Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 B 5 OD DI H F H 79 79 73.900 kr. stgr. Kæli- og frystiskápur KG 31V420 Nýr glæsilegur skápur. 190 l kælir, 90 l frystir. H x b x d = 175 x 60 x 64 sm. 79.900 kr. stgr. Eldavél HL 54023 Keramíkhelluborð, fjórar hellur, fjölvirkur ofn, létthreinsun. 64.900 kr. stgr. Bakstursofn HB 28024 Fjölvirkur bakstursofn með létthreinsikerfi. Sannkallaður gæðaofn frá Siemens. 14.700 kr. stgr. Nýr þráðlaus sími Gigaset 4010 Classic Númerabirtir. DECT/GAP-staðall. Einstök talgæði. Siemens færir þér draumasímann. 49.900 kr. stgr. Helluborð ET 72654EU Keramíkhelluborð með áföstum rofum. Flott helluborð á fínu verði. 59.900 kr. stgr. Þvottavél WXB 1060BY Frábær ný rafeindastýrð þvottavél á kostakjörum. 1000 sn./mín. 9.900 kr. stgr. Ryksuga VS 51B22 Kraftmikil 1400 W ryksuga, létt og lipur, stiglaus sogkraftsstilling. 64.900 kr. stgr. Uppþvottavél SE 34234 Ný uppþvottavél. Einstaklega hljóðlát og sparneytin. Fjögur þvottakerfi, tvö hitastig. Umboðsmenn um land allt. ÉG VAR að lesa um þáBakkavararbræður, að égheld í öllum blöðum umsíðustu helgi. Og þótt víð-ar væri leitað. Þetta eru menn að mínu skapi. Vaxa upp úr engu, beita hyggjuviti og frumkvæði og eru orðnir stórgrósserar áður en þeir vita af. Og án þess að þjóðin viti af. Það var ekki fyrr en þeir keyptu sig inn í grísk-breska verslunar- keðju, (svona með annarri hendinni), sem þjóðin hrökk upp við það að þetta væru stærstu kaup sinnar teg- undar sem Íslendingar þekktu til. Það er gaman að þessu og ég óska þeim til hamingju, bræðrunum. Þó eru þeir ekki einu sinni orðnir fer- tugir! Hvað var ég að gera á þeirra aldri? Af hverju fann ég ekki upp á því að selja hrogn? Það var nóg af hrognum í þá daga og maður hefði jafnvel getað fengið þau fyrir ekki neitt, vegna þess að útgerðin nennti yf- irleitt að ekki að hirða innyflin og öllu gumsinu hent í sjóinn. Enda var þetta löngu fyrir kvóta! Svo eru þess- ir menn orðnir bullandi ríkir, kvóta- lausir strákar úr Bakkavörinni. Enn og aftur til hamingju. Ekki er ég að öfunda þá, þegar ég segi að það hefði verið skömminni skárra að halda sig við hrognin og innyflin á mínum ungdómsárum heldur en hitt, að hanga niðri á Alþingi (sem var mín atvinna) og lepja dauðann úr skel. Maður var varla matvinnungur í þingmennskunni. Ef ég bara hefði, já ef ég bara hefði … Já, það er margt sem sjá má eftir og það er einmitt vandinn við það að vera vitur eftir á. Maður veit aldrei sína ævina fyrr en öll er. Og þá er of seint að iðrast. Ekki það að mér hefði sennilega aldrei dottið í hug að græða á hrogn- unum og sjálfsagt ekki talið það nógu menntað fyrir mig, enda með há- skólapróf upp á vasann, sem hefur reynst mörgum manninum dýrkeypt í lífsbaráttunni. Þá verða menn of fínir fyrir slorið. Ég hef líka tekið eftir því, að þeir skólabræður mínir, frá því í gamla daga, sem annaðhvort nenntu ekki eða gátu ekki eða vildu ekki ganga langskólaveginn, hafa yfirleitt plum- að sig betur á lífsleiðinni en við hinir, sem héldum að skólagráður væru lykillinn að auðlegðinni. Að minnsta kosti ef miðað er við efnahag og af- komu og vergar þjóðartekjur. Hitt er aftur annað mál, hvernig okkur líður eða vegnar, þegar kemur að öðru en buddunni einni saman. Það er jú rétt að það er erfitt að vera fátækur en ég held að það sé ekki minni vandi að vera ríkur. Þetta get- ur verið djöfuls púl að koma sér í efni. Það er ónæði að því og fyrirhöfn að mæta sífellt til vinnu, vera í vinnunni, hugsa um vinnuna, hafa áhyggjur af afkomunni, sökkva sér í debet og kredit og hafa fyrir því að verða ríkur. Og svo þegar millj- ónirnar eru loksins í höfn, þá minnka ekki áhyggjurnar vegna þess að það er ekki sama hvað gert er við auðinn. Ímyndið ykkur áföllin og andvök- urnar, þegar hlutabréfin taka að lækka á verðbréfamarkaðnum og engum vörnum verður við komið. Ég frétti um daginn af manni, sem tapað hefur rúmlega hundrað og fimmtíu milljónum króna, við það eitt að hlutabréfin hrundu. Og þó gerði hann ekkert annað af sér en að sitja heima í sófanum og horfa upp á þessi ósköp. Með hendur í skauti. Svo er hitt, sem er dálítið skrítið. Um leið og maður er orðinn ríkur af einhverju, hvort heldur peningum, börnum, fasteignum eða árangri á einhverju sviði, þá leitar hugurinn sí- fellt á önnur mið. Einhverju sem maður hefur ekki. Grasið er alltaf grænna hinum megin lækjarins. Auðurinn getur verið jafnmikið tómarúm og allsleysið, ef maður kann ekki með peningana að fara, eða veit ekki hvað gera skal við þá. Ég tala nú ekki um, ef öll önnur lífs- fylling hangir á horriminni, af því viðkomandi kann ekkert og veit ekk- ert nema það sem snýr að því að eignast peninga. Ekki það að mér finnist þau súr, eplin hjá þeim í Bakkavör, eða ég sé að öfundast út í gott gengi þeirra bræðra. Öðru nær, mér sýnist og heyrist á öllu að þeir kunni bæði að græða og gefa, hagnast og njóta þess sem þeir hafa unnið til. Ég er bara að reyna að segja, að ekki er allt gull sem glóir og ham- ingjan geti leynst víðar og í fleiru en því sem felst í bókhaldinu. Ég er eig- inlega að koma þeim skilaboðum á framfæri til ykkar, allra hinna, sem ekki hafið dottið í lukkupotta auð- legðarinnar, að auðurinn er af- stæður. Enga öfund, takk fyrir. Þið eruð líka rík. Mamma sagði alltaf: minn auður felst í afkomendunum. Ætli ég reyni ekki að halda mig við þessa kenn- ingu, sjö barna faðir í álfheimum. Einhvern veginn verður maður að réttlæta þau mistök að verja bestu árum ævi sinnar í hangs og hégóma, í stað þess að græða á gargandi snilld og spekúlasjónum, meðan maður er nógu fífldjarfur til að takast á við æv- intýrin, sem verða til í Bakkavörum og Bónusum, allt í kringum landið. Og lenda svo í hópi Bakkabræðra fyrir vikið. Eða eins og sagt var um Lata Geir: Lá þar fram á lækjarbakka lá þar til hann dó vildi ekki vatnið smakka var hann þyrstur þó. Auðna manns og örlög ráðast ekki af ytri aðstæðum, nema að litlu leyti. Hvort heldur í auðlegð eða hamingju. Þau eru undir því komin að nýta þau tækifæri sem gefast, ráða sinni eigin för, grípa gæsina þegar hún gefst. Opna fyrir sólargeislana og hleypa þeim inn. Það var einmitt það sem þeir gerðu, bræðurnir úr Bakkavör, meðan bræðurnir frá Bakka, Gísli, Eiríkur og Helgi, og við öll hin höfum verið að bera inn sólskinið, í staðinn fyrir að opna upp á gátt. Meira þarf nú ekki til. Það hafa þeir sýnt fram á, þessir dugnaðarforkar, sem eru að leggja undir sig heiminn í krafti hrognanna, sem hent var í sjóinn, þegar aðferðir Bakkabræðra tíðk- uðust hér á landi. Það er ekki sama hvort maður kemur frá Bakka eða Bakkavör. HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Ellert B. Schram ebs@isholf.is Frá Bakka í Bakkavör Teikning/Andrés

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.