Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.11.2001, Blaðsíða 18
Jeep Liberty 210 hestafla. Skemmtileg hönnun og góður í akstri utan vega sem innan  SUZUKI er að kynna Wagon R í nýrri útgáfu í Japan þessa dagana. Wagon R er mjög vin- sæll bíll í Japan og einn af söluhæstu bílunum þar í landi. Nýi bíllinn kallast Wagon MR og hefur fengið nútímalegra útlit. Farnar eru skörpu línurnar og kassalagið. Fyrst um sinn er bíllinn boðinn með tveimur mismunandi bensínvélum sem smíðaðar eru að stærstum hluta úr áli. Þar er um að ræða 54 og 60 hestafla vélar. Þetta er lítill og afar hentugur borgarbíll með beygjuhring upp á aðeins 4,2 metra. Ekki er ljóst hvenær nýi bíllinn verður seldur í Evr- ópu. Líklegt þykir þó að frumkynning á bílnum verði einhvern tíma á næsta ári. Nýr Wagon R  FLESTIR sem fylgjast með bílum vita að von er á nýjum Range Rover snemma á næsta ári. Færri vita hins vegar að tilbúinn Range Rover af nýju kynslóðinni var fluttur hingað til lands í haust og ljósmyndaður í íslenskri náttúru fyrir auglýsingar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Land Rover kýs Ís- land sem verustað því sl. haust var efnt til kynn- ingar meðal bandarískra bílablaðamanna á Land Rover Freelander V6. Auglýsingar gerðar á Íslandi  OPEL Vivaro var kjörinn sendibíll ársins 2002 í Danmörku á dögunum. Vivaro og systurbíllinn Ren- ault Trafic fengu 108 stig af 110 stigum mögulegum en fyrir valinu stóð ellefu manna dómnefnd Félags danskra bílablaðamanna. Vivaro fékk 52 stigum meira en næstu bílar. Opel Combo varð síðan í þriðja sæti í valinu. Leyfileg heildarþyngd hins nýja Vivaro er 2,8 tonn og ber hann allt að 1,2 tonn. Í umsögn dómnefndar sagði m.a. að bíllinn hefði aksturseiginleika eins og fólksbíll. Vivaro sendibíll ársins í Danmörku PEUGEOT 307 hefur verið val- inn bíll ársins 2002 í Evrópu. Þetta er eftirsóttasti titill sem bílaframleiðendum stendur til boða í Evrópu og rós í hnappagat Peugeot. Í næstu tveimur sætum voru Renault Laguna og Fiat Stilo. Síðan komu Mini Cooper, Honda Civic, Citroën C5 og Jag- uar X-type. Í fyrra var Alfa Romeo 147 val- inn bíll ársins í Evrópu og hafði sigur af Ford Mondeo með einu stigi. 29 bílar kepptu um útnefn- inguna að þessu sinni en á end- anum voru 7 bílar eftir. Mæli- kvarðarnir eru verð og nýjungar á sviði öryggis, umhverfisvernd og daglegt notagildi. Í dómnefnd eru 56 bílablaðamenn frá flestum löndum Evrópu. Peugeot 307, bíll ársins í Evr- ópu 2002, er að mörgu leyti ein- hver mest spennandi bíll síðari ára. Í umsögn um bílinn á þessum síðum í ágúst sl. var þess m.a. get- ið að við hönnun bílsins tókst að skapa fremur lítinn bíl með mjög mikið innanrými, meira en í mörgum stærri bílum. Auk þess er bíllinn afar þægilegur í allri umgengni og auðvelt að stíga inn og út úr honum. Hann skortir í engu rómaða aksturseiginleika Peugeot og veggrip. Eftirtektar- vert er t.d. hve þetta hár bíll er reistur í beygjum og laus við að leggjast til. Hann er sömuleiðis vel búinn og vandaður frágangur blasir hvarvetna við. Með 1,6 l vél kostar fimm dyra gerðin af Peug- eot 307 frá 1.699.000 kr. Peugeot 307 – bíll ársins í Evrópu Morgunblaðið/Jim Smart Peugeot 307, bíll ársins í Evrópu.  Peugeot 307 – 286 stig.  Renault Laguna – 244 stig.  Fiat Stilo – 243 stig.  Mini Cooper – 213 stig.  Honda Civic – 174 stig.  Citroën C5 – 119 stig.  Jaguar X-type – 96 stig. Sjö efstu bílarnir Verð: 1.699.000 kr. Vél: 4 strokkar, 1.587 rsm, 110 hestöfl við 5.750 sn./mín., 147 Nm tog við 4.000 sn./ mín. Hröðun: 11,6 sek- úndur úr kyrrstöðu í 100 km/klst. Hámarkshraði: 190 km/klst. Eyðsla: 7,2 lítrar í blönduðum akstri. Lengd: 4,20 m. Hæð: 1,51 m. Breidd: 1,75 m. Þyngd: 1.310 kg. Tölur um Peugeot 307 XR 1,6 DÍSILBÍLAR eru að meðaltali um 50 kg þyngri en bensínbílar en þeir eyða engu að síður að meðaltali 28,6% minna af eldsneyti en bens- ínbílar. Í samantekt Bílgreinasambandsins sést að meðaleyðsla bensínbíla 1.528 kg til 2.095 kg þungra er 10,15 lítrar á hverja 100 km meðan með- aleyðsla dísilbíls er 7,52 lítrar á hundraðið. Eyðsla miðað við hvert kg er m.ö.o. að jafnaði 0,0063 lítrar hjá bensínbílum en 0,0045 lítrar hjá dís- ilbílum. Auk þess leiðir skoðun Bílgreinasambandsins til þeirrar nið- urstöðu að mun minna magn af koltvísýringi er í útblæstri dísilbíla en bensínbíla. Að jafnaði blása dísilbílar frá sér 199 grömmum af koltvísýr- ingi á hver ekinn kílómetra en bensínbílar 243 grömmum. Dísilbílar eyða og menga minna                                ! "! "  #$% " " # $$ " !! &$ & & ! &# ! !%!  !& %!$ %# '!!   !" "#$%   '  (               ! !!!%! !!!%$ !!! !!!% !!!%! !!!% !!!%$ !!!%$ !!!%# !!!%# !!!%# &"!'#"#$%   '  )             $ !!!"# !!!" !!!"! !!!"" !!!"! !!!"% !!!" !!!"& !!!"% !!!! !!!" '!!                 

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.