Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 5
tökustöðum. Sum atriðanna voru
tekin við Gloucester-dómkirkju og
Durham-dómkirkju, en þær eru báð-
ar frá um 1100. Christ Church Col-
lege við Oxford-háskóla kom einnig
við sögu. Oxford Divinity School er í
hlutverki skólaspítalans og Bodleian-
bókasafnið breyttist í bókasafn
Hogwarts-skóla. Kastali hertogans
af Norðumbralandi og skógarnir á
landareigninni eru einnig áberandi í
myndinni. Breska ferðamálaráðið
ætlar að nýta sér vinsældir Harry
Potter og hefur látið útbúa sérstakt
kort, þar sem merkt er við helstu
tökustaðina. Hins vegar var megnið
af myndinni tekið í risastóru kvik-
myndaveri.
Auk barnanna leikur fjöldinn allur
af þekktum, breskum leikurum í
myndinni. Í þeim hópi eru t.d. Rich-
ard Harris, sem leikur Dumbledore
skólastjóra, Zoë Wanamaker leikur
fröken Hooch, kennara í töfrakúst-
flugi og Quidditch dómara, Robbie
Coltrane leikur Rubeus Hagrid
skógarvörð, og Maggie Smith leikur
McGonagall prófessor, sem kennir
ummyndun.
Höfundurinn, Joanne Kathleen
Rowling, átti stærstan hlut í að velja
þessa leikara, því hún lét kvikmynda-
gerðarmennina fá lista yfir þá sem
henni fannst best passa í hlutverkin.
Þeir sem unnu að myndinni segja að
hún hafi ótrúlega yfirsýn yfir allar
söguhetjur bóka sinna. Það hafi kom-
ið oftar en einu sinni fyrir að hún hafi
bannað kvikmyndagerðarmönnun-
um einhverjar smávægilegar breyt-
ingar, með vísan til þess að þá gengi
söguþráðurinn í sjöttu eða sjöundu
bók ekki upp. Sjö ára skólaganga
Potters virðist því nánast fullmótuð í
huga rithöfundarins, þótt ekki séu
komnar út bækur nema um fyrstu
fjögur árin. Sú fimmta kemur út á
næsta ári.
Hvernig er neistaflug úr
töfrasprotum?
Að sama skapi komu kvikmynda-
gerðarmennirnir aldrei að tómum
kofunum hjá Rowling um önnur at-
riði, til dæmis hvaða litur ætti að vera
á keppnisbúningum Quidditch-lið-
anna eða hvernig neistar kæmu úr
töfrasprotum. Ýmislegt, sem líklega
mun aldrei koma fram í bókunum, er
fullmótað í huga hennar. Hún hefur
til dæmis skýrt frá því að hún viti ná-
kvæmlega hvernig æska Severus
Snape var, en hann kennir töfra-
drykkjagerð við Hogwarts. Steve
Kloves handritshöfundur sagðist
hafa spurt hana um móður Harry
Potters og fjölskyldu hennar og feng-
ið greið svör. Í blaðaviðtölum hefur
hún sagt að það sé henni eðlilegasti
hlutur í heimi að móta ævi söguhetja
sinna frá vöggu til grafar, þótt hún
riti aðeins um hluta hennar. Með
þessu móti nái hún að setja sig í fót-
spor söguhetjanna og það tryggi að
hún geti ritað um viðbrögð þeirra við
hverju sem á dynur.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 B 5