Morgunblaðið - 25.11.2001, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 25.11.2001, Qupperneq 26
26 B SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ bíó ENGINN veit hversu lengi vel- gengni varir í Hollywood; gæfan þar er hverfulli en annars staðar. Hins vegar ber mönnum saman um að staða ungra leikkvenna þar í borg hafi aldrei verið sterkari, möguleikarnir fleiri og meiri. Án þess að ég hafi gert á því könnun er það nokkuð víst að Hollywood-myndir hafa gegnum tíðina oftar reitt sig á karlstjörnur en kvenstjörnur. Og í seinni tíð, þegar kvikmyndaverin virðast veðja á unga markhópa með obb- anum af framleiðslu sinni, hefur ekki síst verið teflt fram ungst- irnum af karlkyni. Þetta virðist sumsé vera að breytast. Nokkrar ungar leikkonur eru nú taldar geta borið uppi bíómynd. Ekki er víst að þið getið greint þær allar hverj- ar frá annarri, þekkt andlitin eða nöfnin. En sumar skína skærar eða aðrar. Æ fleiri Hollywood-handrit hafa ung kvenhlutverk í sjónarmiðju, hlutverk stúlkna sem ekki láta segja sér fyrir verkum og kalla ekki allt ömmu sína. En þróunin nær einnig út fyrir slík handrit. Tökum dæmi af grínsmellinum American Pie 2. Þar eru ungir karlar í framlínunni; einn aðalauli og þrír aukaaular honum til full- tingis og allir eru þeir gangandi hormónasprengjur. En þessir náungar eru ekki gerendur at- burðarásarinnar þótt þeir séu í að- alhlutverkum. Gerendurnir eru stúlkurnar í aukahlutverkunum; Ungar, baráttu- glaðar og ríkar Þær koma hver á eftir annarri upp á tjaldið, ungar og flottar og nógu hæfileikaríkar til að fá eitt tækifæri þar. Fæstar eiga afturkvæmt og enn færri verða alvöru leikkonur fullorðinsmynda, skrifar Árni Þórarinsson. En í Hollywood er samt að myndast kjarni ungra kven- stirna sem eru að festa sig í sessi og maka krókinn. Rekur eigið framleiðslufyrirtæki: Alicia Silverstone. Biður um milljón dollara fyrir hlutverkið: Mena Suvari. Reuters Tvær við toppinn: Rachael Leigh Cook og Tara Reid, ásamt Rosario Dawson, leika í Josie And the Pussycats, sem fjallar um kvennarokksveit. Ekki í vandræðum: Jennifer Love Hewitt. Situr loks undir stýri í lífi sínu: Drew Barrymore. HLUTVERK fyrir svartarleikkonur í Holly-woodmyndum hafa gegn- um tíðina oftast verið feitar vinnu- konur eða bosmamiklar gleðikonur. Á tímum svörtu has- armyndanna („blaxploitation“), sem nutu mikilla vinsælda á 8. áratugnum, fengu þær bitastæð- ari hetjuhlutverk, leikkonur eins og hin frábæra Pam Grier, sem sneri aftur með eftirminnilegum hætti í hlutverki Jackie Brown hjá Quentin Tarantino fyrir fáum ár- um. Þarna urðu Bandaríkjamenn af afrískum rótum runnir að sér- stökum markhópi. Nokkrar blakkar leikkonur hafa auðvitað fengið góð tækifæri vestra á grundvelli hæfileika sinna, en þær hafa verið und- antekingar. Nægir þar að nefna Whoopi Goldberg og Angela Bas- sett. Þær ungu, sem nú eru að ryðja sér til rúms, eru leikkonur á borð við Halle Berry, sem m.a. sást hér nýlega í einu aðal- hlutverkanna í þeim fjarstæðu- kennda trylli Swordfish á móti John Travolta og Hugh Black- man, og Thandie Newton, sem fædd er í Sambíu en alin upp í Bretlandi og sló sér upp með Tom Cruise í Mission Impossible 2. Í Bretlandi fylgjast menn grannt með uppgangi Orlessa Atlass, sem leikur eitt aðalhlutverkanna í nýrri mynd, SW9. Framleiðandi þeirrar myndar, Allan Niblo, segir það hreint út að ástæða þess hversu fáar blakkar leikkonur sjá- ist í venjulegum markaðsmyndum sé „rasismi í kvikmyndaiðn- aðinum. Sölufulltrúar og dreifing- araðilar trúa því að þeir geti ekki selt mynd sem hefur blakka leik- Nú er það svart Á uppleið: Thandie Newton ásamt Tom Cruise. Á uppleið: Halle Berry. Öll ungu, ríku og baráttuglöðu kven- stirnin í Hollywood, sem fjallað er um hér, eru hvít. Þetta eru þær hæst- launuðu. En þá er ekki aðeins ógetið ungra, latneskra leikkvenna eins og Jennifer Lopez og Salma Hayek, sem fest hafa sig í sessi vestra, heldur einnig nokkurra af blakka kynstofn- inum. Þær njóta líka aukinnar vel- gengni. En það stafar tæplega af sigri jafnréttisbaráttunnar í Hollywood, heldur miklu frekar af markaðs- hópahugsun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.