Morgunblaðið - 25.11.2001, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 25.11.2001, Qupperneq 12
12 B SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ langa sögu en þarna var fyrst far- ið að rækta vínvið upp úr 1692. Það var hins vegar ekki fyrr en á níunda áratug að fyrirtækið fékk nafn sitt eftir að Hans Schreiber keypti búgarðinn af Bairnsfather- Cloete fjölskyldunni og breytti því úr Alphen í Stellenzich. Nú er það með þeim mest spennandi í Suður-Afríku og hefur ekki síst vakið athygli fyrir að vera brautryðjandi í ræktun á Shiraz í landinu. Stellenzicht Chardonnay 1998 SUÐUR-afrísk vín verða stöðugt algengari sjón þótt þau hafi í upp- hafi verið lengi að ryðja sér til rúms hér á landi. Nú eru þau hins vegar farin að skipa sér samhliða öðrum nýjaheimsvínum frá t.d. Chile og Ástralíu. Stellenzicht er eitt þeirra suður-afrísku fyr- irtækja sem hafa verið að vekja stöðugt meiri athygli alþjóðlega en það er til húsa við rætur Held- enberg-fjallanna milli Stellenbosch og Atlantshafsins. Ekrur Stellenzicht eiga sér er feitt í nefi, þykk vanilla, smjör og ristaður viður í bland við þroskaðan ávöxt. Í munni þétt með miklum ávexti og feitri eik, stórt og karaktermikið Char- donnay. Stellenzicht Shiraz 1997 er dimmt, þarna er mikill jarðvegur, tóbak og sultaður ávöxtur. Í munni reykur og þroskaður ávöxt- ur. Klassískt suður-afrískt gæða- vín, með myrkum og jarðbundnum tónum, lakkrís og kryddi. Steingrímur Sigurgeirsson Vín vikunnar Stellenzicht Morgunblaðið/Sverrir REYNISVATN útivistarperla Reykjavíkur Þann 1. nóvember s.l. hætti Ólafur Skúlason afskiftum af rekstri Reynisvatns. Af því tilefni vill Ólafur þakka þeim þúsundum viðskipta- og veiðimanna sem heimsóttu Reynisvatn á undanförnum árum. Á þeim tíma (1993 - 2001) veiddust u.þ.b. 110 þúsund laxfiskar í vatninu. Ennfremur vill Ólafur þakka starfsmönnum frábært og óeigingjarnt starf í sína þágu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.