Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 17
Gönguleyfi eru nauðsynleg. Þau má kaupa í Kathmandu eða Pokhara fyrir helmingi minni upphæð en ef greitt er fyrir þau í fyrsta gönguþorpi. Besti tíminn til að ferðast um Nepal er í október/nóvember þegar regntímanum er nýlokið. Febrúar til apríl er næstbesti tíminn. Tímamunur eru 5 klst. og 45 mínútur. Vegabréfsáritanir eru nauð- synlegar og fást við komu á flugvellinum í Kathmandu. 1 nepölsk rúpía = 1,47 krónur. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 B 17 ferðalög njóta fegurðar fjallanna í Nepal. Leiðin er vel þekkt og vinsæl þannig að auðvelt er að rata hana, ef menn vilja ganga á eigin vegum. Auk þess eru mörg þorp á leiðinni og margir heimamenn á ferð sem hægt er að spyrja til vegar. Samt sem áður get- ur líka verið hentugt að ganga þessa leið með burðarmanni og leiðsögu- manni til að fá fróðleikinn um svæðið beint í æð og sleppa við að bera þungan bakpokann í þunnu fjalla- loftinu. Ég læt Harald Örn Ólafsson um að ganga upp í grunnbúðir Everest fjalls og þaðan upp á tind, en sjálf sá ég um að fljúga upp til Jomsom, sem er í 2.700 metra hæð, og ganga þaðan til byggða. Leiðin liggur þá að mestu leyti á jafnsléttu eða niður á við að unda- skildum einum degi þar sem gengið er frá þorpinu Tatopani, sem er í 1.180 metra hæð, að þorpinu Ghor- apani í 2.775 metra hæð, en í Tatop- ani eru meðal annars heitar lindir. Gengnir eru u.þ.b. 20–25 km á hverj- um degi. Ef menn kjósa, geta þeir bætt tveimur dögum í gönguna með því að ganga frá Jomsom til Mukt- inath, sem er áfangastaður píla- gríma af Búdda- og Hindúatrú. Í gömlu musteri í Muktinath brennur hinn eilífi logi og er hann meðal þess NEPAL hefur verið vinsælt meðal ferðamanna undanfarin ár. Morðin á konungsfjölskyldunni fyrr á þessu ári og óstöðugt pólitískt ástand hafa þó haft einhver áhrif á fjölda ferða- manna sem þangað hefur komið í ár. Nýlega voru þó gefnar út yfirlýsing- ar um að ástandið væri öruggt fyrir ferðamenn og ætti því að vera óhætt að fara þangað á næstunni. Flestir ferðamenn koma til Nepal til að fara í gönguferðir um magnað fjalllendi landsins. Vinsælustu gönguferðirnar eru annars vegar þriggja vikna gönguferð upp að grunnbúðum Everest og hins vegar þriggja vikna hringferð í grennd við Ann- apurna-fjallgarð- inn. Síðarnefnda kostinn þarf reyndar ekki að ganga allan og það er einmitt val sem margir nýta sér. Á miðri leið, í smáþorpinu Jomsom, er flugvöllur, en margir nýta sér að hefja gönguna þaðan eftir að hafa flogið þangað – eða ljúka henni þar og fljúga heim. Með því fæst u.þ.b. sex til sjö daga löng gönguferð um hásléttur og fjallgarða Nepals. Áfangastaður pílagríma í 3.800 metra hæð Gönguferðin er mjög hentug fyrir þá sem ekki hafa tíma til að ganga í þrjár vikur, en vilja samt sem áður sem dregur trúaða pílagríma og þreytt göngufólk upp í 3.800 metra hæð. Gönguferð frá Muktinath um Kali Gandaki-dalinn og niður til borgar- innar Pokhara er bæði fögur og hæfilega erfið. Á milli þess sem mað- ur nýtur guðdómlegrar náttúrufeg- urðar innan um hvíta tinda Annap- urna-fjallgarðsins stoppar maður í litlum þorpum til að gista og fá sér að borða. Þorpin eru oft mjög forvitni- leg og falleg auk þess sem þau eru mörg mjög gömul. Íbúar þeirra taka ferðafólki oftast mjög vel þrátt fyrir að flestir tali litla eða enga ensku. Sumir eru þó greinilega orðnir þreyttir á stöðugum straumi vel bú- inna vestrænna göngugarpa og nenna ekki lengur að kasta kveðju á þá eða leyfa þeim að taka myndir af sér. Gisting og matur eru mjög ódýr á þessum slóðum og mun ódýrari en í höfuðborginni Kathmandu. Sé ferðast með ferðaskrifstofu má gera ráð fyrir að borga töluvert hærri upphæð fyrir ferðina en ef ferðast er á eigin vegum. Það sem mesta undrun vekur á þessari leið er að mæta mjóslegnum mönnum með heilt hænsnabú á bak- inu eða litlum börnum með stóra kassa – og að minnsta kosti fimm kílómetrar í næsta þorp. Þótt náttúrufegurð Nepal sé ótrú- leg og nánast engu lík verðskuldar skrautleg menningin einnig athygli og gott að gera ráð fyrir viku eða meira til að sinna henni alfarið. Morgunblaðið/Ragna Sara Landslagið í Nepal er yfirþyrmandi, hrikalegt og fallegt. Hér hvílist þreyttur burðarmaður og nýtur útsýnisins yfir Annapurna-fjöllin. Hátindar Nepals Tenglar: Allar praktískar upplýsingar: www.trekinfo.com www.travel-nepal.com Fréttir: www.nepalnews.com Fróðleiksmolar ferðalangsins Ragna Sara Jónsdóttir rsj@mbl.is                              MOLAR fiú safnar punktum hjá okkur... me› flví a› nota Fríkorti› á næstu vikum. En flú getur líka unni› utanlandsfer› fyrir 200.000 krónur e›a vöruúttekt fyrir jólin. Í hvert sinn sem flú framvísar kortinu á tímabilinu 20.nóv. til 23.des. fer nafni› flitt í pott. Ef flú framvísar flví tíu sinnum áttu tíu „mi›a“ í pottinum flegar a›alvinningurinn ver›ur dreginn út á fiorláksmessu. Aukavinningar ver›a dregnir út vikulega. fiú safnar au›vita› punktum Alveg gæti ég flegi› utanlandsfer› fyrir fjölskylduna me› flví a› safna punktum. Nú e›a vöruúttekt fyrir 10.000 krónur! Svo má tvöfalda möguleikana me› flví a› svara nokkrum spurningum á www.frikort.is Lífi› á sína gó›u punkta! Váá!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.