Morgunblaðið - 20.11.2001, Síða 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 49
GARÐYRKJUFÉLAG Íslands efnir
til fræðslufundar í Norræna húsinu,
miðvikudaginn 21. nóvember kl. 20.
Aðalsteinn Sigurgeirsson, for-
stjóri Rannsóknarstöðvar Skóg-
ræktar ríkisins á Mógilsá og Guð-
mundur Halldórsson skordýra-
fræðingur á Mógilsá flytja erindi
um ryðsveppi á ösp og gljávíði,
hvers sé að vænta og hvað sé til
ráða. Spurningum verður svarað.
Inngangseyrir er krónur 500.
Fræðslufundur
um ryðsvepp
Á DEGI íslenskrar tungu kom út
kynningarbæklingur um íslensku á
vegum menntamálaráðuneytisins.
Bæklingurinn ber heitið Íslenska – í
senn forn og ný, og er gefinn út á
dönsku, ensku, frönsku og þýsku,
auk íslensku.
Menntamálaráðuneytið gefur
bæklinginn út í samstarfi við Ís-
lenska málstöð og landsnefnd um
evrópskt tungumálaár 2001. Einnig
styrkti utanríkisráðuneytið út-
gáfuna. Markmiðið með útgáfu
bæklingsins er meðal annars að
kynna íslenska tungu á erlendri
grund og meðal erlendra ferða-
manna á Íslandi.
Í kynningarbæklingnum er greint
frá þeim einkennum og sérkennum
íslenskrar tungu, sem gjarnan vekja
áhuga og athygli erlendra manna,
s.s. beygingakerfi og nafnasið.
Fjallað er um skyldleika tungunnar
við önnur mál, notkun hennar frá
upphafi Íslandsbyggðar og sam-
hengi í íslensku máli og bókmennt-
um. Þá er einnig gerð grein fyrir ís-
lenskri málstefnu, s.s. áfram-
haldandi varðveislu tungunnar og
nýyrðasmíð.
Kynningar-
bæklingur um
íslenska tungu
AÐALFUNDUR ABC-hjálpar-
starfs verður haldinn í Safnaðar-
heimili Grensáskirkju, miðvikudag-
inn 21. nóvember kl. 17.15. Farið
verður yfir ársreikning starfsins fyr-
ir síðasta starfsár og fyrirliggjandi
verkefni. Fundurinn er öllum opinn,
en stuðningsaðilum og sjálfboðalið-
um er sérstaklega boðið til hans.
Aðalfundur ABC-
hjálparstarfs
GUNNLAUGUR Sigurðsson fé-
lagsfræðingur og lektor við Kenn-
araháskóla Íslands heldur fyrirlest-
ur á vegum Rannsóknarstofnunar
KHÍ miðvikudaginn 21. nóvember
kl. 16.15 í sal Sjómannaskóla Íslands
við Háteigsveg og er öllum opinn.
Í fyrirlestrinum fjallar Gunnlaug-
ur um yfirstandandi rannsókn sína á
stöðu fullorðinna í hugarheimi ís-
lenskra barna í nútímanum og þætti
fullorðins fólks í vitundarlífi þeirra.
Einnig verður fjallað sérstaklega
um ,,aukapersónurnar“ í lífi ís-
lenskra barna, það fullorðna fólk
sem ekki stendur börnunum næst en
hefur þó, eftir atvikum, tekið á sig
skýra mynd í huga þeirra og er hluti
af heimssýn barnanna, segir í frétta-
tilkynningu.
Fyrirlestur um
kynslóðabilið HERRA Ísland 2001 verður valinn á
Broadway fimmtudaginn 22. nóvem-
ber. Nítján herramenn alls staðar að
af landinu keppa. Kynnar verða
Bjarni Ólafur Guðmundsson og Mar-
grét Rós Gunnarsdóttir.
Keppendur koma fram í opnunar-
atriði sem er tískusýning frá Hanz.
Björn Már Sveinbjörnsson afhendir
arftaka sínum Herra Íslands-sprot-
ann, sem er farandgripur og tákn
keppninnar. Helgi Björnsson syngur
lög úr Rolling Stones-sýningunni,
Pétur pókus töfrar gesti og Védís
Hervör Árnadóttir syngur fyrir mat-
argesti. Dómnefnd skipa: Hafdís
Jónsdóttir, Sigurjón Örn Þórsson,
Védís Hervör Árnadóttir, Reynir
Logi Ólafsson og Elín Gestsdóttir.
Húsið verður opnað kl. 19.30.
Keppninni verður sjónvarpað beint á
SkjáEinum.
Herra Ísland
MENNINGAR- og friðarsamtök ís-
lenskra kvenna halda almennan fé-
lagsfund í dag, þriðjudaginn 20. nóv-
ember, í MÍR-salnum að Vatnsstíg
10, kl. 20.
Gerard Lemarquis hefur fram-
sögu og ræðir um hvernig konur eru
notaðar á stríðstímum. Almennar
umræður verða á eftir og boðið verð-
ur upp á veitingar. Fundurinn er öll-
um opinn.
Erindi um konur
á stríðstímum