræða opinskátt um það sem á honum hvíldi. Það var miður. Marg- sinnis höfðum við reynt að fá hann til að opna hug sinn, en hann bægði eig- in vandamálum burt en var boðinn og búinn að liðsinna öðrum í erfið- leikum þeirra Með Hauki Torfasyni er genginn einn allra besti maður sem við höfum kynnst. Hann reyndist fjölskyldu sinni einstaklega vel. Eiginkona og börn bjuggu við mikið ástríki. Sama verður sagt um aldraða móður, bræður og tengdafólk og aðra þá sem honum stóðu nærri. Ótímabært andlát Hauks kemur mörgum í opna skjöldu og reynir á. Eftir lifir minn- ing um einstakt valmenni sem ekk- ert skyggir á. Okkur sem eftir lifum verða ekki færðar betri gjafir. Elsku Kristín, Katrín, Kristbjörg og Gunnar. Megi trúin á hið góða lifa með ykkur. Guðbjörg, Sigbjörn börn og barnabörn. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi, það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Mig langar með nokkrum orðum að minnast Hauks, pabba hennar Kötu minnar. Ég man nú ekki hvenær ég hitti hann fyrst, enda svo langt síðan og ég bara lítill krakki. En stundirnar sem ég átti á heimili hans voru ótelj- andi. Haukur var góður maður sem átti yndislega fjölskyldu og alltaf var maður velkominn á heimili þeirra hjóna. Matarboðin eru óteljandi og oft var setið og spjallað og hlegið við eldhúsborðið fram á nótt. En nú er Haukur farinn og margir eiga um sárt að binda. Elsku Kristín, Kata, Kristbjörg, Gunni og aðrir aðstandendur, megi ykkur hlotnast sá styrkur sem þið þurfið á halda á þessum erfiðu tím- um. Innilegar samúðarkveðjur frá mér og fjölskyldu minni. Nína. Hvernig er hægt að setjast niður og skrifa minningargrein um vin sem fer alltof fljótt, um vin sem ætlaði að halda upp á sameiginlegt fimmtugs- afmæli með mér eftir tvö ár. Það er sárt og mig skortir orð, ég hef örugg- lega ekki verið nógu dugleg, Haukur minn, að klappa þér á bakið og láta þig vita hversu vænt mér þykir um þig og hversu yndisleg persóna þú ert. Ég hlakkaði alltaf til að hitta þig og sjá glettna brosið þitt og fá ein- hverjar „pillur“ sem þér fannst við- eigandi. Þessu tók ég sem gagn- kvæmri væntumþykju. Ég horfi á yndislegu börnin þín og sé þig spegl- ast í þeim. Þau og Kristín frænka hafa misst mikið en eiga í hjarta sér minningar um yndislegan eiginmann og föður. Ég, Tryggvi og börnin okk- ar, Anna Rún, Sigga og Alli kveðjum Hauk með trega. Megi góður guð styrkja ástvini hans og vini. Aðalbjörg Þorvarðardóttir. Það er sunnudagur 11. nóvember. Við félagarnir tínumst inn í KA- heimilið einn af öðrum, höfum fata- skipti, leikum fótbolta í eina og hálfa klukkustund, förum í sturtu, heitan pott og fáum okkur síðan hefð- bundna hressingu í sófanum. Við ræðum að sjálfsögðu um fótbolta, lít- illega um heimsmálin og leggjum á ráðin um næsta fagnað. Síðan kveðjumst við og hver fer sína leið. Svona hafa flest sunnu- dagssíðdegi gengið fyrir sig hjá fjór- tán gömlum KA-félögum síðastliðin tíu ár. Í þessum félagsskap er ekki mikið rætt um persónulega hagi hvers og eins, heldur er um að ræða hóp sem kemur saman til að gleyma amstri hversdagsins og iðka þá íþrótt sem við teljum merkilegasta allra íþrótta. Þegar við vinirnir kvöddumst, þreyttir en endurnærðir á sál og lík- ama, eftir ánægjulega samveru og gengum út í milt vetrarveðrið, reikn- uðum við með að hittast allir kátir og hressir næsta sunnudag. Sú varð því miður ekki reyndin, því einn af okkar kæru félögum, Haukur Torfason, lést að morgni mánudagsins 12. nóvember. Þegar ég hugsa til baka til þessa sunnudags, þegar við kvöddumst glaðir í bragði á tröppum KA-heim- ilisins, koma mér í hug orð skáldsins úr Eyrarveginum, nágranna Hauks: Þú skynjaðir gest, sem var genginn í hlað, og glæddir þá ljósið á kveiknum. Þú lézt ekki vita, – samt vissirðu það, þig var hann að dæma úr leiknum. (HG.) Góður drengur og gamall leik- félagi hefur verið dæmdur úr leik langt fyrir aldur fram. Sunnudagarnir hjá okkur verða aldrei samir, gleðistundirnar verða tregablandnar, því nú vantar einn í hópinn. Á þessari sorgarstundu sendum við Kristínu og börnum, aldraðri móður, bræðrum og öðrum ættingj- um okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Fyrir hönd fótboltafélaganna, Guðmundur Heiðreksson. Það er með miklum trega og eft- irsjá að ég kveð Hauk Torfason úr fjarlægð í dag. Enda þótt við hefðum ekki mikið saman að sælda síðustu 18 árin, vegna þeirrar fjarlægðar sem skildi okkur að, þá lágu samt alltaf þræðir á milli okkar. Ég kynntist Hauki fyrst fyrir milligöngu Kristínar konu hans, sem verið hefur mér kær frá því hún var í barnæsku. Mér leist strax vel á piltinn, þekkti enda til fólks hans beggja megin frá. Föðurfólkið, sveitungar mínir, mesta sómafólk. Móðurfólkið, frændfólk ágætt úr Mývatnssveit. Sterkir voru þeir stofnar og góðir sem að Hauki stóðu. Þann arf fannst mér Haukur ávaxta vel. Ágæti sitt bar hann þó ekki á torg. Um varir hans lék gjarnan feimn- islegt bros og augun gáfu skilaboð um að inni fyrir byggi viðkvæm sál. Haukur var ætíð hlýr í viðmóti og glaður þegar fundum okkar bar sam- an. Aldrei heyrði ég hann leggja nema gott til mála. Hann kom sér líka hvarvetna vel. Störfum sínum gegndi hann af samviskusemi og tillitssemi við sam- verkamenn sína. Haukur var ungur settur til mannaforráða og á þeim trúnaði níddist hann aldrei. Mér hlotnaðist sú ánægja að fá að gefa þau Kristínu saman í Akureyr- arkirkju og síðan að skíra börnin þeirra eitt af öðru. Það var mér síðan gleðiefni að fylgjast með þroskaferli fjölskyld- unnar. Þann gróðurreit umhyggju og kærleika, sem heimili þeirra var, ræktaði Haukur af stakri prýði. Þar er missirinn mestur. Ég sendi Kristínu, börnunum og aðstandendum öllum mínar innileg- ustu samúðarkveðjur og bið góðan Guð að leggja þeim líkn með þraut. Blessuð sé minning Hauks Torfa- sonar. Jón A. Baldvinsson, London. HAUKUR TORFASON Davíð Osvaldsson útfararstjóri Sími 551 3485 • Fax 568 1129 Áratuga reynsla í umsjón útfara Önnumst alla þætti Vaktsími allan sólarhringinn 896 8284 ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. Sími 562 0200 Erfisdrykkjur                          !" !! ! !# !   $"  %        !"" !#" !"" $% !"" &'  '('!'  ")!*+ **+ )***+,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.